Morgunblaðið - 05.10.2021, Side 29

Morgunblaðið - 05.10.2021, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2021 Kolbeinn Jón Ketilsson tenórsöngv- ari kemur fram ásamt Antoníu Hev- esi píanóleikara á hádegistónleikum í Hafnarborg sem hefjast kl. 12 í dag. Kolbeinn átti upprunalega að koma fram á hádegistónleikum Hafnarborgar fyrir ári en þar sem hann er búsettur í Noregi þurfti að fresta tónleikunum vegna veiru- faraldursins. Á tónleikunum í dag, sem bera yfirskriftina Ást og ham- ingja, flytur Kolbeinn sönglög eftir tónskáldin Lehár, Salvatore Card- illo, Ernesto de Curtis og Árna Thorsteinsson. „Það eru ástin og hamingjan í sín- um margvíslegustu myndum,“ segir Kolbeinn þegar spurt er um út- gangspunktinn í valinu á lögunum. „Við erum með íslenska ást, þýska og ítalska, það er kannski fróðlegt að bera það saman.“ Þegar spurt er hvort það sé mikill munur á ástarsöngvum þessara landa svarar hann að í þessu pró- grammi sé íslenska ástin líklega al- varlegust, í þýsku ástinni sé slegið á léttar nótur en í þeirri ítölsku sé grunnt á dramatíkinni. „Ég hef sungið þessi lög oft en það er nú orðið langt síðan og mér finnst mjög gaman að rifja þau upp. Mér finnst ég syngja þau nú með allt öðr- um hætti en ég gerði í „denn“,“ segir Kolbeinn. „Nálgunin er jú öðruvísi, ég hef vonandi ekki bara elst heldur þrosk- ast eitthvað líka.“ Hefur verið þurrabúðarvist Undanfarin fimm ár hefur Kol- beinn verið búsettur í Drammen í Noregi og það var framan af nóg að gera í tónlistinni hjá honum, þar til heimsfaraldurinn stöðvaði allt tón- leikahald. Þar á meðal segir hann þessum tónleikum í Hafnarborg hafa verið frestað tvisvar. „Við erum mjög ánægð með að hafa loksins náð saman. Undanfarið eitt og hálft ár hefur allt verið lokað, bæði óperuhús og tónleikasalir. Þetta hefur verið talsverð þurra- búðarvist, hjá okkur sjálfstætt starf- andi tónlistarmönnum hefur verið hart í ári. Ég hef bara sungið fyrir spegilinn og reynt að gera eitthvað annað, hef verið að dunda mér við smíðar og eitt og annað.“ Hvað varðar stöðuna í tónlistinni nú segir Kolbeinn að sem betur fer sé eins og himnarnir séu að opnast. „Maður sér til sólar og það eru spennandi tímar fram undan, í alls konar verkefnum. Ekki bara í óperu heldur eru það líka tónleikar og blönduð verkefni sem verður mjög gaman að fást við,“ segir hann og bætir við að verkefnin séu bæði í Noregi og á Íslandi. Kolbeinn Jón lauk burtfararprófi frá Nýja tónlistarskólanum og síðar frá Tónlistarháskóla Vínarborgar. Hann hefur sungið í óperettum og einnig mörg veigamikil tenórhlut- verk óperubókmenntanna. Hann hefur til að mynda komið fram í óperuhúsum á öllum Norðurlönd- unum, í Norður-Ameríku og víðs vegar um Evrópu, meðal annars í München, París og Genf. efi@mbl.is Ljósmynd/Hólmar Hólm Hamingjusöngvar Antonía Hevesi píanóleikari og Kolbeinn Jón Ketilsson tenór koma fram á tónleikunum í dag. Ást í marvíslegum myndum - Kolbeinn Jón Ketilsson syngur á hádegistónleikum í Hafnarborg í dag - Segist syngja lögin öðruvísi núna Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Þórarinn Eldjárn hefur verið afar afkastamikill rithöfundur og þýð- andi á undanförnum árum og ára- tugum. Nýjasta verk hans er smá- sagnasafnið Umfjöllun sem kom út fyrir stuttu. Það hefur að geyma átta mislangar sögur sem Þórarinn segir vera úr ólíkum áttum en þó megi segja að í þeim flestum verði ákveðin umpólun eða umfjöllun. Þórarni er umhugað um íslenska tungu og þykir gott að geta sýnt börnum hvað hægt sé að gera margt skemmtilegt með tungumálið. Það sé meðal þess sem vaki fyrir honum þegar hann yrkir fyrir börn. Hann hefur unnið mikið með systur sinni Sigrúnu Eldjárn við gerð mynd- skreyttra ljóðabóka fyrir börn og nú síðast kom út bókin Rím og roms. Þórarinn hefur lengi haft rit- störfin sem sitt aðalstarf og þykir það fráleit hugmynd að rithöfundur hætti að vinna, það væri eitthvað sorglegt við það. Hann segir það að ganga út frá húmor sé grundvallar- afstaða en þurfi ekki að þýða algjört alvöruleysi. Það sé aðferð til þess að taka á ýmsum málum á annan hátt en annars væri hægt. Það hafi alltaf fylgt honum og sé ómeðvitað sú af- staða sem henti honum best. Kannski alltaf með ritstíflu Til þess að koma sér í réttar stell- ingar við skrifin segir Þórarinn að kaffi hafi sannað sig. Sér þyki gott að skipta um umhverfi og svo sé lest- ur einna besta tólið til þess að finna innblástur. Þórarinn segist grípa til skálda, sem hann vill ekki upplýsa hver eru, þegar hann vantar inn- blástur, skáld sem hann kallar start- ara. Það séu skáld sem hafi skrifað eitthvað sem honum finnist snjallt og vildi jafnvel hafa sagt sjálfur. „Þetta kveikir oft í manni, það fer eitthvað í gang,“ segir skáldið. „Þetta sem kallað er ritstífla sem margir höfundar lýsa og sumir eru mjög óttaslegnir við, ég þekki það ekki. Nema kannski á þann hátt að ég hafi alltaf verið með ritstíflu og aldrei þótt þetta auðvelt,“ segir Þór- arinn. Galdurinn við yrkingar á hátt- bundnu formi sé að allt líti út eins og það hafi orðið til af sjálfu sér. „Það hefur stundum verið sagt við mig og um mig að þetta sé ekki merkilegt því málið yrkir sjálft. Það er þá af því eitthvað rennur voðalega létt en á bak við slíkt eru oft hræðilegar pælingar, útstrikanir og breytingar. Ef maður myndi hleypa fólki inn á verkstæðið kæmi ýmislegt í ljós sem mörgum myndi bregða við að sjá. Því oft eru miklar þrautir og raunir á bak við það sem lítur sléttast og felldast út.“ Þórarinn er gestur Dagmála, við- talsþáttar sem aðgengilegur er áskrifendum Morgunblaðsins á vefnum mbl.is. Þar ræðir hann með- al annars um áhugann á hinu forna, húmorinn, langhlaup og hið skemmtilega orð „bobbborð“. Íslenska tungan er skemmtileg - Nýtt smásagnasafn Þórarins Afkastamikill Þórarinn les ljóð eft- ir ákveðin skáld sér til innblásturs.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.