Morgunblaðið - 19.10.2021, Side 8

Morgunblaðið - 19.10.2021, Side 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2021 Það er margt sem gerir meiri- hluta borgarstjórnar svo ótrúverðugan. Það sem hrópar hæst er hve fátt var að marka heitstrengingarnar hingað til. - - - Örfáum vikum fyrir síðustu kosningar lofaði Dagur að verða við kröfum foreldra um lausn í leik- skólamálum fyrir sumarið. Loforðið það gufaði upp strax eftir kosningar. - - - Næst stóð hann glaðbeittur og lofaði því að setja „Miklu- braut í stokk“ á kjörtímabilinu sem senn er liðið. Rétti upp hönd sem sér grilla í stokkinn. - - - Síðast í gær sagði hann umferð- ina á Miklubraut koma í veg fyrir fjölgun íbúða en sveltið ýtir eignaverði upp í hæstu hæðir. Í átta ár hefur dellumálið „borg- arlína“ átt að bjarga öllu „á næstu árum“. Hún er engu nær, senni- lega sem betur fer. - - - En þrátt fyrir að loforðaflaum- ur hafi árum saman ekki skilað neinu hefur meirihlutanum „tekist“ að koma fjármálum borg- arinnar í algjört óefni. - - - Þótt allir gjaldstuðlar séu keyrðir upp í topp og þannig þrengt að kaupgetu borgarbúa hækka skuldir borgarinnar dag frá Degi. - - - Stjórnleysið, forystuleysið og samviskuleysið gagnvart margþvældum sviknum loforðum gefa borgarbúum minni en enga von um að úr muni rætast í bráð nema kjósendur grípi inn í. Dagur B. Eggertsson Fór Miklabraut í eldspýtustokk? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Fram undan er að endurbyggja sjó- varnargarð við Ánanaust í Reykja- vík og hefur útboð á verkinu verið auglýst. Tilboð verða opnuð 5. nóv- ember, en stefnt er að því að fram- kvæmdir geti hafist í nóvember og ljúki í síðasta lagi í lok apríl 2022. Þegar vinnu við garðinn lýkur verða hjóla- og göngustígar með- fram honum endurgerðir en það verk er enn í hönnun og deiliskipu- lagsferli, samkvæmt upplýsingum frá borginni. Framkvæmdin við sjóvarnargarð- inn er á vegum umhverfis- og skipu- lagssviðs Reykjavíkurborgar og felst í upprifi og endurbyggingu sjó- varnargarðs. Hann verður um 480 metra langur og nær frá hringtorgi á mótum Hringbrautar og Ána- nausta í vestri að kverk landfyll- ingar við Fiskislóð 1 í austri. Fram kom í Morgunblaðinu í vor að um væri að ræða framhald fyrri áfanga en sjóvarnargarður við Eiðs- granda var endurbættur síðasta vet- ur. Á síðustu árum hefur sjór nokkr- um sinnum farið yfir eldri varnar- garð og meðal annars inn á athafna- svæði Sorpu í Ánanaustum. Morgunblaðið/Eggert Strönd Strandlengjan við Ánanaust þar sem reisa á nýjan sjóvarnargarð. Sjóvarnargarður endur- byggður við Ánanaust Úrskurðarnefnd velferðarmála lagði ekki fullnægjandi mat á umönnunar- þörf fatlaðs barns þegar hún staðfesti ákvörðun Tryggingastofnunar sem hafði synjað foreldrum þess um hækkun á umönnunargreiðslum. Þetta kemur fram í áliti umboðs- manns Alþingis, sem segir að úr- skurður úrskurðarnefndar velferðar- mála í málinu hefði ekki verið í samræmi við lög. Fram kemur að for- eldrar drengs sem greindur er með Downs-heilkenni, þroskahömlun og ADHD hafi sótt um nýtt umönnunar- mat fyrir hann sem hefði falið í sér hærri greiðslur þeim til handa. Fyrir lágu gögn frá sérfræðingum um að þörf hans fyrir aðstoð hefði vaxið með aldrinum. Úrskurðarnefnd velferðarmála taldi að þótt umönnunin hefði eitt- hvað þyngst frá fyrra mati væru ekki skilyrði til að hækka greiðslurnar og staðfesti þannig ákvörðun Trygg- ingastofnunar í málinu, að því er fram kemur á vef umboðsmanns. Umboðsmaður benti á að það ákvæði reglugerðar sem á reyndi fæli í sér tvö sjálfstæð og jafnframt val- kvæð skilyrði um umönnunarþörf. Nefndin hefði eingöngu tekið afstöðu til þess hvort umsóknin hefði uppfyllt skilyrði um að þörf væri á yfirsetu foreldris heima eða á sjúkrahúsi en ekki hvort skilyrði um að aðstoð við flestar athafnir daglegs lífs gæti átt við. Í vottorði læknis hefði komið fram að þörf drengsins fyrir umönn- un væri verulega aukin og hann þyrfti gæslu og stýringu í öllum aðstæðum. Þá hefði þroskaþjálfi viðkomandi sveitarfélags lagt til að umönnunar- mati yrði breytt og greiðslur þar með hækkaðar þar sem umönnun hefði þyngst mikið frá síðasta mati. Að áliti umboðsmanns hefði verið tilefni til að taka efnislega afstöðu til þessara gagna og upplýsinga. Ófullnægjandi mat á umönnunarþörf - Umboðsmaður Alþingis setur ofan í við úrskurðarnefnd velferðarmála

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.