Morgunblaðið - 19.10.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.10.2021, Blaðsíða 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2021 Ég hef verið að kanna heimilisþrif fyrir eldra fólk á höf- uðborgarsvæðinu og skrifaði grein í tengslum við þá könn- un sem birtist í Morgunblaðinu 2. október sl. með yfir- skriftinni „Vanda skal til verka“. Tilgang- urinn var að brýna stjórnmálamenn til að fylgjast bet- ur með þessum málaflokki. Hringdi ég í nokkra yfirmenn sem eru yfir flokknum heimilisþrif hjá bæjarfélögum. Eftirfarandi eru svör þeirra við spurningum mín- um: Hafnarfjarðarbær Herdís Hjörleifsdóttir svaraði. Hvaða gögn þurfa að fylgja um- sókn um heimilisþrif? Læknisvottorð. Þegar umsókn hefur borist ásamt læknisvottorði, hvert er þá næsta þrep í ferlinu? Farið yfir umsókn af deild- arstjóra og hans aðstoðarfólki. Hvað felst í heimilisþrifum? Almennt þrif á gólfum og bað- herbergi. En hvað um að þurrka af hús- gögnum og skipta á rúmum? Það er hægt að biðja um það sérstaklega. Hvað tekur langan tíma frá því að umsókn berst þar til þjónusta er veitt? Sjö til tíu dagar almennt, gæti farið upp í þrjátíu daga. Er skortur á starfs- fólki í heimilisþrif? Það kemur fyrir, þó helst þegar sumarfrí eru. Er hægt að sækja um niðurfellingu á gjaldskrá ef viðkom- andi þjónustuneyt- endur eru eingöngu með laun frá Trygg- ingastofnun? Það er tekið til at- hugunar. Herdís svaraði mér að Hafnarfjarðarbær leitaðist alltaf við að mæta öllum þörfum þess sem á heimilishjálp þyrfti að halda, t.d. væri hægt að óska eftir að fá daglega aðstoð við að þvo upp leirtau eða setja í upp- þvottavél. Við spurningu minni hvað tæki langan tíma frá umsókn þar til umbeðin þjónusta væri veitt var svar hennar sjö til tíu dagar. Einnig að gjaldskrá væri tekju- tengd. Mosfellsbær Sigurlaug Hrafnkelsdóttir gaf mér eftirfarandi svör við spurn- ingum mínum, sem voru sömu og áður hafa komið fram. Læknisvottorð og útfyllt umsókn þarf að berast, hægt að útfylla raf- rænt. Fjölskyldusvið fer yfir gögn- in á fundi, síðan er hringt í um- sækjandann og fundinn tími sem hentar honum og fulltrúa frá fjölskyldusviði, sem kemur heim til umsækjanda og metur hvaða þrif skuli veita. Þjónustan hefst eftir þrjátíu daga en getur þó tekið lengri tíma, fer eftir hvað margir eru á biðlista. Fyrst er samningur gerður í sex mánuði, að þeim tíma liðnum er samningur endurskoðaður og um- sækjandi þarf þá að endurnýja umsókn. Heimilisþrif eru að öllu jöfnu veitt í tvær klukkustundir á hálfs mánaðar fresti. Í heimilisþrifum felst: Öll gólf innan íbúðar þrifin, baðherbergi þrifið, rusl fjarlægt, ryk þurrkað, skipt á rúmum og óhrein rúmföt sett í þvottavél. Reynt að mæta þörfum umsækjanda eftir fremsta megni. Ef maki er til staðar þarf hann ekki að taka þátt í þrifum nema hann óski þess. Greiðsla fyr- ir heimilisþrif er ekki tekjutengd í Mosfellsbæ, en er 794 krónur á klukkustund. Seltjarnarnesbær Anna Kristín Guðmarsdóttir deildarstjóri svaraði spurningum mínum af mikilli alúð. Gjaldskrá þeirra er launa- og af- komutengd. Öll almenn þrif á heimilum eru veitt í gegnum heim- ilisþrif. Brugðist við strax eftir þörf þeirra sem þurfa á heim- ilisþrifum að halda hverju sinni. Ekki skortur á starfsfólki, allir tala og skilja íslensku sem vinna við heimilisþrif hjá Seltjarnarnes- bæ. Sjaldan mannaskipti í stétt- inni, en ef nýr aðili kemur inn þá fer vanur starfsmaður með honum í eina viku til að koma honum inn í starfið. Þvegin eru gólf, ryk þurrk- að af húsgögnum, myndum o.s.frv., skipt á rúmum, sett í þvottavél, matarílát þvegin eða sett í upp- þvottavél, gluggatjöld tekin niður ef þarf og farið með í þvottahús og sótt. Fyrir jól er aukin þjónusta, hjálpað við allt sem hægt er eftir óskum þjónustuþega til að gera jólalegt, eins og vera ber á hverju heimili. Starfsmenn eru vakandi yfir hvað betur megi fara og láta deildarstjóra vita, sem bregst þá við og bætir úr. Þegar ég spurði hvort væri ætlast til að maki tæki þátt í heimilisþrifum svaraði Anna mér að ef maki vildi halda færni sinni við á því sviði væri það hans frjálsa val. En einnig notfærir maki sér að fara í sturtu eða skreppa út meðan starfsmaður er á staðnum. Maki er frjáls ein- staklingur, sem nýtir tíma sinn á þann hátt sem honum hentar með- an starfsmaður heimilisþrifa er á staðnum. Garðabær Þóra Gunnarsdóttir svaraði spurningum mínum. Undanþegnir gjaldskyldu eru þeir þjón- ustuþegar sem hafa eingöngu lág- marksframfærslu Tryggingastofn- unar auk lífeyrissjóðstekna kr. 25.000. Frítekjumark er því kr. 360.000. Þeir sem telja sig und- anþegna gjaldskyldu skv. þessari grein þurfa að skila inn upplýs- ingum um allar tekjur, þ.m.t. fjár- magnstekjur. Gjaldflokkur I: Hús- næði 100 fm og minna. Þrif á gólfum og baðherbergjum. Kr. 920/skipti. Gjaldflokkur lI: Þrif á gólfum og baðherbergjum og önn- ur verkefni skv. þjónustumati. Kr. 1.400/skipti. Gjaldflokkur III: Hús- næði 100-150 fm. Þrif á gólfum og baðherbergjum. Kr. 1.400/skipti. Gjaldflokkur IV: Húsnæði 100-150 fm. Þrif á gólfum og baðher- bergjum og önnur verkefni skv. þjónustumati. Kr. 2.100/skipti. Gjaldflokkur V: Húsnæði 150 fm og stærra. Þrif á gólfum og bað- herbergjum. Kr. 2.100/skipti. Gjaldflokkur VI: Húsnæði 150 fm og stærra. Þrif á gólfum og bað- herbergjum og önnur verkefni skv. þjónustumati. Kr. 2.795/skipti. Þrif eru almennt innt af hendi aðra hverja viku. Aðstoð við almenn heimilisþrif takmarkast við þau herbergi sem eru í daglegri notkun þjónustuþega, s.s. eldhús, salerni, ganga, svefnherbergi, stofu og borðstofu. Aðstoð getur falist í ryksugun/þurr- og blautmoppun gólfa, þrifum á baðherbergi, þ.e.a.s. vaski, salerni, baðkari og/ eða sturtu. Afþurrkun, aðstoð við almenna tiltekt, rúmfataskiptum, aðstoð við þvott. Almennt er ekki veitt aðstoð við þrif á sameign, gluggaþvott, gluggatjaldaþvott og uppsetningar á gluggatjöldum, að strauja þvott, fægja silfur eða stórhreingerningar. Þakka ég öllum svarendum mín- um áðurnefndum fyrir svör þeirra, allir svöruðu af kurteisi. Ég þakka einnig þeim sem hafa haft samband við mig og þakkað mér fyrir fyrri grein mína, sem birtist í Morgunblaðinu 2.10. 2021 Ef eldra fólk á að búa lengur heima skal vanda til verka þegar aðstoð er veitt. Kæru fulltrúar á Alþingi, von- andi lesið þið þessa grein og skoð- ið hvað er hægt að bæta í heim- ilisþrifum hjá eldra fólki. Eftir Hjördísi Björgu Krist- insdóttur »Ef eldra fólk á að búa lengur heima skal vanda til verka þeg- ar aðstoð er veitt. Hjördís Björg Kristinsdóttir Höfundur er eldri kona. Er þessi aðstoð nóg? CO2 (kolefnistvíildi) er skaðlaus loftteg- und, sem er örsmár hluti af lofthjúpi jarð- ar, um 0,040%. Aðrar helstu lofttegundirnar eru köfnunarefni, sem er langstærsti hlut- inn, 78%; súrefni (O), 21%; vatnseimur (H2O), 2-4%, og argon (Ar), 0,9%. Fyrir árið 1945 var CO2 (koltvíildi) nokkuð yfir 0,030%, eða um 30 mólekúl í hverjum 100.000 mólekúlum innan lofthjúpsins. Í tímans rás Með því að rýna lög í bor- kjörnum, sem fengnir hafa verið úr íshellunum á Grænlandi og suð- urskautinu, hafa vísindamenn lesið m.a. ástand og samsetningu loft- hjúps jarðar hundruð þúsunda ára aftur í tímann. Í ísnum eru loft- bólur, sem unnt er að nýta til greiningar á magni einstakra þátta, þ.á m. koltvíildis, en einnig birta kjarnalögin atriði, sem t.d. lúta að hitastigi og í framhaldi loftslagi almennt á öllu því tíma- bili, sem þessar heimildir ná til. Þær niðurstöður, sem fengist hafa með þessum rannsóknum, hafa al- mennt ekki farið hátt í umræðu um loftslagsmál, enda stangast þær gjarnan á við þann áróður, sem hæst fer um t.a.m. hamfara- hlýnun og hlut manna í henni. Enginn neitar því, að loftslag á jörðinni breytist. Það hefur æv- inlega og ætíð gert það alla þá tíð, sem hún hefur verið til. Á fyrstu stigum tilveru sinnar var jörðin heit, en fyrir um tveimur millj- ónum ára hafði hún kólnað svo, að til komu ísaldir á hinu svonefnda Pleistocene-tímabili, sem stóð frá því fyrir um einni milljón ára til um það bil 20 milljónum ára fyrir nútíma. Á ísald- arskeiðunum féll hit- inn á jörðinni svo mjög, að þykkir jökl- ar huldu lönd á norð- urhveli og mynduðust einnig á suðurhveli, en með öðrum hætti þar vegna lítils land- massa. Þessir miklu jöklar skófu löndin, fáguðu berg og skildu eftir sig jökulruðn- inga. Enn sér víða merki þessara stór- fenglegu náttúruafla í t.d. Norður- Ameríku og suður eftir Evrópu. Eins og sést á línuritinu (mynd 1), sem sýnir niðurstöðu greininga á deuterium (þungt vetni) í Vo- stok-ískjarnanum, hafði hver ísöld nokkuð hægan aðdraganda, sem stóð í þúsundir ára. Hlýnunin var hins vegar hverju sinni furðulega snögg. Í ljós kom líka, að aukning koltvíildis í loftsýnum í ískjörn- unum varð ekki fyrr en að baki hlýnuninni hverju sinni. Á löngum tímaskala liðins tíma var lang- tímaseinkunin verulega mikil, eða svo að skipti hundruðum ára. Hún er lítt greinanleg á línuritum, sem ná hundruð þúsunda ára aftur í tímann, en kemur þó fram. Línurit þessi eru miklu of viðamikil til þess að birta þau í blaðagrein. Við 25°C inniheldur sjór 50 sinnum meira af koltvíildi en loft. Upptökugeta sjávar ræðst af hita- stigi. Kaldur sjór geymir meira af koltvíildi en heitur. Þegar sjórinn hitnar losnar koltvíildi úr honum og fer upp í andrúmsloftið, en þetta gerist á alllöngum tíma, af því að hafið er mun lengur að hitna en fastalandið. Þessi um- skipti eru mælanleg yfir skemmri tímabil en aldir og árþúsundir. Slíkar mælingar hafa vísindamenn tekið sér fyrir hendur og komist að raun um það, að einnig innan skemmri tímabila fylgir aukning koltvíildis hitnun loftslags og reyndar líka sjávar. Þetta kemur glögglega í ljós á línuritinu, sem hér er merkt „mynd 2“. Línuritið nær yfir þrjátíu ára tímabil í sam- tíðinni. Niðurstaða Eins og fram kemur á línurit- unum tveimur hefur í fyrsta lagi aldrei ríkt kyrrstaða í loftslagi á jörðinni, hvorki til langs né skamms tíma litið. Línuritið á mynd 1 sýnir ekki samspil tvíildis og hitastigs, en línurit um það at- riði eru til, enda hafa vísindamenn ígrundað þetta atriði líka í rann- sóknum sínum á loftslagi jarðar og breytingum á því og þá einnig samspili hitabreytinga og tvíildis í andrúmsloftinu. En vísindamenn hafa líka tekið styttri tímabil til athugnar, eins og fram kemur í línuritinu á mynd 2. Þar kemur greinilega í ljós, að magn koltvíildis í and- rúmslofinu eykst í framhaldi af auknum hita – aukningin fylgir, en kemur ekki á undan. Það virð- ist því nokkuð úr lausu lofti grip- ið að gera ráð fyrir því og reynd- ar halda því fram sem sannaðri niðurstöðu – gefandi henni þann heiðursstimpil að hún sé end- anleg og óumdeild – að aukning koltvísýrings valdi hitaaukningu, þegar niðurstaða vísindamanna er þveröfug. Vísindamenn segja einnig, að vatnseimurinn í andrúmsloftinu hafi mun gertækari áhrif á lofts- lag og þá hita á jörðinni en koltvísýringur. Þar berast böndin að sólinni sjálfri, sveiflum í seg- ulsviði hennar og áhrifum t.d. geimgeisla, skýjamyndun og út- geislun orkunnar frá sólinni frá skýjahulu og fleiru, en ekki að magni koltvísýrings. Ekki svo að skilja, að þau séu engin, en þau eru lítil á móti öðru, sem náttúr- an reiðir fram, og alls ekki hæfur grundvöllur ýmissa þeirra kostn- aðarsömu og róttæku ráðstafana, sem til er gripið í nafni þess að bjarga jörðinni frá loftslagsbreyt- ingum, sem líklegast er að séu ekki annað en óumbreytanlegur hluti af ferli hinnar máttugu nátt- úru, sem fer sínu fram, eins og hún alltaf hefur gert og mun ætíð gera. Eftir Hauk Ágústsson » Aukning koltvíildis fylgir hitaaukningu – kemur ekki á undan. Haukur Ágústsson Höfundur er fyrrv. kennari. Koltvíildi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.