Morgunblaðið - 19.10.2021, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2021
Fjölskylda Colins Powells tilkynnti í
gær að hann væri látinn, 84 ára að
aldri, af völdum kórónuveirunnar,
þrátt fyrir að Powell hefði verið full-
bólusettur, en hann glímdi einnig við
mergæxli. Powell var sonur innflytj-
enda frá Jamaíku, og gekk í herinn
árið 1958. Hann barðist í Víetnam-
stríðinu og sagði síðar að sú reynsla
hefði mótað skoðanir sínar á hernaði.
Powell reis fljótt til metorða innan
hersins, og árið 1989 varð hann for-
maður herráðs Bandaríkjanna og
gegndi þeirri stöðu til ársins 1993.
Powell mótaði þar m.a. stefnu
Bandaríkjanna og viðbrögð við inn-
rás Íraka í Kúveit 1990-1991.
Powell varð utanríkisráðherra í
ríkisstjórn George W. Bush árið
2001, og varð hann þar með fyrsti
blökkumaðurinn til að gegna þeirri
stöðu.
Í febrúar 2003 flutti Powell ávarp
fyrir öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna þar sem hann útlistaði hættuna
af gjöreyðingarvopnum sem Írakar
áttu að hafa komið sér upp. Ræða
Powells þótti mjög sannfærandi, en
síðar kom í ljós að hún byggðist á
gögnum sem ekki höfðu verið stað-
reynd.
„Þetta er svartur blettur … sem
verður alltaf á ferilskrá minni. Það
var sárt. Það er ennþá sárt,“ sagði
Powell við ABC-fréttastofuna árið
2005, en þá hafði hann yfirgefið
utanríkisráðuneytið.
Powell naut engu að síður virð-
ingar þvert á flokkslínur í Banda-
ríkjunum til dauðadags. Meðal
þeirra sem minntust hans í gær voru
George W. Bush, sem sagði hann
hafa þjónað landi sínu vel og Mitt
Romney. Þá sagði Lloyd Austin,
varnarmálaráðherra Bandaríkjanna,
að ómögulegt yrði að fylla það skarð
sem Powell skildi eftir sig.
Morgunblaðið/RAX
Á Íslandi Colin Powell tekur hér í
hönd Halldórs Ásgrímssonar, þá
utanríkisráðherra, árið 2002.
Powell látinn af
völdum Covid-19
- Naut virðingar þvert á flokkslínur
Kínversk stjórnvöld báru í gær til
baka frétt dagblaðsins Financial
Times, sem sagði frá því á laugar-
daginn að Kínverjar hefðu gert til-
raunir með ofurhljóðfráa eldflaug í
ágúst síðastliðnum.
Sagði Zhao Lijian, talsmaður kín-
verska utanríkisráðuneytisins, að
um hefði verið að ræða tilraun með
endurnýtanlega eldflaug sem gæti
dregið verulega úr kostnaði við
geimferðir í framtíðinni.
Vitað er að Kínverjar, Banda-
ríkjamenn og Rússar hafa allir ver-
ið að prófa sig áfram með ofur-
hljóðfráar eldflaugar, en þær
ferðast á minnst fimmföldum hljóð-
hraða. Þá sögðust Norður-Kóreu-
menn fyrr í haust hafa náð að
skjóta einni slíkri á loft.
Sagði í frétt Financial Times að
framgangur Kínverja í tækninni
hefði komið bandarískum leyni-
þjónustustofnunum að óvörum.
KÍNA
Segja frétt Financial
Times vera alranga
AFP
Tilraun Rússar sjást hér skjóta ofur-
hljóðfrárri eldflaug á loft fyrr í haust.
Mateusz Mora-
wiecki, forsætis-
ráðherra Póllands,
varaði við því í
gær að Evrópu-
sambandið gæti
liðast í sundur ef
stofnanir þess lytu
ekki „lýðræðis-
legri stjórn“.
Sagði Mora-
wiecki brýnt að verja fullveldi
aðildarríkjanna og sagði að Pólland
yrði áfram innan ESB. Pólverjar og
ESB hafa deilt að undanförnu og
fyrr í mánuðinum úrskurðaði
stjórnlagadómstóll Póllands að
hluti Evrópusáttmálanna bryti í
bága við stjórnarskrá landsins.
PÓLLAND
Varar við að ESB
geti liðast í sundur
Mateusz
Morawiecki
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra
Rússlands, tilkynnti í gær að Rússar
hefðu ákveðið að kalla sendifulltrúa
sína heim og loka skrifstofum Atl-
antshafsbandalagsins í Moskvu.
Lavrov sagði við blaðamenn í
Moskvu að eftir „vissar aðgerðir“
bandalagsins væru grunnskilyrði fyr-
ir samstarfi ekki lengur fyrir hendi.
Sendiskrifstofu Rússa í höfuðstöðv-
um Atlantshafsbandalagsins í Bruss-
el yrði því lokað frá og með 1. nóv-
ember næstkomandi. Í því fælist að
hernaðartengiliður Rússa gagnvart
bandalaginu yrði einnig kallaður heim
til Rússlands.
Rússar munu um leið loka skrif-
stofum bandalagsins í Moskvu, en þar
á meðal eru sendiskrifstofa sem hefur
starfað innan belgíska sendiráðsins
frá árinu 2002, sem og upplýsinga-
miðstöð bandalagsins, sem sett var á
laggirnar árið 2001 með það að mark-
miði að auka á gagnkvæman skilning
milli bandalagsins og Rússa.
Lavrov sagði að Atlantshafsbanda-
lagið hefði þegar dregið verulega úr
samskiptum sínum við sendiskrifstof-
una í Brussel, og sagði augljóst að
bandalagið hefði ekki áhuga á „sam-
tali og samvinnu sem jafningjar“.
Sagðist hann jafnframt ekki sjá
ástæðu til að láta sem nokkur breyt-
ing yrði þar á í náinni framtíð.
Bætti hann við að ef bandalagið
þyrfti nauðsynlega að eiga samskipti
við Rússa gætu þau farið í gegnum
sendiherra Rússlands í Belgíu.
Sendiskrifstofa Rússa hjá banda-
laginu var hluti af svonefndu NATO-
Rússlandsráði, sem átti að ýta undir
samvinnu þar sem sameiginlegir ör-
yggishagsmunir Rússa og bandalags-
ins væru fyrir hendi. Ráðið hefur hins
vegar ekki fundað frá árinu 2019.
Oana Lungescu, talskona banda-
lagsins, sagði að það vissi af ummæl-
um Lavrovs, en að enn hefði ekki bor-
ist opinber tilkynning frá Rússum um
málið. Heiko Maas, utanríkisráðherra
Þýskalands, harmaði hins vegar
ákvörðunina og sagði að hún myndi
ýta undir „köld samskipti“ milli Rúss-
lands og Atlantshafsbandalagsins.
Sendu átta manns heim
Ákvörðun Rússa er tekin í kjölfar
þess að Atlantshafsbandalagið ákvað
fyrr í mánuðinum að vísa átta fulltrú-
um þeirra á brott vegna meintra
njósna. Sagði Jens Stoltenberg, fram-
kvæmdastjóri NATO, við það tilefni
að bandalagið hefði tekið eftir aukn-
ingu á „skaðlegum aðgerðum“ Rússa
í Evrópu, og að því hefði verið ástæða
til að grípa til aðgerða á móti.
Sagði Stoltenberg jafnframt að
samskipti Rússa og Atlantshafs-
bandalagsins væru nú á versta stað
sem þau hefðu verið frá lokum kalda
stríðsins.
Loka skrifstofum NATO
- Sergei Lavrov segir grunnskilyrði fyrir samstarfi ekki lengur fyrir hendi
- Sendifulltrúar þeirra í Brussel kallaðir heim frá og með næstu mánaðamótum
AFP
Rússland Sergei Lavrov utanríkis-
ráðherra kynnti ákvörðun Rússa.
Félagar í vinasamtökum Bretlands
og Írans votta hér breska þing-
manninum David Amess, sem myrt-
ur var á föstudaginn, virðingu sína
við sérstakan minnisvörð sem sett-
ur hefur verið upp við breska þing-
húsið. Þingmenn minntust Amess í
gær með mínútu þögn þegar þing
kom saman eftir helgina.
Boris Johnson forsætisráðherra
sagði að Bretar myndu halda minn-
ingu Amess á lofti og að þeim sem
fremdu voðaverk sem þetta yrði
aldrei leyft að þagga niður í lýð-
ræðinu. Tilkynnti hann jafnframt
að Elísabet 2. Bretadrottning hefði
ákveðið að gera Southend,
heimabæ Amess, að borg, en hann
hafði barist fyrir því um nokkra
hríð. Þá hyggst ríkisstjórnin gera
umbætur á öryggi þingmanna.
Breska þingmannsins Davids Amess minnst innan þings sem utan
Southend
fær stöðu
borgar
AFP