Morgunblaðið - 19.10.2021, Page 28

Morgunblaðið - 19.10.2021, Page 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2021 Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þegar við Linda unnum að Íslands- bók barnanna þekktumst við ekki neitt fyrirfram, en í ljós kom að við vinnum mjög vel saman,“ segir Margrét Tryggvadóttir um samstarf þeirra Lindu Ólafsdóttur teiknara, en þær sendu nýverið frá sér bókina Reykjavík barnanna – Tímaflakk um höfuðborgina okkar þar sem stiklað er á stóru um sögu höfuðborgar- innar í máli sem Margrét skrifar og myndum sem Linda vinnur. „Við getum æst hvor aðra upp í brjáluðum metnaði, sem er auðvitað ekkert skynsamlegt þar sem vinnan tekur fyrir vikið alltof mikinn tíma,“ segir Margrét kímin og ljóstrar upp að Reykjavík barnanna sé búin að vera í bígerð síðan 2017 meðfram öðrum verkefnum. „Það sem er svo gefandi og skemmtilegt í samstarf- inu við Lindu er að hún finnur alltaf sínar lausnir,“ segir Margrét og rifjar upp að þær Linda hafi lagst í miklar vangaveltur um sögutímann. „Eitt af því sem er svo dásamlegt við myndir Lindu í þessari bók er að þær eru stútfullar af alls kyns fólki, þar sem hver einasti karakter er persóna þar sem skynja má ein- hverja baksögu viðkomandi sem ratar á pappírinn,“ segir Margrét og viðurkennir að vinnan við gerð bók- arinnar hafi falið í sér mikið púslu- spil við að koma öllu haganlega sam- an í eina heild. „Það var ákveðin áskorun að vera með þematískar opnur og á sama tíma með krónólóg- ískt flæði,“ segir Margrét. Í bókinni er meðal annars farið yfir það hvern- ig náttúran hafi breyst í borg, af hverju Reykjavík hafi orðið fyrir valinu sem höfuðborg landsins, sagt frá mannlífi og menningu, blokkum og bröggum, gatnakerfi og götulýs- ingu, skautasvellum og skolpræsum, útsýni og útivist og öllu mögulegu öðru sem finna má í Reykjavík. Draugagangur og skolpkerfið „Eðli málsins samkvæmt er sagan framan af fyrst og fremst bundin miðbænum. Mig langaði hins vegar til að draga öll hverfi borgarinnar inn í bókina og lögðum við mikið upp úr að öll börn í borginni geti fundið sig í bókinni og speglað sinn veru- leika,“ segir Margrét og tekur fram bókin sé auðvitað ætluð öllum börn- um landsins, þar sem Reykjavík sé höfuðborg allra. „Sjálf hef ég aldrei búið í Reykjavík,“ segir Margrét kímin og bendir á að hún hafi sótt skóla og vinnu í höfuðborginni frá 16 ára aldri. „Þannig að Reykjavík er líka borgin mín, enda hefur höfuð- borgin skyldu að gegna sem nær út fyrir íbúana.“ Margrét bendir á að þemanálgun bókarinnar bjóði upp á breiðan tíma. „Sem dæmi nær opnan um vatnið allt frá landnámi til nú- tímans með viðkomu í vatnsberum 19. aldar. Við erum þannig sífellt að teygja okkur fram og til baka á opn- um bókarinnar,“ segir Margrét og viðurkennir fúslega að í því felist góð áskorun sem henti þeim Lindu afar vel. „Þegar við gerðum Íslandsbók barnanna gerðum við bók sem við vorum báðar mjög ánægðar með, en ef við hefðum þekkst fyrirfram þá hefði sú bók orðið allt öðruvísi. Þeg- ar kom að nýju bókinni langaði okk- ur að móta verkefnið meira saman. Það skilaði miklu dýnamískari sköpunarferli þar sem við vorum að vinna textann og myndirnar samhliða og slípa efnið til. Textinn í Reykjavíkur- bókinni er lengri en í Íslandsbók- inni og hún er líka margfalt efnismeiri, ekki síst þar sem myndirnar segja meiri sögu í nýju bókinni,“ segir Margrét. Spurð hvaða kafla eða þema henni hafi sem höfundi fundist skemmti- legast að vinna og hvers vegna, svar- ar Margrét: „Mér fannst mjög margt mjög skemmtilegt. Sem dæmi fannst mér skemmtilegt að byrja bókina áður en fólk kom til sög- unnar,“ segir Margrét og bendir á að eitt af markmiðunum með bókinni sé að „það renni upp fyrir krökkum að hlutirnir eru eins og þeir eru af því að einhver ákvað að þeir væru akkúrat svona. Við getum alveg ákveðið að hlutirnir verði einhvern veginn öðruvísi. Markmiðið er því að efla lýðræðisvitund lesenda með því að gera þeim ljóst að umhverfið sem við fæðumst inn í er ekki óbreyt- anlegt, heldur er gerlegt að breyta því,“ segir Margrét en í ávarpi fremst í bókinni eru lesendur hvattir til að hafa skoðanir á því hvernig borgin þróist og senda borgar- fulltrúum skilaboð um það sem er gott og eins hvað mætti betur fara. „Fyrir utan leiðarstefið sem felst í breytingum og lýðræðisvitundinni fannst mér gríðarlega spenn- andi að skrifa um draugagang í borg- inni og skolpkerf- ið,“ segir Margrét og rifjar upp að í fjölskyldugöngu sem þær Linda hafi boðið upp á í seinasta mán- uði hafi börnin sem mættu átt bágt með að trúa því að í gamla daga hafi ræsin meðfram göt- unum verið full af skít í skolpinu sem rann frá húsunum og út í Tjörnina og þaðan út í sjó. „Skolpkerfið er hluti af innviðum borgarinnar sem eru ekki endilega sýnilegir, en skipta gríðar- lega miklu máli. Vegna innviðanna er borgin byggilegt svæði,“ segir Margrét og bendir á að Íslendingar hafi, í alþjóðlegum samanburði, ver- ið seinir til að koma upp vatns- og skolplögnum „vegna þess hvað fólki fannst þetta dýrt,“ segir Margrét og bendir á að borgarlínan sé hluti af innviðum 21. aldar. „Umræðan um lagnirnar á sínum tíma kallast þann- ig sterklega á við umræðuna um borgarlínuna í dag. Þetta eru auðvit- að risavaxnar framkvæmdir, en þetta er ekki eyðsla heldur fjárfest- ing sem tryggir okkur betra líf og sparar fjármuni til lengri tíma litið.“ Aðspurð segist Margrét hafa leit- að heimilda víða í skrifum sínum. „Heimildaskráin varð svo löng að hún er birt sem rafrænn viðauki undir nöfnum okkar Lindu og heiti bókarinnar á Rafhlöðunni,“ segir Margrét, en Rafhlaðan er rafrænt varðveislusafn Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns á vefn- um rafhladan.is. „Við leituðum mikið í stórvirkið sem er Saga Reykjavík- ur í sex bindum eftir Þorleif Ósk- arsson, Guðjón Friðriksson og Egg- ert Þór Bernharðsson,“ segir Margrét og bendir á að þær Linda hafi einnig legið yfir gömlum ljós- myndum. „Það er heilmikil áskorun að skrifa knappan texta því eftir því sem textinn er styttri þeim mun konsentreraðri eða eimaðri þarf innihaldið að vera til þess að efnið verði safaríkt. Ég nenni ekki að gera þurrar bækur þar sem allt kjöt á beinin vantar. Fjölskyldubækur verða að tala til breiðs hóps les- enda,“ segir Margrét sem býr að reynslunni við gerð bæði Íslands- bókar barnanna og Kjarvals – Mál- arans sem fór sínar eigin leiðir. „Ég hugsa bókina þannig að les- endur geti opnað hana hvar sem er og lesið smá hverju sinni. Draum- urinn hjá mér er að krakkar upp- götvi síðan einn daginn að þeir eru óvart búnir að lesa alla bókina,“ seg- ir Margrét. Spurð hvort þær Linda séu þegar farnar að leggja drög að næsta samstarfsverkefni, svarar Margrét því neitandi. „Ekki enn, en okkur langar mikið að vinna áfram saman og munum finna okkur gott viðfangsefni. Við grínuðumst reynd- ar með að næsta bók yrði Suð- vesturkjördæmi barnanna en ég efast um að það sé góð hugmynd.“ Konur Myndin sem prýðir opnuna þar sem fjallað er um það hvernig konur hafa látið til sín taka í borginni jafnt í kosningum sem leikskólamálum. Bráðabirgðahúsnæði Reykjavík óx ört sem þéttbýli og áratugum saman setti húsnæðisskortur svip sinn á bæinn. Eftir hernámið voru auðir braggar í borginni leigðir út til bráðabirgða til að hýsa fjölskyldur á hrakhólum. „Nenni ekki að gera þurrar bækur“ - Bókin Reykjavík barnanna eftir Margréti Tryggvadóttur og Lindu Ólafsdóttur býður upp á tíma- flakk um höfuðborg landsins - „Getum æst hvor aðra upp í brjáluðum metnaði,“ segir Margrét Morgunblaðið/Unnur Karen Samstarf Margrét Tryggvadóttir og Linda Ólafsdóttir á Austurvelli þar sem myndir bókarinnar eru til sýnis fram í nóvember. Í vetrarfríinu á næstu dögum bjóða þær upp á fjölskyldugöngu í tengslum við útgáfu bókarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.