Morgunblaðið - 22.10.2021, Page 1

Morgunblaðið - 22.10.2021, Page 1
F Ö S T U D A G U R 2 2. O K T Ó B E R 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 248. tölublað . 109. árgangur . BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík / 525 8000 / www.bl.is RENAULT ARKANA Náttúrulegur Hybrid 5ÁRAÁBYRGÐ NÝR www.renault.is ÚRSLITALEIKUR Á LAUGAR- DALSVELLI FYRIRTÆKIN SEM SKÖRUÐU FRAM ÚR SÉRBLAÐ 80 SÍÐURKVENNALANDSLIÐIÐ 26 _ „Ætli það megi ekki segja að Kjarval sé kominn aftur í tísku og tími kominn til,“ segir Jóhann Ágúst Hansen, framkvæmdastjóri hjá Gallerí Fold. Þar á bæ lauk í byrjun vikunnar vefuppboði á „perlum í íslenskri myndlist“, völd- um úrvalsverkum frá mörgum af þekktari málurum þjóðarinnar. Meðal verka á uppboðinu voru fimm málverk eftir Jóhannes Kjar- val, meðal annars eitt af elstu olíu- verkum hans, Kálfhamarsvík, sem talið er að hann hafi málað 1902- 1904 eða þegar hann var 17-19 ára. „Söguleg mynd,“ segir Jóhann Ágúst en verkið fór á rúmar tvær milljónir króna. Verkið Hraun- gígur eftir Kjarval seldist á 2,8 milljónir sem er tvöfalt hærra en matsverð var. Skýjadans Kjarvals fór svo á um fjórar milljónir sem var nokkru yfir matsverði. »8 Hraungígur Barist var um þetta lands- lagsverk Jóhannesar Kjarvals á uppboðinu. Kjarvalsverk fór á tvöföldu matsverði _ „Þessi rann- sókn fellur vel að fyrri vitneskju okkar um Vín- landsferðirnar fyrir um þúsund árum,“ sagði Gísli Sigurðsson rannsóknar- prófessor þegar leitað var álits hans á grein í vís- indatímaritinu Nature þar sem sýnt er fram á að minjar um veru nor- rænna manna á Nýfundnalandi eru frá árinu 1021. Greinarhöfundar byggja ártalið á rannsókn á trjá- hringjum í timbrinu sem notað var í húsin á staðnum. Gísli segir rann- sóknina hjálpa til við túlkun hinna fornu íslensku ritheimilda um Vín- landsferðirnar. Hann segir að Ólafur Halldórs- son handritafræðingur hafi fyrir nokkrum áratugum bent á að Vín- landsferð Þorfinns karlsefnis og Guðríðar Þorbjarnardóttur hafi getað verið farin um 1020. »5 Rannsókn fellur vel að fyrri vitneskju Gísli Sigurðsson Nú þegar aðgerðir yfirvalda vegna heimsfarald- urs hafa takmarkað för fólks út fyrir landstein- ana síðastliðin nær tvö ár hafa margir lands- menn snúið sér að afþreyingu innanlands. Sem betur fer hefur náttúra Íslands upp á margt að bjóða og eru ferðir á jökla þar meðtaldar. Veðrið hér á landi getur verið óútreiknanlegt en á blíðviðrisdögum sem þessum er fátt sem jafnast á við að klífa Sólheimajökul. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tekist á við jökulinn Hólmfríður María Ragnhildardóttir Unnur Freyja Víðisdóttir Gísli Gunnarsson, sóknarprestur í Glaumbæjarprestakalli í Skagafirði og kirkjuþingsfulltrúi, telur óskyn- samlegt að komið verði til móts við fjárhagsvanda kirkjunnar eingöngu með fækkun stöðugilda. Telur hann að hægt sé beita öðrum leiðum en þeim sem hafa verið boðaðar. Mikill óróleiki hefur skapast innan prestastéttarinnar vegna nýrra til- lagna sem lagðar verða fram á kirkju- þingi um helgina. Kveða þær m.a. á um hagræðingar á mannahaldi í formi fækkunar presta, áfram- haldandi stöðvun- ar á nýráðningum og sameiningar prestakalla. „Mér líst mjög illa á þetta. Það er fullmikið að horfa nánast eingöngu á fækkun starfa í kirkjunni sem einu lausnina á málinu. Ég held að það mætti spara á ýmsum öðrum sviðum innan kirkjunnar, til dæmis á Bisk- upsstofu, og eins mætti horfa til fast- eigna þjóðkirkjunnar.“ Skilur að hagræða þurfi Gísli telur að breytingarnar sem boðaðar eru muni á endanum koma niður á þeirri þjónustu sem kirkjan stendur fyrir. Verði höggið mest á landsbyggðinni þar sem fyrirhuguð fækkun stöðugilda er hvað mest. „Staða þjóðkirkjunnar er sterk í samfélögunum úti á landi en ef það á að fækka starfsmönnum mun það örugglega hafa áhrif. Svo má ekki gleyma því að prestar úti á landi hafa ekki jafn mikið af starfsfólki í kring- um sig eins og þeir í þéttbýlinu. Oft og tíðum þurfa prestar þar að sinna störfum sem annað starfsfólk í þétt- býli sér um.“ Gísli kveðst hafa skilning á því að nauðsynlegt sé að hagræða innan kirkjunnar og að óumflýjanlegt sé að prestum muni fækka. Hann telur þó þörf á umfangsmeiri endurskipulagn- ingu þar sem horft yrði til fleiri þátta en nú er gert. Hagræðingin óskynsamleg - Telur að hægt sé að bregðast við fjárhagsvanda kirkjunnar með öðrum leiðum Gísli Gunnarsson MSegir presta uggandi … »4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.