Morgunblaðið - 22.10.2021, Síða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2021
TENERIFE
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS°
BYRJAÐU NÝJA ÁRIÐ Í SÓL Á
04. - 11. JANÚAR | 05. - 11. JANÚAR | 06. - 11. JANÚAR
Bókaðu pakkaferð til Tenerife á enn betra verði í
janúar 2022. Frábært tækifæri til þess að koma
fjölskyldunni á óvart, vinna bug á skammdeginu
og slappa af eftir jólastússið.
VERÐ FRÁ:62.900 KR.
á mann m.v. tvo fullorðna og tvö börn
Verð frá 96.900 kr. á mann m.v. tvo fullorðna
FLUG OG VALIN GISTING Á TENERIFE
04. - 11. JANÚAR | 05. - 11. JANÚAR | 06. - 11. JANÚAR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt
fólk sem greinst hefur með krabba-
mein og aðstandendur, hélt síðdeg-
is í gær það sem kallað var kröftug
kvennastund. Konur voru þar
fengnar til að deila reynslu sinni,
hvert þær sæki styrk sinn og hvern-
ig þær hafa tekist á við áskoranir,
hvort sem er í starfi eða einkalífi.
Lára Guðrún Jóhönnudóttir, sem
útnefnd var hvunndagshetja Bleiku
slaufunnar í ár, kom þar fram en
hún missti móður sína ung úr
krabbameini og greindist síðar sjálf
með brjóstakrabbamein. Hefur hún
síðustu ár verið öflugur talsmaður
kvenna sem greinst hafa með slíkt
mein og vakið athygli á því sem bet-
ur má fara í þeim efnum, segir í til-
kynningu.
Auk hennar komu fram þær G.
Sigríður Ágústsdóttir, sem setti á
laggirnar verkefnið Lífskraft,
Anna Dröfn Sigurjónsdóttir, sem
vakið hefur athygli fyrir lífsviðhorf
sitt og opinskáa umræðu um
krabbamein, og Eliza Reid, for-
setafrú og frumkvöðull.
Morgunblaðið/Unnur Karen
Harpa Kraftur blés til fjölmennrar samkomu í Hörpu síðdegis í gær.
Héldu kröftuga
kvennastund
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Við erum farnir að finna loðnulykt-
ina og þetta er alltaf jafn skemmti-
legt,“ sagði Geir Zoëga, skipstjóri á
Polar Amaroq, síðdegis í gær. Hann
var þá búinn að kasta á loðnutorfu
Grænlandsmegin við miðlínu norð-
vestur úr Straumnesi. Geir sagði að
ágætlega liti út með afla. Fyrir helgi
fengust hátt í 110 tonn norðar í fjór-
um holum, en þá var haldið í land
vegna veðurs. Aflinn er frystur um
borð.
Polar Amaroq er fyrsta skipið
sem heldur til loðnuveiða á þessu
hausti, en nokkuð er orðið síðan
loðnuvertíð byrjaði í október. Vonir
standa til að vertíðin gefi yfir 900
þúsund tonna heildarafla, sem er
það mesta síðan í byrjun aldarinnar.
Í hlut íslenskra veiðiskipa koma alls
um 670 þúsund tonn og hefur um 630
þúsund tonnum verið úthlutað til
uppsjávarflotans. Grænlendingar,
Norðmenn og Færeyingar eiga
einnig hlutdeild í loðnunni.
Þetta lofar góðu
Geir sagði í gær að þeir væru að
draga í þokkalegasta lóði og sagði
gott veður á miðunum. Þeir fóru frá
Akureyri á þriðjudag eftir að brælu-
kaflinn gekk niður. Þar sem hann
var í gær virtist vera þokkaleg
loðnutorfa, en norðar hefðu verið
minni punktar.
Geir sagði að spáin væri ekki góð
um helgina, en vonandi fengju þeir
vinnufrið fram á föstudagskvöld. Ís-
lensku uppsjávarskipin hafa und-
anfarið verið á norsk-íslenskri síld
og kolmunna fyrir austan land og
sagði Geir að Polar Amaroq væri
eina skipið sem byrjað væri að svip-
ast um eftir loðnu. „Það er svo sem
erfitt að vera einn að leita, en það
eru hins vegar allir að bíða eftir
fréttum og síminn stoppar ekki.
Þetta lofar góðu og alltaf jafn gam-
an,“ sagði Geir á Polar Amaroq.
„Þetta er alltaf
jafn skemmtilegt“
- Loðnuvertíðin byrjuð - Allir að bíða
eftir fréttum segir Geir á Polar Amaroq
Kampakátir Aqqaluk Christensen 2. stýrimaður og Geir Zoëga skipstjóri í brúnni á Polar Amaroq í gær.
Karítas Ríkharðsdóttir
karitas@mbl.is
Ingi Tryggvason, formaður yfirkjör-
stjórnar í Norðvesturkjördæmi,
segir í greinargerð sinni til Alþingis
að aðdróttanir um að auðum kjör-
seðlum hafi verið breytt „í seðil sem
virðist vera gilt atkvæði“ eða gildum
atkvæðum breytt í ógild séu órök-
studdar og alvarlegar.
Hafnar hann öllum slíkum að-
dróttunum og segir þær í raun rang-
ar sakargiftir sem varði við lög. Um
er að ræða kenningar sem settar
eru fram í kosningakæru Guðmund-
ar Gunnarssonar, oddvita Viðreisn-
ar í Norðvesturkjördæmi.
Alþingi hefur á vef sínum birt
greinargerð frá-
farandi yfirkjör-
stjórnar kjör-
dæmisins sem
send er af Inga
fyrir sína hönd,
Guðrúnar Sig-
hvatsdóttur og
Ingibjargar Ingu
Guðmundsdóttur,
fulltrúa í yfir-
kjörstjórninni.
Fram kemur að Bragi R. Axelsson
og Katrín Pálsdóttir, sem sömuleiðis
eiga sæti í yfirkjörstjórninni, standi
ekki að greinargerðinni enda telji
þau ekki rétt að tjá sig um málið
meðan sakamál vegna framkvæmda
kosninganna er til meðferðar hjá
lögreglustjóranum á Vesturlandi.
Yfirkjörstjórn ítrekar fullyrðing-
ar sínar um að enginn hafi átt við
kjörgögnin meðan á fundarfrestun-
inni stóð, frá sunnudagsmorgni 26.
september til klukkan 13 síðdegis
sama dag.
Í greinargerðinni segir að kæra
Karls Gauta Hjaltasonar frambjóð-
anda Miðflokksins veki furðu enda
vilji hann byggja niðurstöðu í kosn-
ingum til Alþingis á röngum tölum.
„Það skal tekið fram að lokatölur
eru ekki eitthvert hugtak sem verð-
ur til á ákveðnum tímapunkti þegar
talning atkvæða fer fram og menn
geti byggt réttarstöðu á þeim
meintu lokatölum. Lokatölur eru
þær tölur sem verða til þegar það er
ljóst að endanleg talning hefur farið
fram og þær tölur geti ekki breyst,“
segir í greinargerðinni.
Þá er fullyrðingu í kosningakæru
Karls Gauta, um að boðun umboðs-
manna og umgengni einstakra kjör-
stjórnarmanna um óinnsigluð kjör-
gögn og undirritanir í gerðabók
yfirkjörstjórnar hafi ekki verið í
lagi, hafnað. „Enda færir kærandi
engin rök fyrir þessum fullyrðingum
sínum og umgengst sannleikann
ansi frjálslega svo ekki sé meira
sagt.“
Ítrekað er bent á að fundi yfir-
kjörstjórnar, og þannig talningu at-
kvæða, hafi ekki verið lokið að
morgni sunnudags eftir kosningar,
heldur hafi honum verið frestað
Í greinargerð um boðun umboðs-
manna segir að þegar ákvörðun um
endurtalningu hafi legið fyrir hafi
oddviti hringt í umboðsmenn fram-
boðslista og tilkynnt niðurstöðuna.
Varðandi boðun umboðsmanns Pír-
ata segir í fundargerð yfirkjör-
stjórnar að oddviti hafi gert tilraun
til að hringja í Helga S. Þorsteins-
son, sem afhenti yfirkjörstjórn
framboðslista flokksins, en oddvita
hafi láðst að uppfæra lista yfir um-
boðsmenn flokksins. Ekki náðist í
Helga en skömmu síðar hafi Magn-
ús Norðdahl haft samband við odd-
vita þar sem hann hafði frétt af end-
urtalningunni. Magnús hafi mætt á
talningarfund skömmu eftir að end-
urtalning hófst.
Órökstuddar aðdróttanir í kæru
- Enginn hafi átt við kjörgögnin meðan á fundarfrestuninni stóð - Oddvita láðist að uppfæra lista
Ingi
Tryggvason