Morgunblaðið - 22.10.2021, Page 4

Morgunblaðið - 22.10.2021, Page 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2021 Bætt hreinlæti í nýjum heimi Fáðu ráðgjöf fyrir þitt fyrirtæki www.hreint.is s: 589 5000 hreint@hreint.is Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is Urgur er í prestum yfir nýjum til- lögum um að tímabundin stöðvun nýráðninga til starfa hjá Þjóðkirkj- unni-Biskupsstofu verði framlengd og að ráðist verði í hagræðingu á mannahaldi þjóðkirkjunnar, m.a. með fækkun presta og sameiningu prestakalla. Þetta segir séra Ninna Sif Svav- arsdóttir, sóknarprestur í Hvera- gerðisprestakalli og formaður Prestafélagsins, í samtali við Morgunblaðið. Hlaupa ekki í önnur störf Tímabundin stöðvun nýráðninga, sem var samþykkt á aukakirkju- þingi 21. janúar síðastliðinn og ætl- að að sporna við halla í rekstri þjóðkirkjunnar, er strax farin að hafa áhrif á starfsemina, að sögn Ninnu. „Nú þegar hafa nokkrir prestar látið af störfum og ekki verið ráðið í þeirra stöður. Fyrirséð er að enn fleiri prestar muni láta af störfum á næstu vikum og verða væntanlega engir aðrir ráðnir í þeirra stað heldur,“ segir hún. „Prestar eru auðvitað hræddir um að þurfa hlaupa hraðar fyrir sömu laun og að þeir nái ekki að halda uppi þjónustustigi kirkjunnar.“ Þá séu prestar einnig háðir þjóð- kirkjunni þegar kemur að atvinnu- möguleikum. „Fólk er auðvitað uggandi um þessi störf. Við sækj- um ekki um vinnu annars staðar.“ Ekkert sé sjálfsagt við það að kirkjan ætli sér að rétta hallarekst- ur af með því að fækka prestum, að sögn hennar. „Því að í kirkjusam- komulaginu, sem er grundvöllurinn að samkomulagi um fjárhagsleg samskipti ríkis og kirkju, er gert ráð fyrir því að langstærstur hluti fjármagns til kirkjunnar fari í launagreiðslur til presta,“ segir Ninna ennfremur. „Staðan er alvarleg“ Hún segist þó ekki útiloka að sumstaðar megi endurskipuleggja fyrirkomulag prestsþjónustunnar. „Auðvitað eru aðstæður mjög misjafnar á milli staða og vissulega er þörf fyrir fleiri presta meiri á sumum stöðum en öðrum. Maður vonar bara að kirkjuþing hlusti á þarfir þeirra sem þekkja til á hverjum stað fyrir sig. Ef ráðast á í breytingar þarf að gera það í sæmilegri sátt við heimamenn.“ Að hennar mati hafi vantað upp á að skoðanir heimamanna séu teknar inn í myndina þegar tillögur hafa verið myndaðar og lagðar fyr- ir kirkjuþingið. „Í umræðum á kirkjuþingi hefur mér stundum fundist skorta skilning og þekk- ingu á eðli prestsþjónustunnar í kirkjunni. Ég verð að vera alveg heiðarleg með það.“ Ómögulegt er að segja til um það hvort kirkjuþingið komi til með að samþykkja tillögurnar um helgina eða ekki, segir Ninna aðspurð. „En staðan er alvarleg og ég held að það geri sér allir grein fyrir því að það þurfi að grípa til ein- hverra ráðstafana. Það er þó alveg ljóst að það verður dýrkeypt að fækka prestum enn frekar og minnka þannig þjónustustigið. Ég held að við viljum ekki þannig kirkju.“ Segir presta uggandi um störf sín - Formanni Prestafélagsins líst illa á tillögur um hagræðingu í mannahaldi kirkjunnar - Fækkun presta komi til með að auka vinnuálag - Prestar óttast að þurfa að hlaupa hraðar fyrir sömu laun Sr. Ninna Sif Svavarsdóttir Morgunblaðið/Eggert Prestar Óánægja ríkir meðal presta með tillögur á kirkjuþingi. Angjelin Sterkaj hefur verið dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir morðið á Arm- ando Beqirai en þau Sheptim Qerimi, Claudia Sofia Coelho Carvalho og Murat Selivrada voru sýknuð af kröf- um ákæruvaldsins. Dómurinn var kveðinn upp í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í gær en um hið svokallaða Rauðagerðismál er að ræða. Sterkaj var ekki viðstaddur dómsuppkvaðninguna. Sterkaj var dæmdur til að greiða Þórönnu Helgu Gunnarsdóttur, ekkju Beqirais, rúmar 32 milljónir króna í bætur, m.a. vegna missis á framfærslu og útfarar Bequirais. Þá þarf hann að greiða syni Þór- önnu og Beqirais um 10,4 m.kr. í bæt- ur og nýfæddri dóttur þeirra tæpar 11 m.kr. Jafnframt var hann dæmdur til að greiða foreldrum Beqirais, hvorum um sig, þrjár m.kr. í bætur, auk rúm- lega fjögurra m.kr. réttargæslu- þóknunar skipaðs réttargæslumanns allra einkaréttarkröfuhafa. Þá þarf Sterkaj einnig að greiða um 4,8 m.kr. vegna útlagðs kostnaðar ákæruvaldsins og um 18,6 m.kr. mál- svarnarlaun Oddgeirs Einarssonar lögmanns, sem var verjandi hans í málinu. Ríkissjóður var dæmdur til að greiða samanlagt rúmar 52 m.kr., m.a. í málsvarnarlaun verjenda Car- valho, Selivrada og Qerimis, sem voru öll sýknuð í málinu. Héraðssaksóknari rýnir nú niður- stöðurmar, en það er ákvörðun ríkis- saksóknara hvort henni verði áfrýjað, eða við unað. Geir Gestsson, verjandi Selivrada, segist ætla að höfða bótamál gegn ríkinu fari svo að lyktir málsins verði á þennan veg. „Hann hefur setið að ósekju í gæsluvarðhaldi, fangelsi og verið sviptur frelsi. Það er ljóst að mann- orð hans er í rúst eftir þetta.“ freyr@mbl.is Sterkaj dæmdur í sextán ára fangelsi - Þarf að greiða 87 milljónir króna Morgunblaðið/Eggert Dómsuppkvaðning Ákæruvaldið vildi lítið tjá sig um niðurstöðuna. Lögreglan var með mikinn viðbúnað á nýja gámasvæðinu í Þorlákshöfn í gærmorgun eft- ir að torkennilegur hlutur fannst á svæðinu. Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar og sér- sveit ríkislögreglustjóra voru kallaðar til þegar grunur kom upp um að mögulega væri um sprengjur að ræða. Þorsteinn M. Krist- insson, varðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi, sagði við mbl.is í gær að svæðið í kring hefði verið girt af en að loks hefði komið í ljós að torkennilegu hlutirnir voru meinlausir. Þó fannst gömul fallbyssukúla frá seinna stríði nærri Þorlákshöfn í gær, en það tengdist ekki hinni sprengjuleitinni. Kúlan reyndist virk og var hún sprengd í loft upp af sprengjusveit Landhelgisgæslunnar. oddurth@mbl.is Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson Gæslan og sérsveitin ræstar út vegna gruns um sprengju

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.