Morgunblaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 5
SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is M injarnar um veru nor- rænna manna í L’Anse aux Meadows á Ný- fundnalandi eru ná- kvæmlega þúsund ára gamlar, frá árinu 1021, samkvæmt nýrri tækni- legri rannsókn á áhrifum sólstorma á hringi í timbrinu sem höggvið var þar. Þetta kemur fram í grein sem þverfaglegur hópur 13 vísindamanna birti í tímaritinu Nature á miðviku- daginn. Niðurstöðurnar hafa vakið mikla athygli og var skýrt frá þeim í öllum helstu fréttamiðlum heims í gær. „Við höfum undir höndum sönnun fyrir því að norrænir menn hafi verið í Norður-Ameríku árið 1021,“ segir í greininni. Vísinda- mennirnir segja að hin nýja aldurs- greining þeirra festi með miklu ör- yggi tímamót í sögu norrænna land- könnuða á miðöldum, víkinganna svonefndu. Það sem er mikilvægara sé að þetta marki nýja tímasetningu um vitneskju Evrópubúa um Am- eríku. Hjálpar við túlkun fornrita „Þessi nýja grein er enn ein við- bótin sem skýrir fyrir okkur hvernig við getum túlkað og skilið fornritin okkar. Hún fellur vel að því sem við vissum fyrir en er að sjálfsögðu miklu nákvæmari en munnlegar heimildir geta verið, frá ólíku fólki mörgum öld- um eftir þá atburði sem það segir frá,“ segir Gísli Sigurðsson, rannsóknaprófessor á Árnastofnun, en hann er einn helsti sérfræðingur okkar um Vínlandssögurnar fornu, Eiríks sögu rauða og Grænlendinga sögu, sem segja frá siglingum manna frá Íslandi og Grænlandi til Ameríku. Gísli segir að greinin í Nature svari hins vegar ekki þeirri spurn- ingu hvort tengja eigi þetta ártal, 1021, við fólkið sem byggði búðirnar í L’Anse aux Meadows fyrst eða við þau sem komu á þessar slóðir síðar. „Við vitum að búðirnar voru notaðar í nokkur ár, nákvæmlega hve lengi er ekki ljóst, en við vitum líka að þar var ekki varanleg búseta eða land- nám fólks frá Grænlandi og Íslandi. Þessi staður hefur orðið fyrir valinu vegna þess að það var tiltölulega auð- velt að finna hann þegar siglt var frá Grænlandi, þarna voru engir frum- byggjar í kringum árið þúsund og frá þessum stað, sem er rétt vestan eða innan við norðurodda Nýfundnalands þannig að hann er kominn í var frá úthafinu, var þægilegt að halda í leið- angra inn á flóann og afla þeirra fanga sem menn voru að sækjast eft- ir,“ segir Gísli. Í því sambandi nefnir hann hnetur, skinn, við og annan jarðargróður. Þessum föngum hafi menn safnað saman í sérstöku geymslurými sem hafi verið skil- greint svo í einum af fornnorrænu skálunum sem grafnir voru upp í L’Anse aux Meadows. Taldi Guðríði sigla um 1020 „Greinin fellur líka vel að álykt- un Ólafs Halldórssonar handrita- fræðings um að Vínlandsferð Þor- finns karlsefnis og Guðríðar Þorbjarnardóttur hafi líklega verið farin upp úr 1020,“ segir Gísli. Ólafur sendi frá sér bókina Grænland í mið- aldaritum árið 1978 og gaf út Eiríks sögu 1985 þar sem hann birtir rann- sóknir sínar á Vínlandsferðunum. Ólafur sagði í fyrrnefnda ritinu að hann teldi fornar ritheimildir ekki því til fyrirstöðu, að gera ráð fyrir að Þorfinnur karlsefni hafi siglt til Vín- lands um 1020. „Áður höfðu kolefnisgreiningar þrengt tímasetninguna í L’Anse aux Meadows niður á bilið 980-1020 með 90% líkum,“ segir Gísli, „þannig að segja má að Ólafur hafi með texta- rannsóknum sínum komist ansi ná- lægt því sem þessar nýju trjáhringja- rannsóknir sýna fram á. Í sambandi við þær er þó rétt að árétta að við er- um ekki að tala um landnám nor- rænna manna í L’Anse aux Mea- dows, eins og ég heyrði í útvarpinu í [gær-] morgun, heldur nokkrar ferð- ir fólks frá Íslandi og Grænlandi á þessar slóðir á árunum í kringum 1000 og þar á eftir. Þau sem dvöldu eða höfðu viðkomu í L’Anse aux Meadows fóru a.m.k. að suðurströnd St. Lawrence-flóa, að Eyju Játvarðs prins og árósum Miramichi- laxveiðiárinnar í New Brunswick, en heildarmynd beggja Vínlandssagn- anna af þessu landsvæði gengur ekki upp nema gert sé ráð fyrir að Vín- landsfarar hafi komið sér upp búðum víðar, jafnvel við Fundy-flóa, og siglt suður með strönd Nýja Englands og um allan St. Lawrence-flóa. Við lest- ur sagnanna verður að hafa í huga að þær eru ekki samtíma loggbækur heldur byggjast þær á minningum um ferðir um allt þetta svæði og teikna það upp í grófum dráttum fyr- ir áheyrendum heima á Íslandi.“ „Fellur vel að fyrri vitneskju okkar“ Fundur Ameríku Norrænir menn voru í L’Anse aux Meadows á Nýfundna- landi fyrir nákvæmlega þúsund árum, samkvæmt nýrri vísindarannsókn. Gísli Sigurðsson - Ný rannsókn erlendra vísindamanna sýnir að minjar um veru norrænna manna á Nýfundnalandi eru frá árinu 1021 - Forníslenskar heimildir um ferðir Þorfinns karlsefnis bentu nánast á sama ártal Morgunblaðið/Einar Falur Landafundir Um síðustu aldamót var landafunda norrænna manna minnst með sýningum, útgáfu og hátíðarhöldum hér á landi og í Kanada. Sigldi m.a. nýsmíðað víkingaskip frá Íslandi vestur um haf. FRÉTTIR 5Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2021 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum. Háskóli Íslands hefur tekið upp kerfi sem gerir nemendum og kennurum kleift að skrá sig í kennslustund með QR-kóða sem er að finna á öllum borðum í kennslustofum skólans. Með þessu fyrirkomulagi megi tryggja lágmarksröskun í starfi Há- skólans komi upp kórónuveirusmit í kennslu og styðja við skjótari smit- rakningu, að því er fram kemur í til- kynningu frá HÍ. Innleiðing kerfisins, sem er hannað og útfært af Háskóla Íslands, hefur hlotið góðar viðtökur nemenda í skól- anum. Þetta segir Jón Atli Bene- diktsson, rektor Háskóla Íslands, í samtali við Morgunblaðið. „Okkur sýnist nemendur vera mjög ánægðir með þetta. Við höfum séð mikla notkun á kerfinu síðast- liðnar vikur, bæði hjá nemendum og kennurum. Auðvitað hafa afléttingar innanlandstakmarkana haft einhver áhrif á skráningu en almennt virðast flestir vera nokkuð samviskusamir að stimpla sig inn.“ Ekkert kórónuveirusmit hefur þó komið upp í skólanum frá því kerfið var innleitt og því hefur enn ekki reynt á það við smitrakningu, að sögn Jóns Atla. „Við munum þó halda áfram að minna nemendur og kennara á mikil- vægi þess að nýta kerfið til að greiða fyrir smitrakningu í Háskólanum,“ segir rektor ennfremur. Kerfið er ekki notað til að halda ut- an um mætingu nemenda, segir Páll Ásgeir Torfason, deildarstjóri staf- rænna kennsluhátta hjá HÍ, inntur eftir því. „Gögn úr kerfinu eru geymd í gagnagrunni Háskóla Íslands og eru eingöngu vistuð í þessum afmarkaða tilgangi. Gögnum er svo eytt á 3 vikna fresti,“ segir Páll Ásgeir. Þá segir hann HÍ vera eina háskól- ann á landinu sem hafi innleitt þetta kerfi en aðrir íslenskir háskólar sem nota Uglu, innra net opinberu háskól- anna, geti óskað eftir aðgangi að kerf- inu án sérstakra gjalda. Auðvelda smit- rakningu í HÍ - Nota QR-kóða til að skrá mætingu Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Smitrakning Nemendur HÍ geta nú skráð mætingu í gegnum QR-kóða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.