Morgunblaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2021
Seint verður CIA sakað um að
vera fámennishópur í leit að
leyndardómum. Seinast þegar rýnt
var í starfsmannaskrána virtust
vera rúmlega 300 þúsund nafnleys-
ingjar þar á launaskrá, sem liggur
ekki fyrir.
- - -
En í fréttum vikunnar var til-
kynnt að CIA hefði nú tekið
það trúanlegt að veðrið sem leiða
myndi mannkynið í glötun væri
gert af því sjálfu. Það má segja að
CIA sé seint í svifum því að Greta
Thunberg var 10 ára þegar hún
varð fyrst aufúsugestur í valdasetr-
um veraldar og útskýrði loftslags-
vanda fyrir ráðherrum, könslurum
og kóngum.
- - -
En nú er heimsvandinn sá að
Thunberg er orðin 18 ára og
leiðtogar hlusta minna á hana en
áður og bíða í óþreyju eftir nýju
barni til að útskýra málstaðinn.
- - -
En þar sem CIA er komið með
manngerða veðrið á sinn rad-
ar má segja að það sé loksins orðið
algjört leyndarmál, enda eru þau
algengust í höfuðstöðvunum í
Langley. Skömmu áður en loka-
ákvörðun var tekin um innrás í Írak
fullyrti Tenet æðstráðandi CIA við
Bush forseta að það væri „slam
dunk case“, niðurstaða hafin yfir
vafa, svo ekki þurfti frekari vitna
við að Saddam Hussein réði yfir
(WMD) gereyðingarvopnum. Og
þótt margt mælti vissulega með að
einræðisherrann yrði sóttur heim í
greni sitt þá gerði sú staðfesta vitn-
eskja útslagið.
- - -
Tenet hefur sagt að hann sjái eft-
ir yfirlýsingunni.
Manngert veður
„slam dunk case“
STAKSTEINAR
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég hef snúið mér að öðrum verk-
efnum og horfi fram á við,“ segir
Björn Halldórsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Sorpu. Eins og
kom fram í Morgunblaðinu í gær
hefur Sorpa samið um starfslok
Björns og þar með kemur það ekki í
hlut dómstóla að úrskurða um lög-
mæti uppsagnar hans. Björn fær
greidd 12 mán-
aða laun auk lög-
fræðikostnaðar.
Í yfirlýsingu
sem Björn sendi
frá sér í gær rek-
ur hann að deilan
um starfslok
hans hafi tekið
óþarflega langan
tíma. Hann hafi
frá upphafi verið
reiðubúinn að semja um starfslok
við stjórn fyrirtækisins þrátt fyrir
að telja sig ekki hafa brotið af sér í
starfi. Tilboð um sátt hafi hins veg-
ar ekki verið lagt fram fyrr en í
byrjun þessa mánaðar, tveimur dög-
um áður en aðalmeðferð átti að hefj-
ast í Héraðsdómi Reykjavíkur. „Í
því felst að sjálfsögðu viðurkenning
á því að stjórn Sorpu braut á mér og
hafði rangt við og hef ég að vel
íhuguðu máli ákveðið að ganga að
sáttinni enda er mál að linni,“ segir
Björn.
„Mér var þvert um geð að höfða
mál gegn þessu góða fyrirtæki, þar
sem ég starfaði í 20 ár. Við almennt
starfsfólk Sorpu hef ég eingöngu átt
í góðum samskiptum allan þann
tíma og sneri þessi málshöfðun á
engan hátt gegn því. Fyrirtækinu
og starfsfólki þess óska ég alls hins
besta í framtíðinni,“ segir Björn í
yfirlýsingu sinni.
Viðurkenning á broti stjórnarinnar
- Fyrrverandi framkvæmdastjóri Sorpu gengur að sáttaboði eftir uppsögn í fyrra
Björn H.
Halldórsson
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við erum mjög ánægð með útkom-
una. Það seldust yfir 90% af verk-
unum og það rímar við þá söluaukn-
ingu sem verið hefur síðustu ár,“
segir Jóhann Ágúst Hansen, fram-
kvæmdastjóri hjá Gallerí Fold. Þar
á bæ lauk í byrjun vikunnar vefupp-
boði á „Perlum í íslenskri myndlist“,
völdum úrvalsverkum frá mörgum
af þekktari málurum þjóðarinnar.
Meðal verka á uppboðinu voru
fimm málverk eftir Jóhannes Kjar-
val, meðal annars eitt af elstu olíu-
verkum hans, Kálfhamarsvík, sem
talið er að hann hafi málað 1902-1904
eða þegar hann var 17-19 ára.
„Söguleg mynd,“ segir Jóhann
Ágúst en verkið fór á rúmar tvær
milljónir króna. Verkið Hraungígur
eftir Kjarval seldist á 2,8 milljónir
sem er tvöfalt hærra en matsverð
var. Skýjadans Kjarvals fór svo á
um fjórar milljónir sem var nokkuð
yfir matsverði.
„Já, ætli það megi ekki segja að
Kjarval sé kominn aftur í tísku og
tími kominn til,“ segir Jóhann sem
veltir því fyrir sér hvort aukin um-
fjöllun um meistarann á liðnum ár-
um hjálpi þar til. Vinsælar bækur
hafa verið gefnar út um ævi hans og
störf og nú er verið að sýna barna-
sýningu um manninn og málarann í
Borgarleikhúsinu. „Öll þessi umfjöll-
un hefur eflaust hjálpað til,“ segir
listaverkasalinn.
Af öðrum tíðindum á uppboðinu
má nefna að stórt olíuverk eftir Karl
Kvaran frá 1989 seldist á rétt tæpar
fjórar milljónir og metverð fékkst
fyrir verk eftir Kjartan Guðjónsson,
rúm ein milljón króna. Þá fékkst
gott verð fyrir verk eftir Birgi Andr-
ésson og mynd eftir Braga Ásgeirs-
son fór töluvert yfir matsverði. Eins
fékkst gott verð fyrir verk eftir
Svavar Guðnason.
Landslagsverk
Kjarvals ruku út
- Mikil sala á upp-
boði á perlum í ís-
lenskri myndlist
Kálfhamarsvík Eitt af elstu olíu-
málverkum Kjarvals var boðið upp.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
samlegt ka
nýmalað,
engin h lki.
á
y
–
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/