Morgunblaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2021
22. október 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 129.05
Sterlingspund 177.5
Kanadadalur 104.55
Dönsk króna 20.16
Norsk króna 15.396
Sænsk króna 14.975
Svissn. franki 139.68
Japanskt jen 1.1296
SDR 182.42
Evra 150.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 181.4416
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Pósturinn ohf. boðar miklar hækk-
anir á mörgum liðum verðskrár
sinnar frá og með 1. nóvember
næstkomandi. Þetta kom fram í til-
kynningu frá fyrirtækinu 19. októ-
ber síðastliðinn. Morgunblaðið hef-
ur nú tekið saman breytingar á
verðskrá fyrirtækisins á flutningi
pakka frá 0 og upp í 10 kg. Þar blas-
ir við að í 88% tilvika hækkar
verðskráin. Í einu tilviki af 82 stend-
ur verðskráin í stað en aðeins í níu
tilvikum eða 11% tilvika lækkar
verðskráin og nemur þá lækkunin 1-
14%.
Fram til þessa dags hefur
verðskrá hins opinbera fyrirtækis
miðast við að sama verð gildi um allt
land, líkt og krafa löggjafans hefur
verið, og hefur það jafnt átt við um
pakkasendingar sem skilað er í
póstbox og pakkaport eða heim-
sendingar og sendingar sem skilað
er á pósthús. Ítrekað hefur verið
bent á að ákvæði póstlaga, sem
kveða á um að sama verð skuli gilda
um allt land, stangist á við aðrar
lagagreinar þess efnis að sú þjón-
usta sem Pósturinn veitir í sam-
keppni við önnur fyrirtæki þurfi að
standa undir kostnaði að viðbættum
„hæfilegum“ hagnaði.
Ný lög knýja á um breytingar
Í sumar var lögum breytt og er
Póstinum nú óheimilt að viðhafa
sama verð um allt land nema á
bréfasendingum sem eru léttari en
50 g. Segir fyrirtækið í ljósi þessa að
„gildistaka nýrra laga verður til
þess að fyrirtækið aðlagar gjaldskrá
sína sem sumstaðar verður til þess
að verð hækkar en annars staðar
mun það lækka“. Líkt og meðfylgj-
andi tafla sýnir hækkar verðið í
miklum meirihluta tilvika og nemur
hækkunin í mörgum tilvikum tugum
prósenta og í einu tilviki ríflega
100%. Morgunblaðið hefur ítrekað
leitað skýringa á þessum breyting-
um hjá Póstinum en ekki fengið skil-
merkileg svör við spurningum varð-
andi verðskrárbreytinguna.
Löggjafinn hefur kveðið skýrt á um
að ekki megi niðurgreiða þjónustu á
vettvangi Póstsins (nema á bréfum
undir 51 g). Miðað við það og þær
breytingar sem nú eru kynntar á
grundvelli lagasetningar má ætla að
þjónusta í mörgum flokkum hafi
skilað fyrirtækinu tapi, enda nema
boðaðar hækkanir tugum prósenta.
Bréfin enn í óvissu
Pósturinn hefur haft með hönd-
um útburð á bréfum af ýmsu tagi,
ekki aðeins þeim sem eru 50 g eða
léttari.
Fyrirtækið hefur ekki gefið út
hvernig verðlagningu á útburði
bréfa yfir 50 g verður háttað en
samkvæmt ítrekuðum tilkynningum
þess nær heimildin til „sama verðs
um allt land“ aðeins til bréfa undir
50 g.
Morgunblaðið hefur ítrekað spurt
forsvarsmenn fyrirtækisins skrif-
lega út í hvernig verðlagningu á
bréfum yfir þeim þyngdarmörkum
verði háttað.
Engin skiljanleg svör hafa borist
við þeim spurningum. Hefur fyrir-
tækið ekki viljað svara hvort
óbreytt verðskrá stangist á við lög
eður ei, né heldur hvort vænta sé
breytinga á verðlagningu á útburði
bréfa yfir 50 g að þyngd.
Pósturinn hækkar í 88% tilvika
- Verð á pakkasendingum Póstsins hækkar gríðarlega í flestum tilvikum - Mesta
hækkun nemur 102% á 3-5 kg pökkum á svæði 4 - Þokukennd svör frá fyrirtækinu
Samanburður á eldri gjaldskrá Íslandspósts og eftir 1. nóv. 2021
Verð fyrir 1. nóv
2021. Eitt verð
um allt land.
Verð eftir 1. nóvember 2021
SVÆÐI 1 SVÆÐI 2 SVÆÐI 3 SVÆÐI 4
Verð Breyting Verð Breyting Verð Breyting Verð Breyting
Póstbox og
pakkaport
0-2 kg 937 1.090 16% 1.290 38% 1.390 48% 1.690 80%
3-5 kg 937 1.190 27% 1.490 59% 1.590 70% 1.890 102%
6-10 kg 1.104 1.490 35% 1.890 71% 1.990 80% 2.190 98%
Heimsending
1 kg 1.420 1.640 15% 1.840 30% 1.940 37%
2 kg 1.498 1.640 9% 1.840 23% 1.940 30%
3 kg 1.578 1.740 10% 2.040 29% 2.140 36%
4 kg 1.650 1.740 5% 2.040 24% 2.140 30%
5 kg 1.737 1.740 0% 2.040 17% 2.140 23%
6 kg 1.816 2.040 12% 2.440 34% 2.540 40%
7 kg 1.894 2.040 8% 2.440 29% 2.540 34%
8 kg 1.972 2.040 3% 2.440 24% 2.540 29%
9 kg 2.052 2.040 -1% 2.440 19% 2.540 24%
10 kg 2.132 2.040 -4% 2.440 14% 2.540 19%
Pósthús
1 kg 1.026 1.090 6% 1.290 26% 1.390 35% 1.690 65%
2 kg 1.105 1.090 -1% 1.290 17% 1.390 26% 1.690 53%
3 kg 1.183 1.190 1% 1.490 26% 1.590 34% 1.890 60%
4 kg 1.262 1.190 -6% 1.490 18% 1.590 26% 1.890 50%
5 kg 1.340 1.190 -11% 1.490 11% 1.590 19% 1.890 41%
6 kg 1.422 1.490 5% 1.890 33% 1.990 40% 2.190 54%
7 kg 1.500 1.490 -1% 1.890 26% 1.990 33% 2.190 46%
8 kg 1.578 1.490 -6% 1.890 20% 1.990 26% 2.190 39%
9 kg 1.658 1.490 -10% 1.890 14% 1.990 20% 2.190 32%
10 kg 1.737 1.490 -14% 1.890 9% 1.990 15% 2.190 26%
HRÖKKBRAUÐ
STUTT
« Tveir nefndarmenn af fimm í pen-
ingastefnunefnd Seðlabanka Íslands,
Gunnar Jakobsson og Gylfi Zoëga,
greiddu atkvæði gegn þeirri tillögu Ás-
geirs Jónssonar seðlabankastjóra að
hækka vexti bankans um 0,25 prósent-
ur, eins og gert var sjötta október sl.
Ásgeir, Rannveig Sigurðardóttir og
Katrín Ólafsdóttir greiddu atkvæði með
tillögunni.
Vildu Gunnar og Gylfi hækka vexti
meira, eða um 0,5%.
Í fundargerð nefndarinnar, sem birt
hefur verið á vef Seðlabankans, segir að
helstu rök sem komu fram fyrir því að
taka minna skref voru þau að óvissa um
alþjóðlegar efnahagshorfur væri enn
nokkur. Jafnframt væri óvissa um þró-
un á vinnumarkaði.
Helstu rök sem fram komu fyrir því
að hækka vexti um 0,5 prósentur voru
þau að margt benti til þess að efna-
hagsumsvif hefðu tekið verulega við
sér, sem birtist m.a. í töluverðum verð-
hækkunum á fasteignamarkaði, mikl-
um vexti á útlánum til heimila og skorti
á vinnuafli í ákveðnum greinum. Bent
var á að þriðjungur fyrirtækja ætti í
erfiðleikum með að ráða í lausar stöður.
Gunnar og Gylfi vildu hækka vexti um 0,5%
Morgunblaðið/Golli
Banki Vextir hækkuðu 6. október sl.
« Icelandair Group hækkaði um
5,2% í viðskiptum í Kauphöll Íslands
í gær í 970 milljóna króna við-
skiptum. Kom hækkunin í kjölfar
þess að fyrirtækið birti uppgjör sem
sýndi að það hafði skilað hagnaði á
þriðja ársfjórðungi ársins. Virtist
uppgjörið leggjast vel í fjárfesta þrátt
fyrir að forstjóri þess, Bogi Nils, hafi
ítrekað í tilkynningu að delta-afbrigði
kórónuveirunnar hefði sett strik í
reikninginn á fjórðungnum.
Icelandair tók góðan kipp
eftir jákvætt uppgjör
Svæði 1: Höfuðb.svæðið
Póstnúmer 101-116, 170, 200-
206, 210-225, 220-221 og 270.
Svæði 2: Kjarnastaðir
Póstnúmer 203-260, 300, 310,
340, 400, 450, 540, 550, 600-
603, 640, 700, 730, 800 og 900.
Svæði 3: Þéttbýli
Póstnúmer 190, 240, 245, 250,
350, 355, 360, 370, 410, 415,
420, 425, 430, 460, 465, 470,
510, 530, 545, 580, 620, 625,
610-616, 650, 660, 670, 675,
680, 690, 710, 735, 750, 755,
760, 765, 810, 815, 820, 825,
850, 860, 870 og 880.
Svæði 4: Dreifb./Malarv.
Póstnúmer 161, 191, 241, 246,
251, 271-276, 301, 311, 320, 341-
342, 345, 351, 356, 371, 380-381,
401, 416, 421, 426, 431, 451, 461,
466, 471, 500, 511-512, 520, 524,
531, 541, 546, 560-561, 565-566,
570, 581, 604-607, 621, 626,
630, 641, 645, 671, 676, 681,
685-686, 691, 701, 711, 715, 720-
721, 731, 736, 741, 751, 756, 761,
766, 781, 785, 801-806 og 840.
Fjögur ólík
verðsvæði
SVÆÐASKIPTINGIN