Morgunblaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 12
kom fór samfélagsábyrgðarboltinn að rúlla. „2011 nefndi ég við fjármálastjór- ann að við ættum að skoða kolefn- isbókhald,“ útskýrir hann en viður- kennir að hvorki hann né aðrir innan fyrirtækisins hafi verið vissir um hvað fólst í raun og veru í hugtakinu. „Það var ekki fyrr en 2015 sem við fórum að taka þetta í fangið, velta fyrir okkur um hvað þetta snýst og hvað við þurfum að gera. Og 2016 mótum við skýra stefnu og vegferð í þessa átt. Fengum til okkar margt hæfileikaríkt fólk til þess að aðstoða okkur með þetta.“ Bendir hann á að fyrirtækið hafi síðan rutt brautina á ýmsum sviðum. M.a. með fyrsta svansvottaða húsinu sem reist var hér á landi. „Það var unnið í samstarfi við okkur.“ Eigandi hússins er Finnur Sveinsson, sem var lengi yfirmaður samfélagsábyrgðar hjá Landsbank- anum. Finnur var til ráðgjafar um innleiðingu þessara mála á vettvangi Byko. 40% af losun heimsins Sigurður Brynjar segir mjög mik- ilvægt fyrir byggingariðnaðinn að leita allra leiða til þess að draga úr umhverfisáhrifum af umsvifum sín- um. Fáir átti sig á því að greinin ber ábyrgð á 40% af kolefnisfótspori heimsins. Með því að ná árangri við að draga úr losun á þessu sviði er hægt að hafa marktæk áhrif í lofts- lagsmálum. Sigurður Brynjar segir það hafa komið sér á óvart þegar hann og samstarfsfólkið fóru að kafa ofan í það hversu margir birgjar fyrirtækisins legðu sitt af mörkum í þessum efnum. Það sé enda orðin út- breidd skoðun að þau fyrirtæki sem dragi lappirnar í umhverfismálum verði einfaldlega undir í samkeppn- inni. Nú horfi mjög margir til svo- kallaðrar BREEAM-vistvottunar sem sérstaklega er ætluð nýbygg- ingum. Byko veiti verktökum ráð- gjöf í því skyni að þeir uppfylli þessa vottun. Hann segir að miklu hafi skipt þegar sveitarfélög tóku að gera kröfu um BREEAM-vottun varð- andi nýbyggingar. Þá hafi markað- urinn tekið við sér svo um munaði. Sífellt fleiri séu farnir að veita þjón- ustu á grundvelli hennar, m.a. arki- tektastofur. Drumboddsstaðir Byko vinnur eftir skýrum ferlum þar sem samfélagsábyrgðin nær ekki aðeins yfir umhverfismál held- ur einnig m.a. starfsmannamál. Þetta tvinnist þó saman. Eigin losun Byko á kolefni sé metin 300 tonn á ári. Fyrirtækið á myndarlegan skóg í landi Drumboddsstaða sem talinn er binda 1.200 tonn af kolefni á ári. Eftir ríflega áratugar hvíld sé stefn- an nú sett á að blása lífi í skógrækt- ina á þessu svæði með fulltingi starfsfólks. Djarfar ákvarðanir Sigurður Brynjar segir að stór- fyrirtæki á borð við Byko þurfi að hugsa út fyrir rammann. Stundum þurfi að taka skref sem þyki of djörf á þeim tíma sem þau eru stigin. Seg- ir hann að það gæti t.d. falist í því að hætta að selja bensínsláttuvélar og beina viðskiptavinum sínum alfarið að rafmagnsvélum. Slík ákvörðun liggi ekki fyrir, en sé dæmi um atriði sem megi gaumgæfa alvarlega. Bensínsláttuvélarnar mögulega út - Byko fær viðurkenningu Creditinfo fyrir framúrskarandi árangur á sviði samfélagsábyrgðar - Endurvekja skógrækt - Byggingariðnaðurinn losar 40% af öllu því sem berst út í andrúmsloftið Ábyrgð Sigurður Brynjar segir að fyrirtækið hafi tekið samfélagsábyrgðina mjög föstum tökum frá árinu 2015. DAGMÁL Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Sífellt fleiri fyrirtæki horfa til sam- félagsábyrgðar sinnar við mótun rekstrarins. Í ár bauðst þeim fyrir- tækjum sem fylla lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki t.d. að svara spurningalista um það með hvaða hætti þau vinna að markmið- um um sjálfbærni í rekstri. Er stefna Creditinfo að nálgun fyrirtækja á þessi viðfangsefni verði innan tíðar hluti þeirra hlutlægu mælikvarða sem lagðir verða til grundvallar við mat á því í hversu heilbrigðum rekstri fyrirtæki eru. Síðustu ár hefur Creditinfo heiðr- að fyrirtæki sem þykja standa sig framúrskarandi vel á sviði sam- félagsábyrgðar og var það niður- staða dómnefndar að byggingar- vörufyrirtækið Byko væri vel að þessum heiðri komið í ár. Hjá Byko frá aldamótum Sigurður Brynjar Pálsson er for- stjóri Byko og hann settist niður á vettvangi Dagmála og ræddi vegferð fyrirtækisins í þessum efnum. Hann þekkir afar vel til rekstrarins. Var ráðinn til fyrirtækisins um aldamót- in, í kjölfar þess að hafa lokið BS- prófi í viðskiptafræði. Vann hann sig jafnt og þétt upp innan fyrirtækisins og sinnti störf- um á mörgum sviðum þess, og raun- ar á vettvangi fleiri fyrirtækja undir hatti móðurfélagsins Norvikur. En Það var árið 2014 sem hann tók við forstjórastólnum. Áður en að því 12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2021 Skemmtileg og fjölbreytt dagskrá Sunnudagur: Flogið með Icelandair snemma morguns og lent í Kaupmannahöfn á hádegi. Gisting á hinu glæsilegaHotel Skt. Petri í miðborg Kaupmannahafnar. Um kvöldið er snæddur ekta danskur matur á veitingastaðnum Karla sem er í göngufæri frá hótelinu. Mánudagur: Skoðunarferð um gamla bæinn meðÁstu Stefánsdóttur leiðsögumanni sem gengur um slóðir Fjölnismanna og fræðir farþega um sögu Kaupmannahafnar. Þriðjudagur: Heimsókn í Jónshús, þar sem staðarhaldarinn Halla Benediktsdóttir tekur á móti hópnum og fræðir um sögu hússins. Um kvöldið er snæddur „Julefrokost“ í Tivoli á veitingastaðnum Grøften. Eftir kvöldverðinn er hægt að skoða sig um í Tivoli sem hefur verið breytt í „Juleland“ á Aðventunni. Miðvikudagur: Sigling um síkin og Christianshavnmeðan hljómsveit Michael Bøving og félaga leikur jazztónlist og vanalega ríkir mikil stemning í þessum ferðum. Brottför frá hóteli á Kastrup flugvöll síðdegis og flug til Íslands um kvöldið. Fararstjóri: Sigurður K. Kolbeinsson 8678 AÐVENTUFERÐ ELDRI BORGARA TIL KAUPMANNAHAFNAR &%()&:( 32#2-42$ %'%& 8..5$ < 12$=/$ ; ,9!2-42$ +0 32#2-42$ 2$" "**#2.35$ Verð: 1"!.500 kr. á mann í tvíbýli. Aukagjald v/gistingar í einbýli er 29.500 kr. Innifalið eru flug með Icelandair, skattar, gisting, m/morgunverði á Hotel Skt. Petri 5*, rútuferðir, kvöldverðir og annað samkvæmt dagskrá. Farþegar fá vildarpunkta fyrir ferðina og einnig er hægt að greiða hluta ferðar með punktum. Gist er á hinu glæsilega Hotel Skt. Petri 5* sem er staðsett í miðborg Kaupmannahafnar. Bókanir fara fram hjá Ferðaskrifstofu eldri borgara. Hægt er að senda tölvupóst á netfangið hotel@hotelbokanir.is eða hafa samband í símum 783-9300 og 783-9301. Allar nánari upplýsingar um ferðirnar má nálgast á heimasíðu okkar www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is Niko ehf | Austurvegi 6 | 800 Selfoss | kt. 590110-1750

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.