Morgunblaðið - 22.10.2021, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2021
Flokkarnir þrír sem standa að
stjórnarmyndunarviðræðum í
Þýskalandi lýstu því yfir í gær að
þeir stefndu að því að ríkisstjórnin
tæki við völdum í annarri viku des-
embermánaðar.
Áður höfðu þeir lýst yfir að
markmiðið væri að mynda nýja
stjórn fyrir jól, en Volker Wissing,
framkvæmdastjóri Frjálslyndra
demókrata (FDP), sagði í gær
brýnt að ný og traust ríkisstjórn
tæki við sem fyrst.
FDP, Græningjar og Sósíal-
demókrataflokkurinn SPD hafa
aldrei áður myndað stjórn saman á
landsvísu, en stefnt er að því að
Olaf Scholz, núverandi fjár-
málaráðherra og kanslaraefni SPD,
taki þá við keflinu af Angelu Mer-
kel, sem gegnt hefur embættinu í
16 ár.
Nái flokkarnir saman um stefnu-
mál og skipan nýrrar ríkisstjórnar
munu þeir um leið koma í veg fyrir
að Merkel slái met Helmuts Kohls,
en til þess þarf hún að sitja í emb-
ættinu til 17. desember.
Marki „nýtt upphaf“
Michael Kellner framkvæmda-
stjóri Græningja sagði að Þjóð-
verjar ættu nú von á „nýju upphafi“
í fyrsta sinn í 16 ár. Hyggjast
samningamenn flokkanna nú skipta
sér í 22 vinnuhópa til að setja sam-
an stjórnarsáttmála.
Flokkarnir náðu saman í síðustu
viku um stóru línurnar næstu fjög-
ur árin, en þar á meðal er stefnt að
mikilli fjárfestingu í loftslags-
málum, innviðum og menntun til
þess að búa Þýskaland undir
„grænni“ og tæknivæddari framtíð.
AFP
Viðræður Olaf Scholz kanslaraefni
SPD mætir til viðræðna í gær.
Ný stjórn taki við
í byrjun desember
- Flokkarnir flýta viðræðum sínum
Ali Harbi Ali,
morðingi breska
þingmannsins
Davids Amess,
var í gær dreg-
inn fyrir dóm í
Lundúnum og
ákærður fyrir að
hafa stungið
Amess til bana.
Segja saksókn-
arar í málinu að
árás Alis tengist hryðjuverkum, en
hann er einnig kærður fyrir undir-
búning hryðjuverka.
Ali var handtekinn á vettvangi
morðsins, en hann er sagður hafa
stungið Amess mörgum sinnum í
kirkju í bænum Leigh-on-Sea, þar
sem þingmaðurinn var með opinn
viðtalstíma fyrir íbúa kjördæmis
síns. Hafði Ali logið að starfsfólki
Amess til að fá fund með honum.
Amess er annar þingmaðurinn á
síðustu fimm árum sem er myrtur.
Er verið að endurskoða öryggismál
þingmanna vegna morðsins.
BRETLAND
Morðingi Amess
dreginn fyrir dóm
David
Amess
Alþjóðaheil-
brigðismála-
stofnunin WHO
áætlaði í gær að
á bilinu 80-
180.000 starfs-
menn í heilbrigð-
isgeiranum
hefðu farist af
völdum kórónu-
veirunnar frá því
að heimsfarald-
urinn hófst og fram í maí á þessu
ári. Tedros Adhanom Ghebreyesus,
framkvæmdastjóri WHO, sagði að
heilbrigðisstarfsfólk þyrfti að fá
forgang í bólusetningu, en í skýrslu
stofnunarinnar kom fram að enn
eigi eftir að bólusetja meirihlutann
af þeim 135 milljónum manna sem
áætlað er að sinni heilbrigðisþjón-
ustu um allan heim.
Vandinn væri ekki síst í fátækari
ríkjum heims, og sagði Tedros að
gera þyrfti betur til að tryggja
jafna dreifingu bóluefna.
WHO
Heilbrigðisstarfs-
fólk fái forgang
Tedros Adhanom
Ghebreyesus
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Deilur Póllands og Evrópusam-
bandsins voru fyrirferðarmiklar á
leiðtogafundi sambandsins í Brussel
í gær, en upphaflega var boðað til
fundarins til þess að ræða hinn al-
þjóðlega orkuskort sem hrjáir
heimsbyggðina. Fundinum á að
ljúka í dag.
Lýstu nokkrir leiðtogar aðildar-
ríkjanna áhyggjum af því að dómur
pólska stjórnlagadómstólsins 7.
október síðastliðinn hefði vegið að
grunnstoðum Evrópusambandsins.
„Það er mjög ljóst að farið hefur ver-
ið yfir strikið,“ sagði Alexander De
Croo, forsætisráðherra Belgíu.
Mark Rutte, forsætisráðherra Hol-
lands, og Sanna Marin, forsætisráð-
herra Finnlands, voru bæði á því að
ekki mætti gefa eftir við Pólverja í
deilunum.
Nokkrir leiðtoganna gáfu til
kynna þegar þeir mættu til fundar
að þeir væru hlynntir því að Evrópu-
sambandið myndi ekki veita Pólverj-
um styrki eða lán úr neyðarsjóði sín-
um vegna heimsfaraldurins fyrr en
deilan hefði verið leyst. Þá voru enn
aðrir á því máli að allt fjármagn sem
Evrópusambandið veitti til Póllands
ætti að vera bundið skilyrðum um að
aðildarríkin framfylgi réttarríkinu.
Nýtur stuðnings Ungverja
Mateusz Morawiecki, forsætisráð-
herra Póllands, sagði hins vegar að
þótt hann væri reiðubúinn til við-
ræðna myndu Pólverjar ekki láta
undan „hótunum um fjárkúgun“. Þá
sagði Morawiecki að Evrópusam-
bandið væri með afskiptum sínum að
seilast langt umfram umboð sitt inn
á svið þar sem fullveldi aðildarríkj-
anna ætti að gilda.
Naut Morawiecki stuðnings frá
Viktor Orban, forsætisráðherra
Ungverjalands, sem sagði að fram-
kvæmdastjórnin og Evrópusam-
bandið væru á „nornaveiðum“ gagn-
vart Póllandi. Sagði Orban að
Ungverjar myndu styðja Pólverja
gegn þessari „misbeitingu valds“.
Morawiecki fundaði einsamall
með Emmanuel Macron Frakk-
landsforseta í aðdraganda fundarins,
áður en hann hélt til fundar viðAn-
gelu Merkel Þýskalandskanslara og
svo Pedro Sanchez, forsætisráð-
herra Spánar.
Sagði Merkel eftir fund þeirra að
hún vildi ekki að deilan færi fyrir
Evrópudómstólinn. Röð málaferla
þar myndi ekki leysa vandann um
hvar endamörk Evrópuréttar og
stjórnarskrár ríkjanna lægju.
Deilt um afstöðu Pólverja
- Leiðtogar aðildarríkjanna takast á í Brussel um úrskurð stjórnlagadómstólsins
- Velt upp hvort Pólland eigi að fá fjármagn frá ESB - Orban styður Morawiecki
AFP
Stirt Morawiecki og Ursula von der
Leyen, forseti framkvæmdastjórn-
arinnar, tókust í hendur í gær.
Boris Johnson forsætisráðherra
Bretlands heilsar hér prestum í að-
draganda sérstakrar messu, sem
haldin var í kirkju heilags Patreks í
Armagh í Norður-Írlandi í gær í til-
efni af því að þá voru liðin 100 ár
frá tvískiptingu Írlands.
Simon Coveney utanríkis-
ráðherra Írlands og Paul Given for-
sætisráðherra norðurírsku heima-
stjórnarinnar sóttu einnig
athöfnina, en Michael D. Higgins
forseti Írlands ákvað að sniðganga
hana. Sagði Coveney rétt að mæta
til athafnarinnar, þrátt fyrir að
hann sjálfur væri á því að skipting
Írlands hefði verið röng. Athöfnin
hefði ekki verið til að fagna skipt-
ingunni eða minnast hennar, heldur
til að íhuga þann sársauka og deil-
ur sem síðustu 100 ár hefðu haft í
för með sér, með það að markmiði
að finna betri leið fram á við.
100 ár liðin
frá skiptingu
Írlands
AFP
Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com
Sölustaðir:
Hagkaup, Nettó, Fjarðarkaup, Melabúð,
Frú Lauga, Heimkaup, Veganbúðin