Morgunblaðið - 22.10.2021, Síða 14

Morgunblaðið - 22.10.2021, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Bretar og Frakkar hafa elt saman grátt silfur um marg- ar aldir, og hefur oft verið grunnt á því góða, jafnvel eftir að ríkin tvö slíðruðu sverðin við upphaf 20. aldar. Eftir að Bretar greiddu at- kvæði með því að ganga úr Evr- ópusambandinu hafa samskiptin tekið á sig heldur vonda mynd og ágreiningsefnin ófá. Það var til þess tekið, að á með- an á útgönguferlinu sjálfu stóð sætti Emmanuel Macron Frakk- landsforseti gjarnan færis að leggja stein í götu þess. Virtist jafnvel á stundum sem Frakkar vildu knýja fram útgöngu án nokk- urs samnings, og síðar meir að ekki yrði samið um fríverslun milli Evrópusambandsins og Breta. Nýjasta útspil Macrons eru hót- anir í garð Breta vegna útgáfu veiðileyfa handa frönskum sjó- mönnum í landhelgi Ermarsunds- eyjanna. Bretar samþykktu 15 af 47 umsóknum, en í Jersey fengu franskir smábátaeigendur „ein- ungis“ 97 leyfi, þar af 31 tíma- bundið, en 73 umsóknum var hafn- að, aðallega af því að ekki var hægt að sýna fram á að viðkom- andi útgerðir hefðu fyrri veiði- reynslu við Jersey. Þrátt fyrir að meirihluti um- sókna hefði þannig verið sam- þykktur kröfðust Frakkar að hin 75 leyfin yrðu einnig veitt, og hef- ur Macron veitt Bretum frest til 1. nóvember næstkomandi til þess. Hvað tekur þá við er meira á huldu, en meðal þess sem Clement Beune Evrópumálaráðherra Macrons hefur lagt til er að slökkt verði á eða í það minnsta dregið úr rafmagnsveitu til eyjanna. Yrði staðið við slíka hótun væru þau viðbrögð langt um- fram tilefnið, og lík- leg til þess að stór- skaða samskipti Breta og Frakka um langa fram- tíð. En jafnvel þótt ekki verði slökkt á ljósunum í Jersey hafa Frakkar hótað að meina Bretum aðgang að rannsóknarsjóðum Evrópusambandsins nema veiði- leyfin verði veitt. Þessi viðbrögð Frakka má að miklu leyti útskýra með því að til- tölulega stutt er til forsetakosn- inganna á næsta ári. Tveir síðustu fyrirrennarar Macrons, þeir Nicolas Sarkozy og Francois Hol- lande, náðu hvorugur endurkjöri og hann vill forðast þau örlög. Ein leiðin til þess er með því að höfða til franskra þjóðernissinna, en fyr- irséð er að helsta keppnin sem Macron verði veitt um embættið komi úr þeirri átt. Þar eru líkleg- ustu keppinautarnir Marine Le Pen og Eric Zemmour, sem reynd- ar hefur ekki enn sagst verða í framboði en fer mikinn í árangurs- ríkum bóksölutúr sem líkist meira kosningaferðalagi. En að hluta til virðist einnig mega skrifa viðbrögðin á Macron sjálfan, sem virðist ekki geta ráðið við sig, ef tækifæri gefst til þess að vera eins og fíll í postulínsbúð. Jafnvel Angela Merkel, fráfarandi Þýskalandskanslari og einn helsti bandamaður Macrons í Evrópu- samstarfinu, er sögð hafa skamm- að hann, langþreytt á því að þurfa að „líma saman brotin“ eftir gáskafullar yfirlýsingar hans. Spurningin verður samt áleitin, hver muni líma þau saman, nú þegar styttist í að Merkel stigi upp úr kanslarastólnum. Kosningabaráttu beint gegn fornum fjendum} Macron hótar Bretum Atburðir í kjöl- far nýafstað- inna kosn- inga í Norðvestur- kjördæmi halda áfram að taka rými í opinberri umræðu þó að áhugi á þeim hafi dalað enda flestum orð- ið ljóst að ekkert það gerðist sem gæti raskað niðurstöðunni. Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, fjallar um einn sérkennilegan anga þessa máls á vef sínum og segir: „Lög- reglustjórinn á Vesturlandi sekt- aði yfirkjörstjórn NV-kjördæmis fyrir að standa ekki rétt að með- ferð kjörgagna, þau hafi staðið án innsiglis í talningarsal í Hótel Borgarnesi. Ágreiningur er um hve mikil áhætta var tekin með því. Yfirkjörstjórnarmenn neita að greiða sektina og hefur það mál væntanlega sinn gang innan réttarkerfisins. Að þetta leiði sjálfkrafa til þess að ógilda verði kosningarnar í kjördæminu er af og frá, þá væri rannsóknarstarfi þingnefndar- innar sjálflokið og lögreglu- stjórinn á Vesturlandi kominn í hennar stað. Á fyrsta stigi þessa rann- sóknamáls sem verður sífellt und- arlegra var látið eins og þingmenn væru vanhæfir til að fara með það vald sem stjórnlög fela þeim. Til- gangslaust þref um vanhæfi þing- manna stóð í nokkurn tíma. Sá sem talaði þá hæst um vanhæfið var Magnús Davíð Norðdahl frá Pírötum, hann náði ekki kjöri vegna reiknilíkansins og skorts á atkvæðum, sama gildir um þau Rósu Björk Brynjólfsdóttur frá Samfylkingu, Guðmund Gunn- arsson frá Viðreisn og Karl Gauta Hjaltason frá Miðflokknum. Þau eygja nú von fyrir sig með sekt- arákvörðun lögreglustjóra Vest- urlands. Ranga niðurstaða taln- ingarinnar eigi að gilda eða bara að kjósa upp á nýtt, helst á öllu landinu.“ Þetta er sannarlega undarleg umræða og þeir sem hæst láta hafa afar þrönga og óheppilega sérhagsmuni sem þeir virðast telja réttlæta að draga úr trausti á grundvöll lýðræðis í landinu. Það er mikill ábyrgðarhluti. Þröngir sérhags- munir ráða umræðu um kosningar} Niðurstaðan skýr A f hverju senda stúlkur undir lög- aldri svona myndir af sér þrátt fyrir umræðuna í fjölmiðlum?“ var spurt af fjölmiðlamanni í góðri og mikilvægri umfjöllun um stafrænt kynferðisofbeldi meðal grunnskóla- barna í vikunni. Spurningin er algeng en hún er til merkis um úrelt viðhorf til kynferðis- brota og þá áherslu að breyta þurfi hegðun þolandans. Okkur hefur þó tekist að eyða þekktum mýtum um að við þyrftum að hylja okkur betur, klæða okkur í síðari kjóla, vera ekki einar, drekka minna eða bara ekki taka mynd með rakt hár til að bjóða ekki hættunni heim á að verða fyrir ofbeldi. Slíkur málflutn- ingur fær sem betur fer minni hljómgrunn en áður. Sömu mýtur mega ekki verða gildar í um- ræðunni þegar kemur að stafrænu kynferðis- ofbeldi þótt við séum að horfa til annarra og nýrra birting- armynda ofbeldis af sama grunni. Kynferðisofbeldi í gegnum stafræna tækni er ekki undanskilið þeirri bylt- ingu, breytingum og umræðu sem hefur verið síðustu ár enda algengt notkunarform þess að brjóta á einstakl- ingum, jafnt börnum sem fullorðnum. Um það ofbeldi gilda sömu lögmál; ábyrgðin er gerandans og þá hegðun verðum við með öllum mætti að stöðva. Í því felst til dæm- is að dreifa ekki án samþykkis kynferðislegu myndefni sem einstaklingur sendi þér. Ég hef í störfum mínum lagt áherslu á að lög taki mið af breyttri tækni þegar svo ber undir. Löggjöfin þarf að end- urspegla nýjan veruleika og gerir það nú með mun betri hætti en áður eftir að frumvarp sem ég lagði fram um kynferðislega friðhelgi var samþykkt í byrjun þessa árs. Nýtt hegningarlagaákvæði styrkir réttarvernd einstaklinga með hliðsjón af þeim samfélagslegu – og tæknilegu – breyt- ingum sem hafa orðið og þróun í viðhorfi til kynferðisbrota sem framin eru með stafrænum hætti. Við þurfum þó einnig að samþykkja breyt- ingar á barnaníðsákvæði almennra hegning- arlaga sem ekki náði fram að ganga á síðasta þingi. Þar er um að ræða löngu tímabærar úr- bætur sem felast meðal annars í verulegri rýmkun refsirammans, breyttri hugtaka- notkun og skýrari greinarmun á mörkum kyn- ferðislegra samskipta og kynferðisbrota. Með þeim breytingum eru tekin mikilvæg skref til að vernda börn betur gegn stafrænum birting- armyndum kynferðislegs ofbeldis. Meðal ann- ars með því að hækka refsirammann úr tveimur í sex ár eru send skýr skilaboð um alvarleika þessara brota. Við tökum baráttuna gegn stafrænu kynferðisofbeldi al- varlega. Í því samhengi þurfum við að horfa til gerenda og frekar spyrja spurninganna hvernig stöðvum við þá í að beita ofbeldi? Ríkislögreglustjóri mun ráðast í sérstakt átak í næstu viku þar sem nemendur í 8. bekk í grunnskólum fá fræðslu um mikilvægi samþykkis, einnig í stafrænum sam- skiptum. Það er eitt skrefið af mörgum sem við þurfum að stíga áfram. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Stafrænt samþykki Höfundur er dómsmálaráðherra. aslaugs@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is E f vel rætist úr árgöngum ýsu frá 2019 og 2020 gæti það leitt til aukningar í ýsuveiðum á næstu árum. Þessir árgangar, 1-2 ára ýsa, voru ein- mitt áberandi í rækjuleiðangri nýver- ið, en þá voru vísitölur ýsu þær hæstu sem mælst hafa í Ísafjarðardjúpi frá upphafi og meira var af ýsu í Arnar- firði heldur en þar hefur sést í áratug. Lítið var hins vegar af rækju. Útbreiðslusvæði ýsu hefur stækkað í Ísafjarðardjúpi og er nú inn eftir öllu Djúpi, en hún étur meðal annars tals- vert af rækju. Guðmundur Þórðarson, sviðsstjóri botnsjávarsviðs á Hafrann- sóknastofnun, segir að kenningin sé sú að rækjan hörfi undan ýsumass- anum. Hugsanlega sé eitthvað af rækju grynnra, en fari á dýpra vatn þegar ýsan fari úr fjörðunum á haust- in eða í upphafi vetrar. Hann vonast því til að í febrúar verði farið í leið- angur með heimamönnum til að kanna stöðuna á rækjunni í Djúpinu og hvernig henni hafi reitt af. Sveiflur í nýliðun Guðmundur segir að ýsan sé á margan hátt ólíkindatól. Það eigi ekki síst við um sveiflur í nýliðun. Þekkt sé hjá þorski að þar geti nýliðun tvöfald- ast á milli ára, en hjá ýsunni séu dæmi um tífalda nýliðun á milli ára án þess að skýringar séu augljósar. Hugsan- lega falli þá allt saman; straumar, hita- stig, fæðuframboð og hagkvæm dreif- ing seiða. Á móti megi spyrja af hverju slíkt gerist ekki í sama mæli hjá þorskinum. Búsvæði ýsunnar hefur einnig breyst á síðustu árum með hærra hita- stigi sjávar og er hún nú orðin út- breidd fyrir norðan land. Þetta hefur haft erfiðleika í för með sér þar sem kvótinn var að stórum hluta vistaður fyrir sunnan og vestan land. Margir sjómenn nyrðra hafa lagt mikið á sig til að flýja undan ýsunni. Aðrir hafa haft á orði að ýsan væri alls staðar og erfitt væri að forðast hana á veiðislóð þorsks. Við þessu var brugðist í lok apríl í vor þegar sjávarútvegsráðherra ákvað að auka aflamark í ýsu um átta þúsund tonn. Í rökstuðningi sagði að tilefni ákvörðunar væri „erfiðleikar sem rekja má til mikillar ýsugengdar á veiðisvæðum við Ísland“. 21. apríl var búið að veiða rúmlega 90% aflaheim- ilda fiskveiðiársins í ýsu. Dregið frá á þessu ári Sá böggull fylgdi skammrifi að hækkunin hefur verið dregin frá afla- marki yfirstandandi fiskveiðiárs. Í áliti Hafrannsóknastofnunar var bent á að svipaður vandi gæti komið upp á þessu fiskveiðiári og því mikilvægt að öllum yrði ljóst að aukningin kæmi til frá- dráttar á fiskveiðiárinu 2021-22. Eftir aukninguna síðasta vor var aflamark í ýsu 54 þúsund tonn á síð- asta fiskveiðiári. Fyrir þetta fisk- veiðiár var ráðgjöfin rúmlega 50 þús- und tonn en vegna fyrrnefndra átta þúsund tonna lækkar leyfilegur heild- arafli í ýsu frá ráðgjöf í 41.229 tonn á þessu fiskveiðiári og þá hefur einnig verið tekið tillit til frádrags sem kemur í hlut erlendra ríkja. Spurður hvort ekki sé líklegt að hljóð heyrist úr horni er líður á fisk- veiðiárið og einhverjir reki upp rama- kvein þegar lítið verður eftir af ýsu- kvótanum, segir Guðmundur það ekki ólíklegt. Hann segist hins vegar ekki sjá ástæðu til að auka við ýsukvótann. Nýtingarstefna stjónvalda geri ráð fyrir að aflamark ýsu sé ákvarðað samkvæmt aflareglu. Gert sé ráð fyrir að aflareglur leiði til hámarksafrakst- urs til lengri tíma litið og dragi úr sveiflum í aflamarki. Ráðgjöf stofn- unarinnar sé samkvæmt aflareglu og því í samræmi við markmið stjórn- valda sem og varúðarsjónarmið. Á síðustu árum hafi nokkrar breyt- ingar verið gerðar á aflareglu, m.a. hvað varði veiðihlutfall, en aflareglan á að taka tillit til þeirrar óvissu sem er í stofnmatinu. Ýsan geti vissulega ver- ið erfið í ráðgjöf þar sem breytingar í nýliðun og vexti geta verið hraðar, en að svo komnu máli sjái hann ekki ástæðu til breytinga. Ýsugengd hefur oft valdið erfiðleikum Ýsan er meðal verðmætustu fisktegunda sem veiddar eru við landið. Þannig var útflutnings- verðmæti afurða ýsu 21,6 millj- arðar á síðasta fiskveiðiári og 17,5 milljarðar á fiskveiðiárinu 2019-20 á verðlagi og gengi hvors árs. Hún kemur þó langt á eftir þorskinum hvað verðmæti áhrærir, en útflutningsverð- mæti hans var 135,6 milljarðar á síðasta fiskveiðiári og 125,4 milljarðar fiskveiðiárið á undan. Yfir 21 millj- arður í fyrra ÚTFLUTNINGSVERÐMÆTI Stofnþróun ýsu, heildarafli og nýliðun frá 1979 Afli, þús. tonn Nýliðun, milljónir '80 '84 '88 '92 '96 '00 '04 '08 '12 '16 '20 '80 '84 '88 '92 '96 '00 '04 '08 '12 '16 '20 Heimild: Hafrannsóknastofnun 120 100 80 60 40 20 0 400 300 200 100 0 Botnvarpa Lína Dragnót Annað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.