Morgunblaðið - 22.10.2021, Qupperneq 17
UMRÆÐAN
17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2021
Innan sjávarútvegs-
ins hefur um langt
skeið verið mikil um-
ræða um stofnmat á
ýmsum þeim teg-
undum sem teljast til
okkar mikilvægustu
nytjafiska. Það á sér-
staklega við um tvær
tegundir, karfa og grá-
lúðu. Þessar tegundir
eru okkur Íslendingum
mikilvægar og mörg sjávar-
útvegsfyrirtæki eiga verulegra hags-
muna að gæta þegar kemur að veiði
úr þessum stofnum. Endurtekin um-
ræða um mælingar, útreikninga og
aðferðafræði hvað viðkemur þessum
tegundum varð til þess að við hjá Bláa
hagkerfinu ákváðum að vinna skýrslu
um stofnmat á karfa og grálúðu og
rýna um leið grunn þeirra vísinda sem
liggja að baki.
Þessi skýrsla liggur nú fyrir og
verður kynnt fyrir hagsmunaaðilum á
næstunni. Rétt er að benda á að eng-
inn opinber aðili óskaði eftir slíkri
skýrslu og hún var algerlega unnin að
frumkvæði okkar hjá Bláa hagkerf-
inu. Það er líka ástæða til að taka fram
að samstarf við Hafrannsóknastofnun
var til fyrirmyndar við vinnslu skýrsl-
unnar og vísindamenn þar fögnuðu
gerð hennar þótt hún óneitanlega fæli
í sér ákveðna skoðun og endurmat á
þeirra vinnu og aðferðafræði.
Íslensk gögn – erlend niðurstaða
Áður en lengra er haldið er rétt að
benda á að fiskrannsóknir byggjast á
mjög mörgum ólíkum þáttum sem
hver um sig getur verið mikilli óvissu
háður. Í upphafi þarf að afla gagna
sem fengin eru með veiðum á fyr-
irframskilgreindri veiðislóð. Þessi
gögn eru færð inn í líffræðileg módel
og að endingu er beitt tölfræðigrein-
ingu til að meta stærð og afkastagetu
fiskistofnanna. Á þessari vinnu bygg-
ist síðan sú veiðiráðgjöf sem íslenskur
sjávarútvegur styðst við.
Útreikningar á rannsóknum ís-
lenskra sérfræðinga eru sendir til al-
þjóðlegs ráðs sem heitir því mikla
nafni alþjóðahafrannsóknaráðið
(ICES) en það hefur það hlutverk að
staðfesta útreikninga okkar vísinda-
manna og koma með tillögur um há-
marksafla. Þar með er fastsett af al-
þjóðlegri stofnun hvað íslenskt
þjóðarbú getur veitt í íslenskri lög-
sögu. Það er rétt að taka fram að við
hjá Bláa hagkerfinu fengum ekki
frumgögn frá ICES við vinnslu okkar
skýrslu. Það reynist erfitt að sækja
nokkur gögn eða upplýsingar þangað
og hver vísaði á annan. ICES reyndist
þannig fjarlægari og óvísindalegri í
nálgun sinni en Hafrannsóknastofn-
un.
Mikil óvissa – stöðugt endurmat
Hér er um að ræða áhugaverð vís-
indi en þau eru eðli málsins sam-
kvæmt háð talsverðri óvissu og ættu
því að vera í stöðugu endurmati. Það
er engin ástæða til að efast um að fyr-
irkomulag við stofnmat á okkar veiði-
stofnum er unnið eftir bestu vís-
indalegri þekkingu á hverjum tíma en
takmarkast að nokkru leyti af þeim
fjármunum sem settir eru í þessar
rannsóknir. Það er alltaf hægt að auka
við rannsóknir og afla meiri þekk-
ingar en allt veltur það á þeim fjár-
munum sem teknir eru frá til þess. Ís-
lenskt þjóðarbú verður að meta
mikilvægi þessara rannsókna og for-
gangsraða fjármunum. Athugun okk-
ar hjá Bláa hagkerfinu hefur leitt í ljós
að hafa má rökstuddan grun um að
það skorti nokkuð á að vitað sé hvað
er að gerast með karfa og grálúðu þar
sem rannsóknir eru ekki nægar.
Ráðherra sjávarútvegsmála fær
ákveðna fjármuni til rannsókna og
setur þá að mestu í hendurnar á Haf-
rannsóknastofnun, sem síðan skiptir
þeim niður á þau rannsóknarverkefni
sem búið er að úthluta stofnuninni.
Erfitt er að sjá hve vel fram-
kvæmdavaldið fylgist
með því sem er að ger-
ast innan þeirra stofn-
ana sem framkvæma
rannsóknir eða hvernig
því eftirliti er háttað.
Þjóðarbúið á sannarlega
mikið undir að vel sé
farið með þessa fjár-
muni og vel takist til
með rannsóknir.
Það er auðvitað eft-
irtektarvert að við Ís-
lendingar séum búnir að
framselja ákvörðunarvald til erlendra
stofnana og vottunaraðila sem ákveða
hvort við erum að veiða á sjálfbæran
hátt úr okkar veiðistofnum. Flest
bendir til þess að þessir aðilar hafi
hvorki betri gögn né betri þekkingu
en er að finna í íslenskum sjávar-
útvegi, sem á sannarlega allt undir að
vel takist til með rannsóknir og fisk-
veiðistjórnun.
Betri þekking –
betri ráðgjöf
Eftir Svan
Guðmundsson
Svanur Guðmundsson
» Athugun okkar hefur
leitt í ljós að það
skorti nokkuð á að vitað
sé hvað er að gerast
með karfa og grálúðu.
Höfundur er frkvstj. Bláa hagkerf-
isins ehf. og sjávarútvegsfræðingur.
svanur@arcticeconomy.com
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is
Jóladagatölin eru komin!
Hæ sæti
– hvað vilt þú borða!
Bragðgott, hollt
og næringarríkt
Smáralind, Kringlunni, Spönginni, Reykjanesbæ og Akranesi – dyrabaer.is
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Byko, Selfossi | Garðheimar | Heimkaup |Dýrabær