Morgunblaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2021
40 ÁRA Sunna er Reykvíkingur
en býr í Kópavogi. Hún er náms-
og starfsráðgjafi frá Háskóla Ís-
lands og vinnur sem námsráðgjafi
í Flensborgarskólanum í Hafnar-
firði. Sunna stundar einnig nám í
starfsendurhæfingu við Háskólann
á Akureyri. „Áhugamálin eru aðal-
lega útivera í íslensku náttúrunni
og samvera með fjölskyldu og vin-
um en einnig flest sem tengist and-
legri heilsu og vellíðan.“
FJÖLSKYLDA Eiginmaður
Sunnu er Ásgrímur Örvar Jóns-
son, f. 1980, rafiðnfræðingur hjá
Rafmiðlun. Börn þeirra eru Fjölnir og Fannar, f. 2009, og Dóra María, f.
2016. Foreldrar Sunnu eru Þórarinn Ólafsson, f. 1954, deildarstjóri hjá Vega-
gerðinni, og Ólöf Una Jónsdóttir, f. 1958, píanókennari við Tónlistarskóla
Mosfellsbæjar og Tónskóla Sigursveins.
Sunna Þórarinsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú dregst varla úr sporunum um
þessar mundir, reyndu að taka þér pásu og
endurnæra þig. Gættu þess að ofhlaða ekki
verkefnaskrána.
20. apríl - 20. maí +
Naut Nú er kjörið tækifæri til þess að fara í
gegn um hlutina og sjá hvort áætlanir árs-
ins ætla ekki að standast. Vertu reiðubúinn
að ígrunda að skipta um vinnu.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þú mátt vera ánægður með þann
árangur sem þú hefur náð. Þér hefur vegn-
að vel og þú nýtur virðingar samstarfsfólks
þíns.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Vinnan göfgar manninn en það er
fleira sem gefur lífinu gildi. Þú gerir þér
grein fyrir að ýmislegt sem þú taldir þig
ekki geta lifað án var algjör óþarfi.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú ert í ójafnvægi og veist ekki í hvorn
fótinn þú átt að stíga. Hugsaðu bara málið í
næði, og farðu af stað þegar þú ert tilbúinn.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þér er það óvænt ánægja hvað þú
uppskerð fljótt árangur erfiðis þíns. Ef þú
tekur á hlutunum af festu og sjálfsaga finn-
urðu farsæla lausn á erfiðu vandamáli.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú verður að sætta þig við að ekki
gengur allt í dag eins og þú vilt að það
gangi. Varastu að grípa inn í mál sem þú
þekkir lítið til; það getur gert illt verra.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú hefur engar efasemdir
varðandi markmið þín og átt því auðveldara
með að fá fólk til samstarfs við þig. Ræddu
málin við þá sem þú treystir.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Dagurinn hentar vel til að skil-
greina takmök þín og vinna að þeim. Nýjar
hugmyndir vekja áhuga þinn og þú nýtur
þess að læra eitthvað nýtt.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Góðu breytingarnar sem þú hef-
ur verið að reyna að ná í gegn verða loks að
veruleika. Þú þarft að komast í smáfrí til að
endurnýja sjálfan þig til sálar og líkama.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Breytingar á vinnutilhögun
koma þér úr jafnvægi. Láttu ekki deigan
síga heldur haltu ótrauður áfram. Annars
áttu á hættu að missa allt úr böndunum.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Samband þitt við vini þína er eitt-
hvað að íþyngja þér. Einbeittu þér að því að
tala hreint út um hlutina.
ráðum og nefndum og er t.d.
stjórnarformaður Fasteigna Há-
skóla Íslands og stjórnarmaður í
Carbfix, en það er verkefni um að
binda koldíoxíð varanlega í bergi.
„Þetta eru gríðarstór viðskipta-
tækifæri tengd baráttunni við hlýn-
un jarðar. Það skiptir engu hversu
lega verið í fiskihagfræði en ég fékk
á sínum tíma styrk frá norska út-
flutningsráðinu fyrir fisk til að
stunda doktorsnám og ég fór að
rannsaka fiskimarkaði. En ég hef
skrifað líka um landbúnaðarmál og
umhverfismál.“
Daði hefur setið í fjölmörgum
D
aði Már Kristófersson
er fæddur 22. október
1971 í Reykjavík og
getur rakið ættir sín-
ar í höfuðstaðnum í
sjö ættliði í beinan karllegg. Hann
ólst þó upp í Reykholti í Borgarfirði
en flutti til Reykjavíkur 1985. „For-
eldrar mínir voru kennarar í Reyk-
holti, en ég kynntist sveitastörf-
unum mikið þar. Það var búskapur
á öllum bæjum þegar ég bjó í Reyk-
holtsdalnum.“
Daði gekk í Kleppjárnsreykja-
skóla og Árbæjarskóla. Hann varð
stúdent frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð 1991. Daði lauk búfræði-
prófi frá Landbúnaðarháskóla Ís-
lands 1993 og BS-prófi í búvís-
indum 1997. Daði flutti til Noregs
árið 1998 og dvaldi þar og í Banda-
ríkjunum við nám til ársins 2005.
Hann lauk meistaraprófi í hagfræði
frá norska lífvísindaháskólanum
(NMBU) árið 2000 og doktorsprófi í
hagfræði frá sama skóla 2005.
„Líf mitt hefur í raun verið röð
tilviljana. Ég hef ekki verið með
neitt plan. Ég ætlaði í dýralækn-
ingar og fór á Hvanneyri til undir-
búnings fyrir það, en svo ílengdist
ég þar. Svo kynnti Bjarni Guð-
mundsson, sem var prófessor þar,
mér hagfræðina svo ég fór til Nor-
egs að læra auðlindahagfræði. Þar
kynntist ég prófessor Kyrre Ric-
kertsen og þó að ætlunin hafi aldrei
verið að fara í doktorsnám endaði
ég í doktorsnámi undir hans hand-
leiðslu.“
Daði fluttist heim til Íslands 2005
og vann fyrstu árin hjá Bænda-
samtökum Íslands. Hann hóf störf
hjá Hagfræðistofnun Háskóla Ís-
lands 2007. Hann var ráðinn lektor
við Hagfræðideild Háskóla Íslands
árið 2009 og dósent árið 2010. „Það
var sama með störfin og námið. Ég
ætlaði aldrei í akademíuna, en
Ragnar Árnason prófessor hafði
samband við mig og sagði að það
vantaði kennara.“ Daði hefur verið
prófessor við Hagfræðideild frá
árinu 2016. Daði var ráðinn sviðs-
forseti Félagsvísindasviðs Háskóla
Íslands árið 2013 og gegndi því
starfi til ársins 2020. „Ég hef aðal-
margar ræður eru haldnar eða
hversu oft menn lýsa yfir áhyggjum
af hlýnun jarðar, það mun ekkert
gerast í þessum málum fyrr en það
borgar sig að gera eitthvað í þeim.
Þá munu lausnirnar koma og þær
eru byrjaðar að koma, m.a. þetta
verkefni.“
Daði var kjörinn varaformaður
Viðreisnar haustið 2020 og er vara-
þingmaður flokksins fyrir Reykja-
víkurkjördæmi suður.
Áhugamál Daða eru útivist og
ferðalög um Ísland. „Ég hef alveg
gaman af því að ferðast erlendis en
finnst langskemmtilegast að ferðast
um Ísland. Ég hef ferðast um því
sem næst allt hálendið og það eru
ekki mörg pláss sem ég hef ekki
komið í, en það eru margir staðir
eftir. Landið er stórt. Í sumar fór-
um við fjölskyldan í fyrsta sinn til
Flateyjar á Skjálfanda. Það var
rosalega skemmtilegt, en þetta var
hugmynd sem kviknaði í fyrra þeg-
ar við vorum stödd á Flateyjardal
þar sem eyjan blasti við manni.“
Daði hefur verið haldinn alvar-
legri bíladellu frá blautu barns-
beini. Ekkert bendir til þess að
hann læknist af henni í bráð, segir
hann. „Það er ekki það sama og
vera áhugamaður um bílaumferð.
Ég hef alla tíð barist fyrir því að
starfsfólk Háskólans og nemendur
greiði fyrir bílastæði því mér finnst
ólíðandi að ríkið niðurgreiði bílaum-
ferð í miðborgina. Sumir eru hissa á
Daði Már Kristófersson, prófessor við Háskóla Íslands – 50 ára
Stúdentsveisla Eiginkona Daða, börnin og kærustur þeirra síðasta vor.
Lífið er spennandi ferðalag
Afmælisbarnið Daði uppi á
Torfajökli síðasta vetur.
Útivist Hjónin
ásamt yngri
börnunum.
Systurnar Röskva
og Urður
Arnaldardætur
héldu tombólu í
Vesturbæ Reykja-
víkur. Þær söfn-
uðu 10.376 krón-
um og afhentu
Rauða krossinum
á Íslandi.
Hlutavelta
Til hamingju með daginn
110 Ve
veVe
Tr