Morgunblaðið - 22.10.2021, Qupperneq 26
- Mikilvægur leikur hjá kvennalandsliðinu í knattspyrnu í kvöld - Tékkland náði
jafntefli í Hollandi - Harðar rimmur gegn Tékkum í síðustu undankeppni HM
HM 2023
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Undankeppni HM kvenna í knatt-
spyrnu 2023 hefst á erfiðum leikjum
hjá íslenska landsliðinu. Liðið hefur
spilað einn leik til þessa og það var
gegn Hollandi, Evrópumeisturunum
frá árinu 2017. Á morgun mætir Ís-
land liði Tékklands á Laugardalsvelli
klukkan 18:45 og þar mætast liðin
sem flestir spá að muni berjast um
annað sætið í riðlinum.
Ísland tapaði á heimavelli fyrir
Hollandi í september, 0:2, og því ligg-
ur mikið við að ná í öll stigin gegn
Tékklandi. Tékkar hafa byrjað vel í
riðlinum og eru með fjögur stig eftir
tvo leiki. Liðið hóf keppnina á að ná í
stig til Hollands og gera þar 1:1-
jafntefli. Mjög góð úrslit fyrir Tékka
og þær fylgdu því eftir með 8:0-
stórsigri gegn Kýpur. Ekki er við því
búist að Hvíta-Rússland eða Kýpur
blandi sér í baráttuna í efri hlutanum
í riðlinum.
„Þessi leikur er ótrúlega mikil-
vægur. Við erum ekki komnar með
stig en Tékkar eru með fjögur stig.
Okkur langar á HM og hvert stig
skiptir máli. Við verðum að taka 3
stig ef við viljum reyna við fyrsta sæt-
ið, þótt auðvitað megi segja að margt
geti gerst í riðlinum hvernig sem leik-
urinn fer á morgun,“ sagði landsliðs-
konan Dagný Brynjarsdóttir á blaða-
mannafundi í gær. Hún á orðið
langan feril með landsliðinu og var til
að mynda í stóru hlutverki þegar Ís-
land komst í 8-liða úrslitin á EM
2013, sem telst vera besti árangur
liðsins frá upphafi.
Lokakeppni HM heillar
Fjórum sinnum hefur kvenna-
landsliðinu tekist að komast í loka-
keppni EM en liðinu hefur ekki tekist
að komast í lokakeppni HM.
„Að spila á HM er eitthvað sem
okkur langar að gera. Við vorum svo-
lítið nálægt því síðast og þá byrjuðum
við mjög vel í riðlinum. Þegar strák-
arnir fóru á HM í Rússlandi þá sáum
við hvernig þetta var hjá þeim og
þetta er að sjálfsögðu eitthvað sem
mann langar að gera á meðan maður
er í landsliðinu,“ sagði Dagný sem
upplifað hefur eitt og annað á sínum
ferli. Er eini Íslendingurinn sem orð-
ið hefur meistari bæði í Bandaríkj-
unum og Þýskalandi.
Hún leikur um þessar mundir með
enska liðinu West Ham United
Harður slagur í Znojmo
Í síðustu undankeppni HM lentu
Ísland og Tékkland einnig saman í
riðli. Liðin gerðu þá 1:1-jafntefli í
báðum leikjunum. Svo fór að Tékk-
land náði naumlega öðru sætinu í riðl-
inum á eftir Þýskalandi.
Síðari leikurinn er mörgum
minnisstæður en það var síðasti leik-
ur Íslands í riðlinum og fór fram á
Laugardalsvellinum. Glódís Perla
Viggósdóttir jafnaði fyrir Ísland 1:1
og í framhaldinu fékk hún vítaspyrnu
en Söru Björk Gunnarsdóttur brást
bogalistin á vítapunktinum og ís-
lensku landsliðskonurnar sátu eftir
með sárt ennið. Dagný missti af þeim
leik en var með í fyrri leiknum í
Znojmo og skoraði þá mark Íslands.
„Ég var ekki með í seinni leiknum
því þá var ég nýbúin að eiga son
minn. En ég spilaði leikinn í Tékk-
landi haustið 2017. Það var erfiður
leikur. Þá vorum við að koma frá
Þýskalandi þar sem við unnum Þjóð-
verja. Bæði liðin sköpuðu sér færi í
þeim leik og fengu tækifæri til að
vinna. Ég reikna með því sama á
morgun,“ sagði Dagný á fundinum í
gær en leikirnir gegn Tékkum í síð-
ustu keppni voru mjög harðir.
„Já, það var mikil harka í leiknum
úti og mikið um aukaspyrnur. Við er-
um fastar fyrir og Tékkarnir eru al-
veg eins. Þannig að þetta verður bara
hörkuleikur,“ sagði Dagný Brynjars-
dóttir ennfremur.
- Á mbl.is/sport er að finna viðtöl
við fleiri landsliðskonur og þjálfarann
Þorstein Halldórsson.
Ísland þarf að ná í þrjú
stig í Laugardalnum
Morgunblaðið/Eggert
Í Laugardal Dagný Brynjarsdóttir og Þorsteinn Halldórsson á blaðamannafundinum í gær.
_ Anna Guðrún Halldórsdóttir fór
með sigur af hólmi á Evrópumeist-
aramótinu í ólympískum lyftingum í
Alkmaar í Hollandi á mánudaginn og
setti um leið nokkur glæsileg met,
þar á meðal tvö heimsmet. Anna
Guðrún keppir í flokki 50 ára og eldri
og setti heimsmet í snörun í 81 kíló-
gramma flokki kvenna þegar hún
lyfti 62 kílógrömmum. Auk þess jafn-
aði hún heimsmetið í jafnhendingu
þegar hún lyfti 80 kílógrömmum en
bætti um leið Evrópumetið í hennar
aldurs- og þyngd-
arflokki um tvö
kílógrömm.
Þetta skilaði
henni 142 kíló-
grömmum sam-
anlagt, sem þýðir
að hún bætti Evr-
ópumetið um
fjögur kílógrömm
og heimsmetið um tvö kílógrömm í
samanlögðum árangri. Anna Guðrún
setti því tvö heimsmet og þrjú Evr-
ópumet á fyrsta alþjóðlega móti sínu
erlendis og voru allar sex lyftur
hennar gildar. Anna Guðrún hefur
ekki keppt lengi í ólympískum lyft-
ingum en tók hún þátt á sínu fyrsta
móti haustið 2020 á haustmóti Lyft-
ingasambands Íslands á Selfossi.
_ Knattspyrnumaðurinn Dagur Dan
Þórhallsson hefur rætt við Breiða-
blik um að ganga til liðs við félagið.
Það var fótbolti.net sem greindi frá
þessu. Dagur, sem er 21 árs gamall,
er leikmaður Fylkis en liðið féll úr
efstu deild á dögunum eftir að hafa
hafnað í neðsta sæti úrvalsdeild-
arinnar á síðustu leiktíð. Hann skor-
aði eitt mark í 20 leikjum fyrir Fylki í
efstu deild í sumar en alls á hann að
baki 36 leiki í efstu deild með Fylki
og Keflavík. Dagur lék með Mjönda-
len í Noregi frá 2019 til 2021 og þá á
hann að baki 23 landsleiki fyrir yngri
landslið Íslands þar sem hann hefur
skorað tvö mörk.
_ Haraldur Franklín Magnús úr Golf-
klúbbi Reykjavíkur missir naumlega
af lokamótinu á
Áskorendamóta-
röð Evrópu í golfi.
Haraldur lék á
samtals þremur
yfir pari eftir 36
holur á næstsíð-
asta mótinu í Gi-
rona á Spáni eftir
að hafa leikið á
75 höggum í gærmorgun. Haraldur
lék á 70 höggum í fyrradag, einu
undir pari vallarins. Kylfingar sem
voru á þremur höggum yfir pari og
betur eftir tvo hringi komust ekki
áfram í gegnum niðurskurðinn. Har-
aldur var í 46. sæti stigalistans fyrir
mótið en 45 efstu komast á loka-
mótið. Fyrst hann fór ekki í gegnum
niðurskurðinn í mótinu mun hann
Eitt
ogannað
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2021
Evrópudeildin
A-RIÐILL:
Rangers – Bröndby.................................. 2:0
Sparta Prag – Lyon.................................. 3:4
_ Lyon 9, Sparta Prag 4, Rangers 3,
Bröndby 1.
B-RIÐILL:
PSV – Mónakó .......................................... 1:2
Sturm Graz – Real Sociedad ................... 0:1
_ Mónakó 7, Real Sociedad 5, PSV 4,
Sturm Graz 0.
C-RIÐILL:
Napoli – Legia Varsjá .............................. 3:0
_ Legia Varsjá 6, Napoli 4, Leicester 4,
Spartak Moskva 3.
D-RIÐILL:
Femerbahce – Antwerp........................... 2:2
E. Frankfurt – Olympiacos .................... 3:1
- Ögmundur Kristinsson var ekki í leik-
mannahóp Olympiacos.
_ Eintracht Frankfurt 7, Olympiacos 6,
Fenerbahce 2, Antwerp 1.
E-RIÐILL:
Lazio – Marseille ...................................... 0:0
Lokomotiv Moskva – Galatasaray .......... 0:1
_ Galatasaray 7, Lazio 4, Marseille 3,
Lokomotiv Moskva 1.
F-RIÐILL:
Midtjylland – Rauða stjarnan ................ 1:1
- Elías Rafn Ólafsson varði mark Midtjyll-
and.
Ludogorets – Braga ................................. 0:1
_ Rauða stjarnan 7, Braga 6, Midtjylland 2,
Ludogorets 1.
G-RIÐILL:
Real Betis – Bayer Leverkusen.............. 1:1
_ Bayer Leverkusen 7, Real Betis 7, Celtic
3, Ferencváros 0.
H-RIÐILL:
Rapid Vín – Dinamo Zagreb ................... 2:1
West Ham– Genk ..................................... 3:0
_ West Ham 9, Dinamo Zagreb 3, Rapid
Vín 3, Genk 3.
Sambandsdeild Evrópu
A-RIÐILL:
HJK Helsinki – Maccabo Tel Aviv ......... 0:5
Alashkert – LASK.................................... 0:3
_ Maccabi Tel Aviv 7, LASK 7, HJK Hels-
inki 3, Alashkert 0.
B-RIÐILL:
Anorthosis – Flora Tallinn ...................... 2:2
Partizan Belgrad – Gent.......................... 0:1
_ Gent 9, Partizan Belgrad 6, Flora Tallinn
1, Anorthosis 1.
C-RIÐILL:
Bodö/Glimt – Roma................................. 6:1
- Alfons Sampsted lék allan leikinn með
Bodö/Glimt og lagði upp þriðja mark liðs-
ins.
CSKA Sofia – Zorya................................. 0:1
_ Bodö/Glimt 7, Roma 6, Zorya 3, CSKA
Sofia 1.
D-RIÐILL:
CFR Cluj – AZ Alkmaar.......................... 0:1
- Rúnar Már Sigurjónsson kom inn á sem
varamaður á 82. mínútu hjá CFR Cluj.
- Albert Guðmundsson lék fyrstu 81 mín-
útuna með AZ Alkmaar.
Jablonec – Randers.................................. 2:2
_ AZ Alkmaar 7, Jablonec 4, Randers 3,
CFR Cluj 1.
E-RIÐILL:
Feyenoord – Union Berlín....................... 3:1
Maccabi Haifa – Slavia Prag ................... 1:0
_ Feyenoord 7, Maccabi Haifa 4, Slavia
Prag 3, Union Berlín 3.
F-RIÐILL:
Köbenhavn – PAOK ................................ 1:2
- Ísak B. Jóhannesson lék fyrstu 76 mín-
úturnar með Köbenhavn, Andri Fannar
Baldursson lék fyrri hálfleikinn. Hákon
Arnar Haraldsson var ónotaður varamað-
ur.
- Sverrir Ingi Ingason lék ekki með PA-
OK vegna meiðsla.
Slovan Bratislava – Lincoln Red Imps... 2:0
_ PAOK 7, Köbenhavn 6, Slovan Bratislava
4, Lincoln Red Imps 0.
G-RIÐILL:
Mura – Rennes ......................................... 1:2
Vitesse – Tottenham ................................ 1:0
_ Rennes 7, Vitesse 6, Tottenham 4, Mura
0.
H-RIÐILL:
Qarabag – Kairat Almaty ........................ 2:1
Basel – Omonia Nicosia ........................... 3:1
_ Basel 7, Qarabag 7, Kairat Almaty 1, Om-
onia Nicosia 1.
Bandaríkin
DC United – New England Revolution. 2:3
- Arnór Ingvi Traustason kom inn á sem
varamaður á 81. mínútu hjá New England.
Atlanta United – New York City ........... 1:1
- Guðmundur Þórarinsson kom inn á sem
varamaður á 90. mínútu hjá New York City
og skoraði.
Orlando City – CF Montréal................... 1:1
- Róbert Orri Þorkelsson lék ekki með
Montréal vegna meiðsla.
Undankeppni HM kvenna
Rússland – Malta...................................... 3:0
Georgía – Finnland .................................. 0:3
Lettland – N-Makedónía ......................... 1:4
Tyrkland – Búlgaría................................. 1:0
Úkraína – Færeyjar................................. 4:0
Danmörk – Bosnía.................................... 8:0
Ísrael – Þýskaland.................................... 0:1
Portúgal – Serbía ..................................... 2:1
Pólland – Noregur.................................... 0:0
Írland – Svíþjóð ........................................ 0:1
Belgía – Kósovó ........................................ 7:0
50$99(/:+0$
Karlalandsliðið í knattspyrnu er í
62. sæti á nýjum styrkleikalista
FIFA sem birtur var í gærmorgun
og fellur um tvö sæti frá því í sept-
ember. Íslenska liðið var í 46. sæti í
upphafi árs þegar Arnar Þór Við-
arsson og Eiður Smári Guðjohnsen
tóku við liðinu af Erik Hamrén. Ís-
land hefur því fallið niður um sex-
tán sæti á árinu. Besta staða liðsins
frá upphafi á listanum er 18. sæti
en sú versta er 131. sæti.
Belgía er í efsta sæti listans,
Brasilía í öðru sæti og Frakkland í
þriðja sæti.
Ísland fallið um
sextán sæti
Morgunblaðið/Eggert
Þjálfarar Eiður Smári Guðjohnsen
og Arnar Þór Viðarsson.
Thea Imani Sturludóttir skoraði
níu mörk fyrir Val þegar liðið vann
31:23-sigur gegn Stjörnunni í úr-
valsdeild kvenna í handknattleik,
Olísdeildinni, í TM-höllinni í Garða-
bæ í fjórðu umferð deildarinnar í
gær. Garðbæingar leiddu með
tveimur mörkum í hálfleik, 15:13,
en Valskonur sneru leiknum sér í
vil strax í upphafi síðari hálfleiks
og létu forystuna aldrei af hendi
eftir það. Valur er með fullt hús
stiga í efsta sæti deildarinnar með
sex stig en Stjarnan er með tvö stig
í sjötta og þriðja neðsta sætinu.
Stórleikur í
Garðabæ
Morgunblaðið/Unnur Karen
9 Thea Imani átti stórleik þegar
Valur tyllti sér á toppinn.