Morgunblaðið - 22.10.2021, Qupperneq 27
ekki hækka á stigalistanum en 20
efstu á stigalistanum í lok tímabils-
ins komast á Evrópumótaröðina á
næsta ári. Guðmundur Ágúst Krist-
jánsson komst hins vegar í gegnum
niðurskurðinn og er sem stendur í
12.-18. sæti á samtals átta höggum
undir pari. Guðmundur var í 84.
sæti stigalistans fyrir mótið á
Spáni.
_ Haukur Þrastarson varð fyrir
meiðslum í síðasta leik með Kielce í
Meistaradeild karla í handknattleik í
fyrradag en liðið vann þá góðan sigur
á Porto. Haukur skoraði eitt mark í
leiknum en tognaði á ökkla sam-
kvæmt frétt á netmiðlinum Hand-
bolti.is. Erfitt er að segja til um hvort
Haukur missir mikið úr vegna þessa
en hann er nýfar-
inn að spila á ný
eftir aðgerð vegna
krossbandsslits.
_ Julian Nagels-
mann, þjálfari
knattspyrnuliðs
Bayern München,
greindist með kór-
ónuveiruna í vikunni. Bayern Münc-
hen vann öruggan 4:0-sigur gegn
Benfica í E-riðli Meistaradeildarinnar í
Lissabon í Portúgal á miðvikudaginn.
Nagelsmann var ekki á hliðarlínunni í
leiknum en í tilkynningu Bæjara kem-
ur meðal annars fram að stjórinn hafi
greinst með veiruna við komuna til
Portúgals, þrátt fyrir að vera bólu-
settur. Þjálfarinn verður því í ein-
angrun næstu daga en honum verður
flogið frá Portúgal til Þýskalands með
sjúkraflugi.
_ Janus Daði Smárason, leikmaður
Göppingen í þýsku 1. deildinni í hand-
knattleik, er að glíma við meiðsli á
öxl. Leikstjórnandinn gekkst undir að-
gerð á öxl í janúar á þessu ári en
hann meiddist á sömu öxl í leik Göpp-
ingen og Melsungen á dögunum í
Þýskalandi. Vonir standa til þess að
meiðslin séu ekki alvarleg og að hann
þurfi ekki að gangast undir aðgerð
vegna þeirra að því er fram kemur í
tilkynningu Göppingen. Leikmaðurinn
hefur verið viðloðandi íslenska lands-
liðið undanfarin ár en hann hefur ver-
ið afar óheppinn með meiðsli síðasta
árið.
_ Elín Metta Jen-
sen þurfti að
draga sig úr ís-
lenska landsliðs-
hópnum í knatt-
spyrnu sem
mætir Tékklandi
og Kýpur í und-
ankeppni HM á
Laugardalsvelli
en hún tognaði á liðbandi í hné í leik
Vals og Tindastóls í úrvalsdeild
kvenna hinn 25. ágúst. „Ef allt
stenst ætti þetta að ganga til baka á
næstu vikum og vonandi verð ég klár
í næsta verkefni með landsliðinu,“
sagði Elín Metta meðal annars í
samtali við Morgunblaðið. Nánar er
rætt við Elínu Mettu á mbl.is/sport/
efstadeild/.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2021
KÖRFUBOLTINN
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Fjórir leikir fóru fram í þriðju um-
ferð úrvalsdeildar karla í körfu-
knattleik, Subway-deildarinnar, í
gærkvöldi. Keflavík, Tindastóll, Ís-
landsmeistarar Þórs frá Þorláks-
höfn og Grindavík unnu þar góða
sigra.
Eftir að hafa lent 4:5 undir gegn
ÍR í blábyrjun leiksins í Breiðholt-
inu gaf Keflavík strax tóninn er lið-
ið skoraði 11 stig í röð í kjölfarið,
komst 15:5 yfir og tók yfir leikinn.
Staðan að loknum fyrsta leikhluta
var 22:12 og í öðrum hluta bættu
Keflvíkingar enn í og leiddu með 23
stigum í hálfleik, 51:28.
ÍR-ingar bitu í skjaldarrendur og
byrjuðu síðari hálfleikinn mjög vel
þar sem þeir náðu að minnka mun-
inn niður í 12 stig, 59:47. Í kjölfarið
náðu Keflvíkingar hins vegar aftur
góðum tökum á leiknum og leiddu
með 17 stigum að loknum þriðja
leikhluta, 66:49.
Skaðinn var skeður fyrir ÍR og
juku Keflvíkingar einungis forskot
sitt þar sem þeir náðu 24 stiga for-
ystu, 75:51, snemma í fjórða og síð-
asta leikhlutanum. ÍR-ingum leist
ekki á blikuna og tóku vel við sér í
kjölfarið þegar þeir minnkuðu mun-
inn í 15 stig, 78:63. Þá fór í hönd
frábær kafli hjá Keflavík þar sem
liðið náði aftur 24 stiga forystu,
89:65. ÍR skoraði hins vegar síðustu
átta stig leiksins og þægilegur 16
stiga sigur Keflavíkur staðreynd.
Keflavík er eftir sigurinn með
fullt hús stiga á toppi deildarinnar
en ÍR er án stiga á botninum.
Stórkostlegur leikur
Gífurlega mikið var skorað þegar
Tindastóll og Breiðablik mættust á
Sauðárkróki. Tindastóll leiddi með
tveimur stigum eftir æsispennandi
fyrsta leikhluta, 33:31, og í öðrum
hluta sigldu Stólarnir fram úr Blik-
um og bættu við 42 stigum á móti
aðeins 23 hjá gestunum. Staðan í
hálfleik því 75:54.
Blikar mættu dýrvitlausir til leiks
í síðari hálfleik og eignuðu sér
þriðja leikhlutann hreinlega með
því að saxa vel á forskot heima-
manna. Staðan að honum loknum
var 91:82. Fyrri hluta fjórða leik-
hluta náðu Stólarnir aftur góðum
tökum á leiknum og náðu mest 13
stiga forystu í leikhlutanum, 106:93.
Ekki frekar en fyrr í leiknum
voru Blikar þó á því að gefast upp
og tóku leikinn fyllilega yfir síðari
hluta fjórða leikhluta. Tindastóll
komst í 116:106 þegar rúm mínúta
var eftir en Blikar söxuðu stöðugt á
forskot heimamanna og þegar 25
sekúndur voru eftir á leikklukkunni
var munurinn orðinn aðeins tvö
stig, 116:114. Eftir æsispennandi
lokasekúndur höfðu Stólarnir
nauman þriggja stiga sigur,
120:117, og eru í öðru sæti deild-
arinnar með fullt hús stiga eftir
þrjá leiki.
Öflugir Íslandsmeistarar
Leikur Stjörnunnar og Þórs í
Garðabænum fór afar fjörlega af
stað þar sem mikið var skorað á
báða bóga. Gestirnir úr Þorlákshöfn
leiddu með sex stigum, 32:26, að
loknum fyrsta leikhluta. Íslands-
meistararnir settu svo í fluggírinn í
öðrum leikhluta þar sem Stjörnu-
menn sáu ekki til sólar. Þórsarar
sölluðu niður stigunum og leiddu
með 18 stigum, 61:43, þegar flautað
var til leikhlés.
Stjörnumenn brugðust við með
hreint út sagt frábærum þriðja leik-
hluta og minnkuðu muninn aftur í
sex stig, 78:72. Með því lögðu
heimamenn úr Garðabænum grunn
að spennandi fjórða og síðasta leik-
hluta þar sem allt var í járnum til
að byrja með.
Það var þó gestunum til tekna
þar sem þeir hleyptu Stjörnumönn-
um ekki nær en fimm stigum frá
sér í leikhlutanum, 87:82. Í kjölfarið
komst Þór aftur á mjög gott ról og
náði mest 14 stiga forystu, 96:82, í
fjórða leikhlutanum. Stjörnumenn
löguðu stöðuna undir lokin en
niðurstaðan sterkur fimm stiga úti-
sigur Þórs, 97:92.
Frábær umskipti
Í Grindavík mættust heimamenn
og KR í kaflaskiptum leik. Eftir af-
ar jafnan fyrsta leikhluta þar sem
KR leiddi með tveimur stigum,
19:21, bættu gestirnir úr Vest-
urbænum bara í í öðrum leikhluta
og komust mest 13 stigum yfir
skömmu fyrir leikhlé, 33:46. Grind-
víkingar sóttu aðeins í sig veðrið og
löguðu stöðuna en voru átta stigum
undir í hálfleik, 43:51.
Mögnuð byrjun heimamanna í
síðari hálfleik þar sem liðið skoraði
fyrstu níu stig þriðja leikhluta og
komust þannig einu stigi yfir, 52:51,
lagði grunninn að sterkum sigri
Grindavíkur þar sem byrjuninni var
fylgt eftir með enn betri kafla undir
lok þriðja leikhluta.
Eftir jafnræði framan af leikhlut-
anum bættu Grindvíkingar jafnt og
þétt við forskot sitt og leiddu með
10 stigum að honum loknum, 71:61.
KR-ingar reyndu hvað þeir gátu
að koma sér inn í leikinn en náðu
mest að minnka muninn í sex stig,
86:80, í fjórða og síðasta leikhluta
áður en Grindavík skoraði síðustu
fjögur stigin og hafði að lokum afar
góðan 90:80-sigur.
Keflavík og
Tindastóll
með fullt hús
Morgunblaðið/Unnur Karen
Einbeittur Glynn Watson, leikmaður Þórs frá Þorlákshöfn, með boltann í
leiknum gegn Stjörnunni í Subway-deildinni í körfubolta í gærkvöldi.
- Íslandsmeistarar Þórs frá Þorláks-
höfn og Grindavík með góða sigra
„Það er ákveðin pressa núna að
viðhalda þessu góða gengi áfram,“
sagði Halldór Smári Sigurðsson,
leikmaður Íslands- og bikarmeist-
ara Víkings úr Reykjavík í knatt-
spyrnu, í Dagmálum, frétta- og
menningarlífsþætti Morgunblaðs-
ins.
Halldór Smári, sem er 33 ára
gamall, er uppalinn í Víkinni og
hefur leikið með félaginu allan
sinn feril en hann steig sín fyrstu
skref með meistaraflokki Víkinga
sumarið 2008 þegar liðið lék í 1.
deildinni.
Hann hefur gengið í gegnum
súrt og sætt með félaginu og spil-
að með fjölda leikmanna í Víkinni,
undir fjölda þjálfara, en hann var í
lykilhlutverki í liðinu í ár sem
vann bæði deild og bikar í fyrsta
sinn í sögu félagsins.
„Ég fann það bara í vikunni að
ég er strax orðinn fullur tilhlökk-
unar fyrir næstu leiktíð,“ sagði
Halldór Smári.
„Ég þarf klárlega að stíga að-
eins upp núna þar sem Sölvi [Geir
Ottesen] og Kári [Árnason] eru
báðir horfnir á braut. Þeir koma
með mikinn talanda inn á völlinn
og eru duglegir að láta menn
heyra það.
Það er ekki alveg ég. Ég hef
aldrei verið mjög hávær en ég
mun eitthvað þurfa að láta til mín
taka núna,“ sagði Halldór Smári.
Pressa að viðhalda árangrinum
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
381 Halldór Smári er leikjahæsti
leikmaður í sögu Víkinga.
Olísdeild kvenna
Stjarnan – Valur ................................... 23:31
Staðan:
Valur 3 3 0 0 85:60 6
Fram 3 2 1 0 86:75 5
KA/Þór 2 2 0 0 53:50 4
Haukar 2 1 1 0 53:47 3
HK 4 1 0 3 80:95 2
Stjarnan 4 1 0 3 89:99 2
ÍBV 3 1 0 2 80:73 2
Afturelding 3 0 0 3 57:84 0
Meistaradeild karla
B-RIÐILL:
Veszprém – Flensburg ....................... 28:23
- Teitur Örn Einarsson skoraði fimm
mörk fyrir Flensburg.
Staðan:
Kielce 8, Vezprém 8, Barcelona 6, París SG
5, Porto 4, Motor 4, Dinamo Búkarest 2,
Flensburg 1.
Þýskaland
Leipzig – Göppingen........................... 29:20
- Janus Daði Smárason er frá vegna
meiðsla hjá Göppingen.
Melsungen – Bergischer..................... 26:24
- Alexander Petersson skoraði fjögur
mörk fyrir Melsungen, Arnar Freyr Arn-
arsson og Elvar Örn Jónsson skoruðu ekki.
- Arnór Þór Gunnarsson skoraði þrjú
mörk fyrir Bergischer.
Balingen – Hamburg........................... 23:28
- Daníel Þór Ingason skoraði ekki fyrir
Balingen. Oddur Gretarsson var ekki í leik-
mannahópnum.
Bikarkeppnin, 32-liða úrslit:
N-Lübbecke – Magdeburg ................. 23:30
- Ómar Ingi Magnússon skoraði fjögur
mörk fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir
Kristjánsson eitt.
E(;R&:=/D
Subway-deild karla
Grindavík – KR..................................... 90:80
Stjarnan – Þór Þ. .................................. 92:97
Tindastóll – Breiðablik..................... 120:117
ÍR – Keflavík......................................... 73:89
Staðan:
Keflavík 3 3 0 270:237 6
Tindastóll 3 3 0 279:261 6
Njarðvík 2 2 0 216:173 4
Grindavík 3 2 1 236:222 4
Þór Þ. 3 2 1 279:276 4
KR 3 1 2 290:290 2
Stjarnan 3 1 2 270:279 2
Valur 2 1 1 143:153 2
Breiðablik 3 1 2 341:340 2
Vestri 2 0 2 176:201 0
Þór Ak. 2 0 2 152:178 0
ÍR 3 0 3 267:309 0
NBA-deildin
Charlotte – Indiana .......................... 123:122
Detroit – Chicago ................................. 88:94
New York – Boston .......................... 138:134
Toronto – Washington ......................... 83:98
Memphis – Cleveland....................... 132:121
Minnesota – Houston ....................... 124:106
New Orleans – Philadelphia.............. 97:117
San Antonio – Orlando....................... 123:97
Utah – Oklahoma................................ 107:86
Phoenix – Denver ............................... 98:110
Portland – Sacramento .................... 121:124
>73G,&:=/D
KNATTSPYRNA
Undankeppni HM kvenna:
Laugardalsv.: Ísland – Tékkland........ 18.45
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Subway-deildin:
Ísafjörður: Vestri – Þór Ak. ................ 18.15
Ljónagryfjan: Njarðvík – Valur.......... 20.15
1. deild karla:
Egilsstaðir: Höttur – Skallagrímur .... 19.15
Akranes: ÍA – Hamar........................... 19.15
Dalhús: Fjölnir – Selfoss ......................... x:x
1. deild kvenna:
Kennarahás.: Ármann – Hamar-Þór.. 19.15
HANDKNATTLEIKUR
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Kaplakriki: FH – Fram U ................... 18.30
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Ásvellir: Haukar U – Valur U ............. 19.30
Víkin: Berserkir – Þór Ak......................... 20
Í KVÖLD!
UEFA ákvað í gær að sekta ensku
félögin Manchester United og West
Ham United.
Man United var sektað um 7.058
pund vegna hegðunar stuðnings-
manna liðsins á leik þess gegn Vill-
arreal í Meistaradeild Evrópu.
West Ham var sektað um 50.567
pund vegna óláta stuðningsmanna
liðsins og Rapid Vín á leik liðanna í
Evrópudeildinni.
Ensk félög
fengu sekt