Morgunblaðið - 22.10.2021, Síða 32
O
U
T
L
E
T
Ú
T
S
A
L
A
G
E
R
Ð
U
F
R
Á
B
Æ
R
K
A
U
P
HEILSUDÝNUR
SÆNGUR & KODDAR
SÓFAR &
HVÍLDARSTÓLAR
KODDAVER
HANDKLÆÐI
HÖFUÐGAFLAR
LAMPAR & FLEIRA
ALLT AÐ
70%
AFSLÁTTUR
Allt fyrir góðan svefn
og betri heilsu
Ný tónlistar-
hátíð helguð
blásturshljóð-
færum, Wind-
Works, hefst í
Listasafni Ein-
ars Jónssonar á
morgun, laug-
ardag. Hátíðin
er skipulögð af
tónlistar-
hópnum Aulos
Flute Ensemble og listrænn stjórnandi og stofnandi
hennar er flautuleikarinn Pamela De Sensi. Boðið verð-
ur upp á sjö tónleika næstu þrjár helgar.
Á opnunartónleikunum á morgun kl. 14 kemur Aulos
Flute Ensemble fram. Strax á eftir, kl. 15, verða tón-
leikar óbóleikarans Eydísar Franzdóttur. Á sunnudag kl.
14 leika Petrea Óskarsdóttir á flautu og Dagbjört Ing-
ólfsdóttir á fagott. Kl. 15 koma síðan fram saxófónleik-
ararnir Vigdís Anna og Guido Bäumer.
Hátíð helguð blásturshljóðfærum
hefst með fernum tónleikum
FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 295. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Þriðja umferð úrvalsdeildar í körfuknattleik karla,
Subway-deildarinnar, hófst með fjórum leikjum í gær-
kvöldi. Þar unnu Keflavík og Tindastóll bæði sinn þriðja
sigur í jafnmörgum leikjum. Keflavík vann auðveldan sig-
ur gegn ÍR í Breiðholtinu en Tindastóll vann nauman sig-
ur á Breiðabliki á Sauðárkróki þar sem ógrynni stiga voru
skoruð.
Íslandsmeistarar Þórs frá Þorlákshöfn gerðu góða ferð
í Garðabæinn og unnu sterkan sigur gegn Stjörnunni og
Grindavík vann góðan sigur á KR í Grindavík. »27
Keflavík og Tindastóll með fullt hús
stiga í úrvalsdeild karla í körfubolta
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Kristján Már Jónsson og Sólveig Rún
Samúelsdóttir frá Akranesi hafa
stundað nám og vinnu í Kaupmanna-
höfn undanfarin ár og eru ekki á
heimleið á næstunni. „Ég lýk við BA-
hluta læknisfræðinnar í Kaupmanna-
hafnarháskóla fyrir jól og á síðan eftir
þrjú ár í kandídatinn, en framhaldið
er síðan óráðið,“ segir Sólveig. Nú
hafi hún áhuga á því að sérhæfa sig í
svæfinga- eða hjartalækningum en
það geti breyst. Á meðan unir Krist-
ján sér í móttöku á hóteli í gamla
bænum.
Parið er frá Akranesi. Þau vissu
hvort af öðru sem börn og unglingar
en rugluðu ekki saman reytum sínum
fyrr en tíu dögum áður en Sólveig fór
út í námið. „Við bundumst tryggða-
böndum á Fiskideginum mikla á Dal-
vík 2017 og hann kom út ári á eftir
mér,“ upplýsir hún. Bætir við að hún
hafi fengið áhuga á læknisfræði
vegna starfa í Björgunarfélagi Akra-
ness. Námskeið í fyrstu hjálp hafi
kveikt í sér. „Líffræði og efnafræði
hafa alltaf legið vel fyrir mér, verið
mínar sterkustu námsgreinar, og
vegna þessa varð læknisfræði fyrir
valinu.“ Hún hafi ekki komist í gegn-
um niðurskurðinn í Háskóla Íslands,
hafi sótt um í Kaupmannahöfn í kjöl-
farið, verið tekin inn í skólann og njóti
námsins og lífsins í höfuðborg Dan-
merkur í botn.
Skellt í lás
Kristján hefur unnið í móttökunni
á Good Morning Copenhagen-
hótelinu við Colbjørnsensgade,
skammt frá aðaljárnbrautarstöðinni,
frá því um miðjan janúar í fyrra.
Hann var spenntur fyrir nýja starfinu
en kórónuveirufaraldurinn hefur
heldur betur sett strik í reikninginn.
„Tveimur mánuðum eftir að ég byrj-
aði var skellt í lás í Danmörku,“ rifjar
hann upp. Eftir að Mette Frederik-
sen forsætisráðherra boðaði hertar
sóttvarnaaðgerðir hafi afbókanir
hrúgast inn enda útlendingum nánast
ekki hleypt inn í landið. „Ég var á
kvöldvakt þegar hún tilkynnti að-
gerðirnar og á svipstundu urðu allar
símalínur rauðglóandi og tölvupóstur
með afbókunum og ósk um endur-
greiðslu var óstöðvandi. Þetta var
eins og í bíómynd, það hreinlega rauk
úr tölvunni.“
Stuttu seinna var ákveðið að loka
hótelinu á meðan veiran gengi yfir.
„Talið var að allt yrði komið í samt
lag eftir tvær vikur og því var starfs-
fólkið sent heim í þann tíma með
stuðningi frá ríkinu, en lokunin var
stöðugt framlengd og ég var heima í
um fimm mánuði, frá miðjum mars
fram í miðjan ágúst 2020. Þá mættum
við aftur en lítið var að gera því fólk
var ekkert að ferðast. Hótelið var síð-
an notað fyrir fólk í einangrun vegna
Covid þar til í febrúar á þessu ári. Þá
var tekin ákvörðun um að loka á ný
og ekki var opnað aftur fyrr en um
miðjan ágúst. Tíminn undanfarin
misseri hefur því verið undarlegur en
bókunum hefur nú fjölgað og mikið líf
er aftur farið að færast í hótelið.“
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Ánægja Sólveig Rún Samúelsdóttir og Kristján Már Jónsson frá Akranesi njóta lífsins í Kaupmannahöfn.
Njóta lífsins í botn
- Læknisfræðinám í Kaupmannahöfn góður kostur
- Fólki fjölgar á ný og hótelrekstur að færast í fyrra horf