Samherjinn : frétta- og tilkynningablað Stórstúku Íslands - 01.02.1939, Page 5

Samherjinn : frétta- og tilkynningablað Stórstúku Íslands - 01.02.1939, Page 5
ERLENDAR ERÉTTIR. - 5 - BINDINDISHREYEINGIN í DANMÖRKU I ============================== heitir mikið rit, sem verið er að gefa út í Danmörku nú um þessar mundir, vegna 60 ára afmælis bindindishreyf- ingarinnar þar í landi. Verk þetta verður i þrem stórum bindum. 1. bindi verður um starfsemi bindindishreyfingarinnar í heild, og þættir um hinar ýmsu hliðar áfengis- málanna. Meðal annara, sem í þetta bindi rita er, Dahlgaard, innanríkisráðherra, um menningargildi bindindishreyfingar- innar. Hæstaréttarmálafl.m. Heilesen um áfengislögg.iöf Dana. Ritst.Larsen-Ledet úm bæja- og sveita- atkvæðagreiðslur í Danmörku i~afeng- 'ismálum. Ljóðþingsmaður J. Bomholt um áfengismálin í sambandi við danska list og bókmentlr, Auk þess rita í þetta hefti fjölda margir aðrir þektir menn og "konur á sviði bindindismálanna, bæði læknar, lögfræðingar, dómarar, prestar, rithöfundar, skáld og listamenn. 2„ bindi verður um bindindisfé- lögin í Danmörku, Auk æfisagnaþátta allra stjórnar- meðlima hinna ýmsu bindindisfélaga, skrifa formenn og leiðtogar þeirra, hver fyrir sig, sögu síns félags. ^. bindi er um hinar ýmsu reglur (orders) i Danmörku, Verða þar æfisagnaþættir og mynd- ir allra æ.t, hinna ýmsu stúkna, auk þess saga hverrar reglu fyrir sig. Eins og getið var um í upphafi verður þetta mikið rit og hið vandað- asta í alla staði, og gefur mjög glögga og greinagóða vitneskju um hið margþætta starf og stríð bindindis- hreyfingarinnar í Danmörku Landssamband danskra bindindis- mia,nna gefur rit þetta út, en "út- breiðslumálastjóri"' sambandsins Markersen, sér um útgáfuna. 1 Rússlandi fer áfengisnotkun nú va xandi. Árið 1932 var erfitt ár hjá brugg- urum í Englandi,. Þá var minni sala á öli og áfengi hjá þjóðinni en nokkru sinni áður, nema um tíma á stríðsár- unum. Þetta sama ár var líka minnst um kærur fyrir ölvun, misþyrmingu á börnum og önnur siðferðisbrot, og er sú blessun ótalin, sem þetta hafði í för með sér fyrir heimilislíf manna, en síðastliðin 6 ár hefir orðið mikil breyting til hins verra. Bruggararn- ir hófu nú auglýsingaáhlaup sitt, og á þessum 6 árum hafa öll hin félags- legu mein farið aftur í vöxt, segja fröðir menn um þessi mál, í Englandi. Hinn nýi forseti Czecho-Slovakíu - Dr. Emil Hacha - er strangur bind- indismaður á bæði vín og tóbak. Hann er nú, 66 ára gamall. Tveir fyrirrenn- arar hans voru einnig strangir bind- indismenn. Það er þess virði að rifja upp fyrir sér, að árið 1912 sendu leið- andi og meiriháttar konur í Ungverja- landi mjög eftirtektarverða áskorun til þjóðarinnar. Eyrst á listanum var nafn hinnar gáfuðu dóttur fyrverandi Belgíukonungs. 1 skjali þessu var komist þannig að orði: "Það eru ekki aðeins karlmennirnir, sem áfengisbölið eyðileggur. Heldur er það einnig konu- sálin, sem er kvalin og pínd og lífs- orka hennar tærð af því mikla böli. Gera konur sér það fyllilega ljóst, að það er ekki aðeins land og lýður, sem áfengismeinið læsir eitruðum öngum sínum, heldur einnig allar þeirra kven- iegu, bgörtu vonir? . . .> Vér biðjum einlæglega og skoriim á ykkur, konurnar, að berjast allavega og allstaðar gegn áfengisnautninni .... Gefið ^börnum ykkar ekki áfengi .... Og vér biðjum ykkur einlæglega og sérstaklega,^að gefa börnum ykkar blóm, en ekki áfengi nú á komandi páskahátíð Æsluulýðurinn er blóm þjóðarinnar, og áfengið drepur blómin". Áfengisnautnin eykur fátæktina, og ============== fátæktin leiðir menn út í drykkjuskap, það er sannleikur. (Snowden).

x

Samherjinn : frétta- og tilkynningablað Stórstúku Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samherjinn : frétta- og tilkynningablað Stórstúku Íslands
https://timarit.is/publication/1648

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.