Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.10.2021, Blaðsíða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.10. 2021
E
ldfjallafræðingar telja eldgosið
á Reykjanesskaga vera við
það að syngja sitt síðasta, en
það verður þó ekki afskrifað fyrr en
eftir a.m.k. þriggja mánaða goshlé.
Fyrsta íslenska hvítlauksuppskeran
frá Efri-Úlfsstöðum í Austur-
Landeyjum í einhverju magni seldist
upp á sólarhring, enda styttist í
hrekkjavöku þegar alls kyns ókindir
fara á kreik.
Það hindraði þó ekki Pál Gunnar
Pálsson, forstjóra Samkeppnis-
eftirlitsins, í að vanda um við starfs-
menn hagsmunasamtaka í atvinnulífi
og vara þá við að tjá sig opinberlega
um verðþróun hér á landi eða annars
staðar í heiminum.
Fjölmiðlanefnd sektaði fótbolta-
hlaðvarp um hálfa milljón króna fyrir
að hafa ekki skráð sig sem fjölmiðil.
Helstu stjörnur OnlyFans spyrja sig
hvort þær séu næstar.
Verzlunarskóli Íslands hefur tekið
upp kynjakvóta, þannig að innritaðir
nemendur af einu og sama kyni megi
ekki vera meira en 60% nema. Stúlk-
ur hafa þar verið um 70% innritaðra.
Aðrir framhaldsskólar munu ekki
hafa slíkt á prjónunum.
Fyrsta fiskuppboð NRS varð enda-
sleppt þegar Reiknistofa fiskmark-
aðanna fékk lögbann á það. Það
byggist á því að aðalsprautan hjá
fyrirtækinu hafi áður starfað hjá
Reiknistofunni um langa hríð og þar
öðlast þekkingu sem hann megi ekki
nýta sér frekar á lífsleiðinni.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Ís-
lands, gerði athugasemdir við nýlega
samþykkt aukakirkjuþings um að
yfirstjórn kirkjunnar yrði skipt í svið,
hina geistlegu biskupsstofu og hina
veraldlegu rekstrarskrifstofu fyrir
víxlarana í musterinu.
Það hitnaði í kolunum í Hörpu þegar
þar var haldin stærsta alþjóðlega
jarðhitaráðstefna í heimi.
Vestfirðingar hafa áhyggjur af sam-
göngum og vill Fjórðungssamband
Vestfjarða fá Vestmannaeyjaferjuna
Herjólf til siglinga um og yfir Breiða-
fjörð.
. . .
Deilt var um ástæður húsnæðis-
kreppunnar í Reykjavík. Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri kennir
bönkunum um fyrir að lána ekki til
íbúðabygginga og einnig verktök-
unum, sem ekki nýti fengin bygging-
arleyfi. Bankarnir vísa þessu á bug og
verktakar segja ekkert nýtt að þeir
byggi í áföngum.
Veitingamenn í Reykjavík hafa brýnt
fyrir starfsfólki sínu að hafa auga
með að gestum þeirra sé ekki byrluð
ólyfjan og spyrja konur á útleið hvort
þær þekki karlmanninn, sem þær eru
í för með, eigi það við.
Undirbúningskjörbréfanefnd var við
það að ljúka störfum sínum í Norð-
vesturkjördæmi, þótt nógur starfi
væri fram undan við umfjöllun um
fundin gögn og fenginn vitnisburð.
Maður sem veifaði byssu við kaffi-
stofu Samhjálpar í sumar var dæmd-
ur í þriggja ára fangelsi. Byssan
reyndist hlaðin við handtöku hans á
sínum tíma, en ósannað þótti að hún
hafi verið hlaðin þegar maðurinn ógn-
aði fólki með henni.
Veirusmit halda áfram að greinast og
nokkuð hefur fjölgað í sóttkví og ein-
angrun. Sjö voru á sjúkrahúsi vegna
kórónuveirunnar, þar af einn á gjör-
gæsludeild.
Íbúar í Innri-Njarðvík vilja fá meiri
upplýsingar um fyrirhugaða örygg-
isgæslu og -vistun ósakhæfra
afbrotamanna, sem félagsmálaráðu-
neytið vill koma upp í nýju, óbyggðu
hverfi þar.
Tillaga kom fram á kirkjuþingi um að
hlutverk vígslubiskupa yrði þynnt út
svo þau yrðu aðeins heiðursembætti.
Því var fálega tekið af biskupi.
Breytingar á gjaldskrá Póstsins
leggjast vel í einkafyrirtæki sem ann-
ast pakkasendingar. Aukin sam-
keppni á þeim markaði gæti orðið til
þess að Pósturinn fæli öðrum verkin
á lægra verði.
Á Akureyri er komin fram tillaga um
að strengja fimm aparólur yfir Glerá,
sem vafalaust yrði mikil samgöngu-
bót fyrir bæði innfædda og aðkomu-
menn.
. . .
Kvennalandslið Íslands í fótbolta
sigraði stöllur sínar frá Kýpur í und-
ankeppni HM, sem fram fór í reyk-
vískri rigningu á Laugardalsvelli.
Af vettvangi stjórnmálanna fréttist
að það styttist í lokahnykk viðræðna
um endurnýjað stjórnarsamstarf.
Þar hefur nokkuð strandað á nokkr-
um ágreiningsefnum, einkum hvað
varðar orkunýtingu og landvernd.
Áætlað var að unnt reyndist að hefja
ritun nýs stjórnarsáttmála í kom-
andi viku.
Þrátt fyrir atvinnuleysi hefur ekki
reynst unnt að manna um 30-40%
auglýstra starfa í átakinu Hefjum
störf. Því er m.a. kennt um að margt
fólk telji störf í boði ekki samboðin
menntun sinni.
Könnun leiddi í ljós að 87% fólks 67
ára eða eldra bjuggu í eigin húsnæði.
16% voru í leiguhúsnæði.
Umhverfisstofnun vinnur nú að frið-
lýsingu Bessastaðaness.
Bubbi Morthens var ræðumaður á
fundi eldri borgara í Seltjarnarnes-
sókn og var góður rómur gerður að
máli hans. Bubbi fær sér sæti í saln-
um eftir tvö ár.
Alger óvissa er uppi í Austurstræti
eftir að Áfengis- og tóbaksverslun
ríkisins auglýsti eftir öðru húsnæði
undir áfengisverslun í miðbæ Reykja-
víkur. Sprúttsalar ríkisins telja óvið-
unandi að reka vínbúð án bílastæða-
mergðar.
. . .
Nær tíunda hvert ungmenni á aldr-
inum 16-24 ára var hvorki í námi né
vinnu á liðnu ári. Í þessum hópi er
sérstaklega mikið af fólki af erlendu
bergi brotið. Sérstaklega átti það við
um ungar konur af erlendum upp-
runa, að þær fyndu fyrir einangrun,
jafnvel útskúfun, úr samfélaginu.
Sendiherra Póllands á Íslandi telur
mörg tækifæri til þess að dýpka sam-
starf ríkjanna, en rætt hefur verið um
að koma á sérstöku sambandi þeirra.
Það er m.a. í ljósi þess hve margir
Pólverjar hafa sest að á Íslandi, hátt í
30 þúsund talsins.
Verðhækkanir á fasteignamarkaði
eru enn miklar og virðast kynda und-
ir verðbólgu til viðbótar þeim verð-
bólguþrýstingi, sem skilar sér með
hækkandi vöruverði frá útlöndum.
Talið er að 5-7 þúsund manns á höf-
uðborgarsvæðini búi sér heimili í at-
vinnuhúsnæði af einhverju tagi. Fyr-
irhugað er að eftirlitsmenn athugi
þann húsakost á næstu þremur mán-
uðum til þess að gaumgæfa aðbúnað
og öryggi.
Úti í Rotterdam er búið að mála
Freyju, hið nýja varðskip Landhelg-
isgæslunnar, en það er væntanlegt til
nýrrar heimahafnar á Siglufirði um
næstu helgi.
Áhyggjur Íslendinga af loftslags-
málum heimsins eru slíkar, að 50
þeirra voru sendir loftleiðis til Glas-
gow til þess að taka þátt í alþjóðlegri
loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna. Sú hugmynd kom fram á fé-
lagsmiðlum að það væri verðugt og
árangursríkt framlag Íslands, að þeir
sneru ekki til baka.
Gera á endurbætur á hafnarmann-
virkjum í Þorlákshöfn fyrir tæpa 2,5
milljarða króna. Lengja á annan
hafnargarðinn töluvert, hlaða brim-
varnargarð og fleira.
Ríkarður Örn Pálsson, tónskáld og
tónlistargagnrýnandi Morgunblaðs-
ins um árabil, lést 75 ára gamall.
. . .
Vandræðin vegna talningar atkvæða í
Norðvesturkjördæmi minnkuðu ekki
við vettvangsrannsókn undirbúnings-
kjörbréfanefndar Alþingis, því einn
nefndarmaður uppgötvaði gilt at-
kvæði í röngum atkvæðabunka.
Meðallaun Íslendinga eru hin næst-
hæstu í löndum Efnahags- og fram-
farastofnunarinnar OECD. Þau eru
aðeins hærri í Bandaríkjunum.
Samkvæmt níu mánaða uppgjörum
viðskiptabankanna þriggja nemur
samanlagður hagnaður þeirra um 60
milljörðum króna. Að mati greining-
araðila hefur undirliggjandi rekstur
þeirra batnað mikið á undanförnum
árum.
Hvalreki hefur verið árið 2021, nánar
tiltekið 83 hvala hvalreki. Megnið af
þeim fjölda fólst í marsvínavöðum,
sem villtust á grynningar.
Hvalreki og
fundið atkvæði
Rannsakendur skoða hræ af langreyði í krók og kima, en hana rak upp í Skötubót, fjörunni austan við Þorlákshöfn í Suð-
urkjördæmi. Þar fannst ekkert atkvæði, enda talning og skil yfirkjörstjórnar í því kjördæmi til fyrirmyndar.
Ljósmynd/Donatas Arlauskas
24.10.-29.10.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Fyrir
líkama
og sál
L augarnar í Reykjaví k
w w wsýnumhvert öðru tillitssemi