Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.10.2021, Page 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.10.2021, Page 13
Jovenel Moïse var kjörinn forseti 2016 og tók við embætti 2017. Þetta sama ár voru friðargæslusveitir Sam- einuðu þjóðanna kallaðar heim eftir 13 ár. Myrkur skuggi hvíldi yfir veru þeirra. Frið- argæsluliðar voru staðnir að því að beita heimamenn kynferðislegu ofbeldi og báru að auki með sér kóleru, sem breiddist út eins og eldur í sinu og varð 10 þúsund manns að bana. Hins vegar er engin spurning að gengjunum hefur vaxið ásmegin eftir brotthvarf friðar- gæslusveitanna. Þegar andstaða við Moïse tók að vaxa greip hann til sama bragðs og margir forverar hans og leitaði til gengja til að þagga niður í and- stæðingum sínum. Vopnaðir hópar létu til skarar skríða í hverfum þar sem stjórnarandstæðingar voru í forustu og fóru um með fjárkúgun, mann- ránum og kynferðisofbeldi. Hann er grunaður um að hafa gert gengjunum kleift að kúga og undiroka með því að útvega þeim peninga, vopn, farartæki og jafnvel lögreglubúninga. Hryllilegasta ódæðisverkið var framið í nóv- ember 2018 í hreysahverfinu La Saline í Port- au-Prince. Að sögn vitna birtust einkennis- klæddir menn í lögreglubíl og byrjuðu að skjóta á almenna borgara. Um leið birtust gengin og drápu fólk með byssum og sveðjum. Talið er að á milli 15 og 25 manns hafi látið líf- ið. „Þeir nauðguðu konum, brenndu heimili og myrtu tugi manna, þar á meðal börn, hjuggu líkama þeirra í búta með sveðjum og köstuðu fyrir svín,“ sagði í lýsingu í The New York Times á aðförunum. Þar er vitnað í skýrslu frá bandaríska fjár- málaráðuneytinu þar sem kemur fram að þetta hafi verið annað og meira en átök gengja um yfirráðasvæði. Embættismenn á Haítí hafi skipulagt ódæðisverkið og útvegað gengjunum vopn og farartæki til að refsa fólki í fátækra- hverfi þar sem spilltu stjórnarfari hefði verið mótmælt. Bandaríkjamenn lýstu yfir því að gripið yrði til refsiaðgerða á hendur þremur mönnum fyr- ir meintan þátt þeirra í verknaðinum. Einn þeirra er glæpaforinginn Jimmy Chérizier. Hinir eru Fednel Monchery og Joseph Pierre Richard Duplan, tveir embættismenn í stjórn Moïses. Eitt vitni sagðist hafa séð Duplan veita Chérizier orð í eyra og skamma hann fyrir að hafa drepið of marga: „Það var ekki þitt verkefni.“ Embættismönnunum var sagt upp störfum ári síðar, en þeir voru ekki sóttir til saka. Þótt embættismennirnir hafi farið á bannlista hjá Bandaríkjamönnum dró það ekki úr stuðningi við Moïse. Með helming landsins á valdi sínu Talið er að jafnvel rúmlega helmingur lands- ins sé á valdi glæpagengja. Sums staðar eru þau eins og stjórnvald, reka dómstóla, „lögreglustöðvar“ og innheimta fé af íbúum fyrir allt frá rafmagni til skólagöngu. Þungamiðja glæpastarfseminnar í landinu er í Port-au-Prince. Talið er að þar séu um 165 gengi að verki. Tíðni mannrána hefur þrefald- ast frá því í fyrra. Paul Angelo, sérfræðingur um málefni Rómönsku Ameríku við banda- rísku hugveituna Council of Foreign Relati- ons, lýsti ástandinu í grein í The New York Times í vikunni. Þar segir hann að samráðið milli vopnaðra sveita og pólitískra valdastétta hafi ásamt getuleysi lögreglunnar gert gengj- unum í Haítí kleift að koma í stað ríkisins. Með því að veita vernd, þjónustu og sjá fyrir mat í landi þar sem næstum helmingur íbú- anna býr ekki við mataröryggi hafi gengj- unum tekist að ná hollustu fólksins. „Með því að veifa vopnum og leggja undir sig landsvæði hefur þeim tekist að gera sig ómissandi við að halda uppi félagslegri reglu og treysta áhrif sín á pólitíska þróun í framtíðinni,“ skrifar hann. Glæpagengið, sem rændi trúboðunum og fjölskyldum þeirra, nefnist 400 Mawozo (sem þýða mætti 400 viðvaningar). Leiðtogi þess, Wilson Joseph, vill fá eina milljón dollara á hvern gísl. „Ég sver við þrumuna að fái ég ekki það sem ég bið um mun ég skjóta þessa Bandaríkjamenn í höfuðið,“ sagði Joseph í myndskeiði, sem birt var á félagsmiðlum. Þar var Joseph klæddur í blá jakkaföt, með barðastóran hatt og voldugan kross um háls- inn. Fyrir aftan hann mátti sjá opnar líkkistur og í þeim voru að því er virtist lík félaga úr gengi hans sem féllu nýlega í aðgerð lögreglu. Í ávarpi sínu hótaði hann bæði forsætis- ráðherra landsins og yfirlögreglustjóra. „Þið látið mig gráta, ég græt vatni,“ sagði hann. „Ég mun láta ykkur gráta blóði.“ Hann hafði vart sleppt orðinu þegar stjórn- völd á Haítí tilkynntu að lögreglustjórinn hefði sagt af sér. 400 Mawozo er eitt af þeim gengjum, sem mest kveður að í landinu og foringi þeirra fer mikinn. Mest kveður þó að áðurnefndum Chérizier, sem bendlaður var við fjöldamorðið fyrir þremur árum. Hann veitir forustu níu gengj- um, sem kölluð hafa verið G9-fjölskyldan og bandamenn, og þau eru andstæðingar 400 Mawozo. Viðurnefni Chérizier er Barbecue. Hann heldur því fram að það sé vegna þess að fjölskylda hans var í grillveitingum, en and- stæðingar hans segja að hann hafi fengið viðurnefnið vegna þess að hann hafi notið þess að kveikja í fólki og híbýlum þess. Chérizier er fyrrverandi lögreglumaður. Hann hefur verið sakaður um aðild að nokkr- um morðum og íkveikjum síðan 2017. Hand- tökuskipun var gefin út á hendur honum árið 2019, en hann gegnur engu að síður laus. Chérizier þvertekur fyrir tengsl við stjórn- völd. Í tístum og myndskeiðum sést hann með hríðskotabyssu um öxlina. Hann kveðst vera byltingarmaður og berjast gegn fátækt í hreysahverfunum. Um leið hvetur hann fólk til að rísa upp gegn óligörkum landsins, sem beri sök á fátæktinni á Haítí. Sunnudaginn eftir að trúboðunum var rænt var ríkisstjórn landsins á leið á minningar- athöfn um Jean-Jacques Dessaline, stofnföður Haítí, þegar gerð var skotárás á hana. Bíla- lestin flúði á braut. Chérizier tók hennar stað líkt og hann væri hinn sanni leiðtogi landsins. Þegar má lesa vangaveltur um að hann hygg- ist sækjast eftir pólitískum metorðum og þá þarf ekki að vera til trafala að hafa komist í kast við lögin. Kona hleypur á eftir strætisvagni í Port-au-Prince. Mikil ólga er á Haítí vegna uppgangs gengja og skorts á rafmagni og matvælum. AFP Fjölskyldur, sem hafa þurft að forða sér vegna átaka milli gengja í hverfinu Martissant í Port-au-Prince, hafa fengið athvarf í íþróttasal í verslunarmiðstöðinni Carrefour. 31.10. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 Fyrrverandi yfirmað- ur úr kólumbíska hernum, sem eftir- lýstur var vegna gruns um aðild að morðinu á Jovenel Moïse, for- seta Haítí, 7. júlí, var handtekinn á Jamaíku á föstudag fyrir viku. Talið er að 26 mála- liðar hafi staðið að til- ræðinu í forsetahöllinni. Forsetinn var skotinn til bana og kona hans særðist, en engan lífvarða hans sakaði í árás- inni. Herinn á Haítí felldi þrjá Kólumbíu- menn eftir árásina og handtók 18. Að auki voru tveir bandarískir ríkisborg- arar með uppruna á Haítí handteknir. Alls hafa 44 verið handteknir. Jorge Vargas, yfirlögreglustjóri Kól- umbíu, segir að hinir handteknu Kól- umbíumenn haldi fram að átt hafi að handtaka Moïse og afhenda hann bandarísku fíkniefnalögreglunni. Ekki er vitað hverjir stóðu á bak við árásina. Grunur hefur beinst að Ariel Henry, forsætisráðherra Haítí, vegna þess að hann talaði tvisvar við einn af þeim, sem eru í haldi, í síma nokkrum klukkustundum eftir árásina. Þegar saksóknari bað um að forsætisráð- herrann yrði ákærður vegna símtal- anna lét Henry reka hann og dóms- málaráðherrann í kjölfarið. Um leið segir hann að verið sé að þyrla upp moldviðri í kringum sig. Jovenel Moïse Tilræðið við forsetann

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.