Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.10.2021, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.10.2021, Blaðsíða 14
E r ég inni í þessu verki eða er það inni í mér? Þar er efinn. Eitt augnablik líður mér eins og ég sé í þann mund að takast á loft. Kaldir klettar, eldglóandi hraun, flæðandi vatn, spriklandi örverur og óræðir álfheimar allt í kringum mig. Engin leið að átta sig á því hvar flæðið hefst og hvar því lýkur enda er sýning- unni ætlað að tákna hina heillandi hringrás lífs- ins. CIRCULEIGHT er að sönnu einstök upp- lifun sem fangar kraftana í náttúru Íslands með framsækinni tækni í myndrænni miðlun, skemmtilegri gagnvirkni og draumkenndri og seiðandi tónlist Högna Egilssonar. Sýningin verður opnuð í Hörpu í dag, laug- ardag, og er í samstarfi við ARTECHOUSE, sem er sjálfstæður nýsköpunarlisthópur sem vinnur í skurðpunkti listar, vísinda og tækni, með starfsstöðar í Washington DC, New York City, Miami og nú einnig í Reykjavík. „Næstu mánuði, næstu árin,“ svarar Svanhildur Kon- ráðsdóttir, forstjóri Hörpu, spurð hversu lengi sýningin standi. „Á einhverjum tímapunkti get- um við tekið inn nýja sýningu og þessi farið annað, til dæmis til New York.“ Það eru ekki bara fréttir fyrir mér, heldur líka Högna Egilssyni, sem er staddur þarna með okkur. „Spennandi,“ eru viðbrögð hans. „Þetta er réttnefnt 21. aldar verk,“ segir Högni enda miðillinn allt annar en á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á föstudaginn, þar sem verk Högna verða í brennipunkti. „Það endurspeglar minn veruleika ágætlega enda er hann dálítið tvískiptur.“ Sem er vel. „Mér finnst gaman að fást við svo margt og verð aldrei saddur á einum stað. Lífið hefur líka krafið mig um það. Ég nýt þess að hugleiða þetta afl sem tónlistin er. Hún er eins og vatnið – við þurfum lífsnauðsynlega á þessu að halda. Og líklega aldrei meira en nú, enda er- um við í sorg og fasa endurreisnar,“ segir hann og vísar í heimsfaraldurinn. Meira um það síðar í þessu viðtali. Persónulegt ferðalag En fyrst að sinfóníutónleikunum sem verða tvennir í Norðurljósasal Hörpu á föstudaginn, kl. 18 og 20. Á efnisskrá verða meðal annars tvö sinfónísk ljóð úr sjónvarpsþáttunum Kötlu og Sinfónía nr. 1. Högni er sammála því að fyrsta sinfónían sé merkileg varða á vegferð sérhvers tónskálds. „Hún er varða á ferðalagi sem er persónulegt, það er minn leiðangur gegnum tónlistina. Með þessu verki er ég líka kominn í nýja álfu tónlist- arlega og kann vel við mig. Hver veit nema maður festi þar einhverjar rætur?“ segir hann þegar við erum komnir heim í stofu til hans. – Þú lofar sumsé fleiri stórum verkum? „Já, ábyggilega. Af einhverju tagi. Hvort sem það verða hljómsveitarverk, söngleikir eða eitt- hvað allt annað.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Högni vinnur með Sinfóníuhljómsveit Íslands en Hjaltalín kom fram með sveitinni fyrir nokkrum árum, auk þess sem hún lék og tók upp tónlist Högna við Kötlu. Síðarnefnda verkefnið varð raunar upptaktur að tónleikunum nú. „Hljómsveitin óskaði eftir efni frá mér fyrir þessa tónleika og þótt ég ætti það til, Kötlumúsíkina og fleira, fór ég strax að hugsa hvort ég ætti ekki að tefla fram einhverju nýju líka. Þannig varð þetta uppspretta að nýjum rannsóknum og þroska í sambandi mínu við tónlistina. Ég hef skrifað fyrir einstök hljóðfæri og hljóðfærahópa en aldrei heila sinfóníuhljómsveit. Verkið er í þremur þáttum og ég kalla það sinfóníu vegna þess að þannig er samtal mitt við verkið.“ Hægt, hratt, hægt Af þessu má ráða að Högni settist ekki gagn- gert niður til að semja sinfóníu, sem að forminu til er samofin nítjándu öldinni í huga margra. „Hægt, hratt, hægt,“ segir hann kankvís. „Það var ekki á gátlistanum að semja sinfóníu og að mörgu leyti villtist ég af leið, eins og svo oft áð- ur. Augnablikið bara fangar mann. Sinfónían sem slík er þekkt stærð; ég þurfti ekkert að af- sanna afstæðiskenningu Einsteins. Þetta er bara mín saklausa aðkoma að tónunum og list- inni. Leiksviðið er svo rosalega stórt. Sinfónísk tónlist nýtur mikillar virðingar enda formið þokkafullt.“ Hér er okkar maður kominn á flug enda að tala um móður allra ástríðna, tónlistina. „Mitt sjónarhorn hefur alltaf verið vítt enda er tónlist í grunninn bara hugleiðing um hljóð. Tónlist á sér engin takmörk og er eilíf uppspretta ímynd- unar. Hún skipar veglegan sess í tilveru okkar og líkamnast í öllu mögulegu. Meðal annars þegar listamenn leika á gömul hljóðfæri og gefa allt í verkefnið, tónlistarlega og tilfinningalega. Tónlist er skipulögð saga og daður við hið óút- skýranlega. Hafandi sagt það þá er rosalegur agi fólginn í sinfóníunni sem formi. Alltént sam- anborið við margt annað. En það er dásamleg þraut að reyna að snerta á hinu eilífa í tónlist- inni, ómögulegt en dásamlegt.“ Eins háfleygt og það hljómar þá er þetta líka vinna. „Tónskáld er ekki einhver sem gengur daglangt um í lystigarðinum og bíður þess að verða snortinn, heldur manneskja sem vaknar að morgni og mætir í vinnuna, hvort sem hún nennir því eða ekki.“ Hann brosir. Klassíkin alls ekki framandi Þrátt fyrir að vera þekktastur fyrir aðkomu sína að poppi og raftónlist er Högni menntaður í tónsmíðum og alinn upp í klassísku umhverfi. „Melódíurnar eru að litlu leyti í erfðaefni mínu. Ég fór mikið á klassíska tónleika sem barn, söng lengi í kór og bróðir minn er klassískur sellóleikari [Hrafnkell Orri Egilsson]. Þannig að þessi heimur er mér alls ekki framandi.“ – Hvað höfðar sterkast til þín í klassíkinni? „Millistríðsárin. Edgard Varèse, Richard Strauss, Igor Stravinskíj, Olivier Messiaën og höfundar af því tagi. Eins Arnold Schönberg. Það mun kannski heyrast á tónleikunum á föstudaginn? Þessi nýrómantísku blæbrigði hafa fylgt mér lengi. Ég hef alltaf viljað ná í hjörtun gegnum sorgina og melankólíuna. Það er gömul saga og ný að við notum listina til að vinna úr sorginni. Sjálfur ímynda ég mér að ég sé tré og greinar mínar séu óbrjótanlegar og eigi að geta vaxið á óendanlega vegu og leita alltaf í ljósið. Síðan á ég rætur sem tengjast hárfínt öllum öðrum þrám. Það er kannski sin- fónían? Gleðin er annars eðlis; það þarf ekki að vinna úr henni. Gleðin á sér bara stað í augna- blikinu. Að því sögðu þá jafnast fátt á við að flytja Obnoxiously Sexual með GusGus uppi á sviði. Það er alvörupartí!“ Hann brosir. Högni hlustar líka mikið á austurevrópsk tónskáld, eins og Alfred Schnittke og György Kurtág. „Hjá þeim er að finna harðneskjulegan kaldan tón, sem heillar mig. Þetta kallast á við dáleiðsluna í hljóðinu úr nýmiðlum og ferðalagi mínu í raftónlist sem er í reynd aleatorísk nálg- un, það er hefur að gera með ástand en ekki sögu. Ætli það sé ekki bara ég að hugleiða minn veruleika? Ef til vill gerir það mig að róman- tískum höfundi! Í öllu falli er staðurinn sem við fæðumst og deyjum á uppfullur af sköpun.“ Verkið ekki ennþá til Enda þótt innan við vika sé í frumflutning á Sinfóníu nr. 1 hefur höfundurinn enn ekki heyrt verkið. „Það er ekki ennþá til,“ fullyrðir hann enda hefjast æfingar hljómsveitarinnar ekki fyrr en á mánudaginn. „Þess utan þá er tónlist ekki til fyrir mér – nema í ímyndunarafli hlust- andans, þar sem hún deilir stað með hræðslu okkar, draumum og þrám. Tökum bara Sinfón- íu nr. 1 sem dæmi; annar flutningur á henni gæti orðið allt öðruvísi en sá fyrsti og þar fram eftir götunum. Sama gildir um ljóðið sem deilir sömu uppsprettu og tónlistin. Gildir þá einu hvort við erum að tala um sinfóníu, sönglag eða dáleiðslukennt teknó. Allt kemur þetta frá sama stað – og rótin er póetískur veruleiki sem við erum hugfangin af, hvar sem við svo setjum niður fótinn. Tónlistin er í eðli sínu brögðótt og jafnast þegar best lætur á við hreinan galdur.“ Hefur reynt á okkur öll Svo sem fyrr var lofað berst spjallið að lokum að heimsfaraldri kórónuveirunnar og þeirri uppbyggingu sem gjörvöll heimsbyggðin stend- ur frammi fyrir. „Það hefur reynt á okkur öll og við erum svo miklu sterkari eftir þetta áfall og sorgarferlið sem því fylgdi,“ segir Högni. „Því erfiðari sem verkefnin eru, þeim mun meira styrkjandi eru þau. Og ávextirnir eru að koma í ljós. Sköpunarkrafturinn er aftur að ná tökum á okkur og samfélagið að fyllast af ástríðu. Viljinn til að takast á við vandamál eins og loftslags- vána hefur aukist og þessi vegferð liggur svo vel fyrir okkur, ekki síst hér á Íslandi, þar sem við höfum svo mörg vopn á hendi til að takast á við vandann og búa til betra samfélag fyrir alla.“ Ekki kemur á óvart að Högni segi tónlist og list almennt gegna lykilhlutverki við téða end- urreisn. „Nýsköpun okkar þarf að liggja til grundvallar, eins vísindin. Hið skapandi líf er samofið menningu okkar og ef við sinnum þessu grundvallarlögmáli ekki og höfum það ekki uppi á yfirborðinu mun samfélaginu hnigna. Til allr- ar hamingju erum við ekki á þeim stað en betur má ef duga skal. Við þurfum að rækta þessa dyggð. Þá mun okkur vegna vel. Listin er reipið sem hífir okkur upp á yfirborðið og veitir inn- blástur og gleði,“ segir Högni og notar tækifær- ið til að minna á gildi lista í skólakerfinu. „Lífs- leikni okkar er læsi okkar á menninguna og það sem hún hefur upp á að bjóða. Þann lestur þarf að efla, bæði í tónlist og listum almennt, og miðla því betur hvaða hlutverki hún gegnir í okkar lífi. Framsæknin býr í sköpunargáfunni.“ Límið í tónlistinni Högni er sammála því að ákveðið lím sé í tón- listinni; hún límist auðveldlega föst við minn- ingar okkar og tilfinningar, árum og jafnvel áratugum saman. Það sjáist best á taugavísind- unum enda hjálpi tónlistin manninum að tengja ákveðin taugasvæði og fá heilasellurnar okkar Alltaf viljað ná í hjörtun Högni Egilsson er með mörg járn í eldinum sem endranær. Um helgina verður opnuð í Hörpu margmiðlunarsýningin CIRCU- LEIGHT, þar sem hann á tónlistina, og á föstudaginn mun Sin- fóníuhljómsveit Íslands flytja verk hans í sama húsi, þar á meðal Sinfóníu nr. 1. Högni spjallar hér um lífið, listina og nýja hobbí- ið, tennis, þar sem hann gefur ekki þumlung eftir á vellinum. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is „Því erfiðari sem verkefnin eru, þeim mun meira styrkjandi eru þau. Og ávextirnir eru að koma í ljós. Sköpunarkrafturinn er aftur að ná tökum á okkur og samfélagið að fyll- ast af ástríðu,“ segir Högni Egilsson, sem er með mörg járn í eldinum um þessar mundir. VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.10. 2021

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.