Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.10.2021, Síða 15
til að mynda sterkara bindiefni. „Tónlistin
stuðlar að heilli huga sem er jarðvegur fyrir
margt annað í lífinu, til dæmis atvinnulífið.“
Við þekkjum þetta líka vel úr helstu athöfn-
um lífsins, skírn, hjónavígslum og jarðarförum.
„Þörfin fyrir að heyra þar ákveðna tónlist kem-
ur frá fornum stað innra með okkur. Þess vegna
geri ég það sem ég geri – til að lifa af, gleðjast
og hlæja. Tónlist er fögnuður!“
Heimsfaraldurinn hefur vitaskuld þrengt
duglega að listamönnum sem ekki hafa komist
út á meðal fólksins til að miðla list sinni og eiga
samtal við sinn markhóp. „Auðvitað er þörfin
fyrir að koma fram og spila uppsöfnuð og þrátt
fyrir afkomukvíða og hvað þetta nú allt heitir þá
er mikill hugur í listamönnum eftir þetta langa
hlé á sýningum og tónleikahaldi. Það heyrir
maður alls staðar. Ég hitti frábæran leikhús-
listamann í Vesturbæjarlauginni um daginn og
hann fór að tala um að menn væru alltaf að leita
að stóra fiskinum í ánni og nú þegar enga fiska
væri lengur að hafa hefðu menn haft gott af því
að leita inn á við.“
Sjálfur hefur Högni notað þennan erfiða tíma
til að rækta heiðarleikann og hreinleikann
innra með sér. „Ég hef endurskoðað alls konar
gildi sem ég hef og með þeim hætti náð betri
færni í minni vinnu.“
Eins og unglingur í sturtu
Högni hlakkar mikið til að koma fram og syngja
á ný fyrir áheyrendur. „Ég er að vísu búinn að
því þegar; söng fyrir tennisklúbbinn minn um
daginn,“ upplýsir hann. „Söng Bridge Over
Troubled Water eins og 15 ára unglingur í
sturtu. Það voru 10 eða 15 manns viðstaddir og
fólk tjáði mér að það hefði orðið snortið. Það
gladdi mig.“
– Hvernig kom þetta til?
„Búlgarski tennisþjálfarinn minn í Tennis-
klúbbi Kópavogs vild ólm fá mig til að gera
þetta og ég sló bara til.“
Hann fer fögrum orðum um tennisíþróttina.
„Ég er alveg búinn að leggja körfuboltaskónum
og kominn á bólakaf í tennis; kominn með enn-
isbandið og í hvíta Wimbledonbúninginn. Það
er mikið zen í tennis – eins og bogfimi – og stíll
yfir öllum hreyfingum, sem höfðar til mín. Svo
er auðvitað fyrir hendi aldagamalt hjónaband
milli tennis og tónlistar.“
Högni var mikið í íþróttum sem barn og ung-
lingur en hætti því síðan í nokkur ár. Nú er
hann snúinn aftur – af fullum krafti. „Ég er
dellukall í öllu sem ég tek mér fyrir hendur.
Núna er ég til dæmis kominn með grill á sval-
irnar og loksins orðinn fullorðinn maður. Ég hef
gjörsamlega gleymt mér í tennisnum og get
ekki beðið eftir að komast í æfingaferð til Nap-
ólí eftir sinfóníutónleikana. Í tennis er maður í
stöðugu samtali við sjálfan sig; þetta er einhver
matrixa. Boltinn er á stöðugri hreyfingu og
bregðast þarf bæði við hinu fyrirsjáanlega og
hinu ófyrirséða. Lífið er allt þar á milli. Nú
heyrist mér ég vera farinn að tengja tennisinn
við líf og dauða. Við erum að tala um dulspeki
tennisins.“
Hann hlær.
Elskar að sigra
– Ég hef heimildir fyrir því að þú sért heldur
ekki bara að þessu til að vera með.
„Það er alveg rétt,“ svarar hann hlæjandi.
„Ég elska að sigra. Það tek ég líka með mér yfir
í tónlistina. Það er til dæmis ekkert auðvelt að
semja sinfóníu – en ég skal samt gera það!
Þetta heimili þekkir lítið annað en mikið keppn-
isskap, alla vega ekki síðustu árin. Það er samt
mikilvægt að skilja tilfinningarnar eftir inni á
vellinum en burðast ekki með þær áfram. Mað-
ur má heldur ekki tileinka sér sársauka annarra
og í hópíþrótt þarf að skilja hver staður manns
er og hvenær hetjuför manns á að hefjast.“
Heyr, heyr! Öll þekkjum við menn sem hefðu
not fyrir þetta ágæta heilræði.
„Tónlist á sér engin takmörk
og er eilíf uppspretta ímynd-
unar,“ segir Högni Egilsson.
’
Hið skapandi líf er samofið
menningu okkar og ef við sinn-
um þessu grundvallarlögmáli ekki
og höfum það ekki uppi á yfirborð-
inu mun samfélaginu hnigna. Til
allrar hamingju erum við ekki á
þeim stað en betur má ef duga skal.
Morgunblaðið/Eggert
31.10. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15