Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.10.2021, Qupperneq 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.10.2021, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.10. 2021 HÖNNUN Reykjavík Bíldshöfði 20 Akureyri Dalsbraut 1 www.husgagnahollin.is 558 1100 11 – 18 virka daga 11 – 17 laugardaga 13 – 17 sunnudaga 11 – 18 virka daga 11 – 16 laugardaga Ísafjörður Skeiði 1 Þú finnur bæklinginn husgagnahollin.is VILTU FÁ SMÁ INNBLÁSTUR? NORDAL Vata og pitta handklæði. 50x100 cm. 5.990 kr. 70x140 cm. 10.990 kr. Á Háaleitisbraut í fallegri blokk teiknaðri af meistaranum Sig- valda Thordarsyni hefur venjulegri íbúð verið breytt í vinnustofu og verslun Spaks- mannsspjara. Þar tekur fatahönnuðurinn Björg Ingadóttir á móti blaðamanni og býð- ur upp á kaffi. Hún er eigandi Spaksmanns- spjara, fyrirtækis sem hún hefur átt og rek- ið í tæp þrjátíu ár. Í dag er hún með opið tvo daga í viku auk þess að halda úti vef- síðu, en kórónuveirufaraldurinn setti strik í reikninginn hjá Björgu. Hún sat þó ekki auðum höndum. „Ég nýtti Covid vel til að fara yfir verk- ferla. Ég ákvað að taka skrefið og vinn nú á algjörlega nýjan hátt. Það tekur auðvitað tíma að þróa og læra og það er erfitt að halda í gamla kerfið á meðan maður er að skipta yfir í nýtt kerfi. Nú er ég komin nokkuð langt í því ferli.“ Efnin eru orðin stafræn Björg útskýrir umskiptin sem hafa orðið á vinnulagi tískuhönnunar. „Áður bjó maður til snið á borði og sendi utan með flugi. Það var allt saumað erlend- is og efnin öll þaðan, enda ekki til sauma- verksmiðjur hér, ein- ungis nokkrar litlar saumastofur,“ segir hún. „Ég vil gera allt stafrænt en nú eru efnin orðin stafræn þannig að ég get saum- að úr þeim í tölvu,“ segir Björg og blaða- maður skilur ekki alveg hvað hún á við. Björg fer í saumana á málinu. „Ég get saumað úr ýmsum efnum í tölv- unni og sé þá hvernig reynir á efnið, hvort sem það er silki, ull, leður eða eitthvað ann- að. Ég hleð niður stafrænum efnum frá framleiðendum áður en ég kaupi prufulengj- ur af alvöruefni í lokaprufu,“ segir Björg og útskýrir að búið sé að búa til forrit þar sem eiginleikar efnisins eru teknir með í reikn- inginn. „Hvernig þau teygjast, krumpast og falla að líkamanum. Ég fæ pínulitlar prufur sem ég get snert, sendar til mín í litlum skó- kassa. Þannig að núna þarf ég ekki að fá efnin send hingað heim heldur kemur bara lokaprufa fyrir framleiðslu, en áður voru efni send fram og til baka um allan heim. Nú er það liðin tíð. Kolefnissporið minnkar og minnkar.“ Að leigja stafræn módel Fleiri framfarir hafa orðið nýlega á sviði fatahönnunar en á heimasíðu Spaksmanns- spjara er nú hægt að „máta“ fötin áður en þau eru keypt. Björg segir það vera byrj- unarútfærslu á þessu sviði en þróunin er mjög hröð og reiknar hún með að það verði hægt að treysta þessum „mátunum“ full- komlega innan skamms. „Fötin eru orðin stafræn. Fólk býr til sinn „avatar“; stillir sín mál og prófar svo fötin á hann. Þá kemur upp hitamynd og þá sérðu hvort önnur stærð fer þér kannski betur,“ segir Björg og sýnir blaða- manni hvernig kjóll situr á stafrænni gínu. Þar sést rauður litur í hand- arkrika og sýnir þá að þessi kjóll er of þröngur þar á viðkomandi viðskiptavin. Grænn litur gefur til kynna að kjóllinn liggi þar þægi- lega á konunni. „Í dag eru föt send út um allan heim sem passa ekki á nokkurn mann. Þetta er mikil sóun. Það sem ég er að gera með þessu er að minnka mín fótspor og draga úr sóun, ekki bara hjá mér heldur líka hjá neytand- Að máta stafræn föt Fatahönnuðurinn Björg Ingadóttir hefur rekið fyrirtæki sitt Spaksmannsspjarir síðan 1993. Margt hefur breyst með tím- anum og nú hefur stafræna byltingin gjörbreytt fatahönnun. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Hægt er að halda stafræn- ar tískusýningar og dreymir Björgu um að gera það á næstunni.’ Í dag eru föt send út um allan heim sem passa ekki á nokkurn mann. Þetta er mikil sóun. Það sem ég er að gera með þessu er að minnka mín fótspor og draga úr sóun, ekki bara hjá mér heldur líka hjá neytandanum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.