Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.10.2021, Síða 19
31.10. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni
eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
www.husgagnahollin.is
V
E
F
V E R S L
U
N
EIGHTMOODMILLA
Púði, bleikur. 50x50 cm. 5.990 kr.
IITTALA NAPPULA
blómapottur, brúnn.
23x15,5 cm. 11.290 kr.
EIGHTMOOD ODDBIRD
Ilmstrá. 5.990 kr.
MIRA
Kertastjaki bleikur.
5x11 cm. 6.990 kr.
anum,“ segir Björg og segir að allt of miklu
af fötum sé hent í heiminum.
„Sem stendur er ég með stafræn módel
úr forritinu sem ég nota en næsta stig er að
búa mér til mín eigin módel því ég get leigt
stafræn módel á stafrænum módelskrif-
stofum. Módelin eru líka að missa vinnuna,“
segir Björg og segist koma til með að geta
búið til módel á mismunandi aldri og með
mismunandi vaxarlag.
„Þetta er bara byrjunin því það er hægt
að búa til tískusýningar og láta módelin
ganga. Mig langar mikið til að gera stóra
stafræna tískusýningu.“
Sjálfbærni skiptir líka máli
Björg segir að í náinni framtíð muni neyt-
endur geta búið sér til sína eigin stafrænu
gínu og hægt verði að hlaða henni niður á
netsíður hvaða verslana sem er.
„Það verður þannig í framtíðinni og er
ofboðslega spennandi. Þetta er að gerast
víða og ég held að ég sé fyrst á Íslandi til
að bjóða upp á þetta á heimasíðunni,“ segir
Björg og segir það hafa tekið á að færa sig
til stafrænu nútíðarinnar.
„Það er mikið átak að skipta yfir, því þú
þarft að hafa tíma til að læra nýja hluti. Ég
fór utan á námskeið og fékk mér einka-
kennara. Ég fór svo í meistaranám í list-
kennslu og útskrifaðist 2020 og gerði þá
fyrstu línuna mína þar sem prófstein og
lagði áherslu á sjálfbærnivinkilinn og hvað
hann skipti miklu máli. Nú verður ekki aftur
snúið; hitt eru bara gamaldags og ósjálfbær-
ar aðferðir,“ segir Björg og segist hafa snú-
ið sér að kennslu í fyrra.
„Ég kenndi fatahönnun í Fjölbraut í
Garðabæ og sýndi nemendum þessar nýju
aðferðir í fatahönnun og þeim fannst ekkert
mál að tileinka sér þetta. Í kjölfarið fékk ég
styrk frá þróunarsjóði og er að klára
kennsluefni fyrir framhaldsskóla í stafrænni
fatahönnun. Það má líkja þessu við það að
þegar þú skrifar grein þyrftir þú fyrst að
skrifa allt niður á blað og ekki
bara punkta, heldur alveg full-
komlega tilbúið, og svo þyrft-
irðu að slá þetta inn í tölvu.
Það myndi enginn gera það í
dag. Það sama gildir um að
hanna föt; við getum gert
það nákvæmlega sama og
við gerðum áður á borði
í tölvu og gert þar svo
miklu meira. Í tölvunni
er minna mál að henda
öllu og byrja upp á
nýtt, og þar er mun
meiri nákvæmni,“
segir Björg og bendir
á að fyrirtæki séu í
auknum mæli að gera
sér grein fyrir verð-
mæti stafrænna gagna
og gildi það um fata-
hönnun eins og annað.
Laus við vélar og
papparúllur
„Ég bý til stafræn föt
sem fara í framleiðslu
en ég gæti líka selt ein-
ungis stafræn föt. Þú
gætir þá til dæmis verið
á netfundi í stafrænum
fötum frá mér. Fólk gæti
líka keypt fötin og notað
á myndum á Instagram,
en keypt ekki fötin sjálf,
heldur lúkkið,“ segir Björg.
„Ég er að vona að ég
verði komin svo langt að
ég geti sett næstu línu
sem verður tilbúin hjá
mér beint á netið og
boðið til sölu áður en
hún verður framleidd. Þá
erum við komin með alvöruvöru-
stjórnun og endum ekki með úreltan
lager og ósjálfbæra útsölumenn-
ingu,“ segir Björg.
Björg er afar ánægð með þróun-
ina og sér tækifæri þar á hverju
strái.
„Ég upplifi mikið frelsi og finnst
geggjað að vera laus við allar þess-
ar vélar, papparúllur og löngu sníða-
borð. Mig langar nú að mín vara
verði meira pöntuð áður en hún er
framleidd,“ segir hún.
„Ég get líka notað þessa nýju tækni
við endursölu á fötum í framtíðinni því
ef þú vilt til dæmis seinna endurselja jakka
frá mér þá á ég öll stafrænu gögnin um
hann og nýr kaupandi getur mátað hann á
netinu. Fötin fara í hring,“ segir hún og
bendir á að nú verði auðvelt að vera í sam-
vinnu við aðra hönnuði erlendis vegna þess-
arar stafrænu byltingar í fatahönnun.
„Þetta ferðalag vörumerkja í dag þarf að
taka með stórum skrefum í átt að hag-
kvæmu efnahagslífi með blómstrandi hring-
rásarkerfi. Það hefur orðið gífurleg breyting
á hugsunarhætti og það þarf hugrekki og
færni til að hugsa alla þessa ferla upp á
nýtt. Það er ávinningur í hverju einasta
skrefi og hann er svo mikill. Ég sé óend-
anleg tækifæri í skapandi hönnun og
listum í dag. Landfræðileg staða okkar
er ekki til trafala lengur. Þetta er ein-
stakt tækifæri og við þurfum að vera
fljót að hoppa á vagninn,“ segir
Björg og segir menntakerfið hér
þurfa að bregðast fljótar við og
finnst Björgu til dæmis vanta hér á
landi MBA-nám í skapandi grein-
um.
Tískuheimurinn
æðislegur í dag
Hvað er í tísku í dag?
„Það er mjög margt í tísku og lífs-
stíll skiptir gífurlegu máli þegar
þú ert að velja þér föt. Nú snýst
tíska hjá mér um að vera eins
sjálfbær og ég get hverju sinni.
Þá er gott að hanna föt sem
úreldast helst bara ekki,
heldur geta aðlagast með
þér. Síðustu fimm ár hef
ég eingöngu unnið með
efni sem eru 100%
efni; annaðhvort
100% ull eða 100%
pólýester, svo efnin
geti farið í hring-
rásarhagkerfi
textíls. Ég var
smá þunglynd
fyrir nokkrum
árum yfir að
tilheyra tísku-
iðnaðinum sem
mengaði svo mikið og því
fór ég líka að leita leiða,“
segir Björg og segir að
fólk í tískuheiminum sé
virkilega að taka sig á.
„Nú er tískuheim-
urinn að verða æðisleg-
ur; hann stefnir á að
vera vistsporslaus og efn-
in fara í hringrásar-
hagkerfið. Og með
þessari nýju tækni
erum við á góðri leið.
Ég held að flest fyrir-
tæki endi á að taka föt í
endursölu,“ segir Björg og segist hafa
reynt að selja notuð föt árið 2014 en þá hafi
það gengið illa.
„Ég er alltaf á undan minni samtíð,“ segir
hún og brosir.
„Nú er tískuheimurinn að verða æðisleg-
ur; hann stefnir á að vera vistsporslaus
og efnin fara í hringrásarhagkerfið,“ segir
Björg Ingadóttir fatahönnuður.
Morgunblaðið/Ásdís
Nú er hægt að
máta stafræn föt
sem passa þér
fullkomlega.