Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.10.2021, Side 22
Leikkonurnar ungu, Kristín Erla, tólf ára,
og Margrét Júlía, bráðum átta, segja
það hafa verið afar skemmtilegt að
leika í kvikmynd, en þær leika systurnar Birtu
og Kötu í kvikmyndinni Birtu.
Safna hundrað þúsund
„Það var mjög góð upplifun að leika í myndinni
og mjög gaman,“ segir Kristín Erla og Mar-
grét Júlía tekur undir það.
„Myndin var tekin upp fyrir einu ári og tök-
urnar tóku tvær vikur. Það var ekki erfitt að
muna línurnar en það var ein sena sem var
svolítið erfið því hún var svo löng,“ segir Mar-
grét Júlía.
„Já, það var líka ein erfið sena hjá mér því
hún var mjög dramatísk. Það var erfitt að fatta
hvernig ég ætti að leika hana. Ég reyndi að
setja mig í spor Birtu,“ segir Kristín Erla og
segir að í myndinni lendi Birta í hremmingum
þegar hún reynir að safna hundrað þúsund
krónum. Hún vill þó ekki gefa of mikið upp um
söguþráðinn, en þær mega þó upplýsa smá-
vegis um söguna.
„Við erum að reyna að safna pening fyrir
mömmu okkar því Birta heyrir mömmu segja í
símann að hún sé blönk,“ segir Margrét Júlía
og segir móðurina áhyggjufulla að geta ekki
haldið almennileg jól sökum peningaleysis.
„Hún verður áhyggjufull og þá verður Birta
líka mjög áhyggjufull og vill hjálpa mömmu
sinni,“ segir Kristín Erla.
„Við hjálpumst að við að reyna að safna pen-
ing,“ segir Margrét Júlía, en þess má geta að
móðir hennar Helga Arnardóttir skrifar hand-
rit myndarinnar og stjúpfaðir hennar Bragi
Þór Hinriksson leikstýrir.
Dreymir um leikferil
Hafið þið leikið einhvers staðar áður?
„Nei, ekki ég, þetta var mitt fyrsta hlutverk.
En svo lék ég líka í þáttum sem heita Kanarí
og ég man ekki alveg hvort það var fyrir eða
eftir Birtu,“ segir Margrét Júlía.
„Ég hef verið í þáttum í KrakkaRúv og eins
tekið þátt í leikritum í dansskólanum mínum
því ég er í söngleikjadeild þar, en ég er í dans-
skóla Birnu Björns,“ segir Kristín Erla.
Stelpurnar segjast báðar hafa mikinn áhuga
á leiklist.
Viljið þið verða leikkonur?
„Já, ég alla vega vona það. Mig hefur oft
dreymt um að verða leikkona,“ segir Margrét
Júlía.
„Það hefur alltaf verið stór draumur síðan
ég var krakki, að verða leikkona. Það er ein í
fjölskyldunni minni sem er leikkona sem heitir
Guðríður og ég lít upp til hennar,“ segir Krist-
ín Erla.
„Amma mín er leikkona og hún leikur Grétu
í myndinni en hún heitir Margrét Ákadóttir,“
segir Margrét Júlía sem er alveg til í að feta í
fótspor ömmu sinnar.
Grét úr hlátri
Móður stúlknanna Birtu og Kötu leikur Salka
Sól Eyfeld og fannst stelpunum afar gaman að
leika á móti henni.
„Það var mjög skemmtilegt að leika með
henni og við hlustum á hennar tónlist líka,“
segir Kristín Erla og Margrét Júlía tekur und-
ir það.
Gerðist eitthvað fyndið í tökunum?
„Já, eitt sinn vorum við að fara að sofa og
ég lék að ég væri grjótsofandi. Kristín Erla
lá við hliðina á mér og ég leik að ég sé að
vakna og óvart þá fleygði ég hendinni beint í
andlitið á henni,“ segir Margrét Júlía og
hlær.
„Ég man eftir einni senu þar sem Kata átti
að segja orðið búbót og það þurfti að taka upp
senuna aftur og aftur. Það sást ekki í andlitið á
mér í senunni en ég átti mjög erfitt með að
hætta að hlæja. Ég grét úr hlátri,“ segir Krist-
ín Erla.
Bæði spennt og stressuð
Stelpurnar hafa séð myndina en hún verður
frumsýnd í kvikmyndahúsum Senu á Íslandi 5.
nóvember og á Símanum Premium 25. nóv-
ember.
„Það var svolítið skrítið að sjá sig á risastór-
um skjá,“ segir Margrét Júlía og Kristín Erla
nefnir að það hafi verið gaman að sjá loks alla
myndina í heild.
Þær eru að vonum spenntar fyrir frumsýn-
ingunni og segjast hafa þurft að þegja yfir
söguþræðinum lengi.
„Ég hef fengið margar spurningar frá
krökkunum í bekknum mínum,“ segir Margrét
Júlía og segir krökkunum hafa fundist mjög
flott að ein úr bekknum væri að leika í kvik-
mynd.
„Ég er bæði spennt og stressuð fyrir frum-
sýningunni,“ segir Kristín Erla.
„Já, ég er smá smeyk að leyfa öllum að sjá
þetta. Það er kannski smá stress,“ segir Mar-
grét Júlía.
Ótrúleg upplifun að vinna
Leikkonurnar hafa báðar nýlega unnið til
virtra verðlauna á barnakvikmyndahátíðum í
Þýskalandi.
Kristín Erla var valin besta leikkonan í hópi
ungmenna þvert á aldursflokka frá 7-18 ára á
Schlingel í Chemnitz í Þýskalandi, einni
stærstu barnakvikmyndahátíð í Evrópu, og
þótti hún bera af. Margrét Júlía var síðan valin
besta unga leikkonan á KIKI-Fe, einni stærstu
barnakvikmyndahátíð í Suður-Þýskalandi.
Hvernig var tilfinningin að vinna til verð-
launa úti í heimi?
„Ég var á bókasafni á Siglufirði um daginn
þegar ég fékk að vita þetta. Ég gat ekki öskrað
af því ég var á bókasafni og þurfti því að öskra
inni í mér,“ segir Margrét Júlía og leikur með
dramatískum hætti hvernig maður öskrar inni
í sér.
Kristín Erla var stödd í stórum sal á kvik-
myndahátíðinni Schlingel þegar nafnið hennar
var kallað upp henni að óvörum.
„Ég bjóst ekkert við þessu! Þetta var ótrú-
leg upplifun. Ég átti alls ekki von á því að
vinna. Heilinn minn var smá stund að átta sig á
þessu.“
Öskraði inni í mér þegar ég vann
Margrét Júlía og Kristín Erla eru hér í hlutverkum sínum sem Kata og Birta í kvikmyndinni Birtu.
’
Eitt sinn vorum við að fara
að sofa og ég lék að ég væri
grjótsofandi. Kristín Erla lá við
hliðina á mér og ég leik að ég sé
að vakna og óvart þá fleygði ég
hendinni beint í andlitið á henni.
Kristín Erla Pétursdóttir og
Margrét Júlía Reynisdóttir eru
ungar leikkonur sem báðar
hafa nýlega hlotið viður-
kenningar erlendis fyrir leik
sinn. Þær leika í Birtu, nýrri
íslenskri barna- og
fjölskyldumynd.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Kristín Erla og Margrét Júlía
leika stór hlutverk í Birtu og
vilja báðar verða leikkonur
þegar þær verða stórar.
Morgunblaðið/Ásdís
Stelpunum fannst rosalega gaman að leika í myndinni en hún verður frumsýnd 5. nóvember.
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.10. 2021
KVIKMYNDIR