Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.10.2021, Síða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.10.2021, Síða 22
Leikkonurnar ungu, Kristín Erla, tólf ára, og Margrét Júlía, bráðum átta, segja það hafa verið afar skemmtilegt að leika í kvikmynd, en þær leika systurnar Birtu og Kötu í kvikmyndinni Birtu. Safna hundrað þúsund „Það var mjög góð upplifun að leika í myndinni og mjög gaman,“ segir Kristín Erla og Mar- grét Júlía tekur undir það. „Myndin var tekin upp fyrir einu ári og tök- urnar tóku tvær vikur. Það var ekki erfitt að muna línurnar en það var ein sena sem var svolítið erfið því hún var svo löng,“ segir Mar- grét Júlía. „Já, það var líka ein erfið sena hjá mér því hún var mjög dramatísk. Það var erfitt að fatta hvernig ég ætti að leika hana. Ég reyndi að setja mig í spor Birtu,“ segir Kristín Erla og segir að í myndinni lendi Birta í hremmingum þegar hún reynir að safna hundrað þúsund krónum. Hún vill þó ekki gefa of mikið upp um söguþráðinn, en þær mega þó upplýsa smá- vegis um söguna. „Við erum að reyna að safna pening fyrir mömmu okkar því Birta heyrir mömmu segja í símann að hún sé blönk,“ segir Margrét Júlía og segir móðurina áhyggjufulla að geta ekki haldið almennileg jól sökum peningaleysis. „Hún verður áhyggjufull og þá verður Birta líka mjög áhyggjufull og vill hjálpa mömmu sinni,“ segir Kristín Erla. „Við hjálpumst að við að reyna að safna pen- ing,“ segir Margrét Júlía, en þess má geta að móðir hennar Helga Arnardóttir skrifar hand- rit myndarinnar og stjúpfaðir hennar Bragi Þór Hinriksson leikstýrir. Dreymir um leikferil Hafið þið leikið einhvers staðar áður? „Nei, ekki ég, þetta var mitt fyrsta hlutverk. En svo lék ég líka í þáttum sem heita Kanarí og ég man ekki alveg hvort það var fyrir eða eftir Birtu,“ segir Margrét Júlía. „Ég hef verið í þáttum í KrakkaRúv og eins tekið þátt í leikritum í dansskólanum mínum því ég er í söngleikjadeild þar, en ég er í dans- skóla Birnu Björns,“ segir Kristín Erla. Stelpurnar segjast báðar hafa mikinn áhuga á leiklist. Viljið þið verða leikkonur? „Já, ég alla vega vona það. Mig hefur oft dreymt um að verða leikkona,“ segir Margrét Júlía. „Það hefur alltaf verið stór draumur síðan ég var krakki, að verða leikkona. Það er ein í fjölskyldunni minni sem er leikkona sem heitir Guðríður og ég lít upp til hennar,“ segir Krist- ín Erla. „Amma mín er leikkona og hún leikur Grétu í myndinni en hún heitir Margrét Ákadóttir,“ segir Margrét Júlía sem er alveg til í að feta í fótspor ömmu sinnar. Grét úr hlátri Móður stúlknanna Birtu og Kötu leikur Salka Sól Eyfeld og fannst stelpunum afar gaman að leika á móti henni. „Það var mjög skemmtilegt að leika með henni og við hlustum á hennar tónlist líka,“ segir Kristín Erla og Margrét Júlía tekur und- ir það. Gerðist eitthvað fyndið í tökunum? „Já, eitt sinn vorum við að fara að sofa og ég lék að ég væri grjótsofandi. Kristín Erla lá við hliðina á mér og ég leik að ég sé að vakna og óvart þá fleygði ég hendinni beint í andlitið á henni,“ segir Margrét Júlía og hlær. „Ég man eftir einni senu þar sem Kata átti að segja orðið búbót og það þurfti að taka upp senuna aftur og aftur. Það sást ekki í andlitið á mér í senunni en ég átti mjög erfitt með að hætta að hlæja. Ég grét úr hlátri,“ segir Krist- ín Erla. Bæði spennt og stressuð Stelpurnar hafa séð myndina en hún verður frumsýnd í kvikmyndahúsum Senu á Íslandi 5. nóvember og á Símanum Premium 25. nóv- ember. „Það var svolítið skrítið að sjá sig á risastór- um skjá,“ segir Margrét Júlía og Kristín Erla nefnir að það hafi verið gaman að sjá loks alla myndina í heild. Þær eru að vonum spenntar fyrir frumsýn- ingunni og segjast hafa þurft að þegja yfir söguþræðinum lengi. „Ég hef fengið margar spurningar frá krökkunum í bekknum mínum,“ segir Margrét Júlía og segir krökkunum hafa fundist mjög flott að ein úr bekknum væri að leika í kvik- mynd. „Ég er bæði spennt og stressuð fyrir frum- sýningunni,“ segir Kristín Erla. „Já, ég er smá smeyk að leyfa öllum að sjá þetta. Það er kannski smá stress,“ segir Mar- grét Júlía. Ótrúleg upplifun að vinna Leikkonurnar hafa báðar nýlega unnið til virtra verðlauna á barnakvikmyndahátíðum í Þýskalandi. Kristín Erla var valin besta leikkonan í hópi ungmenna þvert á aldursflokka frá 7-18 ára á Schlingel í Chemnitz í Þýskalandi, einni stærstu barnakvikmyndahátíð í Evrópu, og þótti hún bera af. Margrét Júlía var síðan valin besta unga leikkonan á KIKI-Fe, einni stærstu barnakvikmyndahátíð í Suður-Þýskalandi. Hvernig var tilfinningin að vinna til verð- launa úti í heimi? „Ég var á bókasafni á Siglufirði um daginn þegar ég fékk að vita þetta. Ég gat ekki öskrað af því ég var á bókasafni og þurfti því að öskra inni í mér,“ segir Margrét Júlía og leikur með dramatískum hætti hvernig maður öskrar inni í sér. Kristín Erla var stödd í stórum sal á kvik- myndahátíðinni Schlingel þegar nafnið hennar var kallað upp henni að óvörum. „Ég bjóst ekkert við þessu! Þetta var ótrú- leg upplifun. Ég átti alls ekki von á því að vinna. Heilinn minn var smá stund að átta sig á þessu.“ Öskraði inni í mér þegar ég vann Margrét Júlía og Kristín Erla eru hér í hlutverkum sínum sem Kata og Birta í kvikmyndinni Birtu. ’ Eitt sinn vorum við að fara að sofa og ég lék að ég væri grjótsofandi. Kristín Erla lá við hliðina á mér og ég leik að ég sé að vakna og óvart þá fleygði ég hendinni beint í andlitið á henni. Kristín Erla Pétursdóttir og Margrét Júlía Reynisdóttir eru ungar leikkonur sem báðar hafa nýlega hlotið viður- kenningar erlendis fyrir leik sinn. Þær leika í Birtu, nýrri íslenskri barna- og fjölskyldumynd. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Kristín Erla og Margrét Júlía leika stór hlutverk í Birtu og vilja báðar verða leikkonur þegar þær verða stórar. Morgunblaðið/Ásdís Stelpunum fannst rosalega gaman að leika í myndinni en hún verður frumsýnd 5. nóvember. 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.10. 2021 KVIKMYNDIR

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.