Morgunblaðið - 03.11.2021, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 3. N Ó V E M B E R 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 258. tölublað . 109. árgangur .
rði á
HJÁDOMUSNOVAFASTEIGNASÖLU ERTÞÚ Í SÆTI
Við kaup eða sölu fasteignar færð þú Gullkort Domusnova og nýtur sérkjara
hjá fjölmörgum fyrirtækjum. Nánar á domusnova.is
Þú virkjar afsláttinn á byko.is/DomusNova
svörum
HEIMILIN
AUKIÐ VIÐ
SPARIFÉ SITT
FALLEGUR
BOÐSKAPUR
Í BIRTU
ENGINN SKORAÐ
FLEIRI MÖRK
Í ÞÝSKU DEILDINNI
NÝ KVIKMYND 24 ÓMAR Í MAGDEBURG 22VIÐSKIPTAMOGGINN
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Tannlæknastofur í Búdapest eru
farnar að keppast um viðskiptavini
frá Íslandi en þær hafa frá árinu
2016 þjónustað á sjötta þúsund
Íslendinga hið minnsta.
Rætt er við fulltrúa fjögurra þess-
ara stofa í ViðskiptaMogganum í
dag. Meðal þeirra er Grímur Axels-
son, umboðsmaður Kreativ Dental,
sem áætlar að yfir 3.500 Íslendingar
hafi skipt við stofuna frá árinu 2016.
Aðsóknin spurðist út og hafa síðan
fleiri stofur hafið markaðssetningu á
tannlæknaþjónustu á Íslandi.
Tannheilsan væri í molum
Þegar Grímur kynntist Kreativ
Dental kveðst hann hafa vitað að
„tannheilsa Íslendinga væri í molum
og að fólk veigraði sér við að fá þjón-
ustu vegna verðlags“. Næsta verk-
efni sé að bjóða Íslendingum upp á
liðskiptaaðgerðir í Búdapest.
Hjónin Hjalti Garðarsson og
Hrafnhildur Sigurðardóttir reka Ís-
lensku Klíníkina í Búdapest en árið
2019 fékk stofan yfir þúsund heim-
sóknir frá Íslendingum.
Aðgerðirnar kalla gjarnan á
nokkrar utanferðir til Búdapest en
eru samt sagðar borga sig margfalt.
Þúsundir farið til Búdapest
- Íslendingar hafa á síðustu árum streymt í tannlæknaaðgerðir í Ungverjalandi
MViðskiptaMogginn
Morgunblaðið/Baldur
Aðgerð Hjá Kreativ Dental.
Söngkonan Eivör Pálsdóttir varð í gær fyrsti
Færeyingurinn til að vinna tónlistarverðlaun
Norðurlandaráðs. „Þetta er mjög mikill heiður,
og klapp á herðarnar að vinna þessi verðlaun,“
sagði Eivör í samtali við Morgunblaðið í Kaup-
mannahöfn að verðlaunaafhendingunni lokinni.
Hún bætti við að sér fyndist skemmtilegt að
vinna til þessara verðlauna því að sér þyki svo
vænt um Norðurlöndin. „Ég hef unnið svo mikið
með fólki frá öllum Norðurlöndunum og haft það
svo gott þar, ég hef náttúrulega búið á Íslandi í
mörg ár og það er mitt annað heimili.“ »11
Ljósmynd/Norðurlandaráð
Verðlaunin mikill heiður og klapp á herðarnar
Hluti verkalýðshreyfingarinnar
fundaði í gær á vettvangi Starfs-
greinasambandsins í skugga mikilla
væringa innan Eflingar, næst-
stærsta verkalýðsfélags landsins.
Fyrrverandi skrifstofustjóri Efl-
ingar sem var rekinn árið 2018 seg-
ist finna til með starfsfólki félagins.
„Ég get ímyndað mér hvernig er að
vinna þar við þessar aðstæður, það
er sorg í mínum huga að horfa upp á
þetta,“ segir Þráinn Hallgrímsson,
en mál Eflingar og afsögn forstjóra
og framkvæmdastjóra hafa vakið
mikið umtal og ýft upp gömul sár
innan félagsins.
Sumarliði R. Ísleifsson sagnfræð-
ingur segir í samtali við Morg-
unblaðið að uppsagnirnar séu sér-
stakar: „Mér þykir ósennilegt að
þau tvö sem hættu, Sólveig Anna
Jónsdóttir og Viðar Þorsteinsson,
hafi sagt sitt síðasta orð.“ »4
Morgunblaðið/Eggert
Verkalýðsfélög Af fundi SGS.
Stór verk-
efni fyrir
höndum
- Undirbúa kjara-
viðræður næsta árs
_ Lítið hefur orðið úr áformum
þjóðkirkjunnar um að planta trjám
fyrir öll börn skírð hér á landi,
vegna dræmra undirtekta prófasta.
Þetta kemur fram í svari
Agnesar M. Sigurðardóttur biskups
við fyrirspurn um málið á kirkju-
þingi. Einna helst hafa plöntur ver-
ið gróðursettar í Skálholti, eða um
100 plöntur.
Biskup kynnti verkefnið „Skírn-
arskógur“ upphaflega í nýárs-
predikun í Dómkirkjunni í fyrra,
þar sem kom fram að gróðursetja
ætti tré fyrir hvert barn sem yrði
skírt hér á landi. »8
Prófastar áhugalitlir
um Skírnarskóg