Morgunblaðið - 03.11.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2021
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Landsátak í sundi, Syndum, fór af
stað 1. nóvember og stendur til 28.
nóvember. Íþrótta- og Ólympíusam-
band Íslands (ÍSÍ), í samstarfi við
Sundsamband Íslands, stendur fyrir
átakinu. Vaskir sundgarpar, á nám-
skeiði hjá Brynjólfi Björnssyni
sundkennara, syntu átakið formlega
af stað í Laugardalslaug um hádeg-
isbil í gær.
Markmiðið með Syndum er að
hvetja almenning til þess að hreyfa
sig oftar og meira í sínu daglega lífi
og nota meðal annars sund til þess.
Vonast ÍSÍ til að landsmenn á öll-
um aldri taki þátt í átakinu, skelli
sér í laugarnar í nóvember og skrái
syntar vegalengdir á síðu átaksins.
Þeir metrar sem syntir verða munu
verða lagðir saman og hægt verður
að sjá hve marga hringi í kringum
landið landsmenn hafa synt.
Til þess að taka þátt þarf að skrá
sig inn á vefsíðunni www.syndum.is
og fara í Mínar skráningar. Einfalt
er að velja sér notandanafn og lykil-
orð og skrá sínar sundvegalengdir.
Þeir sem eiga notandanafn í verk-
efninu Lífshlaupið eða Hjólað í vinn-
una geta notað það til að skrá sig
inn. Allir sem taka þátt geta átt
möguleika á að vinna veglega vinn-
inga.
Morgunblaðið/Eggert
Hvatning Auðvelt er að taka þátt í Syndum og skrá þær vegalendir sem maður syndir á vef átaksins.
Hvetja til sunds og dáða
- Sundgarpar syntu landsátakið Syndum formlega af stað
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Smyril Line er að bæta við þriðja
flutningaskipinu til vikulegra áætlun-
arsiglinga milli Þorlákshafnar og
hafna á meginlandi Evrópu. Vöru-
flutningaferjan M/V Akranes bætist í
hópinn með Mykinesi og Mistral.
Fjórða skipið er farþega- og vöruflutn-
ingaferjan Norræna sem siglir til
Seyðisfjarðar.
„Það er aukin eftirspurn eftir plássi
í skipunum vegna innflutnings á
vörum. Þörfin fyrir þessa tegund inn-
flutnings og skammur flutningstími
skapar síðan nýja möguleika við út-
flutning á ferskum og frosnum sjávar-
afurðum og laxi,“ segir Linda Gunn-
laugsdóttir, framkvæmdastjóri Smyril
Line á Íslandi.
Siglingar hefjast 20. nóvember
M/V Akranes er RO/RO skip sem
tekur 100 flutningavagna og er systur-
skip Mykiness sem reynst hefur vel í
siglingunum til Íslands. Það siglir frá
Þorlákshöfn á miðvikudagskvöldum
og til baka frá Rotterdam á laugar-
dagskvöldi.
Akranes hefur siglingar síðar í mán-
uðinum, fyrsta lestun í Rotterdam
verður 20. nóvember. Skipin þrjú
koma til Þorlákshafnar á mánudögum,
miðvikudögum og föstudögum, Myk-
ines og Akranes frá Rotterdam og
Mistral frá Hirtshals í Danmörku. Þau
hafa viðkomu í Færeyjum. Akranes
hefur undanfarna mánuði verið í áætl-
unarsiglingum með lax frá miðhluta
Noregs til Rotterdam.
„Við fáum mikil og góð viðbrögð frá
viðskiptavinum enda erum við að bæta
við burðargetu og auka tíðni siglinga,“
segir Linda.
Þrjú skip í áætlun til Þorlákshafnar
- Vegna aukins vöruinnflutnings og eftirspurnar bætir Smyril Line fjórða Íslandsfarinu við flota sinn
Viðbót M/V Akranes er systurskip Mykiness og mun hefja siglingar á milli
Rotterdam og Þorlákshafnar á vegum Smyril Line síðar í mánuðinum.
Kornbændur landsins eru að ljúka þreskingu um þessar
mundir. Bændurnir í Laxárdal hófu að þreskja hveiti um
helgina, til að nýta þurrkinn, og eru að ljúka uppskerustörf-
um í dag með því að þreskja nepju. Hveitiuppskeran er ágæt,
að sögn Björgvins Þórs Harðarsonar, en þó heldur lakari en á
síðasta ári. Bændurnir nota megnið af korninu í svínafóður.
Hluti þess er raunar tekinn frá og notaður í matvæli, í pizzur
sem seldar eru úr Pizzavagninum og í rasp á svínasnitsel í
kjötvinnslu Korngríss sem fyrirtækið rekur í Árnesi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hveitið notað
í svínafóður
og matvæli