Morgunblaðið - 03.11.2021, Page 11
KAUPMANNAHÖFN
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Þing Norðurlandaráðs var sett í
gær í Kristjánsborgarhöll í Kaup-
mannahöfn, en þetta er í 73. sinn
sem þingið er haldið. Þingið er nú
haldið með hefðbundnum hætti í
fyrsta sinn í eitt og hálft ár, þar
sem heimsfarald-
urinn kom í veg
fyrir að þingið í
fyrra gæti farið
fram heima á Ís-
landi, en þess í
stað voru haldnir
fjarfundir.
„Maður upp-
lifir það eins og í
öðrum fé-
lagsskap að það
eru allir voða
glaðir að hittast á ný,“ segir Sig-
urður Ingi Jóhannsson, samstarfs-
ráðherra Norðurlanda, og bætir við
að fjarfundir geti aldrei komið í
stað funda í eigin persónu.
Varnar- og öryggismál eru fyrir-
ferðarmikil í dagskrá þingsins að
þessu sinni, en meðal annars munu
þingmenn ráðsins og forsætisráð-
herrar ríkjanna ræða hvaða lær-
dóm Norðurlöndin geti dregið af
kórónuveirukreppunni og hvernig
samstarfið verði eflt upp frá þessu.
Sigurður Ingi segir að varnar- og
öryggismál séu nú rædd á vett-
vangi Norðurlandaráðs meira en
verið hefur, og segir hann það til
bóta. Hann nefnir að norræna ráð-
herranefndin hafi fengið Jan-Erik
Enestam til að gera úttekt á sam-
eiginlegum öryggishagsmunum
ríkjanna, og verður skýrsla hans
tilbúin síðar í nóvember. „En þar
verður meðal annars fjallað um
sameiginlegt viðbragð til þess að
auka öryggi og nokkra þætti þess,
eins og til dæmis sameiginleg inn-
kaup á bóluefni eða búnaði, vegna
þess að öll löndin eru frekar smá í
alþjóðlegum skilningi, líka þau sem
okkur þykja stór.“
Veikleikar komu í ljós
Hann bætir við að það sé mikill
vilji til að auka samstarf ríkjanna í
þessum efnum. „Í alheimsfaraldr-
inum komu fram veikleikar í sam-
skiptum ríkjanna, menn lokuðu
landamærum. Það eru ákveðin sær-
indi eftir það, og löngun til þess að
gera betur, án þess að skerða full-
veldisrétt einstakra ríkja til að
verja sig,“ segir Sigurður Ingi. „Á
þeirri vegferð okkar að svæðið
verði bæði sjálfbærasta og sam-
þættasta svæði heimi árið 2030 má
það ekki gerast að fólk sem búi í
einu landi og vinni í öðru komist
ekki yfir landamærin.“
Meðal þess sem rætt var á
þinginu í gær voru fjárlög Norður-
landaráðs fyrir næsta ár, sem og
rammi fyrir fjárlög til næstu fjög-
urra ára. Það er nýjung sem Sig-
urður Ingi segir vera mjög til bóta.
„Það hefur verið talsvert samtal á
milli þingmannanna í Norður-
landaráði og svo norrænu ráðherra-
nefndarinnar á undanförnum árum
og færst vaxandi þungi í það, þar
sem Norðurlandaráð, þ.e. þing-
mennirnir vilja hafa meiri áhrif á
fjárlögin.“ Sigurður Ingi segir að
verið sé að koma þessum fjárlaga-
ramma á, þar sem verið sé að deila
sömu fjárhæðum á fleiri hluti en
áður. „Kannski verður áskorunin sú
að það þurfi meiri fjárhæðir í þetta,
þær hafa verið föst tala, en hlut-
fallslega farið minnkandi.“
Meiri áhersla á varnar- og öryggismál
- Þing Norðurlandaráðs sett í 73. sinn - Heimsfaraldurinn ýtti ýmsum veikleikum í samstarfinu á
yfirborðið - Löngun til þess að bæta sameiginleg viðbrögð ríkjanna við hvers kyns ógnum við öryggi
Ljósmynd/Norðurlandaráð
Kristjánsborgarhöll Þing Norðurlandaráðs var sett í gær. Áherslan nú er meiri á öryggis- og varnarmál en áður.
Sigurður Ingi
Jóhannsson
FRÉTTIR 11Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2021
„Við þurfum að láta orkuskiptin ná
til skipa og flugvéla,“ sagði Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra þeg-
ar hún ávarpaði samkomuna á lofts-
lagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í
Glasgow í gær, „við þurfum að gera
betur í náttúrulegum lausnum. Síð-
astliðin þrjú ár höfum við hert róð-
urinn sem nemur tvöföldun. En við
þurfum meira – miklu meira,“ hélt
ráðherra áfram.
Hún sagði niðurstöður vísindanna
óyggjandi að sönnunargildi, lofts-
lagsmarkmiðin samkvæmt Parísar-
sáttmálanum hrykkju ekki til við að
halda hnattrænni hlýnun innan ör-
yggismarka. Ísland hefði í fyrra
hækkað markmið sitt um samdrátt í
losun gróðurhúsalofttegunda úr 40 í
55 prósent fyrir árið 2030.
Fékk hugljómun í geimnum
Ráðherra sagðist hafa góðar sög-
ur í farteskinu ofan af Íslandi og
nefndi 100 prósent endurnýtanlega
upphitunar- og raforku auk þess sem
Ísland vermdi annað sætið í heim-
inum í sölu umhverfisvænna bif-
reiða. Betur mætti þó ef duga skyldi.
Jeff Bezos, stofnandi vefsöluris-
ans Amazon, ávarpaði einnig ráð-
stefnugesti í gær og kynnti áætlun
sína um að verja tveimur milljörðum
dala, jafnvirði 260 milljarða ís-
lenskra króna, úr Bezos Earth-sjóði
sínum til að færa aflagað landslag í
fyrra horf og breyta fæðukerfum til
hins betra.
Kvaðst Bezos hafa fengið hug-
ljómun í nýlegri geimferð sinni og
áttað sig á hve viðkvæm náttúra
jarðar væri, en hann sætti einmitt
harðri gagnrýni fyrir að sóa fé í að
þvælast um geiminn í stað þess að
reyna að leysa vandamál jarðarinn-
ar. Ferðin í júlí á geimflauginni Nýja
hirðinum virðist þó hafa haft sín
áhrif. „Mér var sagt að maður fengi
nýja sýn á veröldina við að sjá jörð-
ina utan úr geimnum, en ég var eng-
an veginn búinn undir hið raunveru-
lega sannleiksgildi þeirra orða,“
sagði Amazon-jöfurinn.
atlisteinn@mbl.is
„Þurfum meira –
miklu meira“
- Forsætisráðherra fór yfir stöðu mála
AFP
Ekki nóg Ráðherra sagði að róðurinn hefði verið hertur, en meira þyrfti til.
Tuttugu létu lífið og minnst 50 eru í
sárum eftir skot- og sprengjuárás á
Sardar Daud Khan-hersjúkrahúsið
í afgönsku höfuðborginni Kabúl í
gær. Árásarmennirnir sprengdu
fyrst tvær öflugar sprengjur fyrir
utan bygginguna en réðust því næst
til inngöngu gráir fyrir járnum og
skutu á allt sem fyrir varð.
Vitni sagði EVN-sjónvarpsstöð-
inni að önnur sprengingin hefði
verið sjálfsmorðssprengjuárás.
„Sem afganskur borgari er ég
hundleiður á þessu stríði, sjálfs-
morðum og sprengingum. Hve
lengi þurfum við að þreyja þorr-
ann?“ spurði vitnið.
Enginn hefur enn sem komið er
lýst ábyrgð á árásinni á hendur sér.
AFGANISTAN
AFP
Talibanar á verði eftir árásina í gær.
20 létust í árás á
hersjúkrahús
Ekki eru allir
viðskiptavinir
norska fjar-
skiptafyrirtæk-
isins Telia á eitt
sáttir eftir að
þeim barst bréf í
vikunni þar sem
tilkynnt var um
30 króna (462
ISK) hækkun
allra netáskrift-
arleiða án þess að þar kæmi aukinn
nethraði eða önnur gæði á móti.
Fyrirtækið væri einfaldlega að
uppfæra breiðbandsnet sitt, en slíkt
væri nauðsynlegt til að mæta stór-
aukinni netnotkun vegna Covid-
heimavinnu og sóttkvíarafþrey-
ingar. Glöggir benda á að sama
skýring fylgdi hækkun fyrir ári.
NOREGUR
Strýkur viðskipta-
vinum andhæris
Úr 5G-auglýsingu
fyrirtækisins.
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
CHANEL kynning
í Snyrtivöruversluninni Glæsibæ
3.-5. nóvember
Gréta Boða verður á staðnum
og veitir faglega ráðgjöf
Jólalitirnir eru komnir
ásamt glæsilegum
nýjungum
20%
afsláttur af
CHANEL vörum
kynningardagana
Verið
velkomin