Morgunblaðið - 03.11.2021, Qupperneq 24
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Birta, nýjasta kvikmynd leikstjórans
Braga Þórs Hinrikssonar, verður
frumsýnd hér á landi á morgun og
verður hún jafnframt lokamynd
Barnakvikmyndahátíðar Bíós Para-
dísar í ár. Fer myndin í framhaldi í
almennar sýningar í kvikmynda-
húsum um allt land og verður að-
gengileg í Sjónvarpi Símans Premi-
um frá og með 25. nóvember.
Í Birtu segir af samnefndri stúlku
sem er 11 ára og leikin af Kristínu
Erlu Péturs-
dóttur. Birta á
yngri systur,
Kötu, sem Mar-
grét Júlía Reyn-
isdóttir leikur.
Segir í myndinni
af því er Birta
tekur málin í sín-
ar hendur eftir að
hafa heyrt móður
sína, sem leikin er
af Sölku Sól Ey-
feld, segja í hálfkæringi að hún muni
ekki geta haldið jól vegna pen-
ingaleysis. Hefst þá mikið ævintýri.
Handrit myndarinnar skrifaði Helga
Arnardóttir, unnusta Braga, og
byggði á eigin æskuminningum að
hluta.
Birta var heimsfrumsýnd á Ítalíu í
júlí á hátíðinni Gifoni sem er barna-
myndahátíð og ein af þeim stærri
sinnar tegundar í heiminum. Bragi
segir viðtökur þar hafa verið góðar
og tengsl myndast á henni við aðrar
hátíðir. Og hinar ungu leikkonur hafa
báðar hlotið verðlaun fyrir frammi-
stöðu sína í myndinni. Margrét Júlía,
sem er sjö ára að verða átta, var valin
besta unga leikkonan á KIKI-Fe,
þýskri barnakvikmyndahátíð, og
Kristín Erla, 12 ára, var valin besta
leikkonan á barnamyndahátíðinni
Schlingen í síðasta mánuði.
Bragi segir frábært að leikkon-
urnar ungu hafi hlotið verðlaun enda
hafi þær staðið sig afar vel. Hann
hélt prufur fyrir kvikmyndina og
segist hafa fengið ábendingar um
hæfileikarík börn sem kæmu til
greina. Stúlkurnar hafi rúllað pruf-
unum upp.
Frá sjónarhorni barnanna
Af söguþræðinum að dæma er
Birta jólamynd og segir Bragi að
Birta trúi þeim orðum móður sinnar,
sem henni var ekki ætlað að heyra,
að hana vanti hundrað þúsund krón-
ur til að geta haldið jólin. Hún lætur
mömmu sína ekki vita af því að hún
ætli að bjarga jólunum og útvega
henni peninga.
Bragi segir myndina fyrst og
fremst fallega kvikmynd með jóla-
boðskap. „Ég held að okkur hafi tek-
ist mjög vel til að gera mynd frá
sjónarhorni barnanna og gera það
trúverðugt því þau eigna sér hlut-
verkin á svolítið óvenjulegan máta,“
segir Bragi. Hann telur að vel hafi
tekist til að segja söguna með augum
barnanna.
Bragi segir erfitt að láta börn bera
uppi heila kvikmynd líkt og margir
þekki í kvikmyndabransanum. „Það
heyrir til undantekninga að það tak-
ist svona vel til,“ segir Bragi og að
leikkonurnar ungu skilji hlutverk sín
í þaula og fari með áhorfendur í mik-
ið ferðalag. Salka Sól var þeim til
halds og trausts í hlutverki móð-
urinnar og segir Bragi að allir stat-
istar hafi auk þess verið vanir leik-
arar, þeirra á meðal Helga Braga og
Margrét Ákadóttir en sú síð-
arnefnda er amma Margrétar Júlíu.
Bragi býr að mikilli reynslu af því
að leikstýra börnum, leikstýrði
fjölda barna í Víti í Vestmannaeyjum
og sjónvarpsmyndinni Klukkur um
jól. Hann telur einn af styrkleikum
sínum að leikstýra börnum og segir
að svo virðist sem hann nái vel til
þeirra.
Börn hafa frá mörgu að segja
Bragi telur of fáar íslenskar kvik-
myndir og sjónvarpssyrpur gerðar
fyrir börn og fjölskyldur. „Víti í Vest-
mannaeyjum er í raun síðasta barna-
kvikmyndin sem var gerð, árið 2018,“
bendir hann á. Hvað veldur sé erfitt
að segja, mögulega telji kvikmynda-
gerðarmenn að erfiðara sé að gera
myndir með börnum en það sé þó
ekki hans reynsla. „Mér finnst per-
sónulega vera rosalega margar flott-
ar sögur þarna sem hægt er að
sækja, úr hugarheimi og tilfinninga-
lífi barna. Þau hafa fullt að segja og
þetta eru áhorfendur sem flykkjast
að skjánum þegar þar eru kvikmynd-
ir sem fjalla um þeirra samtíma og
þau sjálf í þeirra umhverfi. Það erum
við vissulega að gera í Birtu,“ segir
Bragi. Markmiðið hafi verið að gera
trúverðuga sögu um 11 ára stelpu
sem lifi lífi sem flestir geti samsvarað
sig við. „Við vitum að myndin er
rosalega vel heppnuð og getum ekki
beðið eftir að frumsýna hér á Ís-
landi,“ segir Bragi sem leikstýrði
þremur myndum um Sveppa og fé-
laga hans á sínum tíma sem allar
hlutu mikla aðsókn líkt og Víti í Vest-
mannaeyjum. Hann telur húmor,
gleði og síðast en ekki síst birtu lyk-
ilinn að þeim vinsældum.
Hvað næsta verkefni varðar segist
Bragi ætla að taka algjöra U-beygju
og leikstýra sálfræðitrylli. Meira má
ekki segja um þá kvikmynd að svo
stöddu, að sögn Braga, en spennandi
er það verkefni vissulega.
Falleg kvikmynd með jólaboðskap
- Lokamynd Barnakvikmyndahátíðar í Bíói Paradís fjallar um Birtu sem ákveður að koma móður
sinni til aðstoðar og bjarga jólunum - Barnungar aðalleikkonur hafa hlotið verðlaun á hátíðum
Systur Margrét Júlía Reynisdóttir og Kristín Erla Pétursdóttir leika systurnar Kötu og Birtu í kvikmyndinni Birta sem sýningar hefjast á í vikunni.
Bragi Þór
Hinriksson
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2021
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR
um auglýsingapláss:
Berglind Bergmann
Sími: 569 1246
berglindb@mbl.is
fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 16. nóvember 2021
SÉRBLAÐ
BLAÐ
Wo! Tríó treður upp í Jazzklúbbn-
um Múlanum á Björtuloftum Hörpu
í kvöld, miðvikudag, og hefjast leik-
ar klukkan 20. Tríóið er ný hljóm-
sveit sem spilar eingöngu tónlist
eftir Stevie Wonder og er skipað
þeim Tómasi Jónssyni orgelleikara,
Róberti Þórhallssyni sem leikur á
rafbassa og trommuleikaranum
Ólafi Hólm.
Í tilkynningu segir að sveitin
leiki „frjálsar, spunakenndar og
grúví útsetningar á lögum Wonder
sem eru allt frá að vera angurvær
og falleg yfir í flókin og krefjandi.“
Múlinn er nú á sínu 24. starfsári
en hann er samstarfsverkefni
Félags íslenskra hljómlistarmanna
(FÍH) og Jazzvakningar. Klúbb-
urinn heitir í höfuðið á Jóni Múla
Árnasyni sem jafnframt var heið-
ursfélagi og verndari Múlans. Múl-
inn er styrktur af Reykjavíkurborg,
Tónlistarsjóðnum og SUT-sjóðnum
og er í samstarfi við Heimstón-
listarklúbbinn og Hörpu.
Wo! Tríó leikur tónlist Stevies Wonder
Grúví Wo! Tríó er ný hljómsveit skipuð
margreyndum tónlistarmönnum.
Sópransöng-
konan kunna
Hallveig Rúnars-
dóttir kemur
fram á hádegis-
tónleikum í sal
Tónlistarskóla
Garðabæjar í
dag, miðvikudag,
og hefjast þeir
kl. 12.15. Með
Hallveigu leikur
Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari. Í
tilkynningu segir að þær stöllur
muni flytja flytja fyrir gesti nokkr-
ar aríur, meðal annars eftir Wolf-
gang Amadeus Mozart og Giacomo
Puccini. Auk þess munu þær flytja
nokkur vel valin íslensk lög.
Tónleikarnir eru liður í tónleika-
röðinni Tónlistarnæring sem boðið
er upp á einn miðvikudag í hverjum
mánuði yfir vetrartímann í sal Tón-
listarskólans að Kirkjulundi 11. Að-
gangur að tónleikunum er alltaf
ókeypis og þó að grímuskylda hafi
verið afnumin og enn ríkari ástæða
til að njóta, eru gestir í tilkynning-
unni hvattir til að huga að persónu-
bundnum sóttvörnum.
Hallveig syngur á hádegistónleikum
Hallveig
Rúnarsdóttir