Morgunblaðið - 06.11.2021, Síða 1

Morgunblaðið - 06.11.2021, Síða 1
L A U G A R D A G U R 6. N Ó V E M B E R 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 261. tölublað . 109. árgangur . HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · www.mitsubishi.is ECLIPSE CROSS INVITE Frábært verð 5.490.000 kr. Fjórhjóladrifinn tengiltvinnbíll Til afhendingar strax Að komastá nýjan stað Nanna eldar fyrir einn Rapparinn 7. NÓVEMBER 2021SUNNUDAGUR Hugað aðheimilum framtíðar Anna Marín Schramopnaði tapasbar á eyjunni Langeland en hugmynd-in kviknaði í koddahjalihjónanna. Gaardhavenhefur nú slegið í gegn. 18 Búast má við að hönnunmeð náttúrulegum efnumog mynstrum verði áberandi á heimilum næstu árin. 10 Réttir NönnuRögnvaldar-dóttur úr nýrribók ylja áköldum vetrar- kvöldum. 20 Byrjaði sem koddahjal INNILOKAÐIR ÍBÚAR Á EYJU EINS OG FUGLAR Í BÚRI MARGIR MÁNUÐIR Í UNDIRBÚNING SIGURJÓN KEPPIR Í BOCUS D’OR, 14KATRÍN ELVARSDÓTTIR SÝNIR 50 _ „Við fáum að vera undir verndar- væng fyrirtækisins við þessa þróun en Frosti verður samt alltaf okkar vara. Frosti fer á markað í Evrópu í mars á næsta ári. Það verða valdar nokkrar verslanir á ákveðnu svæði og varan verður til sölu þar í nokkrar vikur,“ segja þær Aníta Þórunn Þráinsdóttir og Guðrún Alfa Einarsdóttir sem starfa um þessar mundir að vöruþróun hjá Nestlé, stærsta matvælafyrirtæki í heimi. Vara þeirra, Frosti skyr, er frostþurrkað skyr sem getur geymst um árabil án nokkurra rot- varnarefna. Svokölluðum skyr- flögum er blandað út í vatn og hrært saman og þá fær fólk skyr með nákvæmlega sömu áferð og áð- ur, með sama næringargildi, lykt og allri upplifun. »10 Á uppleið Aníta og Guðrún með Frosta skyr sem fer á markað í Evrópu í mars. Þróa skyr hjá mat- vælarisanum Nestlé _ „Neðstu hlutar jökulsins, sporð- arnir, hafa lækkað um marga tugi metra og jafnvel upp undir hundr- að metra sums staðar,“ segir Þor- steinn Þorsteinsson, jöklafræð- ingur hjá Veðurstofunni, um Hofsjökul. Veruleg leysing var á Hofsjökli í sumar samkvæmt mælingum. Hún var einkar mikil á norðanverðum jöklinum. Ársafkoma jökulsins 2020-2021 er -1,33 m en meðaltal áranna 1991-2020 er -0,92 m. Rýrn- un Hofsjökuls á þessu ári var 45% umfram meðaltal síðustu ára. »16 Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hofsjökull Jökullinn liggur nálægt miðju landsins. Hlýindi og sólskin ollu leysingu. Hofsjökull hefur rýrnað mikið Eins og bæði dómsmála- og heilbrigðisráðherra bentu á í gær höfum við staðið í baráttunni við veiruna í um 20 mánuði og enn er beðið eftir að eðlilegt líf taki við sér. Þó er nokkur tími síðan ferðamenn byrjuðu að streyma aftur til landsins. Þessi tiltekni ferðamaður virðir fyrir sér upplýs- ingaskilti við Höfða í gær. Þó má ætla að helstu upplýsingar dagsins, breyttar samkomutak- markanir, finnist ekki á skiltinu. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Lesið sér til gagns við Höfða Af 179 kórónuveirusmitum sem greindust í fyrradag, samkvæmt upp- færðum tölum frá almannavörnum, voru 108 smitaðir undir fimmtíu ára aldri. Langflestir smitaðra eru í aldurs- hópnum 18 til 29 ára, eða 54. Næst- flestir eru í aldurshópnum 40 til 49 ára eða 27 og 21 er á aldrinum 30 til 39 ára. Aðeins tveir af smituðum frá því í fyrradag voru á aldrinum 80 til 89 ára og enginn 90 ára eða eldri. 72 prósent þeirra sem greindust á þessum stærsta smitdegi frá upphafi faraldurs voru bólusett og 28 pró- sent óbólusett. Um það bil helm- ingur þeirra óbólusettu sem smituðust voru börn undir 12 ára aldri. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráð- herra sagði í gær að slá þyrfti annan tón í Covid-19-mál- um hér á landi og ekki ætti að nálgast hlutina til skamms tíma í senn. Ein- blína þyrfti á að bæta stöðuna á Land- spítalanum og horfa til eðlilegs lífs. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins, tekur í svipaðan streng. „Það er afskaplega óheppilegt að það sé sífellt verið að slá í og úr og breyta takmörkunum sem lagt var upp með. Núna erum við á tuttugasta og fyrsta mánuði þessa ástands, níutíu prósent þjóðarinnar, tólf ára og eldri, eru bólusett og við verðum að fara að finna viðvarandi milliveg sem megin- þorri manna og fyrirtækja getur farið að búa við og gert áætlanir samkvæmt þeim,“ sagði Halldór Benjamín í gær í samtali við Morgunblaðið um hertar sóttvarnaaðgerðir og tilheyrandi tak- markanir. „Hringlandaháttur af þessum toga, þar sem endamarkmiðið virðist vera síbreytilegt og illa skilgreint, gerir ekkert annað en að rýra samstöðu og traust á þeim aðgerðum sem boðaðar eru hverju sinni. Að því leytinu til voru hertar að- gerðir sem tilkynntar voru vonbrigði,“ sagði hann. Flestir smitaðir eru ungir - Framkvæmdastjóri SA gagnrýnir „hringlandahátt“ vegna sóttvarnaaðgerða Halldór Benjamín Þorbergsson MHertar aðgerðir »4 og 6

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.