Morgunblaðið - 06.11.2021, Qupperneq 6
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI6
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2021
WWW.ASWEGROW.IS
GARÐASTRÆTI 2 REYKJAVÍK
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
Ari Páll Karlsson
„Það er auðvitað hrikalegt að þurfa
að taka tvö skref aftur á bak á þess-
um tíma þegar jólin eru að nálgast og
allar þessar skemmtanir. Ekki bara
fyrir bari og krár heldur þá sem eru
búnir að plana,“ segir Arnar Þór
Gíslason, eigandi Irishman, Le-
bowski, Dönsku krárinnar og Enska
barsins, eftir tíðindi gærdagsins um
hertar sóttvarnaaðgerðir.
Arnar er þó feginn að fá yfirhöfuð
að hafa skemmtistaðina eitthvað
opna. Það hafi ekki alltaf verið raunin
í faraldrinum. Það sé þó þannig að
þegar reglur eru hertar þá hægist á
öllu.
„Þegar stjórnvöld setja þessar
takmarkanir fer allt í baklás. Fólk
byrjar að draga allt saman, sem er
auðvitað tilgangurinn með því. En
ef þetta er það sem þeir telja einu
leiðina til að bjarga heiminum, að
stytta afgreiðslutíma skemmti-
staða, þá er þetta greinilega gríð-
arlega mikilvægt og við auðvitað
fylgjum því.“
Arnar vonast þá að sama skapi til
þess að þegar til afléttinga komi þá
verði tekin tvö skref fram á við, en
ekki bara eitt.
„Maður vonar bara að þetta gangi
vel fyrir sig og þessu verði aflétt sem
fyrst og tekin þessi tvö skref áfram.
Við munum vera hluti af því að láta
þetta ganga og vonum að allir aðrir
fylgi því, hvort sem það eru brúðkaup
úti í sveit með 500 manns og engin
grímuskylda eða afgreiðslutími, eða
veislusalir úti í bæ, að þeir hjálpist
að. Það er leiðinlegt ef við þurfum að
loka en veislusalir úti í bæ með 500
manns eru opnir fram eftir nóttu.“
Staðan önnur hjá
viðburðahöldurum
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra sagði að loknum ríkisstjórnar-
fundi að gert væri ráð fyrir að fundað
yrði með viðburðahöldurum og haft
samráð við þá vegna hertra sam-
komutakmarkana, enda mikill fjöldi
viðburða framundan og uppselt á
marga þeirra en frá og með miðviku-
deginum 10. nóvember mega aðeins
500 manns koma saman í stað 2.000
líkt og áður. Þær reglur munu gilda
til 8. desember. Með notkun hrað-
prófa verður þó heimilt að halda við-
burði fyrir allt að 1.500 manns.
„Auðvitað er þetta orðið mjög
þreytandi bæði gagnvart almenningi
og öllum. Maður skynjar það í sam-
félaginu að fólk er lúið á faraldrinum
en ég held líka að fólk hafi mikinn
skilning á þessu.“
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir hafði þetta um málið að segja:
„500 manns er ansi góður hópur og
menn geta sótt um að geta haldið við-
burði fyrir fleiri, upp í 1.500 manns,
með notkun á hraðgreiningarprófum.
Þannig að ég sé ekki alveg vanda-
málið í þessu, ef menn vilja halda við-
burði fyrir stærri hópa en 1.500, í
hólfi vel að merkja, þá þurfa þeir að
sækja um það til ráðuneytisins en ég
held að þetta ætti að vera vel viðráð-
anlegt.“
Morgunblaðið/Eggert
Öl Jólasnjórinn féll á Dönsku kránni í gærkvöldi sem var sömuleiðis síðasta kvöldið áður en grímuskylda tekur við.
Jólin gleðileg fyrir
einhverja, ekki alla
- Róður bareigenda þyngist - Enn svigrúm í viðburðahaldi
Fjöldi í einangrun og sóttkví eftir landshlutum
Óstaðsett 33 21
Austurland 6 6
Höfuðborgarsvæði 588 1.077
Suðurnes 46 70
Norðurland vestra 4 3
Norðurland eystra 91 133
Suðurland 86 86
Vestfirðir 8 25
Vesturland 134 369
Með virkt smit og í einangrun Fjöldi í sóttkví
67.873 smit hafa verið
staðfest, 501 innlögn
á sjúkrahús, þar af 89 á gjörgæslu
1,16 milljón sýni hafa
verið tekin
Fjöldi smita innanlands frá 28. febrúar 2020
34 einstaklingar eru látnir,
þar af 80% 70 ára og eldri
175
150
125
100
75
50
25
0
Heildartölur frá 28. febrúar 2020
154
100106
167
Heimild: covid.is kl. 11.00 í gær
16 einstaklingar eru á sjúkrahúsi,
þar affimmá gjörgæslu
167 ný innanlands-
smit greindust
sl. sólarhring
1.790 einstaklingar
eru í sóttkví
1.096 eru með virkt smit
og í einangrun
Innanlandssýni 60%
Landamærasýni 1
Landamærasýni 2
apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv.
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Lyfjastofnun hefur úrræði til þess
að veita undanþáguleyfi fyrir hið
nýja Covid-lyf molnupiravir, sem
gert er úr einstofna mótefni. Þetta
lyf er í töfluformi sem gerir mönnum
kleift að nýta það utan spítalanna.
Lyfið er sagt geta fækkað inn-
lögnum verulega. Fréttir bárust í
fyrradag um að lyfið hefði verið
samþykkt af breska lyfjaeftirlitinu.
Rúna Hauksdóttir Hvannberg,
forstjóri stofnunarinnar, segir að
stofnunin hafi leyfi til þess að veita
undanþágu sé óskað eftir því. Það
væru þá að öllum líkindum yfirmenn
smitsjúkdómadeildar á Landspítala
eða sóttvarnalæknir sem yrðu að
óska eftir því. Þetta fari þó allt eftir
því hvort lyfið molnupiravir sé til-
tækt fyrir Ísland og sagðist Rúna
ekki geta svarað hvort svo væri. Það
þyrfti að kanna ef óskað væri eftir
leyfi fyrir lyfinu. „Við fylgjumst
mjög náið með því hvort þetta sé til-
tækt fyrir Ísland og hvort það sé
áhugi fyrir því að nota þetta.“
Sóttvarnalæknir, Þórólfur
Guðnason, segir að það sé ekki í sín-
um höndum að ákveða hvort lyfið
verði tekið til notkunar hér á landi
heldur sé það meðhöndlandi lækna á
smitsjúkdómadeild Landsíptalans
að taka ákvörðun um það. Þá hafi
ekki verið rætt hvernig ætti að nota
lyfið hér á landi og hverjum ætti að
gefa það. Hann viti ekki til að fengist
hafi niðurstaða í það mál. Ekki náð-
ist í Má Kristjánsson, yfirlækni
smitsjúkdómalækninga, við vinnslu
fréttarinnar.
Getur veitt
undanþágu
- Lyfjastofnun fylgist með Covid-lyfi
Morgunblaðið/Eggert
Baráttan Miklar vonir eru bundnar
við nýja Covid-lyfið molnupiravir.
Ráðist verður í bólusetningarátak gegn Covid-19
fyrir áramót þar sem um 160.000 manns um
land allt verða boðaðir í örvunarbólusetningu.
Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu frá heil-
brigðisráðuneytinu. Á höfuðborgarsvæðinu verð-
ur bólusett í Laugardalshöllinni á tímabilinu 15.
nóvember til 8. desember á mánudögum, þriðju-
dögum og miðvikudögum. Örvunarskammtar eru
ætlaðir þeim sem þegar eru bólusettir og fengu
síðari bóluefnaskammtinn fyrir a.m.k. fimm
mánuðum. Fólk verður, eins og fyrr, boðað með strikamerki sem send
verða í smáskilaboðum. Þeir sem áður hafa fengið boð í bólusetningu en
ekki þegið hana eru hvattir til að mæta enda ávinningurinn af bólusetn-
ingum sagður mikill.
Örvunarbólusetja 160 þúsund
RÁÐIST Í BÓLUSETNINGARÁTAK UM LAND ALLT
Átak Bólusetning í
Laugardalshöll.