Morgunblaðið - 06.11.2021, Page 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2021
Ferðaskrifstofa eldri borgara gengst fyrir vikulegum ferðum til Costa Blanca
frá 11. janúar til 2. apríl 2022 í samstarfi við Play og Hótel Helgafell. Flogið
verður í beinu flugi til Alicante flugvallar og dvalið í afar glæsilegum og vel
útbúnum íbúðum í Ciudad Quesada við bæinn Rojales sem er í 30 mín.
akstursfjarlægð suður af Alicante flugvelli. Lágmarksdvöl er 2 vikur en hægt
verður að bæta við lengri dvöl að vild og allt að 2-6 geta deilt íbúð saman.
Costa Blanca
Lúxusgisting á íbúðahótelinu Helgafelli
Sjá nánari upplýsingar á vefsíðu okkar
www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is
Allar upplýsingar eru veittar í símum 783-9300
og 783-9301 frá kl. 9-17 á virkum dögum.
Vikulegar ferðir
frá 11. janúar til
2. apríl 2022
Verð frá
139.900á mann m.v.gistingu fyrir 4 í íbúðí 2 vikur
til þessa, er bæði mikil reynsla og
mikil vinna,“ segir Guðrún.
Aníta, 25 ára, og Guðrún, 23 ára,
kynntust í námi sínu í matvæla-
fræði við Háskóla Íslands fyrir
nokkrum árum. Aníta stundar nú
meistaranám í nýsköpun og við-
skiptaþróun. En hvað er Frosti
skyr?
„Með því að nota frostþurrkun
verða til svokallaðar skyrflögur, en
þær geta geymst í mörg ár án við-
komu allra rotvarnarefna og þurfa
ekki að vera geymdar í kæli. Marg-
ir skammtar af skyri verða í einni
pakkningu svo við spornum gegn
matarsóun og minnkum umbúðir.
Það eina sem þarf að gera er að
blanda skyrflögum út í vatn og
hræra, þá fær maður skyr með ná-
kvæmlega sömu áferð og áður, með
sama næringargildi, lykt og allri
upplifun. Svo hentar Frosti auðvit-
að líka í búst og holla þeytinga.
Hingað til höfum við verið að nota
ofurfæðuna bláa spírulínu til að
auka næringargildið í skyrinu og
þess vegna er skyrið ljósblátt á lit.
Þetta er töluverð nýsköpun á rót-
grónu matvæli svo við erum spennt-
ar að sjá viðbrögð Íslendinga,“ seg-
ir Aníta.
Þær segja aðspurðar að þar sem
þær höfðu þróað Frosta áður en
Nestlé bauð þeim í samstarf snúist
vinnan ekki um vöruna sjálfa heldur
að gera hana tilbúna til sölu. „Fólk-
ið hér hjálpar okkur með markaðs-
hliðina og ýmis tæki og tól sem
snúa að henni. Nestlé er með sam-
bönd um allan heim og við dettum
beint inn í það tengslanet sem er
gríðarlega flott. Við fáum að vera
undir verndarvæng fyrirtækisins
við þessa þróun en Frosti verður
samt alltaf okkar vara. Frosti fer á
markað í Evrópu í mars á næsta
ári. Það verða valdar nokkrar versl-
anir á ákveðnu svæði og varan
verður til sölu þar í nokkrar vikur.
Þá fáum við að sjá hvernig tekið
verður í þetta. Hver veit svo nema
varan lendi á Íslandi á næsta ári.“
Heilluðu forstjóra Nestlé
Nestlé er stærsta matvælafyrir-
tæki í heimi og hefur stundum verið
umdeilt. Guðrún segir að þær Aníta
hafi vissulega hugsað sig tvisvar um
þegar tilboðið kom en það hafi á
endanum reynst of gott til að hafna.
„Það er ótrúlega vel staðið að öllu
gagnvart okkur og öll samskipti
hafa verið mjög fagmannleg og
flott.“
Þær fengu mikla eldskírn í um-
hverfi stórfyrirtækisins þegar þær
mættu til starfa. „Við byrjuðum að
vinna hér 1. september og strax
fyrsta daginn áttum við að halda
kynningu fyrir alls konar fólk úr
viðskiptalífinu. Þeim leist svo vel á
þetta að í kjölfarið kom Mark
Schneider, forstjóri Nestlé, ásamt
stjórnarformönnum og félögum sín-
um, þar á meðal forstjóra Zöru, og
kynntu sér Frosta. Hann var mjög
spenntur fyrir Frosta skyri og bað
um að fá sendar prufur til sín í kjöl-
farið.“
Hægt er að fylgjast með athafna-
konunum þeim Guðrúnu og Anítu á
Instagram, @frostiskyr, og á
heimasíðunni frostiskyr.net.
Þróa íslenskt skyr hjá matvælarisa
- Guðrún og Aníta vinna að markaðssetningu Frosta skyrs í herbúðum Nestlé í Sviss - Skyrið er
frostþurrkað og geymist í mörg ár án rotvarnarefna - Verður sett á markað í Evrópu í mars 2022
Vinna Guðrún og Aníta við rannsóknarmiðstöð Nestlé þar sem þær starfa. Stoltar Aníta og Guðrún með Frosta skyr sem kemur á markað í mars.
VIÐTAL
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta hafa auðvitað verið mikil
viðbrigði fyrir okkur en allt hefur
gengið mjög vel. Það er frábært
tækifæri og reynsla að fá að læra af
fólki hjá svona stóru alþjóðlegu
fyrirtæki,“ segir Aníta Þórunn Þrá-
insdóttir sem ásamt Guðrúnu Ölfu
Einarsdóttur starfar um þessar
mundir að vöruþróun hjá stór-
fyrirtækinu Nestlé.
Fyrir ári höfnuðu þær Guðrún og
Aníta með vöruna sína Frosta skyr
í þriðja sæti í Ecotrophelia, evr-
ópskri matvæla-nýsköpunarkeppni
háskólanema, sem er jafnframt
besti árangur Íslands í keppninni
frá upphafi. Frosti skyr hlaut einn-
ig þriðju verðlaun í frumkvöðla-
keppninni Gullegginu fyrir ári og í
byrjun þessa árs önnur verðlaun í
AWE, nýsköpunarhraðli á vegum
Háskóla Íslands. „Í kjölfar þess-
arar velgengni var okkur svo boðið
að þróa vöruna okkar í miðstöð
Nestlé í Konolfingen í Sviss,“ segir
Aníta.
Minni matarsóun og umbúðir
„Já, þetta hefur gerst hratt.
Nestlé hafði samband við okkur
seinasta sumar og við fluttum út í
lok ágúst. Þetta er prógram sem
Nestlé byrjaði nýlega með og snýst
um að koma vöru frá hugmynda-
stigi í hillur verslana á sex mán-
uðum. Þetta hefur gengið mjög vel