Morgunblaðið - 06.11.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 06.11.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2021 Ferðaskrifstofa eldri borgara gengst fyrir vikulegum ferðum til Costa Blanca frá 11. janúar til 2. apríl 2022 í samstarfi við Play og Hótel Helgafell. Flogið verður í beinu flugi til Alicante flugvallar og dvalið í afar glæsilegum og vel útbúnum íbúðum í Ciudad Quesada við bæinn Rojales sem er í 30 mín. akstursfjarlægð suður af Alicante flugvelli. Lágmarksdvöl er 2 vikur en hægt verður að bæta við lengri dvöl að vild og allt að 2-6 geta deilt íbúð saman. Costa Blanca Lúxusgisting á íbúðahótelinu Helgafelli Sjá nánari upplýsingar á vefsíðu okkar www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is Allar upplýsingar eru veittar í símum 783-9300 og 783-9301 frá kl. 9-17 á virkum dögum. Vikulegar ferðir frá 11. janúar til 2. apríl 2022 Verð frá 139.900á mann m.v.gistingu fyrir 4 í íbúðí 2 vikur til þessa, er bæði mikil reynsla og mikil vinna,“ segir Guðrún. Aníta, 25 ára, og Guðrún, 23 ára, kynntust í námi sínu í matvæla- fræði við Háskóla Íslands fyrir nokkrum árum. Aníta stundar nú meistaranám í nýsköpun og við- skiptaþróun. En hvað er Frosti skyr? „Með því að nota frostþurrkun verða til svokallaðar skyrflögur, en þær geta geymst í mörg ár án við- komu allra rotvarnarefna og þurfa ekki að vera geymdar í kæli. Marg- ir skammtar af skyri verða í einni pakkningu svo við spornum gegn matarsóun og minnkum umbúðir. Það eina sem þarf að gera er að blanda skyrflögum út í vatn og hræra, þá fær maður skyr með ná- kvæmlega sömu áferð og áður, með sama næringargildi, lykt og allri upplifun. Svo hentar Frosti auðvit- að líka í búst og holla þeytinga. Hingað til höfum við verið að nota ofurfæðuna bláa spírulínu til að auka næringargildið í skyrinu og þess vegna er skyrið ljósblátt á lit. Þetta er töluverð nýsköpun á rót- grónu matvæli svo við erum spennt- ar að sjá viðbrögð Íslendinga,“ seg- ir Aníta. Þær segja aðspurðar að þar sem þær höfðu þróað Frosta áður en Nestlé bauð þeim í samstarf snúist vinnan ekki um vöruna sjálfa heldur að gera hana tilbúna til sölu. „Fólk- ið hér hjálpar okkur með markaðs- hliðina og ýmis tæki og tól sem snúa að henni. Nestlé er með sam- bönd um allan heim og við dettum beint inn í það tengslanet sem er gríðarlega flott. Við fáum að vera undir verndarvæng fyrirtækisins við þessa þróun en Frosti verður samt alltaf okkar vara. Frosti fer á markað í Evrópu í mars á næsta ári. Það verða valdar nokkrar versl- anir á ákveðnu svæði og varan verður til sölu þar í nokkrar vikur. Þá fáum við að sjá hvernig tekið verður í þetta. Hver veit svo nema varan lendi á Íslandi á næsta ári.“ Heilluðu forstjóra Nestlé Nestlé er stærsta matvælafyrir- tæki í heimi og hefur stundum verið umdeilt. Guðrún segir að þær Aníta hafi vissulega hugsað sig tvisvar um þegar tilboðið kom en það hafi á endanum reynst of gott til að hafna. „Það er ótrúlega vel staðið að öllu gagnvart okkur og öll samskipti hafa verið mjög fagmannleg og flott.“ Þær fengu mikla eldskírn í um- hverfi stórfyrirtækisins þegar þær mættu til starfa. „Við byrjuðum að vinna hér 1. september og strax fyrsta daginn áttum við að halda kynningu fyrir alls konar fólk úr viðskiptalífinu. Þeim leist svo vel á þetta að í kjölfarið kom Mark Schneider, forstjóri Nestlé, ásamt stjórnarformönnum og félögum sín- um, þar á meðal forstjóra Zöru, og kynntu sér Frosta. Hann var mjög spenntur fyrir Frosta skyri og bað um að fá sendar prufur til sín í kjöl- farið.“ Hægt er að fylgjast með athafna- konunum þeim Guðrúnu og Anítu á Instagram, @frostiskyr, og á heimasíðunni frostiskyr.net. Þróa íslenskt skyr hjá matvælarisa - Guðrún og Aníta vinna að markaðssetningu Frosta skyrs í herbúðum Nestlé í Sviss - Skyrið er frostþurrkað og geymist í mörg ár án rotvarnarefna - Verður sett á markað í Evrópu í mars 2022 Vinna Guðrún og Aníta við rannsóknarmiðstöð Nestlé þar sem þær starfa. Stoltar Aníta og Guðrún með Frosta skyr sem kemur á markað í mars. VIÐTAL Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þetta hafa auðvitað verið mikil viðbrigði fyrir okkur en allt hefur gengið mjög vel. Það er frábært tækifæri og reynsla að fá að læra af fólki hjá svona stóru alþjóðlegu fyrirtæki,“ segir Aníta Þórunn Þrá- insdóttir sem ásamt Guðrúnu Ölfu Einarsdóttur starfar um þessar mundir að vöruþróun hjá stór- fyrirtækinu Nestlé. Fyrir ári höfnuðu þær Guðrún og Aníta með vöruna sína Frosta skyr í þriðja sæti í Ecotrophelia, evr- ópskri matvæla-nýsköpunarkeppni háskólanema, sem er jafnframt besti árangur Íslands í keppninni frá upphafi. Frosti skyr hlaut einn- ig þriðju verðlaun í frumkvöðla- keppninni Gullegginu fyrir ári og í byrjun þessa árs önnur verðlaun í AWE, nýsköpunarhraðli á vegum Háskóla Íslands. „Í kjölfar þess- arar velgengni var okkur svo boðið að þróa vöruna okkar í miðstöð Nestlé í Konolfingen í Sviss,“ segir Aníta. Minni matarsóun og umbúðir „Já, þetta hefur gerst hratt. Nestlé hafði samband við okkur seinasta sumar og við fluttum út í lok ágúst. Þetta er prógram sem Nestlé byrjaði nýlega með og snýst um að koma vöru frá hugmynda- stigi í hillur verslana á sex mán- uðum. Þetta hefur gengið mjög vel
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.