Morgunblaðið - 06.11.2021, Qupperneq 14
14 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2021
Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum svo sem kaffi,
rauðvíni, sítrus og ryði. Dekton þolir að það slettist á það
ofnahreinsir, klór og stíflueyðir og þolir mikinn hita.
Blettaþolið SýruþoliðHögg- og
rispuþolið
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
HÁTT
HITAÞOL
Nýja varðskip Landhelgisgæsl-
unnar, Freyja, kemur til heima-
hafnar sinnar á Siglufirði í dag.
Það lagði af stað frá Rotterdam
fyrr í vikunni en þyrla frá Gæslunni
mun koma til móts við skipið í dag
og fylgja því til hafnar.
Einnig mun björgunarskipið Sig-
urvin fylgja Freyju síðasta spölinn,
auk fleiri skipa Landsbjargar, og
þá mun bílalest viðbragðsaðila aka
frá Strákagöngunum til Siglu-
fjarðar á meðan nýja varðskipið
siglir eftir firðinum.
Freyja mun leggjast að Hafnar-
bryggju um kl 13. Þar taka á móti
skipinu Guðni Th. Jóhannesson,
forseti Íslands, Áslaug Arna Sigur-
björnsdóttir dómsmálaráðherra,
Elías Pétursson, bæjarstjóri Fjalla-
byggðar, og fleiri gestir. Bæjar-
búar eru einnig boðnir velkomnir
en að lokinni blessun skipsins og
ræðuhöldum verður Freyja al-
menningi til sýnis til kl. 16.
Varðskipið er smíðað árið 2010,
er 86 metra langt og 20 metra
breitt, og gegndi fyrstu árin þjón-
ustu fyrir olíuiðnaðinn. Heimahöfn
þess verður Siglufjörður.
Freyja kemur til
Siglufjarðar í dag
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Varðskip Freyja verður til taks á Siglufirði framvegis.
Bocuse d’Or er virtasta matreiðslukeppni sem haldin er
í heiminum en hún hefur verið haldin síðan 1987. 24
þjóðir fá keppnisrétt eftir að hafa sigrað forkeppni úr
sinni heimsálfu og fimm efstu sætin í sjálfri Bocuse
d’Or-keppninni tryggja þeim þjóðum sjálfkrafa
keppnisrétt í næstu keppni. Ísland tók í fyrsta sinn þátt
árið 1999 og hefur alltaf hafnað í einu af níu efstu sæt-
um keppninnar. Sýnir tölfræðin að Íslendingar eru í
hópi sex bestu þjóða í heiminum í matreiðslu. Sigurður
Laufdal hafnaði á dögunum í fjórða sæti í keppninni.
Það er þriðji besti árangur Íslands frá upphafi.
Í hópi sex bestu þjóða
heims í matreiðslu
ÍSLAND TÓK FYRST ÞÁTT ÁRIÐ 1999
Einbeiting Sigurður Laufdal í keppninni í Lyon á dögunum.
VIÐTAL
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Maður er ennþá í vinnu en ég er
hægt og rólega að byrja að undirbúa
mig. Það fer að styttast í að maður
færi sig alveg yfir í æfingaaðstöðuna
í Fastus,“ segir Sigurjón Bragi
Geirsson sem verður fulltrúi Íslands
í matreiðslukeppninni Bocuse d’Or í
mars á næsta ári. Þá fer und-
ankeppni Evrópu fram í Búdapest en
ári síðar fer svo aðalkeppnin fram í
Lyon í Frakklandi. Til þess að kom-
ast þangað þarf Sigurjón að ná einu
af tíu efstu sætunum í undankeppn-
inni.
Tilkynnt var í byrjun vikunnar að
Sigurjón yrði fulltrúi Íslands. Í
fyrsta sinn gáfu tveir kost á sér til
þátttöku og þurftu þeir því að keppa
sín á milli. Sigurjón, sem var kokkur
ársins 2019, atti kappi við Denis
Grbic, sem var kokkur ársins 2018,
og bar sigur úr býtum.
Hefur fengið mikinn stuðning
Þátttaka í Bocuse d’Or er ekkert
hobbí eða hliðarverkefni. Sigurjón
gefur sig allan að verkefninu á næstu
mánuðum og vonandi lengur ef hann
kemst í aðalkeppnina.
„Það er magnað hvað þeir hafa
sýnt þessu mikinn skilning í
vinnunni. Ég hef líka fengið mikinn
stuðning heima fyrir,“ segir Sigurjón
sem er kvæntur þriggja barna faðir.
Hann starfar sem yfirkokkur á Héð-
inn kitchen & bar en hefur áður unn-
ið til að mynda á Kolabrautinni í
Hörpu, á Essensia og hjá Múlakaffi.
Hann var í kokkalandsliðinu um
nokkurra ára skeið og þjálfaði liðið
þegar það náði 3. sæti á Ólympíu-
leikunum árið 2019.
Safnar liði fyrir keppnina
Fyrsta verk í undirbúningnum er
að setja saman teymi sem verður
með Sigurjóni á Bocuse d’Or. „Það
verða 4-5 sem verða alveg í þessu
með mér. Það eru spennandi tímar
fram undan,“ segir Sigurjón sem hef-
ur þegar gengið frá því að Sigurður
Kristinn Laufdal, sem keppti í Bo-
cuse d’Or á dögunum og hafnaði í
fjórða sæti, verður þjálfari hans. Þá
mun Hugi Rafn Stefánsson verða að-
stoðarmaður Sigurjóns en hann
starfar um þessar mundir í Noregi.
Færir fórnir til að keppa
„Það er ástæða fyrir því að maður
fer út í þetta, það er eitthvað sem
drífur mann áfram. Auðvitað er
spennandi að geta keppt við þá bestu
í heiminum og að eiga möguleika á að
sigra. Þetta er bara eins og að kom-
ast á Ólympíuleikana. Það þarf auð-
vitað að fórna einhverju fyrir það og
nú er ég í þeirri stöðu að ég get gert
það. Mér líður eins og ég geti bæði
gert það persónulega og á þeim stað
sem ég er á ferlinum. Ég er ekki viss
um að ég gæti gert það eftir tíu ár.
Þá er maður orðinn aðeins eldri og
kannski ekki með sama drifkraft,“
segir Sigurjón sem er 34 ára gamall.
Vill vinna með íslenskan fisk
Hann veit ekki enn hvernig keppn-
in í Búdapest verður en síðar í mán-
uðinum verður tilkynnt hvaða þema
verður þar. Sigurjón segist að-
spurður vera nokkuð jafnvígur á hrá-
efni. „Mér finnst þó rosa gaman að
vinna með fisk af því hann er svo
ferskur hjá okkur Íslendingum. Von-
andi verð ég með íslenskan fisk í
keppninni í Búdapest en skipuleggj-
endur eiga reyndar til að velja
skrítnar fisktegundir sem tengjast
því landi sem keppnin er haldin í,
þeir þurfa náttúrlega að fá styrktar-
aðila fyrir hráefnið og þá leita þeir
sér nærri,“ segir Sigurjón og bætir
við að dæmi séu um að menn standi
frammi fyrir stórum áskorunum.
„Við lendum stundum í því að fá
fisk eða kjöt sem við höfum lítið unn-
ið með. Síðast þegar keppnin var í
Búdapest var til að mynda styrja
sem við notum ekki neitt. Ef eitthvað
slíkt verður uppi á teningnum verð-
um við að treysta á að birgjarnir okk-
ar geti flutt viðkomandi hráefni inn
fyrir okkur svo við getum æft okk-
ur,“ segir Sigurjón Bragi Geirsson.
Spennandi að keppa við þá bestu
- Sigurjón Bragi Geirsson verður fulltrúi Íslands í matreiðslukeppninni Bocuse d’Or - Margra mán-
aða undirbúningur að hefjast - Þarf að færa fórnir - Langar að vinna með íslenskan fisk í keppninni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Spenntur Sigurjón Bragi Geirsson starfar sem yfirkokkur á Héðinn kitchen & bar í Vesturbænum. Hann mun á
næstunni einbeita sér að undirbúningi fyrir undankeppni matreiðslukeppninnar Bocuse d’Or í Búdapest í mars.