Morgunblaðið - 06.11.2021, Síða 16

Morgunblaðið - 06.11.2021, Síða 16
16 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2021 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að Frá því verkefnið „Römpum upp Reykjavík“ fór af stað í mars á þessu ári hafa verið settir upp 100 rampar í miðborg Reykjavíkur. Römpum er ætlað að auðvelda aðgengi hreyfi- hamlaðra að veitingastöðum, versl- unum og öðrum fyrirtækjum. Af þessu tilefni var efnt til blaða- mannafundar í Ráðhúsinu í gær þar sem greint var nánar frá því hvernig verkefnið hefur gengið. Viðstödd fundinn voru borgarstjóri, forseti Ís- lands, forsætisráðherra, félags- og barnamálaráðherra, bæjarstjórinn á Akureyri og forsprakki átaksins, Haraldur Þorleifsson, stofnandi Ueno, sem er í hjólastól. Verkefnið miðaði að því í fyrstu að koma upp 100 römpum á 12 mánaða tímabili en viðtökurnar voru það góðar að markmiðið náðist á sjö mánuðum. Stofnaður var sjóður með aðkomu fjölmargra fyrirtækja sem standa að mestu leyti straum af upp- setningu rampanna. Reykjavíkin römpuð Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Rampað Ásmundur Einar Daðason ráðherra ræðir við einn forsprakka átaksins, Harald Þorleifsson, sem þarf að fara allra sinna ferða í hjólastól. - 100 rampar verið settir upp í miðborginni Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Alls 18 leiguíbúðir eru í nýju áfanga- heimili Samtaka um kvennaathvarfs, sem er í nýju fjölbýlishúsi í miðborg Reykjavíkur. Íbúðirnar eru 27-75 metrar að flatarmáli og hugsaðar sem úrræði fyrir konur – gjarnan með börn – sem dvalist hafa áður í neyðarathvarfi og geta ekki farið aftur á sitt fyrra heimili. Þegar er komið fólk í fimm íbúðir og fjölgar á næstu mánuðum. „Áfangaheim- ilið er mjög mik- ilvægt. Þær konur sem til okkar koma eiga vonandi greiðari leið út í lífið aftur með þessu. Geta skapað sér góða framtíð með þessu úrræði,“ segir Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfs- ins. Til athvarfsins leita á ári hverju 130-150 konur, að börnum ótöldum. Konurnar eru þá að flýja ofbeldis- sambönd eða aðrar erfiðar að- stæður. Meira en helmingur kvennanna er af erlendum uppruna. „Stundum fá konurnar ekki lög- skilnað frá mönnum sínum og njóta því takmarkaðra réttinda eða bóta- greiðslna. Stundum eru konurnar svo mánuðum skiptir í athvarfinu, en fara svo út í lífið aftur og leigja íbúð sem tekur nánast allar ráðstöf- unartekjur þeirra. Eru því í nánast læstri stöðu, hafa litla möguleika til að komast á beina braut og öðlast öruggt líf,“ segir Sigþrúður. Leiga á íbúðunum í áfangaheim- ilinu verður fyrir lágmarksgjald, auk þess sem konunum mun bjóðast margvíslegur félagslegur stuðn- ingur til betra lífs. Leigusamningar verða til eins árs og við undirritun þeirra gera leigutakar og ráðgjafar Kvennaathvarfsins áætlun um hvernig árið skuli notað á upp- byggilegan máta; svo sem í námi, starfi eða öðru sem hverjum og ein- um hentar. Að þeim tíma liðnum skal viðmiðið vera að konurnar – gjarnan með börn – fari út í lífið og þá í húsnæði á almennum markaði. Byggingarkostnaðurinn um 480 millj. kr. Áfangaheimilið nýja er hús á þremur hæðum og um 680 fermetrar að flatarmáli. Undirbúningur fram- kvæmda hófst árið 2017 og fram- kvæmdir snemma árs í fyrra. Samanlagður byggingarkostn- aður er um 480 milljónir króna. Um þriðjungur þeirrar upphæðar var stuðningur frá ríki og borg, skv. samkomulagi um mótframlög. Ríkið lagði raunar meira til og þá munaði líka mjög um framlög Oddfellow- reglunnar, Zonta-kvenna, Á allra vörum, Soroptimista og fleiri vel- ferðarsamtaka. Fólk og ýmis fyrir- tæki lögðu einnig í púkkið og þannig gekk kapallinn upp. Sjónvarps- söfnun, sem efnt var til fyrir um fjórum árum, var eitt af fyrstu skref- unum á langri og strangri vegferð sem nú, þegar litið er til baka, var vel þess virði, segir framkvæmda- stýran. „Bygging þessa húss er afrakstur bjartsýni, stórhugar, dugnaðar og þrautseigju stórkostlegra kvenna,“ segir Sigþrúður. Kvennaathvarf- ið byggði fjölbýli - 18 litlar íbúðir - Áfangi út í lífið Morgunblaðið/Sigurður Bogi Áfangaheimili Fallegt hús í miðborginni sem verður fólki öruggt skjól. Sigþrúður Guðmundsdóttir Guðni Einarsson gudni@mbl.is Veruleg leysing var á Hofsjökli í sumar samkvæmt mælingum Veður- stofu Íslands. Hún var einkar mikil á norðanverðum jöklinum. Ársafkoma Hofsjökuls 2020-2021 er -1,33 metr- ar (vatnsgildi) en meðaltal áranna 1991-2020 er -0,92 metrar. Rýrnun Hofsjökuls á þessu ári var 45% um- fram meðaltal síðustu ára. „Neðstu hlutar jökulsins, sporð- arnir, hafa lækkað um marga tugi metra og jafnvel upp undir hundrað metra sums staðar,“ segir Þorsteinn Þorsteinsson, jöklafræðingur hjá Veðurstofunni. Langjökull liggur lægra en Hofs- jökull, nær upp í um 1.400 metra hæð, og Þorsteinn segir hann því veikari fyrir hlýnun, sem er meiri í neðri loftlögum en í þeim efri. Haldi hlýnun áfram og rýrnun jökla verður líklega lítið eftir af Langjökli í lok þessarar aldar. Hofsjökull nær upp undir 1.800 metra yfir sjó og á því betri möguleika. Stærð Vatnajökuls veldur því að hann getur mögulega lifað í 350 ár miðað við áframhald- andi hlýnun. Niðurstöður mælinga á Hofsjökli voru kynntar á fundi norrænna jöklafræðinga í Ósló í vikunni. Að sögn Þorsteins kom þar fram að jökl- ar í Noregi hafi einnig rýrnað mikið. Þar eru að myndast hundruð nýrra stöðuvatna framan við jöklana. Einnig voru kynntar niðurstöður varðandi jökla í Alaska og á Sval- barða sem allar hníga í sömu átt. Óvenjuhlýtt og -sólríkt sumar Veðurstofan segir að rýrnun Hofs- jökuls komi ekki á óvart í ljósi hlý- inda á liðnu sumri, einkum í júlí og ágúst. Meðalhiti á Hveravöllum var til dæmis 10,6°C í ágúst eða 3,4°C yf- ir 30 ára meðaltali 1991-2020. Þá var sumarið óvenjusólríkt á Norður- landi. Það getur skýrt mikla leysingu á norðanverðum Hofsjökli. Umfang leysingarinnar í sumar kom í ljós við mælingar í leiðangri Veðurstofunnar á jökulinn 19.-22. október. Mælistikur stóðu 1-2 metr- um hærra upp úr jöklinum en al- gengast er, að sögn Veðurstofunnar. Nokkrar þeirra höfðu kiknað í haust- stormum og grafist í fönn. Á toppi hverrar stiku er lítil flaga þannig að hægt er að finna stikurnar með leit- artæki. Því var hægt að finna stik- urnar, rétta þær við og lesa af þeim hve mikið yfirborð jökulsins hafði lækkað um sumarið. Verulegur munur á milli svæða Hofsjökull nær frá 650 metrum og upp í 1.790 metra yfir sjó. Verulegur munur er á afkomu sumarsins milli ákomu- og leysingarsvæða. „Á ákomusvæðinu ofan við 1.300 m hæð mælist snjólag vetrarins yfir- leitt 4−7 m þykkt að vori og þynnist það um 1−2 metra yfir sumartímann vegna leysingar og þjöppunar. Á leysingarsvæðinu bráðna fyrst 1−3 metrar af vetrarsnjó og kemur þá jökulís fram undan snjónum; síðan bráðna 1−5 metrar íss seinni hluta sumars. Þar er snjóbráðnun og ís- bráðnun lögð saman til að fá heild- artölu um sumarafkomu. Mælt er á þremur ísasviðum á jöklinum, sem samanlagt ná yfir 40% af flatarmáli hans,“ segir í frétt Veðurstofunnar. Afkoma Hofsjökuls hefur verið mæld árlega frá 1989. Á þessu tíma- bili hefur ársafkoman mælst nei- kvæð í 28 skipti en jákvæð fimm sinnum. Jökulárið 2020-2021 er það áttunda lakasta á 33 árum, sjö sinn- um hefur árleg rýrnun mælst meiri. Hofsjökull hefur nú tapað tæplega 15% af rúmmáli sínu frá 1989. Ljósmynd/Veðurstofa Íslands-Bergur Einarsson Hofsjökull Lesið af leysingarstiku á hábungu Hofsjökuls. Mælingar sýna að hann rýrnaði mikið á liðnu sumri. Rýrnunin var 45% umfram meðaltal - Hlýindi og sólskin í sumar ollu mikilli leysingu á Hofsjökli

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.