Morgunblaðið - 06.11.2021, Page 20
ÚR BÆJARLÍFINU
Gunnar Kristjánsson
Grundarfirði
Sögumiðstöðin í Grundarfirði
er nú orðin að samfélagsmiðstöð.
Þúsundþjalasmiðurinn og sagna-
meistarinn Ingi Hans Jónsson hef-
ur á þessu ári unnið að umbreyt-
ingu húsnæðisins.
Í húsinu er og verður áfram
bókasafn bæjarins og Bæringsstofa
sem hefur nú fengið nýjan inngang
inn úr miðrými í stað inngangs úr
bókasafni. Í Bæringsstofu er salur
með sætum fyrir 40 manns og hef-
ur salurinn allur fengið andlits-
upplyftingu sem og stólarnir. Þar
geta menn sest niður yfir mynda-
safni Bærings Cecilssonar sem
varpað er á sýningatjald og fylgst
með uppbyggingu samfélagsins
sem og félags- og menningarlífi
fólksins á staðnum nánast frá upp-
hafi þéttbýlismyndunar Grundar-
fjarðar.
Í salnum er sýning tileinkuð
Bæring og ljósmyndaáhuga hans. Í
miðrými Sögumiðstöðvarinnar er
síðan hin eiginlega samfélags-
miðstöð þar sem hinir ýmsu hópar
hittast flesta daga vikunnar. Þar
má nefna að á vegum Rauðakross-
deildar starfar Vinahúsið og Karla-
kaffi.
Eldri borgarar hittast þar einn
dag í viku til að spjalla og njóta
samveru og njóta ýmiss konar
uppákoma, á vegum eldri borgara
hittist handavinnuhópur þar viku-
lega auk þess sem þar eru AA-
fundir og Lionsklúbburinn heldur
sína fundi þar. Þessir aðilar hafa
hver sinn fasta tíma virka daga og
auk þess er samfélagsmiðstöðin og
salur Bæringsstofu nýttur til ým-
issa viðburða og funda.
Á döfinni er síðan viðbygging
og frágangur á þeim hluta hússins
sem hýsa á hinn sögulega þátt
uppbyggingar Grundarfjarðar
(Grafarness).
- - -
Hafnarframkvæmdum fer
nú að ljúka því senn líður að því
að 130 metra lenging Norðurgarðs
sé fullbúin til notkunar. Búið er að
ljúka við steypu á þekju og lagna-
vinna er langt komin og ljósamöst-
ur senn á leiðinni upp. Þótt frá-
gangi sé ekki að fullu lokið er þessi
viðbót þegar farin að þjóna tilgangi
sínum því skemmtiferðaskipin voru
farin að leggjast við hafnarkantinn
í ágúst eða um leið og stíga mátti
út á steypuna næst skipunum.
Þá eru stóru fiskiskipin héðan
og þaðan af landinu iðin við að
koma inn til Grundarfjarðar til
löndunar og veitir þá oft og tíðum
ekki af því að auka viðlegupláss
sem Grundarfjarðarhöfn býður upp
á.
- - -
Vatnstjón varð í grunnskóla
og samkomuhúsi á miðju sumri
með nokkura daga millibili svo af
varð gríðarlegt tjón á gólfefnum og
þeim hlutum sem nema við gólf og
þola ekki að vatn leiki um.
Í vetrarfríi í síðustu viku og
viðbótartíma kringum það tókst að
ljúka við endurbætur á því sem af
fyrrgreindum tjónum stafaði. Var
kennsla í rýmum úti um allan bæ
þá daga sem ekki var vetrarfrí og
minnti það um margt á þá tíma
sem barnaskólinn var orðinn allt of
lítill á sjöunda áratug síðustu ald-
ar.
Skólinn var síðan stækkaður í
lok 8. áratugarins með góðri viðbót
en ekki leið á löngu þar til hann
varð aftur of lítill og var hann enn
stækkaður í kringum aldamótin
síðustu með því að byggja ofan á
og bæta við svokallaðri verknáms-
aðstöðu. Þegar flestir nemendur
voru í skólanum voru þeir um 217
talsins. Í dag eru nemendur grunn-
skólans innan við 100.
- - -
Nokkuð hefur borið á hús-
næðisskorti hér að undanförnu en
vonir um að úr rætist hafa nú
glaðnað því að í byggingu eru tvö
einbýlishús og eitt níu íbúða fjöl-
býlishús og öll eru þau komin upp
úr jörðu tilbúin í framhaldið.
Vafalaust hefur tilboð
Grundarfjarðarbæjar um 50 pró-
senta afslátt af lóðargjöldum ýtt
undir þessar framkvæmdir þótt
ekki sýnist fólk bíða í biðröð eftir
lóðaúthlutun eins og stendur.
Það virðist þó meira en nóg að
gera hjá grundfirskum iðnaðar-
mönnum og verkefnin ærin í ýmiss
konar viðhaldsverkefnum. Verið er
að reisa stórt stálgrindarhús á
Hafnarsvæðinu sem G.Run hf.
byggir og þjóna á sem nýtt neta-
verkstæði enda húsnæðið sem nú
hýsir netaverkstæðið komið til ára
sinna. Vélsmiðja Grundarfjarðar
flytur inn húsið frá Póllandi og
mun skila því fullbúnu undir lagn-
ir.
- - -
Bæjarstjórn Grundarfjarðar
hefur óskað eftir samtali við sveit-
arfélögin á Snæfellsnesi um mögu-
leika á viðræðum um að öll sveit-
arfélögin sameinist í eitt. Sent var
erindi þessa efnis til hinna sveitar-
félaganna og hafa þau öll tekið já-
kvætt í þetta erindi og er fundur
forsvarsmanna þeirra fyrirhugaður
nú í nóvember. Vænta má niður-
stöðu viðræðanna áður en langt um
líður og er þeirra beðið með nokk-
urri eftirvæntingu víða á Snæfells-
nesi.
Njóta samveru í Sögumiðstöðinni
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Grundarfjörður Bæring Cecilsson ljósmyndari vakir yfir safni sínu á sýningunni í Sögumiðstöðinni.
20 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2021
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI
Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn
og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda.
Landsréttur þyngdi í gær dóm yf-
ir Þorláki Fannari Albertssyni
fyrir tilraun til manndráps með
því að hafa veist að Herdísi Önnu
Þorvaldsdóttur með hníf í íbúð
hennar og reynt ítrekað að stinga
hana í höfuð og efri hluta lík-
amans. Þá er hann í dóminum
einnig fundinn sekur um að hafa
veist að öðrum manni áður og
svipt hann frelsi í 17 klukku-
stundir og beitt hann ofbeldi.
Dæmdi Landsréttur hann í sjö og
hálft ár í fangelsi og til að greiða
Herdísi 4,9 milljónir í skaða- og
miskabætur.
Landsréttur staðfestir niður-
stöðu héraðsdóms um að Þorlák-
ur hafi verið sakhæfur þrátt fyrir
að hafa þróað með sér geðrofs-
sjúkdóm, en hann var talinn
tengdur neyslu vímuefna. Var
ástandið talið tímabundið geðrof
en ekki varanlegur geðklofi.
Sjö og hálft ár fyrir
tilraun til manndráps
Mannvirkjaskrá var tekin formlega
í gagnið hjá Húsnæðis- og mann-
virkjastofnun (HMS) í gær en vinna
við skrána, sem er gagnagrunnur
um íslensk mannvirki, hefur staðið
yfir í nokkra hríð.
Það voru þeir Sigurður Ingi Jó-
hannsson, samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðherra, og Ásmundur
Einar Daðason, félags- og barna-
málaráðherra, sem hleyptu heima-
síðu mannvirkjaskrár formlega af
stokkunum með því að fletta fyrstir
uppi í skránni en hópur bygging-
arfulltrúa og annarra starfsmanna
í mannvirkjageiranum fylgdist
með. Við þetta tækifæri sagði Sig-
urður Ingi m.a. að skráin myndi
skapa áþreifanlegan ávinning alla;
almenning, sveitarfélög, fyrirtæki
og stofnanir, og Ásmundur Einar
tók undir það.
Mannvirkjaskrá Ásmundur Einar Daða-
son og Sigurður Ingi Jóhannsson mættu.
Ný mannvirkjaskrá
mun gagnast öllum
STUTT
Kona um sextugt vann tæpar 53
milljónir króna í Lottóinu sl. laug-
ardagskvöld. Var hún ein með allan
pottinn. Í tilkynningu Íslenskrar
getspár segir að konan hafi verið
með miðann í áskrift.
Fyrir útdráttinn hafði hún ein-
sett sér, ásamt eiginmanni sínum,
að vera algjörlega skuldlaus fyrir
árið 2029. Það tókst núna heldur
betur, átta árum fyrr.
Vann 53 milljónir