Morgunblaðið - 06.11.2021, Síða 30

Morgunblaðið - 06.11.2021, Síða 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2021 Í nýlegri grein í Newsweek mátti lesa að Macron og fleiri meðlimir stjórnvalda hefðu áhyggjur af því að „woke“-hugmynda- fræðin frá BNA væri að ná fótfestu hjá yngri kynslóðum Frakka og yki á sundrungu innan samfélagsins, því sjálfsmyndarpólitíkin og pólitíska rétthugs- unin væri í andstöðu við grunngildi þeirra. Haft var í greininni eftir Vivek Ramaswamy, höfundi Woke Inc, að „wokeness“ væri blanda nas- isma og marxisma og ein eitraðasta útflutningsafurð BNA. Ég hef ekki lesið bók hans en mér finnst grein- ing hans áhugaverð og ætla að reyna að útskýra hvernig málið horfir við mér. Svo virðist sem rætur þessarar hugmyndafræði liggi hjá Frökkum sjálfum – í póstmódernískum hug- myndum Foucault, Derrida, Lyot- ard og fleiri sem hafa þróast í BNA frá því á sjöunda áratugnum. Póst- módernisminn einkenndist helst af gagnrýni á öll hugmynda- og valda- kerfi, s.s. marxisma og kaþólsku kirkjuna. Menn vildu afbyggja þau, sýna hvernig orðræðan skapar veru- leikann og það sem talið er sann- leikur hverju sinni og hvernig kerfin viðhalda sér sjálf eftir að þeim hefur verið komið á. Smám saman þróaðist þessi póst- móderníska gagnrýni í BNA og sam- einaði gagnrýna kynþáttahyggju, femínisma, eftirlendufræði, fötlun- arfræði og hinseginfræði – „woke“- hugmyndafræðin varð til og breidd- ist yfir hinn vestræna heim. Að vera „woke“ er að vera vakandi fyrir óréttlæti heimsins og að vilja gera eitthvað í því – að gerast aktívisti. Pólitísk rétthugsun og sjálfsmynd- arstjórnmál er það sem helst ein- kennir hópinn. Kalla má þessa stefnu ný-marxisma því í stað kúg- unar auðvaldsins á alþýðunni eru það nú hvítir, gagnkynhneigðir karl- ar (feðraveldið) sem sagðir eru kúga alla aðra hópa: konur, innflytjendur, LGBTQ- hópa, litaða og aðra hópa er falla utan „normsins“ og er þessi meinta kúgun séð sem kerfislæg (kerfi hvítrar yfirburðahyggju, karl- rembu og rasisma). Samlíkinguna við nasisma skil ég þannig að öll spjót standi á hvítum, vestrænum, gagnkynhneigðum körlum, líkt og á gyð- ingum forðum. Konum leyfist að hata þá opinskátt, styttur af þeim eru eyðilagðar og í háskólum er það víða stefnan að minnka áherslu á verk hvítra höfunda. „Reynið að verið minna hvítir“ eru skilaboðin frá Coca Cola til starfs- manna sinna. Hvítir karlar eru sagð- ir njóta forréttinda, breiða of mikið úr sér, vera með hrútskýringar, og til að útrýma hinni „eitruðu karl- mennsku“ skulu þeir gangast undir menningarlega endurhæfingu með námi í femínískri kynjafræði. Ekki er talið að aðrir en hvítir geti verið rasistar, því slíkt tengist valdi, segja menn. Allir hvítir eru sagðir rasistar og allir litaðir undirokaðir. Hverjir flokkist sem hvítir er þó svo- lítið óljóst. Hvítleiki tengist nefni- lega ekki beint húðlit samkvæmt The National Museum of African American History and Culture (Smithsonian) heldur einstaklings- hyggju, stundvísi, vinnusemi, virð- ingu fyrir lögum og reglu, keppnis- anda o.fl. og tileinki svartir sér þau gildi þá eru þeir ásakaðir um að hafa tileinkað sér „hvíta yfirburða- hyggju“. Markmið „woke-istanna“ er að umturna valdakerfum nútímans; þeir sem hafi flest undirokunarstig og búi við fjölþætta kúgun skuli stjórna. Ekki má lengur horfa á hæfni eða manngildi í BNA þegar starfsmenn eru ráðnir, kyn, kyn- hneigð og húðlitur skiptir meira máli. Ráðist er gegn öllu skipulagi, s.s. skiptingu í karla og konur, og reynt að breyta orðfæri manna því sá sem stjórnar orðræðunni fer jú með völdin. Á CNN heyrði ég að það mætti berja þá er settu fram „rang- ar“ skoðanir og vart má minnast á líffræði kvenna lengur – enda eru vísindin uppfinning hvítra, vest- rænna karla, meðlima hins skelfilega feðraveldis á tíma nýlendukúgunar. Svo virðist sem þessi hugmynda- fræði, sem óx upp úr póstmódern- ismanum, hafi myndað sjálfstætt kerfi þar sem hvít forréttindi eru séð sem uppspretta valdsins og hvítir Vesturlandabúar gerðir ábyrgir fyr- ir öllu sem aflaga fer í heiminum (líka stríðum sjía- og súnnímúslima) en horft fram hjá stéttamun, sem síst hefur minnkað. Hefur valdið ekki alltaf komið að ofan og kemur það ekki nú frá litlum hópi sem ræð- ur yfir mestöllum auðæfum heimsins – og fjölmiðlunum? Er það kannski sá hópur sem kyndir undir sjálfs- myndarpólitíkinni og aktívism- anum? Með því að etja fólki saman, kon- um t.d. gegn körlum, og skapa sundrungu, skapar valdaelítan sér ekki betri skilyrði til að deila og drottna? Það er a.m.k. ekki hægt að sjá að þessi stöðuga leit félagslegu réttlætissinnanna að einhverju til að móðgast yfir og einhverjum eða ein- hverju til að steypa af stóli skili neinu nema ergelsi og óvild manna á meðal. Er ekki ráð að henda þessari sundurlyndisstefnu í ruslafötuna og sameinast gegn hinni raunverulegu uppsprettu valdsins og kúgunar- innar? Dusta mætti rykið af hinni klassísku frjálslyndisstefnu upplýs- ingarinnar og nota hana gegn þess- ari alræðishugmyndafræði, eins og gegn alræði kirkjunnar hér áður fyrr. Eftir Ingibjörgu Gísladóttur »Hinni félagslegu réttlætisstefnu er kemur frá BNA er stefnt gegn hvítum, gagnkynhneigðum körlum og vestrænni menningu. Ingibjörg Gísladóttir Höfundur starfar við umönnun aldraðra. Ein eitraðasta útflutnings- afurð Bandaríkjanna Íbúaþróun á suð- vesturhorni landsins á undanförnum árum hefur einkennst af miklum aðflutningi fólks frá útlöndum eins og á raunar við um landið í heild. Þetta hefur haft í för með sér að hlutfall innflytjenda hér á landi sem var 17,1% í upphafi árs er orðið hátt í alþjóð- legum samanburði. Hlutfall innflytj- enda (af fyrstu og annarri kynslóð) í Svíþjóð var um 33% en það var 18,5% í Noregi og 14% í Danmörku. Það var 8% í Finnlandi 2020. Þessi þróun hefur breytt aldurs- samsetningu íbúa á suðvesturhorni landsins eins og fjallað hefur verið um áður. Innflytjendur hafa dreifst misjafnlega niður á sveitarfélögin eins og hér verður tekið til umfjöll- unar en einnig innan sveitarfélag- anna en þar hef ég einungis aðgang að upplýsingum um Reykjavík. Hátt hlutfall innflytjenda leiðir af sér auknar kröfur á þjónustu sveitarfé- laganna en fyrir þjóðina í heild er fram undan umfangsmikið verkefni aðlögunar þar sem hæfni til að nota íslenskt mál er grundvallaratriði sem þátttaka aðfluttra íbúa og afkom- enda þeirra í samfélaginu hvílir á. Í nýbirtum tölum Hagstofunnar um fjölda innflytjenda af fyrstu og annarri kynslóð á Íslandi í ársbyrjun má sjá að þeim heldur áfram að fjölga, ekki síst á suðvesturhorni landsins. Frá fyrra ári nam fjölgun innflytjenda 44% af íbúafjölgun á suðvesturhorni landsins en rúmlega 47% af íbúafjölgun landsins alls. Inn- flytjendum fjölgaði í öllum fjölmenn- ari sveitarfélögum á þessu landsvæði nema í Kópavogi þar sem þeim fækk- aði um 1,2%. Hlutfallsleg fjölgun var mest í Garðabæ, en þar var hlutfall innflytjenda mjög lágt fyrir. Innflytj- endur í Reykjavík eru nú orðnir næstum því jafn margir og íbúar í Hafnarfirði, sem er þriðja fjölmenn- asta sveitarfélag landsins. Af sveitarfélögum á suðvest- urhorninu er hlutfall innflytjenda hæst á Suðurnesjum en þar varð óveruleg fjölgun innflytjenda á síð- asta ári. Það stafar nær örugglega af þeim mikla samdrætti sem varð í umfangi starfsemi á og í tengslum við Keflavíkurflugvöll í kjölfar Co- vid-farsóttarinnar. Áhrifin á íbúaþróun ná þó ekki til innlendra íbúa því þeim fjölgaði rösklega. Íbúum fjölgar ört í sveitarfélögunum fyrir austan fjall og á það bæði við um inn- lenda íbúa og innflytj- endur en þeim fjölgaði ört á síðasta ári. Það vekur athygli að íbúaþróun í Borg- arbyggð fylgir ekki því sem hefur einkennt mestan hluta suðvesturhornsins að undanförnu (sjá töflu). Innan höfuðborgarsvæðisins hafa fjarlægðir og samgöngur milli íbúð- arhverfa og atvinnusvæða áhrif á dreifingu innflytjenda. Tegund og verð íbúðarhúsnæðis hafa einnig áhrif og má sjá að nokkurt samband er á milli fermetraverðs íbúðar- húsnæðis og hlutfalls innflytjenda. Taka verður fram að í öllum hverfum og bæjarhlutum er íbúðarhúsnæði misjafnt, bæði að því er varðar aldur, stærð og gæði, og að meðaltöl gefa ófullnægjandi mynd. Ekki er hægt að draga víðtækar ályktanir enda koma margs konar sjónarmið til varðandi val íbúa á íbúðarhúsnæði hvort sem er til leigu eða kaups. Framboð starfa á þéttbýlisstöðum suðvesturhornsins á efalítið sinn þátt í misjafnri dreifingu innflytjenda um svæðið. Misjöfn dreifing innflytjenda um þetta landsvæði er enn ein áskor- unin fyrir stjórnvöld. Innflytjendur gæða allt mannlífið meiri fjölbreytni en ef markmiðið er að þeir sem hing- að flytjast verði smám saman hluti af íslensku menningarsvæði þarf átak til að þeir nái að aðlagast enda þótt þeir auki jafnframt við þá fjölbreytni sem hér er að finna. Við viljum ekki að þessir íbúar einangrist í kimum sem hafa lítil sem engin tengsl við mannlífið að öðru leyti. Til að sporna við slíkri þróun ættum við að leggja okkur enn betur fram því aðlögun innflytjenda mun ekki gerast af sjálfsdáðum. Eftir Sigurð Guðmundsson Sigurður Guðmundsson »Hátt hlutfall innflytj- enda leiðir af sér auknar kröfur á þjón- ustu sveitarfélaga. Höfundur er skipulagsfræðingur. sigurdur.gudmundsson@forrad.is Fjölbreytni í fyrirrúmi: Íbúa- þróun á suðvestur- horni landsins Íbúaþróun á suðvesturhorni landsins Íbúafjöldi 1. janúar 2021 Fjölgun frá fyrra ári Íbúafjöldi samtals Innflytjendur Inn- flytjendur Aðrir íbúar Fjölgun allsFjöldi Hlutfall Reykjavík 133.262 28.372 21,3% 6,3% 0,4% 1,6% Kópavogur 38.332 5.223 13,6% -1,2% 1,3% 1,0% Seltjarnarnes 4.715 511 10,8% 4,9% -0,8% -0,2% Garðabær 17.693 1.164 6,6% 10,4% 4,2% 4,5% Hafnarfjörður 29.687 4.393 14,8% 0,2% -1,1% -0,9% Mosfellsbær 12.589 1.260 10,0% 4,7% 4,2% 4,3% Reykjanesbær 19.676 5.794 29,4% 0,4% 1,7% 1,3% Grindavík 3.539 792 22,4% 0,3% 0,9% 0,8% Vogar 1.331 305 22,9% 0,3% 2,2% 1,8% Suðurnesjabær 3.649 919 25,2% 1,2% 1,9% 1,7% Akranes 7.697 872 11,3% 3,9% 1,9% 2,2% Hvalfjarðarsveit 647 54 8,3% -11,5% 5,1% 3,5% Borgarbyggð 3.758 558 14,8% -4,0% -2,2% -2,4% Árborg 10.452 1.058 10,1% 9,9% 3,3% 3,9% Hveragerði 2.778 226 8,1% 9,7% 2,4% 2,9% Ölfus 2.369 532 22,5% 2,9% 4,4% 4,1% SV-horn alls 292.490 52.056 17,8% 4,0% 1,1% 1,6% Utan SV-horns 76.302 11.187 14,7% 2,0% -0,1% 0,2% Landið allt 368.792 63.243 17,1% 3,6% 0,8% 1,3% Heimild: Hagstofa Ísl. Sveitarfélögummeð innan við 1.000 íbúa er sleppt en eru með í heildartölum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.