Morgunblaðið - 06.11.2021, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 06.11.2021, Qupperneq 31
MINNINGAR 31Messur á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2021 ÁRBÆJARKIRKJA | Allra heilagra messa kl. 11. Guðsþjónustan er sér- staklega helguð minningu látinna og öllum gefst kostur að tendra á kerti til að minnast sinna ástvina. Kór Árbæj- arkirkju syngur undir stjórn Krisztinu Kalló Szklanér organista og sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og þjón- ar fyrir altari. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Andreu Önnu Arnarsdóttur og Thelmu Rósar Arnarsdóttur. Kaffi og spjall eft- ir stundina. ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta og barna- starf kl. 13. Séra Sigurður Jónsson þjónar fyrir altari og prédikar. Jóhanna María Eyjólfsdóttir djákni og Þorsteinn Jónsson annast samverustund sunnu- dagaskólans. Félagar úr Kór Áskirkju leiða sönginn. Orgelleikari er Bjartur Logi Guðnason. Hinn árlegi jólabasar og nytjamarkaður Safnaðarfélags Ás- kirkju verður opnaður í Ási, efri safn- aðarsal kirkjunnar að guðsþjónustu lokinni, um kl. 14. Gnótt eigulegra muna á boðstólum. Kaffi og vöfflur til sölu og kórfélagar taka lagið. ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjón- usta í tilefni af Allra heilagra messu kl. 17. Beðið verður fyrir aðstandendum þeirra sem látist hafa á árinu og prest- ar prestakallsins hafa annast útfarir fyrir. Davíð Sigurgeirsson leiðir tónlist- ina. Stefanía Svavarsdóttir syngur ein- söng. Prestar kirkjunnar, sr. Arnór Bjarki Blomsterberg og sr. Kjartan Jónsson annast prestsþjónustuna. Á eftir guðsþjónustu býður Inga Rut kirkjuvörður öllum í ókeypis, heitan mat. BAKKAGERÐISKIRKJA | Bleik messa sunnudag kl. 14 í framhaldi af bleikum október – vitundarátaki Krabbameinsfélagsins. Auður Vala Gunnarsdóttir segir reynslusögu sína tengda efninu. Kristjana Björnsdóttir segir frá starfi Krabbameinsfélags Austurlands. Prestur er Þorgeir Ara- son. Allra heilagra messu verður einn- ig minnst og kveikt á kertum í minn- ingu látinna, bæn og þakkargjörð. Organisti: Jón Ólafur Sigurðsson. Bakkasystur syngja. Einsöngur: Tinna Jóhanna Magnusson. Kaffisopi í Heið- argerði eftir messu. BESSASTAÐASÓKN | Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11. Sigrún Ósk, sr. Hans Guðberg, Ástvaldur organisti og Lærisveinar hans. Allraheilagramessa kl. 14. Minning látinna í Garðakirkju. Kór Vídalíns- kirkju syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista, Ragnheiður Gröndal syngur einsöng. Ásdís Magn- úsdóttir flytur ávarp. Prestar presta- kallsins og Margrét djákni þjóna. BLÖNDUÓSKIRKJA | Sunnudaga- skóli kl. 13. Við syngjum, heyrum bibl- íusögu, svo koma Mýsla og Rebbi í heimsókn. Styrkleikamessa kl. 20. Fermingar- börn taka virkan þátt í messunni. Kirkjukór Blönduóskirkju leiðir söng undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wec- hner. Bryndís Valbjarnardóttir sóknar- prestur. BORGARNESKIRKJA | Allra heil- agra messa sunnudag kl. 11. Við minnumst látinna ástvina, kirkjukór Borgarneskirkju flytjur okkur ljúfa tóna undir stjórn Steinunnar Árnadóttur og Ásta Marý Stefánsdóttir syngur ein- söng. Séra Þorbjörn Hlynur Árnason þjónar fyrir altari. Boðið verður upp á súpu og brauð eftir stundina. Brimilsvallakirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Magnús Björn Björnsson þjónar fyrir altari. Sr. Sighvatur Karls- son, héraðsprestur, prédikar og opnar formlega myndlistasýningu sína í and- dyri kirkjunnar. Kór Breiðholtskirkju syngur undir stjórn Arnar Magnússon- ar organista. Sunnudagaskólinn á sama tíma. Steinunn Leifsdóttir og Arna Ingólfsdóttir sjá um stundina. Al- þjóðlegi söfnuðurinn kl. 14. Prestar sr. Toshiki Toma og sr. Ása Laufey Sæ- mundsdóttir. Örn Magnússon leikur undir safnaðarsöng. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Sóley Adda, Jón- as Þórir, séra Þorvaldur og leiðtogar leiða stundina. Guðsþjónusta kl. 13. Minning látinna og ljósatendrun. Kammerkór Bústaða- kirkju og einsöngvarar syngja undir stjórn Jónasar Þóris organista. Séra Þorvaldur Víðisson þjónar fyrir altari. Unga kirkjan, kirkjustarf fyrir 16 ára og eldri milli klukkan 17-22. Skemmtileg dagskrá, sprell og grillaðir hamborg- arar – skráning á soley@kirkja.is. DIGRANESKIRKJA | Allra heilagra messa kl. 11. Sr. Gunnar Sigurjóns- son. Organisti er Sólveig Sigríður Ein- arsdóttir. Söngur Kammerkórinn. Ein- söngvari er Marteinn Snævarr Sigurðsson. Ferming. Sunnudagaskóli í kapellu. Léttar veitingar að messu lokinni. Hjallakirkja kl. 17. Sr. Sunna Dóra Möller. Tónlist Matthías V. Baldursson og Söngelskur. Matur að messu lok- inni. DÓMKIRKJAN | Messa á kirkjudegi Dómkirkjunnar kl. 11, prestar eru Sveinn Valgeirsson og Elínborg Sturlu- dóttir. Kári Þormar er dómorganisti og Dómkórinn syngur. EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudaga- skólinn kl. 10.30. Kvöldmessa kl. 20. Tónlistarmessa. Nemendur úr Tónlist- arskólum Egilsstaða og Fellabæjar koma fram. Einsöngur, kórsöngur, al- mennur söngur og hljóðfæraleikur. Tónlistarstjóri messunnar er Hlín Pét- ursdóttir Behrens söngkennari. Prest- ur er Þorgeir Arason. Kaffisopi eftir messu. FELLA- og Hólakirkja | Allra heil- agra messa og sunnudagaskóli kl. 11. Við minnumst látinna og sérstaklega þeirra sem látist hafa á árinu og kveikjum á kerti til minningar um látna ástvini. Sr. Guðmundur Karl Ágústs- son þjónar og prédikar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðs- dóttur organista. Kaffisopi eftir stund- ina. Meðhjálpari er Kristín Ingólfsdótt- ir. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fjölskyldu- guðsþjónusta sunnudag kl. 14. Dr. Sigurvin Lárus Jónsson leiðir stundina. Héðinn Unnsteinsson for- maður Geðhjálpar flytur hugleiðingu. Tónlist stjórnar Örn Arnarsson ásamt hljómsveitinni Möntru og sönghópn- um við Tjörnina. Barnakórarnir við Tjörnina koma fram undir stjórn Álf- heiðar Björgvinsdóttur. Fjölskyldur fermingarbarna eru hvattar til að mæta. GARÐAKIRKJA | Allra heilagra messa kl. 14. Minning látinna verður haldin í kirkjum landsins 7. nóvember. Í þessari stund verður látinna minnst í bæn og tónlist. Tónlistarflutningur er í höndum Kórs Vídalínskirkju og Jó- hanns Baldvinssonar organista, Ragn- heiður Gröndal syngur einsöng. Prest- ar Garðabæjar, þau Jóna Hrönn Bolladóttir, Henning Emil Magnússon og Hans Guðberg Alfreðsson, og Mar- grét Gunnarsdóttir djákni þjóna við at- höfnina. Ásdís Magnúsdóttir flytur ávarp. GLERÁRKIRKJA | Allaraheilagra- messa sunnudag kl. 20. Sr. Sindri Geir Valmar Väljaots og kór Glerár- kirkju leiða guðþjónustuna. Kveikt á kertum í minningu látinna. GRAFARVOGSKIRKJA | Allra heil- agra messa sunnudag kl. 11. Við minnumst látinna með kertaljósa- tendrun, tónlist, bænum og orðum. Kór Grafarvogskirkju syngur ásamt Barna og unglingakór kirkjunnar. Allir prestar safnaðarins þjóna. Organisti er Hákon Leifsson. Stjórnandi Barna- og unglingakórs er Sigríður Soffía Haf- liðadóttir. GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta sunnudag kl. 11. Sr. Eva Björk Valdi- marsdóttir þjónar ásamt messuþjón- um. Organisti er Ásta Haraldsdóttir, Kirkjukór Grensáskirkju leiðir almenn- an messusöng. Batamessa kl. 17. Vinir í bata, félagar úr kór Grensás- kirkju undir stjórn Ástu Haraldsdóttur, prestur Þorvaldur Víðisson. GRINDAVÍKURKIRKJA | Allra heilagra messa kl. 20 þar sem við minnumst látinna með kertaljósa- tendrun, tónlist, bænum og orðum. Kór Grindavíkurkirkju leiðir sönginn undir stjórn Kristjáns Hrannars organ- ista. Sr. Elínborg Gísladóttir þjónar fyr- ir altari. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Prest- ur er Pétur Ragnhildarson. Barnakór Guðríðarkirkju syngur undir stjórn Gyðu kórstjóra og Ásta. Allra heilagra messa kl. 17 þar sem látinna verður sérstaklega minnst með bæn og íhug- un. Vorboðinn, kór eldri borgara í Mos- fellsbæ, syngur við athöfnina við und- irleik Hrannar Helgadóttur organista. Sr. Leifur Ragnar Jónsson sóknar- prestur þjónar fyrir altari og flytur hug- leiðingu. Kaffi og konfekt eftir athöfn í safnaðarheimili. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Allra heilagra messa kl. 11. Sr. Jón Helgi Þórarinsson þjónar. Guðmundur Sig- urðsson leikur á orgel og félagar úr Barbörukórnum syngja. Sunnudaga- skóli á sama tíma í safnaðarheimilinu. Kaffi á eftir. Nánar: www.hafnarfjardar- kirkja.is. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar að- stoða. Organisti er Björn Steinar Sól- bergsson. Kór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Steinars Loga Helgason- ar. Umsjón barnastarfs: Kristný Gúst- afsdóttir, Rósa Hrönn Árnadóttir og Ragnheiður Bjarnadóttir. HÁTEIGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson pré- dikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kordíu, kór Háteigskirkju syngja. Org- anisti er Guðný Einarsdóttir. Faðmi þig ljósið – dagskrá í minningu látinna kl. 20. Kordía, kór Háteigs- kirkju, syngur ásamt einsöngvurum úr hópi kórfélaga. Kórstjórn og undirleik annast Guðný Einarsdóttir. Lesarar eru sr. Helga Soffía Konráðsdóttir, Þorleifur Hauksson og Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir. HÓLANESKIRKJA Skagaströnd | Sunnudagaskóli kl. 11. Við syngjum, heyrum biblíusögu, svo koma Mýsla og Rebbi í heimsókn. Þetta er gæða- stund fyrir unga sem aldna. Bryndís Valbjarnardóttir sóknarprestur. HVERAGERÐISKIRKJA | Messa kl. 11. Ljós kveikt í minningu látinna ást- vina. Sr. Ninna Sif Svavarsdóttir þjón- ar fyrir altari. Kór kirkjunnar syngur, organisti er Miklós Dalmay. Sunnudagaskóli kl. 12.30. Umsjón: Unnur Birna og sr. Ninna Sif. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn samkoma með lofgjörð og fyrirbænum kl. 13. Friðrik Schram prédikar. Kaffi að samverustund lokinni. KEFLAVÍKURKIRKJA | Fjölskyldu- messa kl. 11 sunnudag. Regnbog- araddir syngja, bænir biblíusaga og brúður. Helga Sveinsdóttir og Alexand- er Grybos leiða stundina ásamt sr. Erlu Guðmundsdóttur. Sunnudagur kl. 20. Keflavíkurkirkja og starfsfólk Heil- briðgisstofnun Suðurnesja bjóða til allra heilagra messu. Lesin verða upp nöfn látinna. Kórfélagar syngja undir stjórn Arnórs Vilbergssonar, organ- ista. Sr. Erla Guðmundsdóttir og sr. Fritz Már Jörgensson þjóna. Boðið er uppá kvöldkaffi í Kirkjulundi. KIRKJUSELIÐ í Spöng | Selmessa sunnudag kl. 13. Sr. Arna Ýrr Sigurð- ardóttir þjónar. Vox Populi leiðir söng. Undirleikari er Gísli Magna Sigríðar- son. KÓPAVOGSKIRKJA | Barna- og fjöl- skylduguðsþjónusta (ásamt sunnu- dagaskólanum) kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson sóknarprestur leiðir stund- ina ásamt sunnudagaskólaleiðtogum. Skólakór Kársness syngur undir stjórn Þóru Marteinsdóttur. LANGHOLTSKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Aldís Rut Gísladóttir prestur þjónar og organisti er Magnús Ragnarsson. Nobili-kórinn syngur og Iva Adrichem syngur ein- söng. Sunnudagaskóli í safnaðar- heimili kirkjunnar. Minningarstund fyrir látna ástvini kl. 17. Kór Langholtskirkju flytur Requim eftir Fauré. LÁGAFELLSKIRKJA | Sunnudaga- skóli kl. 13. Bogi, Þórður og Bryndís hafa umsjón með stundinni. Kvöld- guðsþjónusta kl. 20. Allra heilagra messa. Guðsþjónustan er sérstak- lega helguð minningu látinna. Öllum gefst kostur á að tendra kerti til að minnast ástvina sinna. Sönghópurinn Vocal mun ásamt Þórði Sigurðarsyni, organista sjá um söng og tónlistar- flutning. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir, leiðir stundina. Kirkjuvörður Bryndís Böðvarsdóttir. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu- dagaskóli kl. 11. Messa kl. 20. Kór Lindakirkju leiðir lofgjörð undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Samvera aldraðra í kirkju Óháðasafnaðarins sunnudag kl. 14 . Séra Pétur Þor- steinsson þjónar og kammerkór Dóm- kirkjukórsins undir stjórn Kára Þormar leiðir sálmasöng og Kristján Hrannar Pálsson sér um undirleik. Ómar Ragn- arsson flytur ræðu. Ólafur Kristjáns- son mun taka á móti gestum. Veit- ingar í boði safnaðarins. SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Sr. Ólafur Jóhann leiðir stund- ina og Helgi Hannesar verður á píanó- inu. Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Sr. Ólafur Jóhann prédikar og þjónar fyrir altari. Hjónin Regína Ósk og Svenni sjá um tónlistina. SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorgunn kl. 10. Í trú, von og kærleika. Starf Sambands íslenskra kristniboðsfélaga heima og heiman. Helga Vilborg Sigurjónsdóttir kristni- boði talar. Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Félagar úr Kammerkór Sel- tjarnarneskirkju syngja. Kaffiveitingar eftir athöfn í safnaðarheimilinu. Kyrrð- arstund á miðvikudag kl. 12. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11 á allra heilagra messu. Minning látinna. Organisti er Jón Bjarnason og biskup sr. Kristján Björnsson. Menn- ingardagskrá í minningu herra Jóns Arasonar kl. 16. Dr. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri flytur erindi um síð- ustu daga herra Jóns í Skálholti árið 1550. Skálholtskórinn syngur kórverk og ljóð Jóns Arasonar. Organisti er Jón Bjarnason og trompetleikari er Jóhann I. Stefánsson. Blysför að minnisvarða Jóns og heitt súkkulaði á eftir í Skál- holtsskóla. Sr. Kristján Björnsson. VÍDALÍNSKIRKJA | Sunnudagaskóli í Urriðaholtsskóla kl. 10. Biblíusögur, brúðuleikhús og söngur. Sunnudagaskólahátíð kl. 11. Heiðar pollapönkari. Barnakórarnir syngja. TTT sýnir leikrit. Sirkus Íslands og allir krakkar fá blöðrudýr. Kl. 14 Allra heilagra messa, minning látinna í Garðakirkju, sjá nánar hér í dálknum undir Garðakirkja. Óskastund fermingarbarna kl. 17. Már Gunnarsson sund- og tónlistar- maður flytur erindi. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Guðsþjónusta á allra heilagra messu kl. 11. Látinna minnst. Kór Víði- staðasóknar syngur undir stjórn Sveins Arnars organista og sóknar- prestur þjónar með aðstoð messu- þjóna kirkjunnar. Kaffihressing í safn- aðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Melgraseyrarkirkja ✝ Valgeir Ingvi Karlsson fæddist í Víkum á Skaga þann 11. september 1943. Hann lést á HSN á Blönduósi þann 18. október 2021. For- eldrar hans voru hjónin Margrét Jónsdóttir frá Skrapatungu, f. 1910, d.1986, og Karl Hinrik Árnason frá Vík- um, f. 1902, d. 1995. Systkini Valgeirs eru: Þorsteinn Finn- ur, f. 1937; Lilja Sæbjörg, f. 1938; Sigríður Björk, f. 1947; Árni Sævar, f. 1950, d. 2011. Valgeir ólst upp í Víkum, skólaganga hans var frá 10 til 14 ára aldurs, fyrst í farskól- anum í Kálfshamarsvík uns hún lagðist í eyði en eftir það nam hann í Ásbúðum og heima í Víkum. Að öðru leyti var hann sjálfmenntaður en hann var greindur og minnugur og aflaði sér þekk- ingar með lestri bóka. Valgeir var hagleiksmaður bæði á járn og tré og stundaði margs konar smíðar og við- gerðir alla tíð, samhliða búskap. Frá miðjum sjö- unda áratugnum bjó hann fé- lagsbúi í Víkum með Finni, Lilju og Árna. Valgeir sinnti ýmsum félagsmálum, hann var t.d. í byggingarnefnd, sveitarstjórn og sóknarnefnd. Árið 2016 lögðu systkinin af búskap og fluttu á Blönduós. Útför Valgeirs verður gerð frá Hólaneskirkju á Skaga- strönd í dag, 6. nóvember 2021, kl. 14. Jarðsett verður í heimagrafreit í Víkum. Á æskuárum okkar bræðra á Hrauni var allt í föstum skorð- um í nágrenninu og lífið ekki bú- ið að ná þeim hraða sem það hneigist til í dag. Sveinn var á Þangskála, Árni og Helga í Ás- búðum og systkinin fjögur í Vík- um ásamt foreldrum sínum. Það er ekki löng bæjarleið á milli Hrauns og Víkna og fljótfarin þó hvort í sínum hreppnum og sýsl- unni séu og ekki hefur sú gata gróið svo lengi sem munað verð- ur. Í Víkum bjuggu hagleiks- menn mann fram af manni og þangað var sótt þyrfti að saga niður rekavið, sjóða saman brot- in heyvinnutæki, gera við saumavél eða leggja miðstöð svo dæmi séu tekin. Um þau Víkna- systkini má segja að þau voru ekki langskólagengin en fjöl- menntuð eins og þeir sem til þekkja vita, einstaklega vandað fólk og hjálpsamt. Valli var sannarlega ekki undanskilinn þessum hæfileikum, hafsjór af kunnáttu og víðlesinn. Aldrei var hrapað að neinum fram- kvæmdum og dvaldi hann oft við undirbúning og fróðleiksöflun í „hugsanaherberginu“ eins og Árni í Ásbúðum kallaði vinnu- herbergið í Víkum. Verkin hans þurfti ekki að vinna upp og því eftirsóttur og treyst til fjöl- breyttra viðfangsefna. Með sama hætti valdist hann til ábyrgðastarfa í sinni sveit, var í hreppsnefnd um árabil og hér- aðsnefnd meðan hún var við lýði og sóknarnefnd Ketukirkju. Valli vann mikið utan heimilis, byggði íbúðarhúsið á Skatastöð- um í Austurdal, Fossárrétt í Skagahreppnum gamla og var á yngri árum við byggingu Búr- fellsvirkjunar ásamt systrum sínum Lillý og Siggu og vann á tímabili á Reyðarfirði. Fátt ef nokkuð vafðist fyrir honum í verklegu tilliti og vantaði verk- færi eða tæki voru þau einfald- lega smíðuð. Afrúllari, hús á Deutzinn, sögunarbekkurinn og svo ótalmargt varð til í smíða- húsinu hjá þeim bræðrum, gjarnan diktað upp úr gömlu. Því þótti tíðindum sæta þegar einn daginn eftir landbúnaðar- sýningu á Króknum að tvö glæný heyvinnutæki birtust á hlaðinu í Víkum! Sem persóna var Valli dulur og heldur til baka í fjölmenni krefðust aðstæður ekki hans íhlutunar, fámáll um eigin hagi en ráðhollur. Talnaglöggur með afbrigðum og sá um fjármál og bókhald heimilisins alla tíð. Þegar systkinin brugðu búi og fluttu á Blönduós vonuðumst við til þess að þau gætu sinnt hugarefnum sínum að vild, grúski og handverki, en fljótlega tók heilsu Valla að hraka. Í gegnum tíðina hafði hann fengið margvíslegar skrokkskjóður og var að auki veill fyrir hjarta. Krabbameinið ásamt sykursýki drógu síðan smám saman úr honum kraft og frumkvæði svo sporin þyngdust. Í veikindum sínum naut hann umönnunar systkina sinna að ógleymdum Hávarði Sigurjónssyni sem óþreytandi var að aka honum það sem þurfti eða snúast þegar Valli hafði ekki lengur heilsu til þess sjálfur. Valli lést þann 18. október og verður lagður til hinstu hvílu í heimagrafreitnum í Víkum þar sem sama ættin hefur búið í hartnær 400 ár. Elsku Finnur, Lillý, Sigga og fjölskylda. Um leið og samfylgdin er þökkuð sendum við okkar dýpstu sam- úðarkveðjur og biðjum ykkur blessunar. Fyrir hönd fjölskyldunnar á Hrauni, Gunnar Rögnvaldsson. Valgeir Ingvi Karlsson Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, MARGRÉT ELÍSABET FR. IMSLAND, Víkurbraut 30, Hornafirði, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 4. nóvember í faðmi fjölskyldunnar. Útförin fer fram frá Hafnarkirkju fimmtudaginn 11. nóvember klukkan 13. Lars Jóhann Imsland Marta Imsland Andrés Bergsteinn Júlíusson Kristján Imsland Þóra Alexía Guðmundsdóttir Björn Þór Imsland Hafdís Stefanía Eiríksdóttir Gunnhildur Imsland Grétar Smári Sigursteinsson Össur Imsland Hjalta Sigríður Jónsdóttir og ömmubörnin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.