Morgunblaðið - 06.11.2021, Síða 32

Morgunblaðið - 06.11.2021, Síða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2021 ✝ Dagný Sverr- isdóttir fædd- ist á Stöðvarfirði 15. mars 1945. Hún lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu í Neskaupstað 27. október 2021. Foreldrar henn- ar voru Ljósbjörg Guðlaugsdóttir frá Skagaströnd, f. 7. nóvember 1924, d. 11. apríl 2015, og Sverrir Ingi- mundarson frá Stöðvarfirði, f. 27. ágúst 1918, d. 6. janúar 1993. Bjuggu þau í Bræðra- borg á Stöðvarfirði. Dagný var elst sjö systkina, næstelstur var Ingimund, f. 24. apríl 1946, d. 19. maí 1965, Áróra María, f. 5. janúar 1948, Jóhanna Sig- ríður, f. 12. maí 1950, Rann- veig Sigrún, f. 30. janúar 1956, Lúðvík, f. 13. ágúst 1958, og Sveinbjörn, f. 10. mars 1960. Þann 28. nóvember 1969 giftist Dagný Jóni Björgólfs- syni frá Tungufelli í Breiðdal, f. 13. júlí 1947. Foreldrar hans voru Valborg Guðmundsdóttir, f. 26. september 1923, d. 22. nóvember 2010, og Björgólfur Sævar Þorri, í sambúð með Sóleyju Rún, eiga þau tvær dætur Bríeti Önju og Elmu Sól, b) Sindri Steinn, og saman eiga þau Rungnapha c) Maríu Ljósbjörgu Ploy og d) Val- borgu Rós Wiwi. 5) Sunna Kar- en, gift Hafliða Hinrikssyni, synir þeirra eru a) Elmar Nóni, b) Ernir Máni. Dagný og Jón hófu búskap í Bræðraborg 1968. Á árunum 1969 til 1972 byggðu þau sér hús á Stöðvarfirði, húsinu gáfu þau nafnið Einholt, í því bjuggu þau allan sinn búskap. Dagný fór í gagnfræðanám til Vestmannaeyja veturinn 1959 til 1960. Veturinn 1963-1964 fór Dagný í Húsmæðraskólann á Blönduósi, sem þótti hagnýt menntun ungra kvenna þess tíma. Hugurinn leitaði alltaf heim í Stöðvarfjörðinn þar sem hún ólst upp og þar bjó hún alla sína ævi. Dagný vann við hin ýmsu störf tengdum sjávar- útvegi frá unga aldri og fram- an af ævinnar. Seinustu árin vann hún við áhugamál sitt, blóm og ræktun í umhverfis- teymi Fjarðabyggðar ásamt því að vera flokkstjóri ung- linga. Einnig sá hún um tjald- svæðin bæði í Stöðvarfirði og á Fáskrúðsfirði. Útför Dagnýjar fer fram frá Stöðvarfjarðarkirkju í dag, 6. nóvember 2021, klukkan 13. Jónsson, f. 28. nóv- ember 1919, d. 22. mars 2001. Börn Dagnýjar og Jóns eru: 1) Sverrir Ingi, í sambúð með Sól- veigu Jónsdóttur, hann á þrjú börn úr fyrri hjóna- bandi, a) Málfríður í sambúð með Fjölni Þeyr, þau eiga eina dóttur, Maren Myrk, b) Friðrik Fannar og c) Jón Marteinn. 2) Valborg, gift Þorra Magnússyni, börn þeirra eru a) Valtýr Aron, í sambúð með Helgu, eiga þau einn son Dag, b) Dagný Sól, og c) Sólný Petra. 3) Björgólfur, giftur Agnesi Klöru Jónsdóttir, börn hans úr fyrra hjónabandi eru: a) Jón, í sambúð með Ingi- björgu, eiga þau tvö börn, Kar- itas Rós og Sveinmar Aron, b) Sólmundur Aron, í sambúð með Alexöndru Sæbjörgu, c) Hanna Dís. Saman eiga þau Agnes: d) Glódísi Teklu. 4) Guðlaugur Björn, giftur Rungnapha Kaewkam, synir hans úr fyrri sambúð eru: a) Elsku hjartans þrjóskupúki, sem ég er svo stolt af að kalla móður mína. Ég ætla innilega að vona að enginn vinni þig í „þrjóskukeppninni“. Aldrei við- urkenndir þú að heilsunni hrak- aði, barðist um á hæl og hnakka að þurfa ekki að fara á stofnun og vera örðum háð. Sjálfstæði var þér í blóð borið og með sjálfstæði í farteskinu ólstu okkur upp. Enda var þér mikið í mun að við yrðum sjálfstæð. Við dæturnar „áttum“ að mennta okkur og lagðir þú allt sem til þurfti á þig til að tryggja að við færum mennta- veginn, því ekki vildir þú sjá á eftir okkur út í lífið nema með fullvissu um að við gætum verið sjálfstæðar og „engum“ háðar. Synirnir höfðu meira val hvort þeir færu menntaveginn þar sem tíðarandi uppvaxtarára minn var að þeir ættu meiri möguleika á að verða sér út um vel launuð störf. Á þessum nöturlegu tíma- mótum er mér efst í huga þakk- læti, þakklæti fyrir hafa fengið að njóta góðrar og mikillar ást- úðar og umhyggju í uppvext- inum og alla tíð. Því alltaf var þér mjög umhugað um velferð okkar allra og alltaf varstu til í að leggja aðeins meira á þig til að við gætum notið. Sérhlífni var aldrei í boði hjá þér þegar hún snéri að þér sjálfri, þú varst alltaf til í að gefa en ekki kom til greina að þiggja til baka, að undanskildum ferskum fiski, en hann þótti þér ein- staklega góður, ávallt borgaðir þú margfalt til baka. Betri vinkonu er ekki hægt að hugsa sér en móður og vin- konu í einni sterkri konu, konu sem var of sterk fyrir sjálfa sig, sem alltaf sýndi umburðarlyndi, ást og virðingu sama á hverju gekk, alltaf að hugsa um aðra, samanber drauminn sem mig dreymdi nóttina eftir að þú fórst. Þú hringdir í mig og hófst mál þitt með „ekki ávíta börn- in…“ en þar var þér rétt lýst, tryggja að öðrum liði vel og þá sérstaklega börnunum sem þú hafðir einstakt yndi af. Mikið yndi hafðir þú af nátt- úru, blóma- og berjarækt ásamt berjatínslu, var yndislegt að sjá þig njóta þessa og kenna af- komendunum að njóta með þér. Einn fastur liður á hverju vori var að þú komst heim til okkar til að setja niður blóm, skreyta fyrir sumarið og kenna ungvið- inu að njóta fegurðar blómanna, og margar heimsóknir sumars- ins snérust um að tryggja að blómin fengju vökvun og að- hlynningu, líkt og þér var í mun að rækta og tryggja að allir í kringum þig hefði það gott. Margs er að minnast og gæti ég haldið lengi áfram. Seinasta sem þú sagðir við mig var „heyrumst síðar…“ Því segi ég: elsku hjartans mamma, heyr- umst síðar, takk fyrri allt og góða ferð. Þín Valborg. Hingað erum við þá komin. Þú farin á vit forfeðranna og ég að reyna skrifa minningarorð, eitthvað sem hélt ég þyrfti ekki að gera alveg strax. Eftir standa svo ótal mörg „ef“ og „af hverju“ en því verður víst aldrei svarað. Þá er gott að rifja upp gamlar minningar og þessa gömlu tuggu þína sem var eitt- hvað á þessa leið að „öll él stytta upp um síðir“… Jæja mamma, ég bíð! Þrautseigja, það var þitt mottó og markmið að kenna okkur það. Sem og að gefast ekki upp þó lífið sé stundum ill- skiljanlegt og ósanngjarnt, því það styttir alltaf upp fyrir rest. Þú varst alltaf tilbúin að hlusta og það er mér svo minnisstætt þegar ég var unglingur og hlustaði á vinkonu mína hálf- partinn monta sig yfir því að hafa átt svo góða stund með mömmu sinni, þær hafi setið og spjallað heila kvöldstund. Fram að þeim tíma hafði ég ekki hugsað út í það að það að sitja og spjalla við mömmu sína um allt og ekkert væri ekki sjálf- sagður hlutur. Í mínum huga var það bara ósköp venjulegt kvöld, ekkert til að gera veður út af. Þó það fyki stundum í þig þá varstu alltaf til staðar og maður gat alltaf treyst á að þú stæðir með manni alveg sama hvaða vitleysu manni datt til hugar. Mér þótti nú samt lúmskt gaman að hringja í þig meðan ég var í hjúkrunarnám- inu og segja þér hvað ég var að gera þann daginn. Ég bókstaf- lega sá þig í anda skipta litum og kúgast í gegn um símann, en klígjugjarnari manneskja var vandfundin. Svona geta litlir hlutir skemmt manni, enda varstu stundum ansi fljót að kveðja mig þegar ég komst á flug. Strákarnir mínir lærðu mjög fljótt að vefja þér um fing- ur sér og fá þig til að þjónusta sig, sem þú gerðir með glöðu geði. Minn eldri sagði eitt sinn voða laumulegur „amma, mér þykja pönnukökur voðalega góðar“. Það er ekki að spyrja að því að auðvitað var hent í pönnsur fyrir kálfinn sem ljóm- aði allur. Síðan urðu pönnsur nærri fastur viðburður þegar hann kom við. Enda spurði hann núna hvort ekki yrðu pönnukökur í erfidrykkjunni því þú hefðir verið svo hrifin af þeim. Ég ákvað að vera ekkert að segja honum að pönnukök- urnar voru ekki af því þér þætti þær eitthvað sérstaklega góðar, heldur af því honum fannst það. Það var svo ríkjandi í þér að hugsa fyrst um aðra áður en þú hugsaðir um þig. Sárast er samt að þú vildir aldrei leyfa okkur að hugsa um þig. Við ræðum það yfir næsta kaffibolla ein- hverja kvöldstundina þegar minn tími kemur en þá ég vil þá fá að hella upp á kaffið. Hvíl í friði elsku mamma. Ég bið að heilsa. Þín Sunna. Elsku amma Dagga. Takk fyrir að vera amma mín. Dagný Sverrisdóttir Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna Tökum á móti ástvinum í hlýlegu og fallegu umhverfi Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is Öll aðstaða í samræmi við tilefnið. Hlýlegt og fallegt húsnæði og nýir glæsilegir bílar. Sjá nánari upplýsingar á utfor.is Útfararþjónusta Við veitum alla þjónustu tengda andláti ástvina – Þjónusta um allt land og erlendis – Þjónusta í heimahúsi og á stofnunum í yfir 70 ár Guðný Hildur Kristinsdóttir Framkvæmdastjóri Ellert Ingason Sálmaskrár, útfararþjónusta Emilía Jónsdóttir Félagsráðgjöf, útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson Útfararþjónusta Lára Árnadóttir Útfararþjónusta Sigurður Bjarni Jónsson Útfararþjónusta Magnús Sævar Magnússon Útfararþjónusta Jón G. Bjarnason Útfararþjónusta Helga Guðmundsdóttir Útfararþjónusta

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.