Morgunblaðið - 06.11.2021, Page 37

Morgunblaðið - 06.11.2021, Page 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2021 ✝ Einar Þór Ingvason fædd- ist í Reykjavík 24. ágúst 1957. Hann lést á Hrafnistu Ísa- fold í Garðabæ þann 26. september 2021. Einar var húsa- smíðameistari og átti Byggingar- félagið Aspir. Börn hans voru Solveig Thelma Einarsdóttir, fædd 4. maí 1977, gift Sigurgeiri Ragnarssyni, og Þorgils Eiður Einarsson, fæddur 17. ágúst 1994, í sambúð með Klöru Valgerði Ingu Haralds- dóttur. Barnabörn hans voru Oli- ver Magni Brynjarsson, fæddur 27. ágúst 2005, og Elín Erna Sig- urgeirsdóttir, fædd 21. júlí 2016. Fyrri eiginkona hans er Elín Guðrún Jóhannsdóttir, fædd 6. apríl 1958. Seinni eiginkona hans er Aðalheiður Magnúsdóttir, fædd 4. júní 1960. Einar var yngstur og eini strákurinn af sex systkinum. Foreldrar hans voru Yngvi Þór Ein- arsson, fæddur 11. febrúar 1922, dáinn 15. janúar 1997, og Valgerður Margrét Valgeirsdóttir, fædd 8. mars 1922, dáin 27. september 2017. Systur hans voru Inga Þórs Ingvadóttir, fædd 4. febrúar 1942, látin 23. febrúar 1986, Hrafnhildur Þórs Ingvadóttir, f. 13. apríl 1946, Guðlaug Þórs Ingvadóttir, f. 27. júní 1950, Val- gerður Júlía Þórs Ingvadóttir, fædd 1. júlí 1951, dáin 11. sept- ember 1968, og Ingunn Ása Þórs Ingvadóttir Mency, fædd 14. febrúar 1956. Útför Einars fór fram í kyrr- þey. Pabbi ólst upp á Sogavegi fyrstu árin sín sem barn og svo í Mávahlíð og gekk þar í Hlíða- skóla. Hann fluttist til Svíþjóð- ar rétt eftir fermingu. Þegar hann flutti heim bjó hann hjá Ingu systur sinni og Magga í Glæsibænum og gekk í Árbæj- arskóla og átti sín unglingsár þar. Hann kynntist mömmu minni, Ellu, þegar hann var 15 ára og fóru þau þá að vera sam- an. Árið 1977 fæddist ég þegar pabbi var einungis 20 ára. Fyrstu árin bjuggum við í Torfufellinu eða þar til amma og afi fluttu heim frá Svíþjóð, en þá bjuggum við hjá þeim þar til við fluttum í Gyðufell. Þar man ég mín fyrstu ár, sem einkabarn foreldra minna. Foreldrar mínir voru aðeins 23 ára þegar þau sóttu um lóð með ömmu og afa til að byggja hús í Birkihlíð. Þar byggðu þau öll fjögur saman hús og var ég svo heppin að búa með þeim öllum í þessu húsi til 13 ára ald- urs. Núorðið eru ekki mörg börn sem fá að njóta þess að eiga ömmu og afa svo nálægt sér og er ég þakklát fyrir það. Þetta var dýrmætur tími með mínu besta fólki. Fyrstu 18 mánuðina bjuggum við í bíl- skúrnum meðan verið var að byggja húsið og svo var flutt á eina hæð í einu þar til næstum allt var tilbúið. Á þessum tíma lauk pabbi námi sínu sem húsa- smíðameistari og vann hann myrkranna á milli. Hann tók að sér sín fyrstu verkefni sem verktaki á þessu tímabili. Pabbi var stórhuga og lét verkin tala og draumana rætast, hann byggði meðal annars Aðveitu- stöð 2 fyrir Rafmagnsveitu Reykjavíkur, útihúsin í Hús- dýragarðinum og Barnaspítala Hringsins, svo fátt eitt sé nefnt af þeim byggingum sem hann sá um að reisa, og allt var það áður en hann varð fertugur. Þorgils bróðir fæddist eftir mjög langa bið þegar pabbi var 37 ára og við í fjölskyldunni tókum honum öll fagnandi, þessum langþráða gullmola. Hann var augasteinn okkar allra og ég tel mig heppna að hafa verið orðin fullorðin þegar hann bættist við fjölskylduna, fyrir vikið finnst mér ég eiga svo mikið í honum. Eftir að pabbi varð fertugur tók við frekari vinna við hin ýmsu verkefni sem stækkuðu með honum. Þegar hann var 44 ára fékk hann mikinn áhuga á taikwondo-íþróttinni og þegar hann var 47 ára hafði hann náð svarta beltinu í því. Hann var þrjóskur, þver og ákveðinn og kom það honum langt. Hann byggði mjög mörg hús og mannvirki og er ég mjög stolt að geta bent börnunum mínum á hvað stendur eftir í mínum minningum og úr mínu uppeldi. Elsku pabbi, þegar við fæðumst vitum við ekki hvaða verkefni við fáum í lífinu. Ég hugga mig við að þú sagðir við mig þegar ég var lítil að vera ekki hrædd við að deyja því við munum ekki eftir að fæðast og hvað þá þegar við deyjum, og því væri óþarfi að kvíða því sem við munum ekki. Að vera foreldri er að vera manneskja sem hlúir að ung- unum sínum, kemur þeim til manns, elskar þá skilyrðislaust og kennir þeim allt sem þú kannt. Það gerðir þú. Elsku pabbi, hvíldu í friði þar til við hittumst aftur. Ég treysti því að þú takir á móti mér þegar minn tími kemur. Ég elskaði þig frá fyrsta degi til þess síðasta. Þín dóttir, Solveig Thelma. Einar fæddist á Sogavegi 172, yngstur af sex, fyrir voru fimm systur svo draumurinn um bróður rættist, þaðan flytur hann níu ára í Mávahlíð og á ellefta ári í Árbæjarhverfi og síðan til Svíþjóðar nýfermdur með undanþágu, þá 13 ára. Hann kom aftur heim vorið 1973 með Gullfossi, þá 15 ára, og bjó hjá Ingu systur sinni í Árbænum. Það var svo 16. júní 1973 að við kynntumst, ég ný- orðin fimmtán og að sanna sig fyrir fjórum systrum var vinna en Vallý var látin þá. Það gekk nú á með éljum og stundum stórhríð fyrstu árin. Árið 1977 fæddist Solla svo Einar ákvað tvítugur að skella sér í skóla og tók Vörðuskóla utanskóla en pabba hans leist nú ekki betur á það og sagði að ef hann næði því væri skólakerfið hrunið, en hann rúllaði því upp. Við bjugg- um þá í Gyðufellinu og í fram- haldinu fór hann í húsasmíði og lærði hjá Halldóri Bachman og byrjaði á að endurbyggja Torf- una og Lækjarbrekku. Við fengum úthlutað lóð í Birkihlíð með foreldrum hans og á með- an hann vann fulla vinnu og var í meistaraskólanum byggði hann þriggja hæða hús en byrj- aði á bílskúrnum og fluttum við í hann haustið 1983 því hann vildi að Solla byrjaði í fyrsta bekk í Hlíðaskóla. Það var svo árið 1986, hann tuttugu og níu ára og nýlega útskrifaður meistari með enga reynslu að hann bauð í Aðveitustöð 2 á Meistaravöllum og barðist fyrir því að fá það og eins og hann sagði við verkkaupann, fyrst bankinn treystir mér og borgar brúsann ef illa fer hvað er þá til fyrirstöðu? Hann fór frá því verki með miklum sóma og tók svo Húsdýragarðinn Laugardal í framhaldi. Einar var hörku- duglegur, ósérhlífinn og skemmtilegur og gat hvorki sofnað né vaknað nema hringja í Sollu eftir að hún flutti að heiman. Ári 1994 kom svo Þorgils, hann fór snemma með pabba sínum að æfa bardagaíþróttir en Einar fékk svarta beltið í ta- ekwondo að verða fimmtugur og er Þorgils að lifa drauminn sem þeir áttu sameiginlegan í Taílandi en þar er hann í þjálf- un í muaythai. Hann er líkur pabba sínum í háttum og húm- orinn lifir í honum. Leiðir okk- ar Einars skildi og lágu margar ástæður fyrir því en saman átt- um við þrjátíu frábær ár. Pabbi barnanna minna, hvíldu í friði hjá foreldrum og systrum. Elín Guðrún Jóhannsdóttir. Elskulegur litli bróðir minn Einar Þór Ingvason lést aðfara- nótt 26. september langt um aldur fram. Einar fæddist 24. ágúst 1957 á Sogavegi 172 þar sem mamma átti okkur öll heima, hann varð strax augasteinninn minn þar sem mig langaði alltaf að eignast bróður en við vorum orðnar fimm systur og dekraði ég hann langt fram eftir aldri, enda ljúfur, góður og skemmti- legt barn. Á þessum árum var gaman að alast upp á Sogaveg- inum enda naut Einar sín vel. Það eru mörg atvik sem koma upp í svona skrifum eins og að fylgjast með Einari og Bára vini hans, báðir svo litlir en alltaf ofurhugar því þeir gátu allt eins og þegar þeir stóðu fyrir framan skúrinn hans Högna og voru vissir um að geta sprænt upp á þakið á skúrnum, það var dásamleg sjón. Einar var alltaf vinmarg- ur enda glaðlyndur og mikill húmoristi. Árin liðu og fluttu foreldrar okkar í Mávahlíðina og síðan í Árbæinn, þar fermd- ust Einar og Ingunn saman þar sem foreldrar okkar voru að flytja til Svíþjóðar og fengu undanþágu af því að Einar var bara 13 ára. Eftir að Einar kom heim aft- ur í Árbæinn byrjuðu hann og Elín Guðrún Jóhannsdóttir að vera saman, hann 16 ára og hún 15 ára, þeirra samband stóð í rúm þrjátíu ár og eignuðust þau tvö börn, Solveigu Thelmu og Þorgils Eið. Einar og Ella gerðu allt saman, hvort sem það var að smíða, steypa, grafa grunn, naglhreinsa eða setja upp hárgreiðslustofu, það var allt hægt. Einar lærði smíðina, tók meistarann, varð bygging- armeistari með miklum sóma, hringdi alltaf í mig eftir hvert próf til að segja mér einkunnir sínar sem mér þótti alltaf vænt um, enda voru alltaf sérstök tengsl á milli okkar sem gott er að eiga í minningunni. Það eru margar byggingar sem hann smíðaði bæði í Reykjavík og Kópavogi. Einar var mikil mús- íkant, spilaði á skeiðar, söng og var mjög góður dansari. Þegar mamma var komin á Grund síð- ustu árin sín hittumst við annan hvern dag um kl. tvö og drukk- um kaffi og meðlæti með henni og var mikið spjallað, þetta eru mér dýrmætar minningar. Seinni kona Einars er Að- alheiður Magnúsdóttir, á hún Svönu, Guðrúnu Brynju og Snæbjörn Guðmundarbörn. Ég vil trúa því að Einar hafi verið feginn hvíldinni eftir erfið veikindi en hvíli nú í faðmi for- eldra og systra. Innilegar samúðarkveðjur til allra aðstandenda. Hvíl í friði, elsku bróðir Ein- ar Þór Ingvason. Þin systir, Hrafnhildur Þórs Ingvadóttir. Elsku litli bróðir minn og mágur, Einar Þór Ingvason, er látinn, aðeins 64 ára að aldri. Einar greindist með illvígan sjúkdóm fyrir sex árum sem nefnist Lewy body er gerði það að verkum að smám saman fór hann allur að hrörna og missa minnið. Það hefur verið hræðilegt upp á að horfa og því blessun að hann fékk langþráða hvíld, þótt sárt sé. Einar var yngstur af okkur systkinum en við vorum fimm systurnar. Það var því heldur betur gleði í hópnum þegar loksins kom lítill bróðir sem við systur vorum alltaf mjög stolt- ar af. Hann var hæfileikaríkur, hafði fallega söngrödd og átti það til að jóðla ef þannig lá á honum. Hann elskaði Bubba Morthens, átti flest af því sem hann hefur gefið út og tókst ótrúlega vel að stæla hann. Einar lærði húsasmíði í Iðn- skólanum og varð síðar húsa- smíðameistari. Hann stofnaði fyrirtækið Aspir og liggja mörg merk meistaraverk eftir hann eins og Nýi Barnaspítalinn, Húsdýragarðurinn og Salalaug í Kópavogi, svo eitthvað sé nefnt. Einar var alltaf mjög virkur og heilsuhraustur mað- ur, enda valdi hann sér starfs- feril sem er ekki á allra færi. Eftir að hafa unnið daglangt í erfiðisvinnu við íslenskar að- stæður veigraði hann sér ekki við að mæta á æfingar í taek- wondo þar sem hann náði sér í svarta beltið. Einar var aðeins 16 ára gam- all þegar hann kynntist fyrri konunni sinni Elínu Jóhanns- dóttur. Þau giftu sig þann 13. september 1983 og eignuðust tvö börn, Sólveigu Telmu og Þorgils Eið. Þetta var falleg lít- il fjölskylda sem byrjaði sinn búskap í Gyðufelli í Breiðholti en átti eftir að flytja oft því Einar byggði hvert stórhýsið af öðru. Meðal annars byggðu þeir, pabbi og hann, saman hús í Birkihlíðinni. Einar byrjaði á því að byggja bílskúrinn og inn- rétta hann. Þar bjuggu þau svo á meðan húsið var byggt. Það var ekki óalgeng sjón að sjá Ellu uppi á þaki í smíðagall- anum enda tók hún virkan þátt í smíðunum með honum. Einar og Ella slitu samvistir árið 2003 og Einar kvæntist síðar Aðalheiði Magnúsdóttur og voru þau hamingjusamlega gift í 16 ár. Elsku Solla mín, Þorgils, Ella og Aðalheiður og allir sem eiga um sárt að binda, okkar innilegustu samúðarkveðjur, Guðlaug (Gulla) og Grétar. Ástkær bróðir minn og mág- ur, Einar Þór, lést á hjúkr- unarheimilinu Ísafold þann 26. september síðastliðinn. Einar fæddist á Sogavegi 172 í Reykjavík 24. ágúst 1957 og var öll fjölskyldan himinlifandi yfir því að nú var loks kominn strákur eftir að fimm stelpur höfðu komið á undan honum. Ég sem var aðeins eins og hálfs árs var nú kannski sú eina sem ekki var eins hrifin, ég vildi nefnilega fá litla systur. En hlutirnir breyttust fljótt okkar á milli og vorum við mjög náin allt hans líf. Ég átti til að gera alls konar uppátæki og dró ég hann oftast með mér, t.d. þegar ég var 3ja og hann ný orðin 2ja ára dró ég hann upp gömlu Ár- túnsbrekkuna, ætlaði að fara í vinnuna til pabba en hann var vökubílstjóri, en við fengum í staðinn að fara heim í löggubíl. Svona var þetta oft hjá okkur. Einar fermdist með mér, fékk undanþágu af því við vorum að flytja til Svíþjóðar. Þegar við komum aftur heim stuttu seinna kynnist hann fyrri konu sinni, Elínu Guðrúnu Jóhanns- dóttur, þau giftu sig í sept- ember 1980 og eignuðust tvö börn saman, Solveigu Thelmu og Þorgils Eið. Síðar eftir að Elín og Einar skildu giftist hann seinni konu sinni, Aðal- heiði Magnúsdóttur, og voru þau gift til hans æviloka. Einar var búinn að vera veikur um árabil, átti hann við sjúkdóminn dimentia að stríða og var það mikið átak að sjá þennan glaða og aktíva mann hrörna og glata sjálfum sér. Er það mikill missir fyrir eiginkonu hans og fjölskyldu hennar og ekki síður fyrir börnin og barnabörnin hans tvö. Okkar innilegustu samúðar- kveðjur til ykkar allra. Megir þú hvíla í friði, elsku bróðir minn. Ingunn Ingvadóttir, Micheal Mency. Einar Þór Ingvason - Fleiri minningargreinar um Einar Þór Ingvars- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Okkar innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju vegna andláts og útfarar ástkærs sambýlismanns míns, föður okkar, tengdaföður, sonar, bróður, mágs, stjúpföður og afa, GUÐBJÖRNS SIGMUNDAR JÓHANNESSONAR, Einidal 2, Njarðvík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki gjörgæsludeildar Landspítalans í Fossvogi. Steinunn Björk Árnadóttir Tinna Björt Guðbjörnsd. Fisher, Elías Már Ómarsson Leon Elí Elíasson, Gabríel Már Elíasson Bryndís Inga Guðbjörnsd. Marinó Oddur Bjarnason Aþena Embla Marinósdóttir Elmar Sölvi Marinósson Guðrún Júlíana Jóhannsd. Jóhannes K. Jóhannesson Þórey Ása Hilmarsdóttir Steinar, Birna, Björk, Ástrós Emma og Rebekka Lillý Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, BJÖRGVINS ÞORSTEINSSONAR hæstaréttarlögmanns. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki göngudeildar blóð- og krabbameinslækningadeildar LSH og líknardeildar LSH fyrir einstaka umönnun og hlýju. Jóna Dóra Kristinsdóttir Steina Rósa Björgvinsdóttir Kristinn Geir Guðmundsson Sylvía Rún Ellertsdóttir Sindri Þór, Kolbrá Sól, Styrmir Jökull, Katla Nótt Ellert Úlfur, Emil Huginn, Urður Eldey, Agla Eilíf og langafabörn Hugheilar kveðjur til ættingja og vina SNORRA BALDURSSONAR líffræðings, Ytri-Tjörnum í Eyjafirði. Þökkum vináttu og virðingu við hann ásamt okkur í veikindum hans, hluttekningu og stuðning við andlát hans og útför. ...og eins og Snorri sagði gjarna þegar hann fékk kveðjur: „Blessi þau Drottinn.“ Elsa Friðrika Eðvarðsdóttir Heimir Snorrason Signý Kolbeinsdóttir Narfi Þorsteinn Snorrason Svava Þorleifsdóttir Baldur Helgi Snorrason Sunna Kristín Hannesdóttir Snorri Eldjárn Snorrason Alda Valentína R. Hafsteinsd. Snorri, Svava, Þorleifur Kári, Benjamín Eldjárn, Dagur Snorri, Lovísa Guðrún Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, MAGNHILDUR MAGNÚSDÓTTIR frá Brennistöðum, hjúkrunarheimilinu Dyngju, Egilsstöðum, andaðist föstudaginn 29. október á hjúkrunarheimilinu Dyngju. Útförin fer fram frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 13. nóvember klukkan 14. Streymt verður frá athöfninni á slóðinni egilsstadaprestakall.com. Fyrir hönd aðstandenda, Magnús Kristjánsson Guðrún María Þórðardóttir HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.