Morgunblaðið - 06.11.2021, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 06.11.2021, Qupperneq 46
80 ÁRA Sigurður Gunnsteinsson er Reykvíkingur, ólst upp í Kleppsholti og býr í Bryggjuhverfi. Hann gekk í Laug- arnesskóla, Langholtsskóla og gagnfræðaskóla verknáms. Hann vann fyrst verslunarstörf og fór síðan yfir í málning- arvinnu í nokkur ár. Árið 1978 fór Sigurður að vinna hjá SÁÁ og vann þar í 42 ár sem áfengis- og vímuefnaráðgjafi. „Ég byrjaði að vinna á Sogni í Ölfusi, svo á meðferðar- heimilinu Vík á Kjalarnesi og síðan á Vogi. Það hafa orðið gífurlegar framfarir í meðferðum á sjúkdómnum. Þekkingin er orðin miklu meiri og svo hefur sjúklingahópurinn og vímuefnanotkunin breyst. Margt fagfólk vinnur að meðferðunum sem eru orðnar sérhæfðar. Það er t.d. kvennameðferð, meðferð fyrir eldri karla og ungmennameðferð.“ Sigurður hefur mikið stundað langhlaupin síðustu 30 ár, en hann hefur hlaupið 53 maraþon og fjögur 100 km hlaup, þar af keppt á heimsmeistara- móti í 100 km hlaupi í Frakklandi. „Ég held geðheilsunni með hlaupunum og með því að njóta lífsins. Við hjónin höfum ferðast mikið gegnum tíðina og munum reyna að halda því áfram þegar heimurinn opnast.“ FJÖLSKYLDA Eiginkona Sigurðar er Guðmunda Jóhannsdóttir, f. 1933, húsmóðir og hönnuður. Börn Sigurðar frá fyrra hjónabandi eru Sigurður Einar, f. 1960, Gunnsteinn, f. 1964, Sævar, f. 1968, og Eydís Ósk, f. 1972. Barnabörnin eru fjórtán og eitt langafabarn. Guðmunda á fimm börn og þau Sigurður ólu upp tvær dætur hennar, Hugrúnu Hrönn og Guðrúnu Jónínu. Synir Guðmundu, Rúnar, Jóhann og Steinar, voru orðnir stórir þegar þau Sigurður tóku saman. Foreldrar Sigurðar voru Gunnsteinn Jóhannsson, f. 1915, d. 1990, kaupmaður, og Steinvör Marberg, f. 1920, d. 1975, húsfreyja. Sigurður Gunnsteinsson 46 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2021 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þú munt sjá að eitt er um að tala og annað í að komast. Nýtt ár nálgast og því þarftu að íhuga hvaða breytingar þú vilt sjá í lífi þínu. 20. apríl - 20. maí + Naut Viðhorf þitt til ýmissa mála hefur breyst mikið síðustu daga. Núna vantar þig ekkert nema staðfestingu á ferðaplan- inu þínu. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Það er aldrei að vita hvenær gamlir vinir birtast á ný og engin ástæða til þess að kvíða því. Líttu jákvæðum aug- um á framtíðina. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Sjaldan veldur einn þá tveir deila. Að láta sig dreyma er ókeypis. Láttu vaða og kauptu þér það sem þig vantar sárlega. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú þarft að melta þá hluti sem valda þér hugarangri. Reyndu að dekra svolítið við sjálfa/n þig og finna tíma til þess að hvíla þig, lesa og stunda naflaskoðun. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Ást og leikur eru þér efst í huga í dag. Þú ættir að byrja að huga að efri ár- unum, það er aldrei of snemmt. 23. sept. - 22. okt. k Vog Reyndu að hemja þig í slúðrinu. Mis- skilningur getur margan hlutinn skemmt. Allir eiga rétt á sínum skoðunum. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Ef þú reynir að stytta þér leið í ákvarðanatöku áttu á hættu að gera af- drifarík mistök. Taktu lítil skref en fylgdu því sem þú vilt fast eftir. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Ef þú ert jákvæð/ur og horfir fram á við reynist þér auðveldara að gera þær breytingar sem þurfa að verða í lífi þínu. Auðveldasta leiðin til að þagga niður í fólki er að samsinna því. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú átt stóra prófraun fram- undan og þarft á öllu þínu að halda til þess að leysa hana. Nýir möguleikar eru fyrir hendi sem þú ættir að reyna að nýta þér. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú vilt læra meira og kanna nýjar leiðir. Láttu ekki smáatriðin vefjast fyrir þér heldur einbeittu þér að aðalatrið- unum og þeim verkefnum sem mest liggur á. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þú hefur enga ástæðu til að láta þér leiðast. Lífið leikur við þig og ástin blómstrar sem aldrei fyrr. Læknafélag Íslands, sat nokkur ár í stjórn Evrópusamtaka lækna, CPME, og var forseti þeirra 2013- 2015.“ Katrín var enn fremur kosin á stjórnlagaþing í þjóðar- atkvæðagreiðslu 2010 og vann í framhaldinu að endurskoðun á lenskra heimilislækna og varaþing- mennska. Hún var þingmaður Reykvíkinga á fimmta ár og vara- þingmaður á undan og eftir. „Alls náði þetta yfir þrjú kjörtímabil. Á þeim árum og reyndar síðan hef ég verið í erlendum samskiptum fyrir K atrín Fjeldsted er fædd 6. nóvember 1946 á Laufásvegi 35 í Reykjavík. „Ég ólst þar upp hjá foreldrum mínum og systkinum, í sama húsi og Katrín móðuramma mín og seinni maður hennar, Jón Sigurðsson, skólastjóri í Laugarnesskólanum, en afi dó þegar mamma var fjögurra ára og Drífa systir hennar þriggja. Ég átti yndislega æsku þótt ég væri oft veik fyrstu æviárin en kenndi mér samt sjálf að lesa upp úr Dísu ljósálfi. Ég var skamma hríð í leikskólanum Steinahlíð þar sem Arndís Gísladóttir vinkona mín verndaði mig. Ég var mörg sumur í sveit á Úlfsstöðum í Hálsasveit í Borgarfirði hjá góðu fólki.“ Katrín gekk fyrst í Skóla Ísaks Jónssonar, var svo þrjú ár í Laug- arnesskólanum en síðan Miðbæjar- skóla frá 11 ára aldri. Hún tók landspróf í Vonarstræti, varð stúd- ent frá Menntaskólanum í Reykja- vík 1966 og settist í læknadeild Há- skóla Íslands sama haust. „Ég kynntist mannsefni mínu þar og við giftum okkur eftir að hafa þekkst í hálft ár. Embættisprófi lauk ég í júní 1973. Valgarður var þá farinn til London þar sem hann stundaði vísindarannsóknir og ég tók því kandídatsárið mitt þar, svo og fram- haldsnám í heimilislækningum sem ég lauk vorið 1979, þá fluttum við aftur til Íslands.“ Katrín fékk fyrst afleysingastarf sem aðstoðarborgarlæknir. „Segja má að þá hafi áhugi minn á borgar- málum kviknað, auk þess sem um- ferðarmál voru í nokkrum brenni- depli eftir að hafa misst 5 ára son í bílslysi í London í mars 1979.“ Í árs- lok 1980 fékk Katrín stöðu sem heimilislæknir við Heilsugæslustöð- ina í Fossvogi (síðar Efstaleiti) og var yfirlæknir alls í 10 ár. „Fyrstu árin skiptumst við læknarnir þrír á með þann kaleik.“ Vorið 1982 var Katrín kosin í borgarstjórn fyrir Sjálfstæðis- flokkinn og var meðfram læknis- störfum borgarfulltrúi og borgar- ráðsmaður í 12 ár eða til 1994. Þá tók við formennska í Félagi ís- stjórnarskránni í stjórnlagaráði. Í meira en 20 ár hefur Katrín tek- ið þátt í kennslu sérnáms í heim- ilislækningum. „Ég hef haft með höndum svokallaða Balint-fundi sem lúta að samskiptum læknis og sjúklings og er afar stolt af þeim frábæru ungu læknum hafa valið sér heimilislækningar sem sér- grein.“ Frá því að Katrín hætti í heilsugæslunni 2016 hefur hún verið verktaki fyrir Tryggingastofnun ríkisins. Katrín hefur sinnt alls konar rit- störfum, m.a. skrifaði hún ritdóma fyrir Morgunblaðið í 17 ár. „Við hjónin þýddum leikritið Amadeus eftir Peter Shaffer fyrir Þjóðleik- húsið og í Covid-fárinu í fyrra þýddi ég tvær bækur eftir Söru Omar, sú fyrri, Líkþvottakonan, er væntanleg á næstunni.“ Katrín er heiðursfélagi í Lækna- félagi Íslands og Félagi íslenskra heimilislækna, hún hefur fengið MBE-orðuna bresku og á þessu ári var hún heiðruð af Konunglega breska heimilislæknafélaginu. „Ég má því kalla mig MBE, FRCGP sem eru nú nokkuð stórir titlar og lítt til brúks hérlendis. Ég hef alltaf haft miklar mætur á Reykjavík, gömlum húsum og fal- legu mannlífi, enda Reykvíkingur í sjötta lið. Áhugamálin eru einkum Katrín Fjeldsted læknir – 75 ára Heiðruð Katrín og Jón Snædal voru fyrir viku heiðruð fyrir störf sín að al- þjóðamálum lækna. F.v.: Jón, Heidi Stensmyren, forseti Alþjóðasamtaka lækna, Katrín og Reynir Arngrímsson, formaður Læknafélags Íslands. Alltaf haft mörg járn í eldinum Systkinin Lovísa, Katrín og Lárus 1. september 2018 en tveimur dögum fyrr voru liðin 100 ár frá fæðingu föður þeirra. Afmælisbarnið Katrín Fjeldsted. Til hamingju með daginn Reykjavík Hafberg Skúli Helgason fæddist 6. nóvember 2020 kl. 7.05 og á því eins árs af- mæli í dag. Hann fæddist á Ullevål-sjúkrahús- inu í Osló og vó 3.470 g og var 51,5 cm langur. Foreldrar hans eru Helgi Guðnason og Helga Guðmundsdóttir. Nýr borgari SÍMI 587 2000 · KLETTHÁLSI 2, 110 REYKJAVÍK · WWW.TOPPBILAR.IS LAND ROVER DISCOVERY SPORT Aksturstölva Bluetooth Bakkmyndavél Fjarlægðarskynjarar aftan Dráttarbeisli Hiti í framsætum Hæðarstillanlegt sæti ökumanns ISOFIX festingar í aftursætum USB tengi Loftkæling Rafdrifnar rúður Rafdrifnir hliðarspeglar Vökvastýri ABS hemlakerfi Hraðastillir Spólvörn Stöðugleikakerfi Reyklaust ökutæki Aðgerðahnappar í stýri Regnskynjari Rafdrifin handbremsa Lykillaus ræsing Fjarlægðarskynjarar framan Leðurklætt stýri Gírskipting í stýri Raðnúmer 397148 Ekinn 53 Þ.KM Nýskráður 11/2018 Næsta skoðun 2022 Sjálfskiptur Dísel Sjálfskipting Fjórhjóladrif Verð kr. 5.690.000

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.