Morgunblaðið - 06.11.2021, Side 49
ÍÞRÓTTIR 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2021
Til að eiga landslið í fremstu
röð þurfum við að eiga leikmenn
sem spila með félagsliðum í
fremstu röð.
Kannski afsannaði karlalands-
lið Íslands í fótbolta þessa kenn-
ingu á síðasta áratug en kannski
var það bara undantekningin
sem sannar regluna.
Í það minnsta er áhugavert
að skoða hvar landsliðskonurnar
okkar í fótbolta eru staddar.
Svona gæti byrjunarlið Íslands á
EM á Englandi næsta sumar ver-
ið skipað:
Í marki Cecilía Rán Rúnars-
dóttir frá Everton.
Í vörn Glódís Perla Viggósdótt-
ir frá Bayern München, Guðný
Árnadóttir frá AC Milan og Guð-
rún Arnardóttir frá Rosengård.
Á miðju Gunnhildur Yrsa Jóns-
dóttir frá Orlando Pride, Sara
Björk Gunnarsdóttir frá Lyon,
Dagný Brynjarsdóttir frá West
Ham og Alexandra Jóhannsdóttir
frá Eintracht Frankfurt.
Í sókn Karólína Lea Vilhjálms-
dóttir frá Bayern München,
Sveindís Jane Jónsdóttir frá
Wolfsburg og Svava Rós Guð-
mundsdóttir frá Bordeaux.
Tekið skal fram að þessu liði
er alfarið stillt upp út frá þeim
félagsliðum sem okkar konur
spila með.
En þær leika í sex af sterkustu
deildum heims. Á styrkleikalista
UEFA er Lyon metið besta lið Evr-
ópu, Wolfsburg þriðja best, Bay-
ern fjórða best og Rosengård tí-
unda best. Orlando Pride er með
fjölda landsliðskvenna innan-
borðs, m.a. úr bandaríska lands-
liðinu. Og svo erum við með leik-
menn hjá Vålerenga, Bröndby,
Kristianstad, Häcken, Val og
Breiðabliki sem allt eru félög of-
arlega á Evrópulistanum.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Guðrún Brá Björgvinsdóttir fær að
vita snemma í dag hvort hún komist
áfram eftir niðurskurð á Aramco
Saudi Ladies-mótinu á Evrópumóta-
röð kvenna í golfi sem nú stendur yf-
ir í Sádi-Arabíu. Guðrún lék annan
hringinn í gær á 76 höggum, fjórum
yfir pari, eftir að hafa verið á pari,
72 höggum, á fyrsta hring. Nokkrir
keppendur náðu ekki að ljúka
hringnum fyrir myrkur. Guðrún
stóð þá mjög tæpt með að komast
áfram. Hún verður þó áfram í Sádi-
Arabíu, hvernig sem fer, og keppir á
öðru móti í næstu viku.
Guðrún Brá
þurfti að bíða
Ljósmynd/GSÍ
Sádi-Arabía Guðrún Brá Björgvins-
dóttir lék á 76 höggum í gær.
Eyjamaðurinn Hákon Daði Styrm-
isson hefur framlengt samning sinn
við þýska handknattleiksfélagið
Gummersbach eftir að hafa gengið
til liðs við félagið síðastliðið sumar.
Nýr samningur hans gildir til sum-
arsins 2024. Fyrri samningurinn
var til tveggja ára, en vegna góðrar
frammistöðu Hákonar sagði Guðjón
Valur Sigurðsson, aðalþjálfari
Gummersbach, það mikilvægt að
tryggja sér þjónustu Eyjamannsins
enn lengur. Gummersbach er efst í
B-deildinni og Hákon hefur skorað
48 mörk í fyrstu níu leikjunum.
Strax með nýj-
an samning
Morgunblaðið/Unnur Karen
Gummersbach Hákon Daði Styrm-
isson á æfingu landsliðsins í gær.
HANDBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Elvar Örn Jónsson, landsliðsmaður í
handknattleik og leikmaður
Melsungen í Þýskalandi, segir það
vissulega hafa komið leikmönnum á
óvart þegar Guðmundur Þ. Guð-
mundsson yfirgaf félagið snemma á
keppnistímabilinu. Í heimi atvinnu-
mennskunnar geti menn hins vegar
átt von á nánast hverju sem er.
„Allt í einu var okkur tilkynnt
þetta á æfingu og það vissi enginn
neitt. Svona er bara handboltaheim-
urinn. Stundum er hann harður og
þá geta svona hlutir gerst. Maður
veit aldrei hvað getur komið upp á,“
sagði Elvar þegar Morgunblaðið
ræddi við hann á landsliðsæfingu í
gær. Hefur Elvar Örn fengið vís-
bendingar um hvort þjálfaraskiptin
hjá Melsungen hafi áhrif á hans
hlutverk hjá liðinu?
„Undanfarna leiki hefur þetta
verið svipað og ég er enn þá að spila
sem þristur í vörninni eins og ég
gerði hjá Gumma. Ég kann bara
mjög vel við mig í því hlutverki og
er einnig að spila á fullu á miðjunni í
sókninni. Nýi þjálfarinn virðist vera
flottur gaur og maður er að aðlagast
nýju kerfi sem hann kemur með,“
útskýrði Elvar en Roberto Par-
rondo tók við starfi Guðmundar hjá
Melsungen. Sá er spænskur og er
einnig landsliðsþjálfari Egypta-
lands. Parrondo er fyrrverandi leik-
maður og var samherji Ólafs Stef-
ánssonar hjá Ciudad Real um tíma.
Melsungen tilkynnti 20. sept-
ember að Guðmundi hefði verið sagt
upp störfum sem þjálfari liðsins.
Nokkrum dögum síðar réð Guð-
mundur sig til Fredericia og mun
taka þar við stjórnartaumunum
sumarið 2022. Guðmundur er jafn-
framt þjálfari íslenska karlalands-
liðsins eins og íþróttaunnendur vita.
Lítill styrkleikamunur á liðum í
efri og neðri hlutanum
Eftir góða frammistöðu með Sel-
fyssingum fór Elvar í atvinnu-
mennskuna árið 2019. Lék hann
með Skjern í Danmörku tvo vetur
en síðasta sumar tók hann skrefið
yfir til Þýskalands. „Mér líst bara
mjög vel á mig í Þýskalandi enda
gríðarlega skemmtilegt að vera í
sterkustu deild í heimi. Það er alltaf
gaman að spila á móti þeim bestu,“
sagði Elvar og segir leikmenn í
Þýskalandi vera líkamlega sterkari
en ekki endilega tæknilega betri.
„Þetta er aðallega töluvert stökk
varðandi þyngd og hraða. Hand-
boltagetan er alveg til staðar í Dan-
mörku og Danirnir eru rosa flinkir.
Þyngdin og hraðinn er meiri í
Þýskalandi og þar er leikjaálagið
einnig meira. Ég tel að ég hafi lík-
amlega styrkinn en reyni að bæta
mig á allan hátt. Ég vil bæta mig í
öllum þáttum leiksins.
Munurinn á milli efri og neðri lið-
anna í Þýskalandi er minni en víðast
hvar annars staðar. Um daginn náði
botnliðið að vinna Kiel. Það er ótrú-
lega óvænt en sýnir að allt getur
gerst í þessari deild. Menn þurfa að
vera 100% í hverjum einasta leik.“
Eins og grískur guð
Alexander Petersson kom til Mel-
sungen á sama tíma og Elvar en Al-
exander hefur leikið í Þýskalandi frá
árinu 2003. Fyrir hjá félaginu var
Arnar Freyr Arnarsson sem kom til
Melsungen frá GOG sumarið 2020.
„Það er frábært að hafa Arnar og
Lexa í hópnum. Þeir hafa hjálpað
mér mikið, til dæmis með þýskuna.
Þegar maður er að komast inn í
landið, og er hjá nýju liði, hjálpar
gríðarlega mikið að þekkja ein-
hverja þýskumælandi. Ég met það
mikils. Lexi er toppnáungi og ég hef
spurt hann út í eitt og annað í sam-
bandi við Þýskaland. Hann er búinn
að búa þarna svo lengi að hann veit
hvernig allt virkar,“ sagði Elvar og
blaðamaður spyr hvort hinn 41 árs
gamli Alexander komi ekki örugg-
lega enn þá best út í öllum þol-
prófum sem lögð eru fyrir leik-
menn?
„Það er ótrúlegt í hversu góðu
formi hann er. Að sjá þennan mann
er bara eins og að sjá grískan guð.
Hann er alltaf klár í slaginn og vill
alltaf spila sama hvað gengur á. Það
er magnað,“ sagði Elvar Örn Jóns-
son í samtali við Morgunblaðið.
Er með svipað hlutverk
eftir þjálfaraskiptin
- Elvar Örn kann vel við sig í félagsskap Arnars og Alexanders í Þýskalandi
Morgunblaðið/Unnur Karen
Melsungen Elvar Örn Jónsson fer ágætlega af stað í þýska handboltanum
en lið hans Melsungen er þar í tíunda sæti af átján liðum.
Grill 66-deild kvenna
FH – HK U ........................................... 27:23
Grótta – Fjölnir/Fylkir ........................ 31:25
Staðan:
FH 6 4 1 1 159:120 9
ÍR 5 3 1 1 130:116 7
Selfoss 4 3 0 1 115:106 6
Víkingur 5 3 0 2 124:126 6
Fram U 5 3 0 2 142:143 6
Grótta 6 3 0 3 153:150 6
Stjarnan U 5 2 0 3 129:153 4
Valur U 3 1 1 1 71:75 3
HK U 5 1 1 3 120:128 3
ÍBV U 4 1 0 3 110:103 2
Fjölnir/Fylkir 6 1 0 5 125:158 2
Vináttulandsleikir karla
Þýskaland – Portúgal ......................... 30:28
- Alfreð Gíslason þjálfar Þýskaland.
Hvíta-Rússland – Rússland................. 35:27
Sviss – Grænhöfðaeyjar....................... 22:24
Ungverjaland – Bosnía ........................ 26:24
Túnis – Svartfjallaland ........................ 30:28
Austurríki – Tékkland ......................... 35:30
Slóvakía – Serbía .................................. 21:32
Undankeppni HM karla
Finnland – Eistland ............................. 35:30
Georgía – Bretland............................... 32:26
%$.62)0-#
Roberto Firmino, sóknarmaður
Liverpool, verður frá keppni eftir
að hafa tognað alvarlega aftan á
læri í leik liðsins gegn Atlético Ma-
drid í Meistaradeild Evrópu.
„Við tölum um vikur. Ég veit
ekki hve margar nákvæmlega en
fleiri en fjórar,“ sagði Jürgen
Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool.
Verður lengi frá
vegna meiðsla
Samkvæmt spænskum fjölmiðlum
hefur Barcelona ekki kynnt Xavi
Hernández til sögunnar sem nýjan
knattspyrnustjóra enn sem komið
er þar sem félagið vilji ekki greiða
þá upphæð sem félag hans í Kat-
ar, Al-Sadd, vill fá fyrir að gefa
hann lausan.
Marca, AS og Mundo Deportivo
sögðu öll í gær að samkvæmt
heimildum úr röðum Barcelona
vildi félagið ekki greiða fimm
milljónir evra sem Katarbúarnir
hafi krafist að fá fyrir Xavi.
Mundo Deportivo hefur eftir
Sergi Barjuán, bráðabirgðastjóra
Barcelona, að málið sé ekki í höfn.
„Al-Sadd hefur skýrt frá þessu en
ekki Barcelona. Við verðum að
bíða þess að báðir aðilar séu klár-
ir. Við erum í góðu sambandi,“
sagði Barjuán.
Samkvæmt því sem Al-Sadd seg-
ir á Twitter snýst málið um að
Barcelona greiði þá upphæð sem
er tilgreind í samningi Xavi við fé-
lagið, sem greiða þurfi til að fá
hann lausan frá því. Al-Sadd hefur
þegar þakkað Xavi fyrir störf
hans hjá félaginu og óskað honum
góðs gengis.
„Xavi skýrði okkur fyrir nokkr-
um dögum frá áhuga sínum á að
geta farið til Barcelona á þessum
erfiða tíma sem uppeldisfélag
hans gengur nú í gegnum. Við
skiljum það og ákváðum að standa
ekki í vegi fyrir honum,“ sagði
Turki Al-Ali, framkvæmdastjóri
Al-Sadd.
Babb í bátinn vegna
ráðningar Xavi?
AFP
Á heimleið? Barcelona þarf að reiða fram fimm milljónir evra fyrir Xavi.