Morgunblaðið - 06.11.2021, Page 51

Morgunblaðið - 06.11.2021, Page 51
TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Kælan mikla bætir í með hverju útgefnu verki og ég viðurkenni að ég er búinn að bíða eftir þessari plötu með spennu í brjósti. Ég vissi að Barði Bang Gang væri að vinna plötuna með þeim og því rík ástæða til að núa saman höndum. Sem upptöku- stjórnandi hefur Barði unnið marga snilldina, minnist t.d. frábærrar hljóðmyndar á plötu Heru frá því í fyrra. Dökk, hlý og umlykjandi. Þetta var því hjónaband í gotnesku himnaríki, báðir aðilar þekktir fyrir glæst dufl við tónlistarleg myrkraöfl. Það er búið að vera svo styrkjandi eitthvað að fylgjast með framþró- un Kælunnar undanfarin ár. Með listræn heilindi að vopni samfara elju og dugnaði hafa þær Sólveig Matthildur, Margrét Rósa og Laufey Soffía aflað sér aðdáenda víða um heim. Sveitinni hefur vaxið fiskur um hrygg allt frá stofnun 2013 og fer hún reglulega í tónleikaferðalög erlendis. Svo há- vært hefur suðið verið í kringum Kæluna að Robert Smith úr The Cure handvaldi sveitina til að hita upp fyrir sig á tónleikum í Hyde Park árið 2018. Tónlist Kælunnar hefur skerpst með hverri útgáfu. Frá tilraunakenndum ljóðaslammshóp yfir í straumlínulagaða gotapoppssveit eða því sem næst á síðustu plötu, hinni frábæru Nótt eftir nótt. Og enn er slípað. Undir köldum norðurljósum er líkast til aðgengilegasta plata sveitarinnar til þessa, „poppuðust“ á einhvern máta en um leið er framþróunin og framsæknin alger. Barði rúnar hljóminn til, bassinn er feitari, trommurnar betri og hljóðmyndin bæði heildræn og traustvekjandi. Lagasmíðar eru betri, þær eru margslungnari og hugvitssamlegri og það er verið að prófa sig áfram með fullt af nýjum hlutum og það með góðum árangri. „Örlögin“ t.d. er alger slagari. Með þess- um kunnuglegu vísunum í Batcave-ár Lundúna ca. 1982, en útsetningin, raddanir, uppbygging o.s.frv., allt er þetta djarfara en nokkru sinni fyrr. Hvað plötuna sem heild varðar er haldið í hljóðheim Kæl- Dýpra og dýpra Ljósmynd/Dean Wallflower unnar sem áður, það er alls ekki verið að sveigja frá neinu eða henda einhverju út að óþörfu, en þetta er bara einfaldlega betra, öruggara og framsýnna á allan hátt. Sveitin er á mála hjá hinni kanadísku Artof- fact Records og hefur hróður Kælunnar breiðst vel út undanfarin misseri. Lag eftir hana opnaði t.d. þáttaröðina Gösta eftir Lukas Moodyson og hin franska Alcest, sem er stórt nafn í gota- sem öfga- rokksgeirum. vinnur eitt lag með tríóinu á plöt- unni, lagið „Hvítir sandar“. Þá hafa fjögur mynd- bönd verið gerð við lög plötunnar, m.a. eitt með Mána M. Sigfússyni. Mér finnst líka æðislegt hvernig sveitinni tekst að ríghalda í þessa mjög svo ákveðnu gota- fagurfræði – líkt og árið sé 1981 að eilífu – en á sama tíma er þetta svo frábærlega móðins. Er að hlusta á „Hvítir sandar“ á meðan ég skrifa þetta. Krassandi gítarar lúra á magnaðan hátt á bak við frábæra rödd Laufeyjar, lagið heltekur þig og skil- ur þig örendan eftir – á hvítfextum sandinum. Fyrr hafði maður heyrt í þjóðlagastemmulegri flautu og lokalagið – „Saman“ – slaufar plötunni með miklum glans. Selló, samsöngur og annað töfraryk knýr fram undurfallega smíð. Þær stöllur olnboga sig ódeigar innan þessa þrönga ramma, kanna eitthvað nýtt og lýsa upp fleiri möguleika. Eins og Barði sagði sjálfur á Fjasbókarsíðu sinni: „Ég vissi að þetta yrði gott um leið og ég heyrði demóin ykkar.“ Og eitt að lokum. Í kvöld kemur sveitin fram á Kex Hostel, í tengslum við Iceland Airwaves-hátíð- ina, sem er með smáu sniði í ár vegna heimsfarald- urs. Þær ætla m.a. að spila nýtt efni þannig að sköpunin hjá þessari mektarsveit er greinilega á fullu stími! » Mér finnst líka æðislegt hvernig sveitinni tekst að ríg- halda í þessa mjög svo ákveðnu gota-fagurfræði – líkt og árið sé 1981 að eilífu – en á sama tíma er þetta svo frábærlega móðins. Undir köldum norðurljósum er ný breiðskífa eftir Kæluna miklu. Barði Jóhannsson, kenndur við Bang Gang, stýrði upptökum. Gotar Ferill Kælunnar miklu er glæsilegur. MENNING 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ NÝJASTA MARVEL STÓRMYNDIN ER KOMIN Í BÍÓ GEMMA CHAN RICHARD MADDEN KUMAIL NANJIANI LIA McHUGH BRIAN TYREE HENRY LAUREN RIDLOFF BARRY KEOGHAN DON LEE WITH KIT HARINGTON WITH SALMA HAYEK AND ANGELINA JOLIE O B S E R V E R E N T E R TA I N M E N T Auður Ómars- dóttir opnar í dag, laugardag, kl. 17, mál- verkasýninguna Upplausn í gall- eríinu Portfolio að Hverfisgötu 71. Auður vinnur verk sín með blönduðum miðlum en þó einna helst málverki, skúlptúr, ljós- myndun og teikningu. Líkamleiki og eftirtektarsemi leika stórt hlut- verk í sköpunarferli hennar, segir í tilkynningu, og að innblásturinn komi jafnan frá persónulegum at- burðum, þáttum í nærumhverfi eða af netinu sem Auður yfirfæri í myndrænt tungumál sitt. Verk Auðar fjalli jafnan um þá tilraun að knúa fram harmóníu í and- stæðum. Upplausn er tólfta einkasýning Auðar sem hefur verið virk í sýn- ingarhaldi hér á landi sem erlendis undanfarin tíu ár. Upplausn Auðar í Portfolio galleríi Auður Ómarsdóttir Listmálarinn Jón Magnússon opnar í dag, laugardag, sýn- inguna Sáttmáli himnaríkis í Galleríi Göngum sem er gangur milli Háteigs- kirkju og safn- aðarheimilis kirkjunnar. Opnunin fer fram frá kl. 14 til 16. Um sýningu sína skrifar Jón að hann hafi strax ákveðið, við úthlutun sýningarrýmisins, að gera sýningu sem væri trúarlegs eðlis en með smá snúningi. „Þau eru þarna öll, Jesús, María mey, lærisveinarnir og her engla, jafnvel skrattinn, ekki eins og þú ert vön/vanur að sjá þau heldur eins og ég sé þau. Boð- skapurinn er sá sami, kærleik- urinn ofar öllu,“ skrifar Jón. Sýningin er tileinkuð stjörnum sem létust fyrir aldur fram. Sáttmáli himna- ríkis í Göngum Jón Magnússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.