Morgunblaðið - 06.11.2021, Blaðsíða 51
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Kælan mikla bætir í með hverju útgefnu verki og
ég viðurkenni að ég er búinn að bíða eftir þessari
plötu með spennu í brjósti. Ég vissi að Barði Bang
Gang væri að vinna plötuna með þeim og því rík
ástæða til að núa saman höndum. Sem upptöku-
stjórnandi hefur Barði unnið marga snilldina,
minnist t.d. frábærrar hljóðmyndar á plötu Heru
frá því í fyrra. Dökk, hlý og umlykjandi.
Þetta var því hjónaband í gotnesku himnaríki,
báðir aðilar þekktir fyrir glæst dufl við tónlistarleg
myrkraöfl.
Það er búið að vera
svo styrkjandi eitthvað
að fylgjast með framþró-
un Kælunnar undanfarin
ár. Með listræn heilindi
að vopni samfara elju og
dugnaði hafa þær Sólveig
Matthildur, Margrét
Rósa og Laufey Soffía
aflað sér aðdáenda víða um heim. Sveitinni hefur
vaxið fiskur um hrygg allt frá stofnun 2013 og fer
hún reglulega í tónleikaferðalög erlendis. Svo há-
vært hefur suðið verið í kringum Kæluna að
Robert Smith úr The Cure handvaldi sveitina til að
hita upp fyrir sig á tónleikum í Hyde Park árið
2018.
Tónlist Kælunnar hefur skerpst með hverri
útgáfu. Frá tilraunakenndum ljóðaslammshóp yfir
í straumlínulagaða gotapoppssveit eða því sem
næst á síðustu plötu, hinni frábæru Nótt eftir nótt.
Og enn er slípað. Undir köldum norðurljósum er
líkast til aðgengilegasta plata sveitarinnar til
þessa, „poppuðust“ á einhvern máta en um leið er
framþróunin og framsæknin alger. Barði rúnar
hljóminn til, bassinn er feitari, trommurnar betri
og hljóðmyndin bæði heildræn og traustvekjandi.
Lagasmíðar eru betri, þær eru margslungnari og
hugvitssamlegri og það er verið að prófa sig áfram
með fullt af nýjum hlutum og það með góðum
árangri. „Örlögin“ t.d. er alger slagari. Með þess-
um kunnuglegu vísunum í Batcave-ár Lundúna ca.
1982, en útsetningin, raddanir, uppbygging o.s.frv.,
allt er þetta djarfara en nokkru sinni fyrr. Hvað
plötuna sem heild varðar er haldið í hljóðheim Kæl-
Dýpra og dýpra
Ljósmynd/Dean Wallflower
unnar sem áður, það er alls ekki verið að sveigja frá
neinu eða henda einhverju út að óþörfu, en þetta er
bara einfaldlega betra, öruggara og framsýnna á
allan hátt.
Sveitin er á mála hjá hinni kanadísku Artof-
fact Records og hefur hróður Kælunnar breiðst vel
út undanfarin misseri. Lag eftir hana opnaði t.d.
þáttaröðina Gösta eftir Lukas Moodyson og hin
franska Alcest, sem er stórt nafn í gota- sem öfga-
rokksgeirum. vinnur eitt lag með tríóinu á plöt-
unni, lagið „Hvítir sandar“. Þá hafa fjögur mynd-
bönd verið gerð við lög plötunnar, m.a. eitt með
Mána M. Sigfússyni.
Mér finnst líka æðislegt hvernig sveitinni
tekst að ríghalda í þessa mjög svo ákveðnu gota-
fagurfræði – líkt og árið sé 1981 að eilífu – en á
sama tíma er þetta svo frábærlega móðins. Er að
hlusta á „Hvítir sandar“ á meðan ég skrifa þetta.
Krassandi gítarar lúra á magnaðan hátt á bak við
frábæra rödd Laufeyjar, lagið heltekur þig og skil-
ur þig örendan eftir – á hvítfextum sandinum. Fyrr
hafði maður heyrt í þjóðlagastemmulegri flautu og
lokalagið – „Saman“ – slaufar plötunni með miklum
glans. Selló, samsöngur og annað töfraryk knýr
fram undurfallega smíð. Þær stöllur olnboga sig
ódeigar innan þessa þrönga ramma, kanna eitthvað
nýtt og lýsa upp fleiri möguleika. Eins og Barði
sagði sjálfur á Fjasbókarsíðu sinni: „Ég vissi að
þetta yrði gott um leið og ég heyrði demóin ykkar.“
Og eitt að lokum. Í kvöld kemur sveitin fram á
Kex Hostel, í tengslum við Iceland Airwaves-hátíð-
ina, sem er með smáu sniði í ár vegna heimsfarald-
urs. Þær ætla m.a. að spila nýtt efni þannig að
sköpunin hjá þessari mektarsveit er greinilega á
fullu stími!
»
Mér finnst líka æðislegt
hvernig sveitinni tekst að ríg-
halda í þessa mjög svo ákveðnu
gota-fagurfræði – líkt og árið sé
1981 að eilífu – en á sama tíma er
þetta svo frábærlega móðins.
Undir köldum norðurljósum er
ný breiðskífa eftir Kæluna
miklu. Barði Jóhannsson,
kenndur við Bang Gang, stýrði
upptökum.
Gotar Ferill
Kælunnar miklu
er glæsilegur.
MENNING 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
NÝJASTA MARVEL STÓRMYNDIN
ER KOMIN Í BÍÓ
GEMMA
CHAN
RICHARD
MADDEN
KUMAIL
NANJIANI
LIA
McHUGH
BRIAN TYREE
HENRY
LAUREN
RIDLOFF
BARRY
KEOGHAN
DON
LEE
WITH KIT
HARINGTON
WITH SALMA
HAYEK
AND ANGELINA
JOLIE
O B S E R V E R E N T E R TA I N M E N T
Auður Ómars-
dóttir opnar í
dag, laugardag,
kl. 17, mál-
verkasýninguna
Upplausn í gall-
eríinu Portfolio
að Hverfisgötu
71.
Auður vinnur
verk sín með
blönduðum miðlum en þó einna
helst málverki, skúlptúr, ljós-
myndun og teikningu. Líkamleiki
og eftirtektarsemi leika stórt hlut-
verk í sköpunarferli hennar, segir
í tilkynningu, og að innblásturinn
komi jafnan frá persónulegum at-
burðum, þáttum í nærumhverfi eða
af netinu sem Auður yfirfæri í
myndrænt tungumál sitt. Verk
Auðar fjalli jafnan um þá tilraun
að knúa fram harmóníu í and-
stæðum.
Upplausn er tólfta einkasýning
Auðar sem hefur verið virk í sýn-
ingarhaldi hér á landi sem erlendis
undanfarin tíu ár.
Upplausn Auðar í
Portfolio galleríi
Auður Ómarsdóttir
Listmálarinn
Jón Magnússon
opnar í dag,
laugardag, sýn-
inguna Sáttmáli
himnaríkis í
Galleríi Göngum
sem er gangur
milli Háteigs-
kirkju og safn-
aðarheimilis
kirkjunnar. Opnunin fer fram frá
kl. 14 til 16.
Um sýningu sína skrifar Jón að
hann hafi strax ákveðið, við
úthlutun sýningarrýmisins, að
gera sýningu sem væri trúarlegs
eðlis en með smá snúningi.
„Þau eru þarna öll, Jesús,
María mey, lærisveinarnir og her
engla, jafnvel skrattinn, ekki eins
og þú ert vön/vanur að sjá þau
heldur eins og ég sé þau. Boð-
skapurinn er sá sami, kærleik-
urinn ofar öllu,“ skrifar Jón.
Sýningin er tileinkuð stjörnum
sem létust fyrir aldur fram.
Sáttmáli himna-
ríkis í Göngum
Jón Magnússon