Morgunblaðið - 06.11.2021, Qupperneq 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2021
Tónleikaviðburðurinn Live From
Reykjavík fer fram í kvöld, laugar-
dag, og verða tónleikar haldnir á
fjórum stöðum í miðbæ Reykjavíkur
og einnig sýnt frá þeim í beinu
streymi á netinu. Live from Reykja-
vík er á vegum hátíðarinnar Iceland
Airwaves sem hætt var við í ár, líkt
og í fyrra, vegna kófsins og tilheyr-
andi sóttvarnatakmarkana.
Úrvalstónlistarmenn og -hljóm-
sveitir koma fram, 16 talsins. Eru
það Árný Margrét, Aron Can,
Ásgeir, Bríet, BSÍ, Reykjavíkurdæt-
ur, Emmsjé Gauti, GDRN, Flott,
Gugusar, Hipsumhaps, Inspector
Spacetime, Júníus Meyvant, John
Grant, Laufey og Red Riot. Beint
streymi hefst kl. 20 og verða tónleik-
arnir aðgengilegir í sólarhring. Tón-
leikarnir verða allir haldnir með
gestum og fer miðasala fram á tix.is.
Tónleikastaðirnir fjórir eru Iðnó,
Gamla bíó, Gaukurinn og Fríkirkjan
í Reykjavík.
Sambærilegur viðburður fór fram
í fyrra og var góður rómur gerður að
honum, m.a. í enska tónlistarritinu
NME. Líkt og í fyrra koma nú fram
alþjóðlega þekktir flytjendur í bland
við upprennandi stjörnur í íslensku
tónlistarlífi, eins og segir í tilkynn-
ingu frá Senu sem skipuleggur við-
burðinn. Ásgeir mun koma fram
með hljómsveit í Gamla bíói og John
Grant mun leika á píanó og syngja í
Fríkirkjunni. Í Gamla bíói koma líka
fram GDRN, Bríet og Flott.
Einn fyrrnefndra nýliða er Lauf-
ey og verða þetta hennar fyrstu tón-
leikar á Íslandi en hún hefur gert út
frá New York. Í Iðnó koma fram
rappararnir Emmsjé Gauti og Aron
Can auk Hipsumhaps og Red Riot
og á Gauknum verða Reykjavíkur-
dætur, Inspector Spacetime, Gugus-
ar og BSÍ. Tekið er fram að vegna
sóttvarnatakmarkana munu tón-
leikagestir ekki geta farið á milli
tónleikastaða og gildir því hver miði
á einn tónleikastað. Segir í tilkynn-
ingu að gestir velji þá dagskrá og
þann tónleikastað sem þeim lítist
best á. Þeir sem kaupa miða inn á
einn af tónleikastöðunum fá einnig
streymismiða. Aðrir geta keypt sér
streymismiða og fá þá aðgang að
allri dagskránni, frá öllum tónleika-
stöðunum í gegnum app Nova TV.
Munu streymismiðahafar geta skipt
milli tónleikastaða að vild og horft á
upptökur sólarhring eftir að dagskrá
lýkur.
Miðasala gengið vel
Anna Ásthildur Thorsteinsson,
markaðsstjóri viðburða hjá Senu,
segir miðasölu hafa gengið vel á
Live From Reykjavík, bæði á tón-
leika og streymi. „Í fyrra var þetta
líka ein línuleg dagskrá yfir nokkra
daga en núna er þetta þannig að það
eru fjórir tónleikastaðir samhliða og
ef þú ert á netinu geturðu hoppað á
milli,“ segir Anna.
Hún segir miðasölu á streymið
langmesta að utan, frá öðrum lönd-
um, og þá einkum Þýskalandi, Bret-
landi og Bandaríkjunum. Spurð út í
kynningu á viðburðinum erlendis
segir Anna að bæði hafi Iceland
Airwaves kynnt hann á sínum miðl-
um og þekktir fjölmiðlar á borð við
Rolling Stone fjallað um hann. „Það
er mikill áhugi fyrir þessu úti í
heimi,“ segir hún og bætir við að
alltaf sé stuð í Airwaves-viku. „Það
er Airwaves-fílingur í loftinu og líka
hjá okkur.“ helgisnaer@mbl.is
„Það er Airwaves-
fílingur í loftinu“
- Live From Reykjavík fer fram á fjórum stöðum í kvöld
Ljósmynd/Blythe Thomas
Nýliði Laufey kemur fram á Live From Reykjavík í kvöld.
Óperudagar hafa staðið yfir undan-
farnar vikur með fjölmörgum við-
burðum. Um helgina verður boðið
upp á tvo viðburði. Í dag, laugardag,
kl. 14 verða í Norðurljósum í Hörpu
tónleikarnir „Ljóð fyrir loftslagið“.
Á Óperuhátíðinni fyrir tveimur ár-
um var sú yfirskrift meginþemað og
var þá efnt til ljóðakeppni fyrir
grunnskólanema. Um 400 börn
sendu inn ljóð um náttúruna, lofts-
lagið, framtíðarsýn sína og drauma
og hlutu nokkur verðlaun. Í kjölfarið
voru nokkur ung norræn tónskáld
fengin til að semja verk við sum ljóð-
in. Nýju verkin verða frumflutt á
tónleikunum í Norðurljósum í dag
og hljóðrituð.
Tónverkið The Little Match Girl
Passion eftir bandaríska tónskáldið
David Lang verður síðan flutt á tón-
leikum í Fríkirkjunni í Reykjavík á
morgun, sunnudag, kl. 17. Verkið er
byggt á ævintýri H.C. Andersens
um litlu stúlkuna með eldspýturnar
en tónlistin er undir áhrifum af
Mattheusarpassíu J.S. Bachs. Einn-
ig verða fluttir sálmar eftir Hildi-
gunni Rúnarsdóttur. Flytjendur eru
Jóna G. Kolbrúnardóttir sópran,
Eyjólfur Eyjólfsson tenór, Oddur
Arnþór Jónsson barítón og Guja
Sandholt mezzósópran.
Efla óperusenuna á landinu
Guja Sandholt er líka listrænn
stjórnandi Óperudaga og hún segir
að þar sé í mörg horn að líta, enda
fjöldi viðburða á dagskrá.
„Við sjálfstætt starfandi söngv-
arar og samstarfsfólk okkar höfum
síðan 2016 staðið fyrir Óperudögum
til þess að efla óperusenuna á Ís-
landi og stuðla að allskyns við-
burðum sem beina sjónum að starfi
klassískra söngvara,“ segir Guja um
markmiðið með hátíðinni.
„Okkur finnst hafa vantað vissa
breidd á þessu sviði. Það er frábært
að geta farið á stórar óperusýningar,
eins og hjá Íslensku óperunni, en
það hefur vantað einfaldari uppsetn-
ingar samhliða.
Á Óperudögum eru mjög fjöl-
breytilegir viðburðir, ekki bara óp-
erur heldur vinnum við með klass-
íska sönglist á marga vegu. Við
reynum til dæmis að tengja hana við
málefni líðandi stundar, eins og með
þessum viðburði núna, „Ljóð fyrir
loftslagið“. Við notum sönglistina til
að miðla á margvíslegan hátt.“
Guja segir aðsókn á hátíðina hafa
verið mjög góða og húsfylli á flestum
viðburðum. „Við erum í samstarfi við
marga og ólíka aðila til að vekja at-
hygli á starfi klassískra söngvara. Á
árinu eru nærri því 60 viðburðir, í
samstarfi eða á okkar vegum. Það
sýnir vel hvað gróskan er mikil á
þessari senu.“ efi@mbl.is
Mikil gróska og ólík
verkefni á Óperudögum
- Ljóð fyrir loftslagið á tónleikum í Norðurljósum í dag
Morgunblaðið/Hanna
Tónskáld Sálmar eftir Hildigunni
Rúnarsdóttur hljóma í Fríkirkjunni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Listrænn stjórnandi Guja Sandholt
stýrir hátíðinni Óperudögum.
S
ystu megin eftir Steinunni
Sigurðardóttur er leiksaga.
Formið er óvenjuleg, en
ágætlega heppnuð, blanda
af leikriti og skáldsögu. Systu megin
segir af Systu, og hvernig það er að
vera hennar megin í lífinu. Systa
hefur valið, og ekki valið, sér stöðu
utan samfélagsins, býr við bágan
kost og dregur
fram lífið með
dósasöfnun og út-
sjónarsemi.
Í þeim hluta
sögunnar sem er í
samfelldum texta
fær Systa sjálf
orðið. Hún lýsir
veruleika sínum,
hrörlegum húsa-
kynnum, erfiðum
kjörum og striti en ekki síður feg-
urðinni sem finna má í veröldinni og
þakklætinu og kærleikanum sem
enn er þar að finna.
Í leikþáttum verksins fer fram-
vindan fram. Liðið er að jólum og
Systa á í samskiptum við ýmsa sem
hún þekkir, fjölskylduna, Lóló vin-
konu sína með tréfótinn og Ketil,
hinn mikla örlagavald (eða hvað?).
Systa er dásamleg persóna og
vaknar hún vel til lífs á síðum bók-
arinnar. Hún ber verkið á herðum
sér enda skemmtilegur sögumaður
og hugsjónakona. Hún er mjög vel
lesin og frásagnarstíllinn ber þess
merki og gerir textann mjög
skemmtilegan aflestrar.
Hún virðist eins sátt við sínar að-
stæður og hægt er að vera og reynir
að gera það besta úr hlutunum enda
metur hún frelsið mikils, frelsið sem
fylgir því að vera ekki upp á neinn
annan kominn og fá að verja deg-
inum undir berum himni. Frelsið er
kjarninn í togstreitunni sem finna
má á blaðsíðum bókarinnar, innra
með Systu og í veröldinni í kringum
hana.
Það er sárast hvernig Systa talar
um sjálfa sig, eins og hún hreinlega
sé ekki til og birtist þar sú hugmynd
sem hún hefur um álit annarra á sér
og hefur hún líklega, því miður, rétt
fyrir sér.
Við kynnumst einnig bróður
Systu, honum Brósa, mömmu og
pabba hennar sálugum. Mamman og
pabbinn eru eins og svart og hvítt.
Pabbinn var verndarengill þá sjald-
an hann var í landi en mamman er
óttalegt illfygli, eða það þykir þeim
systkinum að minnsta kosti. Systu
sýn á fólkið í kringum sig er mjög
einföld. Hún virðist föst í sýn barns-
ins á foreldra sína. Þessar lýsingar
eru svo svart-hvítar að maður efast
örlítið um sannleiksgildi þeirra og
ljóst er að við sjáum veröldina frá
sjónarhóli Systu og Systu einnar. Ég
saknaði þess að sjá fleiri hliðar á for-
eldrum hennar en hún er fær um að
veita. Það hefði að öllum líkindum
gefið sögu Systu aukna dýpt.
Sagan af Systu er einföld saga,
þótt efniviðurinn hefði vel getað bor-
ið stærra verk og dýpri umfjöllun, en
hún er áhrifamikil engu að síður.
Steinunn meðhöndlar efniviðinn
af virðingu, setur fram raunsæja lýs-
ingu á erfiðu lífi þeirra sem minna
mega sín og lifa utangarðs án þess
að gera lítið úr þeirra aðstæðum og
þeirri leið sem þeir hafa valið í lífinu.
Hún skapar fulltrúa þeirra, persónu
sem er merkileg og marglaga.
Systu megin er saga um það að
vera utangarðs, um harða lífsbaráttu
en líka um fegurð, frelsi og náunga-
kærleik. Þetta er saga sem situr í
manni, og lifir áfram með manni,
þótt einföld sé og fær mann jafnvel
til þess að sjá fólkið sem maður
mætir á götu úti með nýjum augum.
Morgunblaðið/Eggert
Steinunn „Systu megin er saga um það að vera utangarðs, um harða lífs-
baráttu en líka um fegurð, frelsi og náungakærleik.,“ segir rýnir.
Leiksaga
Systu megin bbbbn
Eftir Steinunni Sigurðardóttur.
Mál og menning, 2021. Innbundin, 181 bls.
RAGNHEIÐUR
BIRGISDÓTTIR
BÆKUR
Frelsið býr
utangarðs
Kona – forntónlistarhátíð nefnist
hátíð sem kammerhópurinn
Reykjavík Barokk stendur fyrir í
Hljómahöll í Reykjanesbæ í dag og
á morgun. Hápunktur hátíðarinnar
verður á morgun, sunnudag, kl. 16
þegar nýtt tónleikhús, Sjókonur og
snillingar, verður frumsýnt. Um 80
börn úr Tónlistarskóla Reykjanes-
bæjar taka virkan þátt í sýning-
unni, en hátíðin er haldin í sam-
starfi við skólann.
Samkvæmt upplýsingum frá
skipuleggjendum er markmið há-
tíðarinnar að vekja athygli á tón-
smíðum kventónskálda í gegnum
aldirnar en mörg þeirra hafa ekki
fengið verðskuldaða athygli fyrir
verk sín. „Hátíðinni er einnig ætlað
að stuðla að því að íslensk kven-
tónskáld skrifi ný verk og að tónlist
eftir kventónskáld fyrri alda sé
flutt samhliða tónlist eftir kunna
meistara sígildrar tónlistar. Hátíð-
in heldur fornum íslenskum tónlist-
ararfi á lofti og er ætlað að vekja
athygli á upprunaflutningi á fornri
tónlist,“ segir í tilkynningu. Allar
nánari upplýsingar um hátíðina má
nálgast á Facebook-síðu kammer-
hópsins Reykjavík Barokk.
Aðgangur að hátíðinni er ókeypis.
Forntónlistarhátíð í Hljómahöll
Skapandi Hluti hópsins sem flytur tónleik-
húsverkið Sjókonur og snillingar.