Morgunblaðið - 27.11.2021, Blaðsíða 1
Heillandi
heimurCoco Chanel
Apotek
Atelier
Coco Chanel olli straumhvörfum í tísku og
hönnun á tuttugustu öldinni og gætir áhrifa
hennar enn í ríkum mæli. Heimsókn
hennar í París
28. NÓVEMBER 2021SUNNUDAGUR
Jólasúkku-laði í mið-bænumÞrír hönnuðirtóku höndumsaman ogopnuðu búðá Lauga-veginum. 18
Að grípatækifærin
Forsetafrúin Eliza Reider dugleg að nýta tækifærinsem bjóðast. Hún hefurnú gefið út sína fyrstubók, Sprakka. 10
Í miðbænum má nú kaupaheitt súkkulaði í Hátíðarvagni
Arnfríðar Helgadóttur. 22L A U G A R D A G U R 2 7. N Ó V E M B E R 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 279. tölublað . 109. árgangur .
Mitsubishi Eclipse Cross PHEV
Nýja ljósið í
skammdeginu
Tryggðu þér nýjan tengiltvinnbíl fyrir áramót á frábæru
verði frá aðeins 5.490.000 kr. til afhendingar strax.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · hekla.is/mitsubishisalur
FRÆKINN
ÚTISIGUR Á
HOLLENDINGUM
EIGUM
BARA
EITT LÍF
INGIBJÖRG RÓSA 12UNDANKEPPNI HM 40
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Endurnýjað ríkisstjórnarsamstarf
liggur nú fyrir, stjórnarsáttmáli er
tilbúinn og ekkert er því til fyrirstöðu
að nýtt ráðuneyti Katrínar Jakobs-
dóttur verði myndað á morgun,
sunnudag, að því tilskildu að viðeig-
andi flokksstofnanir stjórnarflokk-
anna fallist á tillögur formanna
stjórnarflokkanna.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins verður nokkurt nýjabrum á
umgjörð ríkisstjórnarinnar, bæði
hvað varðar verkefni og verkaskipt-
ingu. Ýmsir málaflokkar verða fluttir
milli ráðuneyta og ný ráðuneyti
kynnt til sögunnar. Þá munu stjórn-
arflokkarnir skipta á ýmsum veiga-
miklum ráðuneytum og eins verða
talsverðar tilfæringum á ráðherrum.
Ráðherrar hinnar endurnýjuðu
ríkisstjórnar verða tólf talsins í stað
ellefu áður, en hinn nýi ráðherra mun
koma úr röðum Framsóknar til þess
að endurspegla fylgisaukningu
flokksins í þingkosningunum í sept-
ember.
Ört fundað um helgina
Flokksstofnanir ríkisstjórnar-
flokkanna þriggja hafa verið boðaðar
til fundar í dag, laugardag, en ekki er
gert ráð fyrir að þar reynist mikil ef
nokkur fyrirstaða gegn endurnýjuðu
ríkisstjórnarsamstarfi. Leggi þær
blessun sína yfir stjórnarsamstarfið
verður boðað til þingflokksfunda
stjórnarflokkanna í fyrramálið þar
sem formenn flokkanna munu hver
fyrir sig leggja fram tillögu að skipan
ráðherraembætta á vegum flokk-
anna. Þingmenn í stjórnarliðinu segja
afar ósennilegt að þingflokkarnir geri
breytingar á þeim tillögum.
Til stendur að óbreyttu að hin nýja
ríkisstjórn verði kynnt á blaða-
mannafundi á sunnudag kl. 13, þar
sem grein verður gerð fyrir nýjum
stjórnarsáttmála, breyttri skipan
ráðuneyta og hverjir muni gegna ráð-
herraembættum í stjórninni.
Að því loknu verður haldið til
Bessastaða, þar sem hið nýja ráðu-
neyti mun formlega taka til starfa á
ríkisráðsfundi.
Gert er ráð fyrir því að hefðbundin
lyklaskipti ráðherra fari fram þegar á
mánudagsmorgun.
12 ráðherrar í nýrri ríkisstjórn
- Endurnýjuð ríkisstjórn kynnt um helgina - Stjórnarflokkarnir skiptast á veigamiklum ráðuneytum
Stemningin var engu lík í gær þegar söngkonan
Bríet tók lagið ásamt hópi barna og sungu þau
saman inn jólin við opnun Nova-svellsins á Ing-
ólfstorgi. Er þetta í sjöunda sinn sem svellið er
opnað og markar það upphaf aðventunnar í mið-
borg Reykjavíkur.
Verður svellið opnað fyrir almenning í dag frá
og með hádegi og verður það opið alla daga
fram að jólum milli kl. 12 og 22.
Morgunblaðið/Eggert
Jólin sungin inn við opnun Nova-svellsins
Dæmi eru um að einstaklingar sem
eru að glíma við eftirköst veikinda af
völdum kórónuveirunnar hafi leitað
til VIRK starfsendurhæfingarsjóðs
þar sem þeir þurfa á starfsendur-
hæfingu að halda.
Almenn aðsókn í starfsendurhæf-
ingu hjá VIRK hefur farið heldur
vaxandi síðasta misserið. Alls eru nú
2.400 þjónustuþegar í starfsendur-
hæfingu á vegum VIRK um allt
land. 2.011 einstaklingar hafa hafið
þjónustu á yfirstandandi ári og 1.641
þjónustuþegi hefur útskrifast og
lokið starfsendurhæfingu á árinu
samkvæmt upplýsingum Eysteins
Eyjólfssonar, verkefnastjóra al-
mannatengsla og útgáfumála hjá
VIRK. Frá upphafi starfsemi VIRK
hafa ríflega 21 þúsund einstaklingar
byrjað starfsendurhæfingu á vegum
VIRK og á fjórtánda þúsund hafa
útskrifast. »26
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Við störf Flestir sem ljúka starfs-
endurhæfingu fara í vinnu eða nám.
Þurfa end-
urhæfingu
eftir Covid
- Aðsókn hjá VIRK
hefur farið vaxandi