Morgunblaðið - 27.11.2021, Síða 41
Frammistaða Sveindísar
Jane Jónsdóttur í 2:0-sigri ís-
lenska kvennalandsliðsins í
knattspyrnu gegn Japan á
fimmtudagskvöld var ekki
beint til þess fallin að minnka
væntingar manns í garð henn-
ar. Hún lék afar vel, skoraði
eitt mark og lagði upp annað
auk þess að ógna í sífellu með
löngum innköstum sínum þar
sem fjöldi færa, þar á meðal
tvö dauðafæri, sköpuðust í
leiknum.
Framfarir Sveindísar,
sem er tvítug, frá því hún
samdi við þýska stórveldið
Wolfsburg fyrir rúmu ári hafa
verið miklar og reyndist það
mikið heillaskref að fara strax
á láni til sænska félagsins
Kristianstad, þar sem hún lék
undir handleiðslu aðalþjálf-
arans Elísabetar Gunnarsdóttur
og með reynsluboltanum Sif
Atladóttur á liðnu tímabili.
Sveindís hjálpaði liðinu að
ná þriðja sæti sænsku úrvals-
deildarinnar er hún skoraði sex
mörk og lagði upp önnur fjög-
ur í 19 deildarleikjum. Hún
kom að flestum mörkum Kristi-
anstad á tímabilinu en hefur
látið hafa það eftir sér að
henni hafi þótt hún átt að
skora meira.
Að sögn Sveindísar sjálfrar
hefur ekkert verið rætt um að
hún fari aftur á láni til annars
félags á næsta tímabili. Heldur
hún því til Wolfsburg á næst-
unni og stefnir ótrauð á að
gera sig gildandi þar á næsta
ári.
Það verður spennandi að
fylgjast með því hvernig henni
reiðir af í þýsku 1. deildinni en
miðað við þróun hennar sem
leikmanns og það fyrirmynd-
arhugarfar sem hún býr yfir
myndi maður tæpast veðja
gegn því að hún muni láta vel
að sér kveða í Þýskalandi
BAKVÖRÐUR
Gunnar Egill
Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2021
Grill 66-deild karla
Þór – Vængir Júpíters ......................... 28:23
Berserkir – Hörður .............................. 23:33
Fjölnir – Selfoss U ............................... 29:31
Staðan:
Hörður 7 7 0 0 241:194 14
ÍR 6 5 0 1 213:179 10
Fjölnir 7 5 0 2 215:196 10
Þór 7 4 0 3 204:192 8
Selfoss U 5 4 0 1 151:142 8
Afturelding U 6 3 0 3 158:165 6
Haukar U 5 2 0 3 135:132 4
Kórdrengir 5 2 0 3 140:139 4
Valur U 5 1 0 4 140:148 2
Vængir Júpíters 8 1 0 7 185:246 2
Berserkir 7 0 0 7 175:224 0
Frakkland
Dunkerque – Aix ................................. 29:30
- Kristján Örn Kristjánsson skoraði 6
mörk fyrir Aix.
Nancy – Istres ...................................... 23:27
- Elvar Ásgeirsson skoraði 2 mörk fyrir
Nancy.
B-deild:
Nice – Sélestat ..................................... 32:29
- Grétar Ari Guðjónsson varði ekki skot í
marki Nice.
Þýskaland
B-deild:
Dormagen – Emsdetten...................... 18:18
- Anton Rúnarsson skoraði ekki fyrir
Emsdetten.
Danmörk
Kolding – Nordsjælland ..................... 28:28
- Ágúst Elí Björgvinsson varði 1 skot í
marki Kolding.
Svíþjóð
Guif – Sävehof...................................... 24:33
- Aron Dagur Pálsson skoraði ekki fyrir
Guif. Daníel Freyr Ágústsson varði 11 skot
í marki liðsins.
Evrópubikar karla
32ja liða úrslit, fyrri leikur:
Ramat Hasharon – Skövde................. 28:37
- Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 2
mörk fyrir Skövde.
%$.62)0-#
Undankeppni HM karla
E-RIÐILL:
Portúgal – Ungverjaland..................... 75:81
Frakkland – Svartfjallaland................ 73:67
F-RIÐILL:
Litháen – Búlgaría ............................... 89:69
Bosnía – Tékkland................................ 97:90
G-RIÐILL:
Georgía – Úkraína................................ 88:83
Norður-Makedónía – Spánn................ 65:94
H-RIÐILL:
Rússland – Ítalía................................... 92:78
Holland – Ísland ................................... 77:79
1. deild karla
Fjölnir – Sindri ................................... 103:91
Skallagrímur – Álftanes ...................... 79:91
Selfoss – Hamar ................................... 79:76
Haukar – ÍA ........................................ 108:66
Staðan:
Haukar 10 9 1 1037:733 18
Höttur 9 8 1 916:746 16
Álftanes 10 7 3 922:835 14
Sindri 10 6 4 909:862 12
Selfoss 10 5 5 846:869 10
Skallagrímur 10 4 6 830:842 8
Hrunamenn 10 4 6 871:968 8
Fjölnir 9 4 5 788:830 8
Hamar 10 2 8 776:902 4
ÍA 10 0 10 737:1045 0
1. deild kvenna
Ármann – Stjarnan .............................. 86:61
Aþena/UMFK – Snæfell ...................... 75:79
Staðan:
ÍR 6 6 0 497:339 12
Ármann 8 6 2 670:518 12
Þór Ak. 7 5 2 516:455 10
Snæfell 7 3 4 534:539 6
Aþena/UMFK 8 3 5 536:579 6
KR 6 3 3 451:435 6
Hamar/Þór 6 3 3 444:447 6
Stjarnan 7 3 4 487:511 6
Tindastóll 6 2 4 430:471 4
Fjölnir b 6 2 4 356:456 4
Vestri 7 1 6 409:580 2
4"5'*2)0-#
Sindri Kristinn Ólafsson, mark-
vörður knattspyrnuliðs Keflvík-
inga, verður næstu daga til reynslu
hjá danska B-deildarliðinu Esbjerg.
Sindri er 24 ára gamall en hann
hefur verið aðalmarkvörður Kefl-
víkinga frá 2015 og leikið 122 leiki í
tveimur efstu deildum Íslandsmóts-
ins. Með Esbjerg leikur yngri bróð-
ir Sindra, miðvörðurinn Ísak Óli
Ólafsson, en hann kom til félagsins
frá SönderjyskE síðasta sumar.
Sindri í lið með
bróður sínum?
FÓTBOLTI
Aron Elvar Finnsson
aronelvar@mbl.is
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Ís-
lands- og bikarmeistara Víkings í
knattspyrnu, var sáttur að loknum
blaðamannafundi í gær þar sem
tveir leikmenn voru kynntir til leiks.
Davíð Örn Atlason og Karl Frið-
leifur Gunnarsson skrifuðu undir
þriggja ára samninga við félagið.
Davíð snýr aftur frá Breiðabliki
eftir árs fjarveru og Karl var í láni
hjá Víkingum frá Blikum í ár.
„Ég er ótrúlega sáttur við þetta
og hvernig félagið er að styðja við
mig í að gera þetta að alvöruhópi.
Ekki vantar leikina á næsta ári og
við ætlum að verja báða titlana og
ná eins langt og hægt er í Evr-
ópukeppninni. Svo sjá allir hversu
mikilvægir bakverðir eru í nútíma-
fótbolta, við sjáum það hjá liðum
eins og Chelsea, Liverpool og Man-
chester City. Davíð og Kalli eru
ekki bara hægri bakverðir, þeir geta
leyst stöðu miðvarðar, vinstri bak-
varðar og kantmanns ef því er að
skipta. Þeir eru mjög fjölhæfir og
geta leyst ýmsar stöður. Það eru
endalausir möguleikar og svo þurf-
um við líka að vera viðbúnir því að
menn meiðist. Í ár vann hópurinn
titilinn, ekki byrjunarliðið,“ sagði
Arnar við Morgunblaðið.
Mikil umræða hefur verið um
Valgeir Valgeirsson leikmann HK
og að hann sé mögulega á leið til
Víkings.
„Það er erfitt að tala um leikmenn
sem eru samningsbundnir öðrum fé-
lögum, en ég get alveg lýst því yfir
að við höfum mikinn áhuga. Við-
ræður við HK hafa verið á vinalegu
nótunum en þeir vilja að sjálfsögðu
halda í sína bestu leikmenn. Það
verður bara að koma í ljós hvernig
það þróast.“
Einnig hefur verið rætt um að
Víkingar vilji bæta við sig varn-
armanni. Arnar staðfesti það en sá
leikmaður kemur þó ekki strax.
„Okkur liggur ekkert á í því. Kyle
[McLagan, kom frá Fram í vetur]
kemur ekki fyrr en í janúar og Hall-
dór Smári er í aðeins lengra fríi en
aðrir, svo við erum í smá mið-
varðakrísu núna. Á meðan verða
aðrir að leysa þá stöðu en það væri
óskandi að bæta við einum miðverði
en okkur liggur ekkert á því.“
Varðandi mögulegt brotthvarf
Atla Barkarsonar og Kristals Mána
Ingasonar í atvinnumennsku sagði
Arnar að það kæmi að því.
„Þeir fara út á einhverjum tíma-
punkti. Það er bara spurning hvort
það verði í ár eða á næsta ári. Ég vil
fá þá út en mér finnst líka mjög
spennandi fyrir þá að taka þátt í
næsta sumri með okkur. Bæði að
verja þessa titla og líka mögulega að
verða hluti af liði sem stefnir að því
að ná lengra í Evrópukeppni en ís-
lensk lið hafa náð áður. Mig langar
að þeir fari út en ef ég á að vera eig-
ingjarn þurfa þeir þess kannski ekki
alveg strax.“
Víkingur er á leið í Evrópukeppni
og eru markmiðin sett hátt.
„Möguleikarnir eru meiri eftir að
hafa unnið titilinn. Þá byrjum við í
forkeppni Meistaradeildarinnar og
ef það klikkar förum við í forkeppni
Evrópudeildarinnar. Það eru mögu-
leikar þarna en auðvitað þurfum við
að vera heppnir með drætti. Í mín-
um augum snýst þetta um að vinna
liðin sem eru jafnsterk og við en ef
við lendum gegn liðum eins og Cel-
tic eða Bodö/Glimt sem lítill mögu-
leiki er að vinna, þá viljum við alla
vega sýna góða frammistöðu. Með
því getum við bætt ímynd íslensks
fótbolta, eins og Breiðablik gerði
mjög vel í ár. Önnur lið hafa
kannski ekki gert það nægilega vel,
jafnvel verið að spila illa og ekki
auglýst íslenskan fótbolta nógu vel,“
sagði Arnar Gunnlaugsson.
Getum bætt ímynd íslensks fótbolta
- Arnar segir að Víkingar ætli sér
langt í Evrópukeppni á næsta ári
Morgunblaðið/Aron Elvar
Víkingur Karl Friðleifur Gunnarsson og Davíð Örn Atlason skrifuðu báðir
undir þriggja ára samning við Íslands- og bikarmeistarana í gær.
Manchester United náði í gær sam-
komulagi við rússneska knatt-
spyrnufélagið Lokomotiv Moskva
um að fá Ralf Rangnick, yfirmann
knattspyrnumála hjá félaginu, til
starfa. Hann tekur við sem knatt-
spyrnustjóri United til bráða-
birgða, út þetta tímabil, og er síðan
í framhaldi af því ráðinn í starf ráð-
gjafa hjá félaginu til næstu tveggja
ára. Rangnick er 63 ára Þjóðverji
sem síðast stýrði RB Leipzig og var
yfirmaður knattspyrnumála þar en
þjálfaði áður m.a. Hoffenheim,
Schalke, Hannover og Stuttgart.
Rangnick kemur
til United
Reuters
Þjóðverji Ralf Rangnick er á leið-
inni til Manchester United.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir átti
góðan dag á lokamóti Evrópumóta-
raðar kvenna í golfi í Andalúsíu á
Suður-Spáni í gær. Guðrún var á
meðal neðstu keppenda eftir fyrsta
hringinn, sem hún lék á 79 höggum.
Í gær lék Guðrún hins vegar á 70
höggum, tveimur höggum undir
pari. Hún vann sig þar með upp um
tuttugu sæti og er í 48.-54. sæti af
72 keppendum þegar tveimur
hringjum er lokið af fjórum á sam-
tals fimm höggum yfir pari. Guðrún
náði tíunda besta skorinu af öllum
keppendum í gær.
Guðrún sneri
blaðinu við
Ljósmynd/GSÍ
Sjötíu Guðrún Brá Björgvinsdóttir
átti mjög góðan hring í gær.
Alexander Petersson, landsliðsmaður í handknattleik,
komst á dögunum í fámennan hóp þeirra sem hafa spilað
500 leiki í þýsku 1. deildinni, sterkustu deild félagsliða í
heiminum. Handboltasérfræðingurinn Fabian Koch birti
í gær lista yfir 15 leikjahæstu leikmenn deildarinnar
sem hafa náð 500 leikjum og Alexander er þar í fjór-
tánda sæti með 502 leiki. Aðeins einn annar erlendur
leikmaður er á listanum en sænski markvörðurinn
Mattias Andersson lék 569 leiki í deildinni.
Alexander, sem er orðinn 41 árs gamall, hefur spilað í
deildinni í sextán ár, með Düsseldorf, Grosswallstadt,
Flensburg, Füchse Berlín, Rhein-Neckar Löwen og nú
síðast Melsungen.
Margir af bestu handboltamönnum Þjóðverja eru á listanum. Markverð-
irnir Carsten Lichtlein (686) og Jan Holpert (625) eru leikjahæstir en síðan
koma Christian Schwarzer (600), Henning Fritz (589), Volker Zerbe (586),
Johannes Bitter (574), Stefan Hecker (561), Michael Haass (552), Holger
Glandorf (543), Silvio Heinevetter (539) og Andreas Thiel (528).
Kominn í fámennan hóp
Alexander
Petersson
Haukar eru komnir til rúmensku borgarinnar Focsani
þar sem þeir mæta heimaliðinu í 32ja liða úrslitum Evr-
ópubikars karla í handknattleik í dag. Þetta er fyrri við-
ureign liðanna sem mætast aftur á Ásvöllum um næstu
helgi.
Bæði lið fóru auðveldlega í gegnum síðustu umferð.
Haukar unnu Strovolou í tveimur leikjum á Kýpur með
ellefu og tólf marka mun, þar sem Stefán Rafn Sig-
urmannsson skoraði mest, alls 15 mörk, og Focsani vann
Kärjang frá Lúxemborg með átta og sjö marka mun.
Haukar mæta til leiks sem topplið úrvalsdeildar en þeir
hafa með Evrópuleikjunum unnið níu leiki og aðeins tap-
að einum af fyrstu tólf leikjum tímabilsins.
Focsani er í sjötta sæti rúmensku þjóðardeildarinnar með sjö sigra og
eitt jafntefli í tólf leikjum. Liðið hefur til þessa ekki blandað sér í baráttu
um stóru titlana í landinu. Fjórir erlendir leikmenn, serbneska skyttan Fi-
lip Marjanovic sem skoraði 13 mörk í leikjunum við Kärjang en hinir koma
frá Rússlandi, Bosníu og Norður-Makedóníu.
Haukar mættir til Rúmeníu
Stefán Rafn
Sigurmannsson